Tíminn - 28.11.1970, Qupperneq 16
Breytingar á leiba-
kerfi Strætisvagna
Kópavogs 1. des.
BAZAR FRAMSÚKNARKVEN NA ER í DAG
Nú í haust hefur faí'ið fram
allnákvæm athugun á leiðakerfi
Strætisvagna Kópavogs, m.a. af
nefnd, sem til þess var kosin af
bæjarstjórn. Fullt samkomulag
náSist um nokkrar breytingar,
sem nú eiga að koma til fram-
kvæmda 1. desember, en jafn-
framt gert ráð fyrir því, að ný
athugun fari fram þegar skipu-
lag miðbæjarins í Kópavogi cr
fullmótað. Fullt samráð hefur
verið haft við vagnstjórana um
þær breytingar, sem nú eru gerð-
ar.
Með því, að viðskiptalíf og at-
vinnufyrirtæki hafa á liðnum ár-
um færzt frá mio'borg Reykjavík-
ur og dreifzt meðfram Laugavegi
og Suðurlandsbraut hafa óskir við-
skiptamanna vagnanna beinzt
mjög, að því að tengja vagnana
við þau hverfi.
Nú hefur fengizt leyfi Reykja-
víkurborgar fyrir þvi, að vagnarn-
ir aki um Hverfisgötu, Laugaveg
Almennur fundur í
Glaumbæ 3. desember
,Er íþrótta-
kennslan van-
rækt í skólum?'
Féiag ungra framsóknairmanna i
Reykjavík heldur almemnan fund
fimmtudaginm 3. deseimber nk. ld.
20,30 í Glaumbæ.
g|é| Fondarefni:
I Er íþróttaitoenmela
|| vanræfct í skólum?
Frummælandl:
^|| Alfreð Þorsteins-
'; son, fþróttafrétta-
m < ritari.
Iþróttanefndum
! skólanma og
I iþróttakennurum
er sérstaklega boðið á fundinn.
Fundarstaður auglýstur siðar. —
Stjórmin.
og Kringlumýrarbraut. Þurfa
vagnarnir því lengri tíma í hverja
ferð og var þvi nauðsynlegt að
breyta ^ætlun vagnanna fyrir há-
degi, en um leið er bætt við
tveimur ferðum á mesta annatími
vagnanna á morgnana. Tímajöfn-
un vagnanna verður áfram fyrst
um sinn í Lækjargötu, en bið-
tími þar verl'ur oftast stuttur.
Farþegar, sem koma frá Land-
spítalanum eða Umferðarmiðstöð-
inn geta tekið vagnana við gamla
Kennaraskólann, þegar vagnarnir
koma úr Kópavogi. Að öðrum
kosti verða farþegar úr því borg
arhverfi að fara niður á Hverfis-
götu í veg fyrir vagnana.
Nokkrir annmarkar eru á því
að fá biðstöðvar fyrir vagnana við
götur í Reykjavík og eru því bió'-
stöðvair str.jálli en æskilegt væri.
Veruleg fjölgun verður þó á bið-
stöðvum með þessu nýja leiða-
kerfi. Á Hverfisgötu verður bið-
stöð fyrir innan Vatnsstíginn við
verzlun KRON, önnur við Hlemjn-
torg fyrir innan Rauðarárstíg og
sú þriðja við Laugaveg 178. Á
Kringlumýrarbraut verður ein
bicjstöð fyrir sunnan Miklubraut
og önnur við Sléttuveg.
Innanbæjar í Kópavogi verða
mjög litlar breytingar gerðar á
Fi.-mhald á bls. 14
Félag framsóknarkvenna
heldur bazar í dag, laugardag-
inn' 28 nóvember, og hefst
hann að Hallveigarstöðuni kl.
2. Margt einstaklega fallegra
og vclunninna muna er á baz-
arnum, og henta þeir sérlega
yel til jólagjafa. Ljósmynd-
ari blaðsius leit inn hjá baz-
arkonum þar sem þær voru
að koma fyrir vörunum, og má'
sjá af myndinni, að úr mörgu
er að velja. Mikið er á boð-
stólum af alls kyns uppstopp-
uðum dýrum og skemmtilegar
liandgerðar brúður. I»á mátti
sjá ryapúða, prjónavörur og
margt og margt fleira. Auk
þess verða á boðstólum kök-
ur. Þær konur, sem ætla að
koma mcð kökur á bazarinn
þurfa að koma með þær á
Hallveigarstaði eftir kl. 10 i
dag, cn eins og fyrr getur verð
ur bazarinn opnaður kl. 2.
