Morgunblaðið - 02.12.2005, Síða 49
málum. „Meginástæða þess að sókn
kvenna inn á vinnumarkaðinn, í
pólitíkina og valdastöður í samfélag-
inu, sem er löngu hafin, hefur ekki
heppnast til fulls, er að sókn karla
inn á heimilin er ekki hafin að neinu
teljandi marki,“ sagði Ólafur. „Eitt
af því sem konur verða að átta sig á,
er að eigi karlar að búa til svigrúm
fyrir þær á vinnumarkaðnum, geta
þær þurft að gefa körlum svigrúm á
heimilinu. Hvorki taka ákvarðana í
stjórnum fyrirtækja né ákvarðana-
taka um stofugardínur eða fataval á
börnin á að vera óvinnandi vígi ann-
ars hvors kynsins.“
Ójafnvægi í menntakerfinu
Nokkurs konar aðskilnaðarstefna
í atvinnulífinu var umræðuefni Run-
ólfs Ágústssonar, rektors viðskipta-
háskólans á Bifröst, en hann benti á
þá staðreynd að 95% leikskólakenn-
ara, 80% grunnskólakennara, um
helmingur framhaldsskólakennara
og 40% háskólakennara væru konur
og þeim færi sífellt fjölgandi á efri
skólastigum. Þannig vantaði tilfinn-
anlega áherslur karla og fyrirmynd-
ir fyrir drengi í gegnum mennta-
kerfið. Benti Runólfur á að um 80%
íslenskra háskólanema væru konur
og brottfall karla væri mjög mikið.
Benti Runólfur á það í erindi sínu
að einungis 18% nemenda Kenn-
araháskólans væru karlar en engu
að síður vísaði skólinn 100 karlkyns
umsækjendum frá á hverju ári.
Spurði hann hvort allir þessir um-
sækjendur teldust vanhæfir og þá
hvort skólanum bæri ekki að leggja
sitt af mörkum til að jafna hlutfall
kynjanna í kennarastéttinni.
Runólfur sagði í raun tvær þjóðir
búa í einu landi, annars vegar kven-
þjóð sem starfaði í skólum og heil-
brigðis- og umönnunarstörfum og
hins vegar karlþjóð sem ynni við
stjórnun, fjármálastarfsemi og iðn-
að. Sagði hann aðgengi karla að
vinnustað þar sem 96% vinnufélaga
væru konur afar takmarkað, auk
þess sem aðrir hlutir eins og laun
spiluðu þar inn í. Nauðsynlegt væri
að bæta úr því svo þessi störf yrðu
aðlaðandi fyrir karla. „Breið og fjöl-
breytt viðhorf skipta máli í rekstri,
stjórnun og í skólastarfi,“ sagði
Runólfur. „Einhæfir vinnustaðir
með einsleit viðhorf standast síður
samkeppni í flóknu og fjölbreytilegu
alþjóðlegu umhverfi. Kynbundin að-
skilnaðarstefna á vinnumarkaði
skaðar því samfélagið og atvinnu-
lífið.“
Í öðrum fyrirlestrum og pall-
borðsumræðum var rík áhersla að
sama skapi lögð á vilja karla til að
taka virkari þátt í heimilislífi og
uppeldi barna sinna, enda væri það
lykillinn að meira frelsi kvenna til
þátttöku í atvinnulífinu og betri líð-
an karla. Þá undirstrikuðu mælend-
ur nauðsyn fjölbreytileika í öllum
geirum atvinnulífsins og þátttöku
beggja kynja í þeim.
Að lokum var borin undir fundinn
ályktun þar sem m.a. kom fram að
nauðsynlegt væri að karlar öxluðu
aukna ábyrgð á jafnrétti kynjanna.
Jafnréttismál ættu ekki eingöngu
að vera kvennamál, heldur væru
þau mannréttindamál sem karl-
menn þyrftu að ræða og berjast fyr-
ir af fullum krafti.
„Jafnrétti kynjanna stuðlar að
betri nýtingu mannauðs. Jafnrétti
kynjanna eykur verðmætasköpun.
Jafnrétti kynjanna skapar afkom-
endum okkar öruggari framtíð.
Jafnrétti kynjanna er mikilvæg for-
senda fyrir farsæld og hamingju og
þess vegna allra hagur,“ segir m.a. í
ályktuninni.
