Tíminn - 25.10.1970, Qupperneq 3
SUNNUfciíGUR 25. október 1970
TIMINN
3
UMSJÓN:
EINAR
BJÖRGVIN
Kristín Nefer, vinkona Jimi Hendrix segir:
Hafði það ailtaf á tílfiimíng-
unni að Hendrix yrði ekki
langlífur
— Ég verð ekki nema 28 ára,
sagði Jimi Hendrix við hina 24
ára ljósmyndafyrirsætu Kristen
Nefer. — Ætlar þú að gráta
þegar ég dey? spurði Hendrix.
— Já, sagði Kristen, ég mun
gráta, en ekki leugi.
Nú er Jimi Hendrix látinn og
í dag segir Kristín: — Ég á
drauminn, ég á minningarnar
og þeim glata ég aldrei.
Kristín Nefer er dönsk. Hún
og Jimi Hendrix voru mikið
saman síðustu vikurnar fyrir
dauða hans. Þau voru saman á
Isle of Wight og þegar Jimi
Hendrix fór í síðustu hljóm-
leikaferð sína til Danmerkur
skömmu fyrir hi.nn hörmulega
atburð. Þar heimsótti hann m.
a. fjölskyldu Kristínar. — Og
þau voru saman í London, þar
sem Kristín hefur nú búið í tvö
ár.
Þegar vinkona Kristínar köm
heim til hennar með fregnina
um dauða Jimi Hendrix, fé'kk
það mjög á Kristínu og sam-
dægurs fór hún frá Lon-
don til þess að sleppa
við spurningar hinna forvitnu
og komast hjá alls kyns mis-
skilningi .— Það er nefnilega
ekki víst, hvað ég hefði getað
sagt þessa dimrnu daga,
segir Kristín nú, þegar hún er
búin að jafna sig. í stað þess,
að ganga um í sorgarfötum og
með sorgarband á enni þá setti
hún nauðsynlegasta klæðnað nið
ur í ferðatösku og fór með lest
út í sveit. — Jimi hafði dálæti
á liturn. Hann sagði einu sinni:
Maður á ekki að leggjast í sorg
og myrkur ef vinur manns
deyr. Hann fer bara á annan
stað og betri, útskýrir Kristín.
— Þegar við Jimi vorum sam
an ræddum við mikið um dauð-
ann, og nú er það, sem hann
sagði, orðið annað en það var
áður en Jimi dó. Frá fyrstu
kynnum okkar, töluðum við
saman um allt mögulegt. Við
ræddum um líf og dauða, trú
og lífsverurnar. Innst í hugar-
heimi mínum var ég fullviss
um að hann mundi deyja ung-
ur. Hann spurði mig dag einn,
hvort ég gæti hugsað mér að
fremja sjálfsmorð.
— Nei ég er of mikii bleyða
til þess að geta framið sjálfs-
morð, var svar mitt.
— En það gæti ég, sagði
Jimi, en rétti tímnin til þess,
er ekki enn þá runninn upp.
Og Kristin heldur áfram: —
Jimi gat ekki hugsað sér að lifa
mörg ár til viðbótar. Þrýsting-
urinn að utan og þrýstingurinn
að innan var of mikill. Hann
hugsaði of mikið um dauðann,
en samt sem áður virtist mér
hann allíif vera hræddur við
dauðann. Fólk talar oft svo mik
ið um það, sem það óttast. Jimi
hafði háleitar hugsjónir. Hann
vildi að allir lifðu í friði. Þeg-
ar við vorum heima í'Dán-
mörku hjá fjölskyldu minni
sagði hann: — Þetta er fjöl-
skylda og þið innan hennar
eruð góð hvort við annað. Hvers
vegna geta ekki allir verið það?
— Eftir dauða hans finnst
mér allt samneyti mitt við Hend
rix vera draumur, og það er
einkennilegt að hugsa til þess,
að al'lt það sem við upplifðum
saman hafi verið raunveruleiki.
Það var draumheimur sem við
lifum í, og við vorum saman
hátt uppi og við vorum saman
djúpt niðri, og ég upplifði
hluti, sem ég hefði aldrei áður
trúað að ég ætti eftir að upp-
lifa.
— Þegar Jimi Hendrix stóð
á sviðinu fannst mér, að ég
ætti að vera þar lí'ka. Mér
fannst, eins og hann gæti ekki
staðið þar aleinn. Og mér
fannst, að hann þyrfti að kom-
ast af sviðinu, þyrfti að komast
þaðan sem fyrst. . . og við töl-
uðum sarnan um hús og börn
og allt mögulegt, sem við ætl-
uðum.að gera saman.
