Morgunblaðið - 30.06.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.06.2005, Qupperneq 4
4 MYNDLIST DJAMMIÐ Maður kennir ekki list, maður kennir handverk HEIÐAR AUSTMANNMyndir Sigurjón Guðjónsson affi Karólína í Lista- gilinu á Akureyri er vinalegur staður að heimsækja á gráum laug- ardagseftirmiðdögum, í roki. Stemningin er róleg og svo er hægt að fá þar bjór, ágætis „tap- as“ og slíkt. Í enskri útgáfu mat- seðilsins stendur að maður ætti að „spyrja vatnið“ („ask the wat- er“!!!) um samlokuúrvalið (er til of mikils mælst að svona staðir splæsi í prófarkalestur áður en þeir plasta vandræðalegustu staf- setningarvillurnar?). Akureyri er viðkunnanlegur bær og Karólína viðkunnanlegur stað- ur eftir því. Inn ganga Rúnar Júlíusson og Jakob Frímann. Reiður Bubbi Morthens fylgir fast á hæla þeim (djöfull er hann annars alltaf töff „in person“). Og þarna í horninu stendur bingóstjórinn, naglbít- urinn og, nú síðast, sjálfskipaði myndlistarmaðurinn Villi (sá er heimspekimenntaður – lokarit- gerðin hans var um „fyrirfram- skilgreindar orsakir innan lok- aðra kerfa. Donald Davidson. Massaskemmtilegt stöff.“). Ætla mætti að einhvers konar poppararáðstefna væri í gangi. En gleggri rannsókn á herberg- inu (og þá sérstaklega ókeypis kampavíninu sem leynist í hverju horni) leiðir í ljós að við erum stödd á opnun. Áðurnefndur Villi, Vilhelm Anton Jónsson, er kominn á heimaslóðirnar til þess að sýna fyrrum sveitungum sín- um hvað hann hefur verið að bauka í vinnustofu við Laugaveg- inn, með „tvær, þrjár rauðvíns- flöskur og AA-útvarpið“ sér til innblásturs. „Verkin mín eru ekki framlag í einhverja umræðu og ekki held- ur hrein fagurfræði. Ég er ekki listaskólamenntaður, frekar en tónlistar-, myndirnar eru bara út- rás og pælingar mikið. Maður kennir ekki list, maður kennir handverk. Þú getur kennt ein- hverjum grip en ekki að semja gott lag. Listin kemur að innan og frá fólkinu sem þú hittir, stelpunni sem þú ert skotinn í.“ „Venjulega skrifa ég fullt inn á myndirnar, krafsa alls konar pæl- ingar og formúlur, en þessar sem ég sýni hér eru reyndar lausar við það. Þær eru meira um fólk að snertast, erótík, bara, losta, greddu. Hvað er annað í lífinu? Ja, það er reyndar fullt annað, en þetta heldur því gangandi. Þetta eru sem sagt myndir af fólki sem mér fannst gaman að mála, ef það eru einhver skilaboð þá eru þau að fólk má alveg snertast meira, án þess að þetta sé ein- hver pólitísk sýning,“ segir Villi. FÓLK MÁ SNERTAST MEIRA VILLI NAGLBÍTUR Á KAFFI KARÓLÍNU 1 1. Villi Naglbítur á opnun sýningar sinnar í Kaffi Karólínu. Texti og mynd Haukur S. Magnússon. K SKEKUR RASSA Á HRESSÓ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.