Mikil ánægja var meðal ráð-
stefnugesta við lok ráðstefnunnar
en heyra mátti á mönnum að hún
hefði verið fullstutt. Kváðust menn
hafa vel getað hugsað sér opnar
umræður og spurningar úr sal auk
þess sem pallborðsumræðurnar
hefðu verið afar stuttar. Þá sögðu
margir ráðstefnugestir það vera
mikinn létti að geta rætt málefni
jafnréttis óþvingað og án þess að
eiga það á hættu að „segja eitthvað
vitlaust,“ eða að konur „tækju yfir
umræðuna.“ Þá fannst þátttakend-
um það gott að fá að ræða málið út
frá eigin forsendum og greinilegt
væri að það brynni á karlmönnum
að vilja vera betri feður og makar.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 49
FRÉTTIR
HRINGURINN heldur sitt árlega
jólakaffi á Broadway sunnudaginn
4. des. kl. 13.30. Boðið er upp á
glæsilegt kaffi-
hlaðborð, ljúfa
tónlist, danssýn-
ingu og söng.
Happdrættið er
að venju með
fjölda góðra vinn-
inga, sem fyrirtæki og einstaklingar
hafa gefið.
Jólakaffið er einn liður í fjáröflun
Hringskvenna fyrir Barnaspítalann,
en auk þess eru verkefnin óþrjót-
andi við að bæta hag veikra barna á
Íslandi og aðstandenda þeirra.
Öll fjáröflun Hringsins rennur
óskipt í Barnaspítalasjóð Hringsins.
Jólakaffi
Hringsins
NÝ Bónusverslun verður opnuð að
Tjarnarvöllum 15 í Hafnarfirði á
morgun, laugardaginn 3. desember
kl. 10. Boðið verður upp á fjölda opn-
unartilboða.Verslunin er 24. verslun
Bónuss og önnur verslun fyrirtæk-
isins í Hafnarfirði.
Verslunin að Tjarnarvöllum er um
1.100 fermetrar að stærð og verður
með hefðbundnu Bónussniði þar sem
boðið verður upp á alla helstu vöru-
flokka í matvöru og sérvöru eftir því
sem pláss leyfir. Verslunarstjóri
verður Jóhann Hólm sem verið hef-
ur verslunarstjóri Bónusverslunar-
innar í Reykjanesbæ.
Ný Bónusverslun
í Hafnarfirði
TVÍUND, félag tölvunarfræðinema
við Háskólann í Reykjavík, stendur
fyrir sinni árlegu ráðstefnu laug-
ardaginn 3. desember. Umræðuefnið
í ár er tölvuleikir og verður fjallað um
allt frá hönnun og gerð leikjanna til
notandans sem situr við stjórnvölinn.
Erindi halda: Davíð Hermann
Brandt og Halldór Fannar hjá CCP,
Gísli Ólafsson frá Microsoft á Íslandi,
Ragna J. Dennis frá Tölvudreifingu
og dr. Yngi Björnsson dósent við Há-
skólann í Reykjavík.
Ráðstefnan hefst kl. 9.30 með
skráningu. Nánari uppl. á slóðinni
http://games.ru.is
Tölvuleikir á ráð-
stefnu TvíundarDORRIT Moussaieff forsetafrú af-
henti Bjarka Birgissyni, Guð-
brandi Einarssyni og Tómasi
Birgi Magnússyni fyrstu
Kærleikskúlu ársins 2005 við há-
tíðlega athöfn í Listasafni Reykja-
víkur í Hafnarhúsinu í gær. Áður
hafði biskup Íslands, Karl Sig-
urbjörnsson, blessað kúluna. Kær-
leikskúlan kemur nú út í þriðja
sinn og hefur myndlistarkonan
Rúrí hannað útlit kúlunnar og
nefnir verkið Án upphafs – án
endis.
Þeir Bjarki „halti“ og Guð-
brandur „blindi“ gengu sem
kunnugt er hringinn í kringum
landið í sumar sem leið undir
kjörorðinu „Haltur leiðir blindan“
og var Tómas íþróttakennari með
þeim í för. Í máli Evu Þeng-
ilsdóttur, hjá Styrktarfélagi lam-
aðra og fatlaðra, kom fram að
þeir þremenningar væru sann-
arlega verðug fyrirmynd.
„Á sinni erfiðu ferð vildu þeir
létta byrðar annarra með því að
vekja athygli á lífi og aðstæðum
barna með sérþarfir í þeirri von
að það reyndist lóð á vogarskál-
arnar í baráttunni fyrir betra lífi,
auknum möguleikum og rétt-
indum fyrir börnin og fjölskyldur
þeirra,“ sagði Eva.
