Tíminn - 25.10.1970, Qupperneq 2
TÍMINN
LAUGARDAGUR 24. október 1970
Hugo og Jósefína
Leikstjóri: Kjeil Grede; hand-
rit eftir hann og Maria Gripe,
byggt á samnefndri bók henar.
Kvikmyndífti. Zisse Björne; —
tónlist: Torbjöm Lundqvist.
Sænsk frá 1969. Sýningartími
82 mín. SýningarstaSur:
Stjörnubíó. — íslenzkur texti.
Myndin er í Iitum.
„Barnamynd fyrir fullorðna"
segir Peter Cowie um þessa
tnyad. Það má til sanns vegar
færa, því myndir um börn
eru ekki eingöngu fyrir þau.
Frægt dæmi er „Jaux Inter-
dits“ Forboðnir leikir eftir
René Clement, sem sjónvarpið
sýndi 1968.
Þetta er bráðskemmtileg,
falleg og afar vönduð mynd,
það er brot af bernsku okkar
í henni.
Jósefina (Marie Öhtnan) býr
út í sveit, pabbi er prestur og
hefur aldrei tíma til að sinna
henni, mamma er líka önnum
kafin.
Allt í einu birtist Guðmars-
son (Beppe Wolgers) í gauð-
slitnum karbættum vinnubux-
utn. Hann verður garðyrkju-
maður á prestsetrinu, og kem-
ur Josefinu í kynni við Hugo
(Fredrik Beeklén), einarðan og
hugrakkan snáða, „sem býr ein
hvers staðar út í skógi“.
Myndin segir frá leikjum
barnanna og uppátækjum
þeirra. Hún lýsir falslausri vin-
áttu þeirra, lífsbaráttu Hugos,
fyrstu kynnum þeirra af skóla,
á heillandi hátt.
Þetta eru engin munstur-
börn, þau eru frjálsleg og
óþvinguð, full af ímyndunuim
'oernskunnar, og barmafull af
gleði yfir þessum dásamlega
heimi sem þau kynnast.
Þó að það sé mikið af fegurð
og sutnri og sól í þessari mynd
er e'kki gengið á snið við raun-
veruleikann. Allir vita hve
börn geta verið miskunnarlaus
Og miklir sannleiksvinir, Hugo
og Jósefina fá sinn skerf, ann
ars væri bernskumyndin ekki
heil.
Gudmarsson verður í með-
förum Wolgers umvafinn mik-
illi hlýju og ljóma, hann er
í senn verndari barnanna og
leikfélagi þeirra.
Þörf fyrir vináttu .skilning
og samúð er rík í hverjum ein
statying „hver er ekki ein-
mana“, segir gamla konan þeg-
ar Jósefína kvartar, en sér-
staklega er bernskan viðkvæm
fyrir sáruen.
Leikir barnanna eru oft stór
hættulegir, t.d. þegar þau eru
í skúffu moksturstækis, en
flest okkar eigum við minn-
ingar um stórhættulega leiki.
Prýði myndarinnar fyrir utan
Á myndinni sjást Marie Öhman í hlutverki Jósefínu og Frede-
rik Becklén í hlutverki Hugos.
stórfallega myndatöku Björne
og næstum gallalausa klippingu
Lars Hagström, er uppgerðar
laus og eðlilegur leikur barn-
anna, þau eru satnvalin.
Þetta er fyrsta stórmynd
Kjell Grede, sem kvæntur er
Bibi Anderson, hinni frægu
Bergmannsleikkonu, en mót-
tökurnar sýna að hann hefur
farið rétt af stað.
Það eru örfáir byrjendagall-
ar, of langar tökur, atriði sem
betra væri að lýsa svolítið
meira og smákeimur af staðn-
aðri sviðsetningu í skólagarð-
inutn.
En þessir smágallar undir-
strika aðeins gildi myndarinn
ar, sem er heiðarleg og sönn
lýsing á vináttu tveggja barna.
Erlendir gagnrýnendur skrifa
mjög lofsamléga um myndina
og einn þeirra skrifar: „For-
eldrar, takið eftir! Hugo og
Jósefína er kvikmynd, setn
börnin ykkar verða að sjá“.
Ég vil bæta við: Farið líka og
þið verðið ekki fyrir vonbrigð-
um. P.L.
Félagsmálaskólinn
settur á mánudaginn
Félagsmálaskól Framsólknar-
flokksins verður settur mánudag
ínn 26. október kl. 20,30 í Glaum
bæ, uppi. Formaður skólastjórnar.
Jónatan Þónmundsson, flytur
setningarávarp. Einar Ágústsson
varaformaður Framsóknarflokks
ins flytur stutta ræðu. Skólinn
verður í tveimur deildum i vet-
ur — undirbúningsdeild og fram-
‘haldsdeild. Væntanlegir þátttak
endur eru beðnir að tilkynna þátt
töku sína á skrifstofu Framsóknar
flokksins, sími 24480, eða
til stiórnarmanna Félagsmálaskól
ans, en þeir eru Jónatan Þór-
Jónatan Einar
mundsson, sími 17842 og 18460
Sveinn Herjólfsson, sími 14602 og
Gunnar Gunnarsson sími 35120.
BILALEIGA
IIVERFISGÖTU 103