Kristína Nefer hefur nú, feng
ið fyrsta hlutverk sitt í kvik-
mynd og á að hefja töku henn-
ar, nú síðast í mánuðinum. Þótt
lítill tími sé til stefnu er Krist-
ín í vafa um hvort hún vilji
taka hlutverkið að sér. Sem
stendur er Kristín heima í Kaup
mannahöfn til þess að hvíla
sig eftir allt það sem á undan
er gengið. — Ég get varla ham-
ið skap rnitt, yfir öllu því sem
sagt er og skrifað um Jimi eft-
ir dauða hans. Þáð er allt sam-
an um ytri persónuleika þess
Jimi, sem gat átt það til að
hringja heim til móður minnar
tala við hana í hálftíma og
spyrja svo allt í einu: — Trú-
ir þú á guð? Ertu hrædd við
dauðann?
Að lokum segir Kristín: —
Það er eitthvað sem ég á innra
með mér, eitthvað sem er fall-
egt og sterkt. . .
Mick Jagger sem Ned Keliy
„Kelly-bræðurnir“
er sögð heldur slæm
Um þessar mundir er verið
að sýna kvikmyndina „Kelly-
bræðurna“ víða í löndum Vest-
ur-Evrópu. Um þessa mynd var
nokkuð rætt í blöðum hérlend-
is, þegar taka hennar fór fram
í fyrrasumar í Ástralíu. Var rit
að um hana hér vegna þess að
Mick Jagger leikur aðalhlut-
verkið í myndinni. Fer Jagger
með hlutverk þjóðsagnapersón-
unnar Ned Kelly, sem sagður
var írskættaður Ástralíubúi og
átti að vera uppi í síðari hluta
nítjándu aldar. Æviferill Ned
Kellys þótti vafasamur og sann
arlega mun hann hafa verið
ævintýraríkur þótt stuttur væri.
Ned Kelly hefur stunduni verið
nefndur „Hrói höttur Ástralíu“
Tony Richardsson heitir sá
maður er kvikmyndina gerði.
Hefur hann verið gagnrýndur
mikið fyrir þessa mynd. Þykir
mörgum er séð hafa myndina,
Richardson breyta persónunni
Ned Kely allverulega og notar
hann sem táknrænan mann fyr-
ir uppreisn æskunnar nú á dög-
um. Kvikmyndagagnrýnandi
Ekstrablaðsins í Kaupmanna-
höfn, segir Riehardson hafa
gert Ned Kelly óeðlilegan í þess
ari mynd. Myndin hafi verið
gerð með þjóðfélagsádeilur
fyrst og fremst í huga, en ekki
til að skýra sem sannast frá
æviferli Ned Kellys. Þetta geri
myndina óraunverulega og með
þeim leiðinlegustu, sem hann
hafi séð. Þá segir gagnrýnand-
inn ennfremur, að Mick Jagg-
er hafi uppgötvað, begar hann
lék í myndinni, að Ned Kelly
hafi verið eigingjarn maður og
snortinn kvalalosta — en ekki
sá hugsuður og Richardson
Framhald á bls. 11.
Kristín Nefer og Jimi Hendrix nokkrum vikum fyrir dauða Jimi
Savage Rcse
breyta um stil
Um þessar mundir er að
koma út í Danmörku, ný LP
plata með Savage Rose. Nefnist
platan „Your Dajly Gift“. — Að
því er aðalpersónuleiki hljóm-
sveitarinnar, söngkonan Anni-
ette segir í viðtali við Ekstra-
blaðið fyrir viku, kemur
ljóst fram á plötunni þær breyt
ingar sem hljómsveitin gerir nú
á tónlistaflutningi sínum. — Nú
byrjum við fyrir alvöru að gera'
2itthvað, segir Annisette í viðtal
inu við blaðið og bætir við: —
Það er dásamlegt að vita um
þessar breytingar.
Fyrir rúmri viku kom
Savagp Rose fram á hljóm-
leikum í Kaupmánnahöfn. Er
nú orðið alllangt um liðið síð-
an hljómsveitin hefur komið
þar fram. í sumar hefur hljóm
sveitin nefnilega verið á hljóm-
leikaferð um Bandaríkin, bar
sem henni var mjög vel tekið.
Síðan hélt hún til Rómaborgar
og þar var fyrrgreind plata til.
— Savage Rose er tvimælalaust
vinsælasta hljómsveitin sem við
Norðurlandabúar eigum í svip-
inn. Hér á landi hafa oft heyrzt
lög með hljómsveitinni, og plö*
ur með henni fást hér. Hin úfna
söngkona hljómsveitarinnar
Annisette, er vafalaust aðal or-
sök fyrir þessum vinsældum
hljómsveitarinnai
Að lokum sakar ekki að geta
þess, að Annisette. á systur Rudi
að nafni, og var hún fræg
barnastjarna. Rudi er gift
danska knattspyrnumannin-
um Harald Nialsen, sem itaiir
keyptu fyrir allmörgum árum.
Nú er Harald sagður orðinn
svo lélegur knattspyrnumaðux.
að ítalir hafa fullan hug á því
að senda hann aftur ti! síns
heimalands — en betta kemur
Savage Rose reyndar ekkert við