Um Kærleikskúluna 2005 segir
Rúrí: „Orðin vísa til þess að kær-
leikurinn á sér hvorki upphaf né
endi. Hann er óskilyrtur – óend-
anlegur – hann er. Eins er með
fossinn – hann rennur án afláts –
hann er. Fullkomin kúla hefur
hvorki upphaf né endi, á sama
hátt og hnötturinn okkar, Jörðin,
er ein samfelld heild. Einn af hin-
um máttugu fossum landsins birt-
ist í brothættu, svífandi listaverk-
inu, sem örsmáum heimi, sem
aftur kallast á við og speglar al-
heim þar sem jörðin svífur um í
ómælisgeimi.“
Markmiðið með sölu Kærleiks-
kúlunnar er, að sögn Evu, að
auðga líf fatlaðra barna og ung-
menna, en allur ágóði rennur til
eflingar starfsemi Reykjadals.
Við athöfnina í gær lék Bjöllukór-
inn nokkur jólalög undir stjórn
Valgerðar Jónsdóttur og Hafþór
Yngvason, forstöðumaður Lista-
safns Reykjavíkur, fjallaði um
Rúrí og list hennar.
Kúlan verður til sölu 5.–19. des-
ember í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu, hjá Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra og í versl-
ununum Home Art í Smáralind,
Villery & Boch í Kringlunni,
Kokku á Laugavegi, Valrós á Ak-
ureyri, Bláa blóminu á Höfn og
Norska húsinu í Stykkishólmi.
Kærleikurinn á sér
hvorki upphaf né endi
Dorrit Moussaieff hengdi Kærleikskúlu ársins á jólatréð í Listasafni
Reykjavíkur. Með henni á myndinni er Steinunn Ása Þorvaldsdóttir.
Morgunblaðið/Sverrir
Guðbrandur Einarsson, Dorrit Moussaieff, Rúrí, Tómas Birgir Magnússon og Bjarki Birgisson.
Dorrit Moussaieff afhenti fyrstu Kærleikskúluna 2005
Rangt nafn í
myndatexta
Rangt var farið með nafn í mynda-
texta með grein um opnun nýs leik-
skóla í Grafarholti í Morgunblaðinu í
gær. Á myndinni sást Stefán Jón
Hafstein, formaður menntaráðs
Reykjavíkurborgar, afhenda Önnu
Hjördísi Ágústsdóttur, verkefna-
stjóra við leikskólann og fulltrúa
þeirra sem skiluðu inn hugmynd að
nafni leikskólans, bók að gjöf. Í bak-
grunni eru hins vegar borgarstjóri
og Sigurlaug Einarsdóttir leik-
skólastjóri.
Morgunblaðið/Ómar
LEIÐRÉTT
DÆLULYKILL Atlantsolíu var
formlega tekinn í notkun í gær af
Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Lykillinn er ör-
flaga sem tengd er greiðslukorti og
gerir hún eiganda lykilsins kleift að
greiða eldsneyti á sjálfsafgreiðslu-
dælum. Lykillinn er áfastur lykla-
kippu og þegar hann er borinn að
bensíndælu Atlantsolíu fer dælan
sjálfkrafa í gang. Ekkert PIN númer
er nauðsynlegt til að nota lykilinn.
Atlantsolía er fyrst íslenskra olíufyr-
irtækja til að bjóða slíkan lykil.
Hægt er að sækja um lykilinn á
heimasíðu Atlantsolíu, www.atlants-
olia.is.
Morgunblaðið/Sverrir
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra notar dælulykilinn í fyrsta sinn.
Henni til aðstoðar er Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu.
Dælulykill
Atlantsolíu
ÁRLEGUR basar Kristniboðsfélags
kvenna verður haldinn á morgun,
laugardaginn 3. desember, kl. 14–
17 í Kristniboðssalnum, Háaleit-
isbraut 58-60. Á boðstólum verða
kökur, handunnir munir, jólakort,
skyndihappdrætti o.fl. Einnig verð-
ur hægt að fá keypt kaffi og súkku-
laði og nýbakaðar vöfflur.
Allur ágóði renur til starfs
Kristniboðssambandsins í Eþíópíu
og Keníu, þar sem íslenskir kristni-
boðar eru að störfum.
Basar Kristniboðs-
félags kvenna