Tíminn - 05.01.1971, Side 13
WHÐSUÐAGUR 5. janúar 1971
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
IÞROTTIR
13
Veröur KSÍ aö leita á
náðir Keflvíkinga?
Laugardalsvöllurinn lokaður til 16. júní, — en landsleikur við Frakk-
land ákveðinn í undankeppni Olympíuleikanna 12. maí.
inn faeri fram í Frakklandi 12.
niaí, en sá síðari hér á landi
18. júni, en þeir höfnuðu þvi
tilhoði.
Varla kemur til greina að
Frakkarnir samþykki að leika
á Melavellinum o,g verður því
að leiika leikinn á Akureyri,
Akranesi eða í Keflavík. Af
þessum stöðum kemur völlur-
inn í Keflavík helzt til greina,
því þar má búast við mestri
aðsókn, en sjálfsagt verður
sama hvar leikurinn fer fram
— fyrir utan Reykjavík — því
12V mai ber upp á miðvikudag.
f sambandi við undirbúning
landsliðsins fyrir þessa leiki,
svo og aðra landsleiki í sumar,
segir í frcttatilkynningu frá
KSÍ, að ákveðið sér að vetrar-
æfingar hefjist í byrjun janúar
og verði með líku fyrirkomu-
lagi og s.l. ár, og í umsjá Hef-
steins Guðmundssonar. Kemur
það nokkuð á óvart, því að
hann til'kynnti í haust að hann
yrði efcki „einvaldur" áfram!!
KIp-Reykjavík.
Leikdagar íslands og Frakk-
lands í undankeppni Olympíu-
leikanna í knattspymu hafa ver
ið ákveðnir. Fyrri lcikurinn fer
fram hér á landi 12. maí n.k.
en sá síðari í Frakklandi 16.
júni.
Þegar dregið var um hvaða
lönd ættu að mætast, var
Frakkland dregið á undan ís-
laudi, og var því haldið að
fyrri leikurinn setti að fara
fram þar. En samkvæmt reglu-
gerð um fyrirkomulag keppn-
innar, er það ekki skylda, held
Ur má það land velja um á
hvorum staðnum það vill leika
fyrri lei'kinn, og hafa Frakk-
arnir valið ísland.
Eins og menn muna, varð
Laugardalsvöllurinn fyrir mikl
um skemmdum í sumar, og
varð að loka honum þegar
no'kkuð var liðið á íslandsmót-
ið. Verður að gera miklar lag-
færingar á honum, svo hann
verf/i nothæfur í sumar, og
nú hefur íþróttabandalag
Reykjavíkar sent KSÍ bréf, þar
sem það tilkynnir að Laugar-
dalsvöllurinn verði efcki opnað
ur til keppni fyrr en eftir 16.
júní.
Það gefur því auga leið, að
landsleikurinn við Frakkland
12. maí getur ekki farið þar
fram, og er því úr vöndu að
ráða fyrir KSÍ.
Sambandið fór þess á leit við
Frakkana, að þeir skiptu lei'k-
dögum, þannig að fyrri leikur-
Ný/íðí
'álfar
nyLLOana
Klp-Reykjavík.
Nýli'ðaruir í 1. deild í knatt-
spyrnu, Breiðahlik úr Kópavogi,
hafa ráðið nýjan þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil. Er það
Sölvi Óskarsson ,fyrrum leikmað-
ur með Þrótti, og einn efnilegasti
knattspyrnuþjálfari landsins.
Sölvi hefur sótt mörg þjálfara-
námskeið bæði í Danmörku og
víðar, en hann hefur hingað til
ekki fengizt við þjálfun „stóru fé-
laganna" ,,en fær nú sitt fyrsta
verkefni þar.
Hann hefur aðallega þjálfað
yngri flokka félaganna, mest hjá
Þrótti, en einnig hjá öðrum fé-
Sölvi Óskarsson
lögum. f sumar þjálfaði hann m.
a. 3. deildarliðið Hrönn, og kom
því í úrslit í 3. deild.
Sölvi tekur við af Reyni Karls-
syni hjá Breiðabiik, og verður
fróðlegt að vita hvernia „nýlið-
anum“ tekst til með „nýliðana“
í 1. deildarkeppninni næsta sumar.
Þjó’ðsöngvar Islands og Frakklands glumdu síðast á Laugardalsvellinum 22. júní s.i. og var þessi mynd
þá tekin. f þeim leik sigraSi Frakkland 1:0, og var það eina tap íslands á heimavelli árið 1970.
KR-ingar tróðu Þóri um tær
- og þá fór hann í gang, en það var of seint fyrir Val
klp—Rcykjavík, ; ' ' '
Náttúrubarnið, í körfuknatOeik,
Þórir Magnússon, sem ekkert hef
ur getað leikið með sínu nýja
félagi, Val, frá því að það hét
KFR, vegna ristarbrots, sem hann
varð fyrir snemma í haust, sýndi
eina af sínum skemmtilegu hlið-
um í leiknum gegn KR í 1. deild
á sunnudaginn.
