Tíminn - 05.01.1971, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 1971
TIMINN
11
LANDFARt
Ferð að Skálatúni
Landfari góður!
Efnl ^rssa bréfs er að bi'ðja
þig að flytja kveðju irána og
þakkir til Skálatúnsheimilisins
f Mosfellssveit, fyrir óvenjulega
gleðistund er ég átti þar hinn
12. þ. m., um miðjan daginn.
Sú var orsök þess, að á heimil-
inu dvelur eitt barnabarn mitt
og það er venja, að vandamönn-
•um Skálatúnsbarnanna og
stjórn heimilisins er boðið til
jólafundar að Skálatúni um
þetta leyti árs, til þess að kynn-
ast starfsemi heimilisins, lita á
handavinnu barnanna o. fl. Ég
vil hér með lítiL’ega skýra frá
samkomu þessari, bæði til þess,
a'ð augljóst sé fyrir hvað ég er
jtð þakka og einnig lesendum
tll fróðleiks.
Margir vita, að í Skálatúni er
heimavistarskóli fyrir vangefin
börn og unglinga — sannariega
góður skóli. Nú eru þar 50 vist-
menn á a.'drinum 4—40 ára.
Gestir komu um þrjúleytið
umræddan dag. Fyrst var skoð-
uð handavinnusýningin. Þar
voru margir fallegir hlutir: púð
ar, dúkar, smáteppi, klukku-
strengir o. fl., ýmist ofið eða
saumað. Þetta var allf til sölu
og seldist vel. Svo voru fram-
reiddar ágætar veitingar. Að
því loknu voru gestir kalaðir
saman í dagstofunni og skyldi
nú hefjast jólafagnaður. For-
stöðukonan, fr. Gréta Backmann
bauð gesti velkomna með hlý-
legu ávarpi. Síðan söng dálítill
barnakór jólasálm, er söngkenr
ari skólans, Eyjólfur Melsted,
stjórnaði. Var leikið undir á
klukkuspil og trommu. Því næst
flutti unglingsstúlka jólakvæði
eftir Stefán frá Hvítadal, blaða-
,'aust — um 20 erindi, — og
gerði það svo aðdáanlega vel
að ég var stórhrifinn af því
Síðan var fluttur helgileikur
líkur þeim, sem víða eru flutt-
ir í kirkjum og skólum seinni
árin. Fyrst sáu menn boðun
Marfu, siðan fjárhirðana í kring
um eldinn á Betlehemsvöllum,
hellinn í Betlehem, Maríu,
jólabarnið, Jósef, vitringana og
englaskarann, sem lofaði guð
og söng. Bamakórinn söng jóla-
sálma meðan sýningin stóð yfir
Erum fluttir með starfsemi okkar f Brautarholl 18
D hæð Höfum eins og áður eitt mesta úrvai
landsins aí gluggatialdabrautum og stöngum
ásamt fylgihlutum Allt v-þýzk Qrvalsvara Fliót
og góð þiónusta Aðeins að hrtngia i 20745 og við
sendum mann heim með sýnishorn.
GARDlNUBRAUTIR H.F
Brautarholti 18 II hæð, simi 20745
og jólaguðspjallið var lesið á
bak við.
Allt var þetta svo vel f.Utt
og vel stjórnað, búningar falleg
ir og vel við hæfi. Ekkert trufl-
aði athöfnina. Allir hlustuðu
og horfðu í hrifningu á þessa
smælingja, sem sýndu þennan
helga atburð svo dásamlega vef.
Mér fannst þessi sýning áhrifa-
meiri en nokkur jólaprédikun.
Hún flutti okkur árþúsundir aft
ur í tímann, til hins fræga stað.
ar, þar sem jólabarnið fæddist.
Þetta var sannr "" d helgistund.
Af þessu loknu var slegið á
léttari strengi og nú komu jóla-
sveinarnir til sögunnar ásamt
Grýlu og Leppalúða. Sungið var
jó.'asveinakvæði og þeir komu
inn einn og einn í réttri röð í
viðeigandi búningum. Vöktu
þeir mikla gleði — og voru
sjálfir ákaflega brosleitir. Sam-
komunni lauk með því að allir
sungu Heims um ból og leikið
var með á píanó. Sýningunum
var svo fyrirkomið, að öll börn-
in gábu tekið þátt í þeim, sér til
mikil.'ar gleði. En mikil vinna
liggur á bak við svona sýningu
og miklar þakkir eiga kennarar
og starfsfólk heimilisins skildar
fyrir svona starf. Enginn veit
eða skilur það betur en við
kennarar. Þess vegna vil ég
flytja forstöðukonunni og fólk-
inu í Skálatúni einlægar þakkir
fyrir þessa óvenjulegu gleði-
stund. Og ég veit, að allir gest-
imir munu vera mér sammála,
enda flutti einn þeirra þakkar-
ávarp í lok samkomunnar.
Ég óskaði þess af öllum huga
í lok samkomunnar, að þarna
væri samkomusalur, svo að
fleiri hefðu getað notið þessar-
ar sýningar. Slíkt hús vantar
enn í Skálatúni, þótt húsakynni
séu þar nú ágæt orðin. Máske
verður það næsta átakið, að
koma þar upp fimlcikasal með
leiksviði. Það gæti tekizt fljót-
.‘ega ef nógu mörgum væri ljós
þörfin og tækju höndum sam-
an um að bæta enn hag þeirra
smæstu meðal hlada smáu, sem
ekki hefir verið gefið vit til
þess að sjá sjálfum sér far-
borða.
