Morgunblaðið - 02.12.2005, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
gómsætir
jólaostar!
Nýtt
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, Menntaskól-
inn við Hamrahlíð og Dansmennt ehf. hafa und-
irritað viljayfirlýsingu um samstarf um listdansnám
á framhaldsskólastigi frá og með næsta vetri. Dans-
mennt ehf. er hlutafélag sem hefur það að markmiði
að starfrækja listdansskóla fyrir alla aldurshópa og
á öllum námsstigum, en forsvarsmenn þess eru
Lauren Hauser og Ástrós Gunnarsdóttir, kennarar
við Listdansskóla Íslands. Sem kunnugt er tók
ráðuneytið ákvörðun um það fyrr á árinu að leggja
Listdansskólann niður í núverandi mynd.
„Með þessu er verið að tryggja að þeir nemendur
sem eru í Listdansskóla Íslands fái áframhaldandi
nám og tryggja samfelluna frá grunnskólastiginu
og upp úr,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra. „Það sem meira er, við erum
að leggja fram nýja námsskrá, og munum fara í
samstarf við foreldra og fagaðila um nýja námsskrá
fyrir grunnskólastigið einnig. Við erum að auka
kröfurnar til listdansnámsins og efla gæðaeftirlitið.
Með þessu erum við líka að samræma allt listnám,
því Listdansskólinn er síðasti listnámsskólinn sem
ríkið rekur á framhaldsskólastigi. Nú verður ríkið
verkkaupi í listnámi á framhaldsskólastiginu eins og
sveitarfélögin eru á grunnskólastiginu. Það er því
verið að gera listnám samfelldara og heilsteyptara.“
Ákvað að greina frá stefnunni strax
Þorgerður Katrín segir að breytingar af þessu
tagi valdi jafnan ákveðnum óróleika og því hafi
tíminn að undanförnu verið erfiður fyrir marga.
„Ég stóð frammi fyrir þeim valkostum að vinna að
breytingunum og kynna þær ekki fyrr en næsta
sumar eða að greina frá þessu strax þannig að allir
vissu að hverju stefnt væri og það ákvað ég að
gera. Markmiðið allan tímann var að tryggja fram-
tíð listdansnámsins og helst að auka gæði þess um
leið. Ég tel að með þessu fyrirkomulagi og nýju
námsskránni munum við gera það.“
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir er formaður
nemendafélags Listdansskóla Íslands. Hún kveðst
ekki hafa kynnt sér nýju námsskrána, en hún hafi
haft spurnir af því hvernig hún verði. „Mér hefur
verið tilkynnt að tímafjöldi nemenda muni minnka
verulega. Nú eru nemendur Listdansskólans í
mjög fjölbreyttu námi í allt upp í rúmlega 20 tíma
á viku, en með því að gera þetta að einkaskóla virð-
ist vera ljóst að sá tímafjöldi verður skorinn nið-
ur.“
Dansmennt ehf. tekur
við af Listdansskólanum
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Skilyrði skapast | 33
BÚAST má við syngjandi sveiflu á tónleikum
Diddúar í Salnum í kvöld og á morgun, en
þar munu tveir af félögum hennar úr Spil-
verki þjóðanna, þeir Egill Ólafsson og Valgeir
Guðjónsson, stíga með henni á svið. Diddú,
sem fagnar þrjátíu ára söngafmæli á árinu,
mun ennfremur rifja upp aðra áhrifavalda á
þá ákvörðun sína að gerast söngkona, með
aðstoð Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur pí-
anóleikara, Kjartans Valdimarssonar píanó-
leikara og Kjartans Guðnasonar slagverks-
leikara. | 56
Morgunblaðið/ÞÖK
Syngjandi sveifla hjá
Diddú og Spilverkinu
UNGUR sundkennari á sínu fyrsta kennsluári í Bolung-
arvík bjargaði 11 ára nemanda sínum frá drukknun í
gær með því að draga hann meðvitundarlausan upp úr
sundlaug eftir að hann var hætt kominn í lauginni í lok
sundtímans.
