Tíminn - 25.10.1970, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.10.1970, Blaðsíða 9
WWNUDAGUR 25. október 1970 TIMINN 9 •• li.i ■'•'l.iV " sunna Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðheiTa. — Vill hann gef* skýringu á því hvers vegna dregizt hefur að leggja fram frumvarp um ný lög fyrir íþróttakennaraskólann? VILL RÁÐ- I ' HERRANN SVARA? Það er kumara en frá þurfi að segja, að íþróttakennara- skóli fslands býr við knöpp kjör og er engan veginn sýnd- ur sá sómi, sem skólanum ber. Stafar það annað hvort af furðulegu áhugaleysi núver- andi menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar, á málefn- um skólans, eða þá að fjár- veitingavaldið setur stólinn fyrir dyrnar. Trauðla verður sagt, að skól- inn sé fær um að gegna því hlutverki, sem honum er aetl- að. Enn sem fyrr er skólinn aðeins 9 mánaða skóli, þó að bllum sé ljóst, að útilokað er að komast yfir allt námsefni skólans á svo skömmum tima. Fyrir einum fimm eða sex árum voru samin drög að nýj- um lögum fyxir skólann. Hafa þau síðan legið í skúffu hjá menntamálaráðherra — og munu gera það áfram, því að í frumvarpi til fjárlaga fyrir 1971, er ekki gert ráð fyrir auknum framlögum til skólans. Þetta sinnuleysi um málefni fþróttakennaraskólans hlýtur að vera skólamönnum, og raun ar öllu íþróttafólki, mikið áhyggjuefni. íþróttakennsla er skyldunámsgrein í skólum og varðar miklu, að hæfir menn annist hana. Er ekki nema eðli legt, að sú spurning vakni, hvort fólk, sem hefur aðeins 9 mánaða nám að baki ,sé fært um að annast íþróttakennslu, á sama tíma og örar framfarir hafa orðið á þessu sviði og auknar kröfur gerðar um al- hliða þekkingu íþróttakennara á kennsluháttum, lífeðlisfræði, líffærafræði, uppeldis- og sálar- fræði og öðrum þáttum, er lúta að íþróttakennslu, fyrir utan alla sérgreinakennslu.' Verði lögum um skólann breytt, verður breytingin á þá lund, að skólaárin verða tvö í stað eins áður. Með því gæf- ist rýmri tími til að fara yfir námsefnið, auk þess, sem nem endum gæfist kostur á að velja sérgrein síðara námsárið, t. d. í knattspyrnu, handknattleik, 'körfuknattleik, sundi eða frjáls íþróttum. Með því væri tryggt að árlega úts'fcrifuðust íþrótta- kennarar { hinum ýmsu íþrótta greinum, sem stundaðar eru hér á landi, og væri það hinni frjálsu íþróttahreyfingu til mikils gagns. Skólastjóri fþróttakennara- skólans, Árni Guðmundsson, hefur hvað eftir annað bent á nauðsyn þess, að skólinn yrði lengdur, og varað við þeirri hættu, sem skapast, ef það verð ur efcki gert. En hann hefur ávallt talað fyrir daufum eyr- um. S'ömuleiðis hafa íþrótta- þing á undanförnum árum sam þykkt áskoranir um þetta sama efni, en ekki hefur mennta- málaráðherra haggazt. Væri fróðlegt að fá svör frá ráðherra við því, hvers vegna dregizt hefur að leggja fram frumvarp um ný lög fyrir íþróttakennaraskólann. Tæp- lega getur það stafað af mikl- um aukakostna'ði, því að ekki þarf að stækka skóiann, þó að námstíminn verði lengdur. Er hér með skorað á menntamála ráðherra að gefa skýringar á þessum drætti. Víst er um það, aö margir bíða svars. — alf. AÐ ÞAÐ ER VETUR Á ÍSLANDI EN SUMARIÐ HELDUR ÁFRAM Á MALLORCA Gerið ekkt eine og ntrúturinn, að stimga hausnium i sand- iinn og lotoa augunum fyrir staöreyndum. Þó aS kaldur vetur blási á íslaindi, er sói og sumar á MaBorea, þar sem appeMnur falia af trjánum fullþrosk. a6ar f janúar. — Hvers vegma er Mallorea fjölsótitasta ferðamannapairadís Evrópu? Vegna þess, að þar er sól og sumar afflian ánsdns hiring! Hótelin, sólin, sjórinn og skemmtanalífið eins og fólk viiH hafa það. Stutt að fara til stórborgá Miðjarðarhafs, Nizza, Barce- lona, Madrid og Alsír, Samkvæmt upplýsingum spönsku veðurstofunnar er hit- inn og sólin örugigari og jafnari á Mallorca allan ársins hring, en á nokikrum öðrum stað á Spáni. Aðeins SUNNA býður fslendingum ódýrar ferðir til Mailorca allan ársins hring. Eigin skrifstofa, meS is- lcnzku starfsfólki, í Mallorca. HálfsmánaSarferS til Mallorca. VerS frá kr. 11.800,00. Sérstakur hópferSaafslátfur fyrlr starfsmannahópa. TaklS sumarleyfl aS vetrl til I Mallorca-sól. HRflASKRIFSTOFAH SUNNA BANKASIRIETI SIMAR1640012070 'i„ tnjoyed in over 70 countries around the vvorld: HOUSE OF EDGEWORTH MAKEKS OF FINE TOBACXOS SINCE 1877 America's Largest Expófters öf SmokingTob.accps.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.