Komið og sjáið það fallega,
nytsama og skemmtilega, sem
þarna verður, og þið getið
verið viss um, að þið farið
ánægð heim með jólagjafir
sem munu gleðja þá, sem þær
fá. (Tímamynd GE).
Sambandsstjórn ASÍ
krefst nýrra samninga
EJ—Reykjavík, föstudag.
Sambandsstjórn Alþýðusam-
bands íslands lýsti því yfir í dag,
að vegna samþykktar alþingis á
frumvarpi til laga um ráðstafan-
ir til stöðugs varðlags og at-
vinnuöryggis væri grundvelli
samninganna frá 19. júní s.l. og
síðar kippt brott og þeir því úr
gildi fallnir. Var miðstjórn ASÍ
falið að hafa forgöngu um mynd
un sameiginlegrar nefndar, sem
falið verði að krefjast nýrra kjara
samninga með þá lágmarkskröfu,
að atvinnurekendur bæti að fullu
í launum þá beinu skerðingu, sem
launafólk verður fyrir vegna sam-
þykktar frumvarpsims.
Fundur sambandsstjórnarinnar
hófst kl. 17 í gær og stóð þá
fram á kvöld, en hófst síó'an að
nýju í morgun og lauk um kvöld
matarleytið.
Alyktun fundarins um k.jara-
málin er svohljóðandi:
„Sambandsstjórn Alþýðusam-
bands íslands lýsir samþykki sínu
við ályktun miðstjórnar sambands
ins frá 10. nóv. s.l. um frv. „til
laga um ráðstafanir til stöðugs
verðlags og atvinnuöryggis“ sem
Alþingi hefur nú samþykkt og
afgreitt sem lög. Sambandsstjórn-
in ítrekar það meginefni álykt-
unarinnar, að með samþykkt laga
þessara sé gi-undvelli samninganna
frá 19. júní -s.l. og síðar kippt
brott og þeir því úr gildi falln-
ir, hvað öll kaupgjaldsákvæði
áhrærir.
Sambandsstjórnin samþykkir aó'
fela miðstjórn að hafa forgöngu
um myndun sameiginlegrar nefnd-
ar sem falið verði það hlutverk,
að krefjast nýi'ra kjarasamninga
með þá lágmarkskröfu, að at-
vinnurekendur bæti að fullu í laun I þvinguðu breytinga á grundvelli
um þá beinu skerðingu, sem launa- kaupgreiðsluvísitölunnar, breyt-
fólk verður fyrir vegna hinna lög-1 Framhald á bls n
Maður beið bana er
hans fauk út af veginum
JÞ-Siglufirði, föstudag.
Jón Gunnar Þórðarson, síma-
verkstjóri, Hverfisgötu 34, Siglu-
firði, lézt af slysförum í gær. Jón
Gunnar var að koma frá Sauo'a-
nesvita er bíll hans fauk út af
veginum, er liggur frá vitanum
upp á Siglufjarðarveg, skammt
vestan Strákagangnanna.
Fór bíllinn um 100 metra niður
bratta brekku og alla leið niður
í fjöru. Var Jón Gunnar látinn er
að var komið. Annar bíll var
skamrnt á eftir og sá bílstjóri
hans er slysið varð. Veðurhæðin
var um þessar mundir níu til tíu
vindstig á Siglunesi og hiti 12 stig.
Vegurinn var alauður en miklir
sviftibyljir meðfram fjöllunum.
Bílstjórinn, sem ók á eftir Jóni
Gunnari sá er bíllinn tókst á loft
í hryðjunni og endasentist niður
í fjöru.
Jón Gunnar Þórðarson var 35
ára'að aldri. Lætur hann etfir sig
konu og þrjú börn.
Jólabingó Framsóknaríélagsins á sunnudagskvöld
Hið árlega jólabingó Framsóknarfélags Reykjavíkur, verður að Hótel Sögu, annað kvöld, sunnudagskvöld, og Hefst það kl. 20,30. Margt glæsi-
legra vinninga verður í bingóinu, þar á meðal flugfar með Loftleiðum til Kaupmannahafnar og heim aftur, heimilistæki, matvæli, rúmteppi,
svefnpokar, værðarvoðir, jólaávextir, bækur og fleira. Allt verður dregið út. Aðgöngumiðar verða afgreiddir til hádegis að Hringbraut 30,
og á afgreiðslu Tímans, Bankastræti 7, og síðan verða þeir til sölu i anddyri Hótel Sögu eftir kl. 5 á sunnudaginn.
STJÓRNANDI JÓLABINGÓSINS ER JÓN B. GUNNLAUGSSON.
Þeir, sem fara á jólabingó Framsóknarfélags Reykjavíkur fara ekki í jólaköttinn.