Sundkennarinn er Sigríður Guðjónsdóttir, 26 ára, og
svo vill til að hún býr á Sundstræti á Ísafirði. Tildrög
óhappsins í lauginni í Bolungarvík voru þau að nemend-
urnir fengu að leika sér síðustu fimm mínúturnar af
sundtímanum og var drengurinn að láta sig fljóta á mag-
anum með andlitið ofan í vatninu. Brátt urðu hin börnin
vör við að hann hafði verið óeðlilega lengi í kafi og brást
Sigríður strax við. „Ég dreif hann strax upp úr og byrj-
aði blástur. Eftir einn blástur fór hann að hósta og þá
blés ég aftur og þá komu meiri viðbrögð,“ sagði Sigríður
við Morgunblaðið. „Því næst setti ég hann í læsta hlið-
arlegu og síðan kom starfsfólk íþróttahússins með súr-
efni og teppi og hringdi á sjúkrabíl og lögreglu. Þetta
gekk því mjög vel og allir brugðust mjög rétt við.“
Sigríður lærði skyndihjálp í Íþróttaskólanum á Laug-
arvatni en þetta er í fyrsta skipti sem hún beitir kunn-
áttunni í raunveruleikanum. „Það var ótrúlegt að maður
skyldi ekki frjósa, en mín fyrstu viðbrögð voru að koma
drengnum upp á bakkann og byrja að blása í hann. Það
var auðvitað léttir þegar hann fór að hósta og sýndi við-
brögð.“
Ungur sundkennari bjargaði nemanda sem var hætt kominn
„Allir brugðust rétt við“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Sigríður Guðjónsdóttir sundkennari eftir óvenjulegan
dag sem endaði vel þrátt fyrir allt.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FYRSTU tíu mánuði ársins jókst sala á nýjum jeppum og jepplingum
um 82% miðað við sama tíma í fyrra. Heildarfólksbílasalan jókst á sama
tíma um 53% þannig að hlutur jeppa og jepplinga er að aukast í bílaflota
landsmanna svo um munar. Alls seldust fyrstu tíu mánuðina tæplega
6.000 jeppar og jepplingar. | B11
Sala á jeppum og
jepplingum jókst um 82%
FYRIRTÆKIN Baugur Group, FL
Group og Fons munu styðja verkefni
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF, í Gíneu-Bissá með því að
gefa til verkefnisins 135 milljónir á
næstu þremur árum. Verkefnið mið-
ar að því að koma fleiri börnum í
skóla og bæta menntun í landinu.
Hvert fyrirtækjanna þriggja gef-
ur 15 milljónir árlega í þrjú ár til
verkefnisins. Um mun vera að ræða
stærsta styrk sem fyrirtæki á Ís-
landi hafa sett í ákveðið þróunar-
verkefni.
Að sögn Yolöndu Correia, upplýs-
ingafulltrúa UNICEF í Gíneu-Bissá,
er þetta í fyrsta skipti sem einkafyr-
irtæki styrkja beint menntakerfið í
Gíneu-Bissá. Hingað til hafi styrkir
þess komið frá opinbera geiranum
eða verið hluti af stærri heild. Segir
hún að samningurinn marki tímamót
í lífi fjölda barna.
Gefa 135
milljónir
til þróun-
araðstoðar
Stærsti styrkur | 10
VIÐRÆÐUR eru í gangi á milli eig-
enda P. Samúelssonar hf., Toyota-
umboðsins, og Magnúsar Kristins-
sonar, útgerðarmanns í Vestmanna-
eyjum, um kaup þess síðarnefnda á
félaginu. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er ráðgert að málið
verði til lykta leitt fyrir áramót. Ekki
er ljóst hvert kaupverðið er.
Í gær var gengið frá sölu á öllum
hlutabréfum Eignarhaldsfélagsins
Stofns hf., Páls Samúelssonar, Elín-
ar S. Jóhannesdóttur og Önnu Sig-
urlaugar Pálsdóttur, í Kraftvélum
ehf. til Ævars Þorsteinssonar fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins. Kraft-
vélar er umsvifamesti söluaðili hér-
lendis á vinnuvélum og rekur
jafnframt og á samnefnt fyrirtæki í
Danmörku.
Viðræður um
kaup á P.
Samúelssyni
Kaupir öll | B2
♦♦♦