Ingimar Jóhannesson
HLIÓÐVARP
Þriðjudagur 5. janúar.
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir. Tónleikar.
7.30 Fréttir. Tónleikar.
7.55 Bæn. 8.00 Morgunleik-
fimi. Tónleikar 8.30 Fréttir
og veðurfregnir. Tónleikar
9.00 Fréttaágrip og útdrátt-
ur úr forustugreinam dag
blaðanna. 9.16 Morgunstund
barnanna: Gaðríður Guð-
björnsdóttir les framhald
sögunnar um „Snata • og
Snotra" (2). 9.30 Tilkynn-
ingar Tón’eikar 10 00 Frétt
ir. Tónleikar. 10.10 Veður-
fregnir. Tónleikar. 11.00
Fréttir. Tónleikar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
12.50 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Rauðsokkar.
Bjarni Ólafsson stud. mag.
flytur fyrra erindi sitt.
15.00 Fréttir. Tilkynningar:
Nútícnatónlist: Musica Viva
Pragensis leika Svita op. 29
eftir Schönberg. Isac Stern
og Fílharmonkisveitin i
New York leika Fiðlu-
konsert eftir Alban Berg;
Leonard Bernstein stjórnar.
16.15 Veðurfregnir.
Endurtekið efni: Geislabrot
á milli élja.
Auðunn Bragi Sveinsson
talar við Hjálmar Þorsteins-
son frá Hofi. sem fer með
frumortar stökur. (Áður
útv. 2. sept. s.l.).
17.00 Fréttir. Létt lög.
17.15 Framburðarkennsla f
dönsku og ensku
á vegurn bréfa^kóla Sam-
ban’s i:' innufélaga
o A’þ’”: ambands fslands.
17.40 Útvarp a-a barnanna:
„Nonni“ ’• Jón Sveins-
son.
Hjalt' Rögnvsldsson les (19)
:8.f0 TYr'er-".' k'nningar,-
18 47 Veð
Da • ' 'sins.
19.00 FréY nn’ngar.
19.30 Frá úf' :.: iuiii
Umsjó"a"menn' Magnús
Torfi Ólafsson. Magnus
Þórða-son os Tómas Karls-
son
20.15 1 ör! nr’! f ’ksins.
ct r ’rt ’fr'nundssoii
kvnni'
21.05 Íþró ta'íf
örn E:5'' on segir frá af-
r,0k5r*’,-í*nPi!*n
21.30 Útvarpssagan: ,Antanetta“
eftir Romam Rolland.
Ingibjörg Stephensen
les þýðingu Sigfúsar Daða-
sonar (9)
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregn’r.
Fræðf'uþát'ar um stjórn
fyrirtækja Ottó A. Michel-
sen forstjóri ta!ar am skipt-
insu starfa 1 fyrirtækjum.
22.40 Lö" ’e'k'o 4 hormoníku.
Adafberto Borioli harmoniku
leikari og Mirna Miglior-
anzi-Borioli semballeikari
leika Sónötu i g-moll eftir
Jean Baptiste og Loeillet
og „La Campanella“, kon-
sertetýðu eftir Paganini-
WUrthner.
Hohner-harmoniusveitin
leikur „Boðið upp í dans"
eftir Weber; Rudolph
Wörthner stjórnar.
23.00 Á hljóðbergi.
„Hann Hjálmar í blóm-
skrýddri brekkunni stóð“:
Rómantisk söngljóð frá öld
lírakassans. Gerda Maria
Jurgens, Inken Sommer
og Benno Gellenbeck flytja
á þýzku Hella Jónsson les
textana með.
23.40 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
BARANDAi
— Hvílíkiir kjáni gat ég verið, að ganga eru það þeir Baranda og „læknirinn".
í þessa gildru. Eins og kanina. — Og svo Bara að ég gæti varað þá við. Skyldu
COKT'Dj
þeir heyra til mfn. — Baranda!! — Þú
kallar ekki aftur, eða ég skýt af þér hatu.
inn.
Þriðjudagur 5. janúar
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Dýralíf.
Fuglar í skerjagarðinum —
Fossbúi.
Þýðandi og þulur:
Gunnar Jónasson.
(Nordvision — Finnska
sjónvarpið).
21.00 Setið fyrir svörum.
Hannibal Valdimarsson,
formaður Sa-ntaka frjáls-
lyndra og ''in'trimanna,
situr fyri’ ='’i-um.
Spy'jend'ir 'í'ður Guðna-
son (stjórnandi) og Magnús
Bjarnfreðsson.
21.40 Músik á Mainau.
Tvær stuttar myndir gerðar
á eynni Mainau í Boden-
vatni í Svisslandi. Fyrst rek
ar Lennart Bernadotte sögu
eyjarinnav og hallarinnar.
sem ba- sien 'ur. cn sfðan
syn*ja M 'f’ iv'Ma Dobbs og
Rolf Björlini dúetta fyrix
sópran og tnnór. op. 34. eft-
ir Robert Schumann. Frie-
der Meschwitz leikur undir
á slavhörpu.
Þýðandi
Dóra Hai i r’-dStMr,
(Nortivi?ior _ Sænska
sjónvarpið).
22.05 FFH. Kafbátsstrand.
I>ýðandi:
Jón Thor Haraldssoa.
22.50 Dagskrárlok.