í fyrri hálfleik bar lítið á hon-
um, en í þeim síðari — þegar ,KR-
ingarnir voru búnir að stíga jofan
á veiku ristina nokkrum sinnum
— tók hann við sér, og skoraði 20
stig á sinn sérstæða og kröftuga
hátt, og var hann nálægt því að
gera út um leikinn.
Því miður fyrir Val — en sem
betur fyrir fyrir KR — varð hann
einum of seinn í gang, því KR
■sigraði id vleiknum með 14 stiga
mun, 87:73.
Fyrri hálfleikur leiksins var
skemmtilegur og jafn. Framan af
voru liðin hnífjöfn, og munaði
sjaldan nema 1—3 stigum. Þegar
7 mín. voru eftir var staðan 27:24
fyrir KR, en þá skoraði Hjörtur
Hansson, sem nú lék með KR, þar
sem hann er heima í jólafríi, 8
stig í röð, og breytti hann stöð-
unni með því í 35:24.
í hálfleik hafði KR 16 stig yfir,
50:34. Hélzt sá munur þar til
um 10 mín. vorj eftir, en þá tók
Þórir við sér og lifnaði við það
yfir Valsmönnum öllum. Tókst
þeim að minnka bilið í 7 stig, 71:
64, en þá skoraði Kolbeinn Páls-
son 3 körfur í röð fyrir KR og
kom KR þar með af hættusvæðinu.
Lokatöluraar urðu eins og fyrr
segir 87—73, sem telja má nokk-
uð, sanngjörn úrslit, því KR var
betra liðio', ef frá er talinn
nokkurra mínútna kafli í síðari
hálfleik, þar sem Þórir bar af öll-
um öðrum.
Stighæstu menn í leiknum voru
þessir: yalur: Þórir Magnússon
26 stig, Ólafur Thorlacius 12 stig
og Stefán Bjarkason 8 stig. KR:
Kristinn Stefánsson 16 stig, Ein-
ar Bollason 14, Hjörtur Hausson
og Kolbeinn Pálsson 12 stig hvor.
HARMLEIKUR
Á IBROX PARK
Sá hörmulegi atburður átti
sér stað á Ibrox Park — leik-
vangi skozka knattspyrnufélags
ins, Glasgow Rangers —
að áhorfendapallar hrundu,
með þeim afleiðingum að 66
manns fórust og rúmlega 100
manns slösuðust, sumir mjög
alvarlega. Þetta gerðist rétt
eftir að leik erkifjendanna,
Glasgow Celtic og Glasgow
Rangers lauk. Hafði leikurinn
verið mjög vel leikinn af
beggja hálfu og um 80 þúsund
manns komið til að sjá hann.
Þegar aðeins ein mínúta var
til leiksloka skoraðtt Jimmy
Johnstone fyrir Celtic og var
það jafnframt fyrsta mark
leiksins. Við það tóku áhorf-
endur að tínast af vellinum, en
þegar aðeins 10 sekúndur voru
til leiksloka, jafnaði Colin
Stein fyrir Rangers. Upphófust
þá mikil fagnaðarlæti, sérstak-
lega á áhorfendasvæðinu fyrir
aftan annað markið, þar sem
áhangendur Rangers safnast
venjulega saman. Gáfu sig þá
skyndilega súlur þær sem
halda uppi áhorfendapöllunum,
með þeim afleiðingum sem
fyrr greinir. Menn þustu
hvaðanæva að af vellinum til
aðstoðar, og voru hinir látnj
smátt og smátt dregnir út á
sjálfan knattspyrnuvöllinn með
an leitað var í rústunum. Marg
ir þeirra sem létu lífið yoru
börn og unglingar.
Þetta er mesta slys sem um
getur í sögu brezkrar knatt-
spyrnu eða knattspyrnuvalla —
en árið 1902 fórust 25 manns
og um 500 slösuðust á sama
leikvangi og nú, Ibrox Park,
þegar áhorfendapallur hrundi.
Einnig fórjst 33 og um 500
slösuðust árið 1946, þegar svip
að atvik gerðist, en það var
á Burnden Park, leikvelli Bolt-
on Wanderers.
Samúðarskeyti berast nú
hvaðanæva að. — m.a. firá Eliza-
betu Englandsdrottningu, Páli
pálfa, Nixon, Bandaríkjafor-
seta, og Willy Brandt, kanslara
Vestur-Þýzkalands. — Edward
Heath, forsætisráðherra Bret-
lands hefur fyrirskipað rann-
sókn á þessum harmleik.
— kb.
Frá leik KR og Vals í 1. deild. Bjarni Jóhannesson skorar fyrir KR.
(Tímamynd Gunnar)