Morgunblaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 22
22
SPURT OG
SVARAÐ
Hvernig hefur þú það?
„Ég hef það fínt um þessar mundir. Á kafi í
vinnu og það er gott.“
Lífið er …
„…leiksvið og við aðeins leikendur og „stat-
istar“ í aukahlutverkum.
Verðir með spjót.“
Dagurinn sem allt fór í vaskinn var þegar …
„…ég ætlaði að sameina veiðitúr og tónleika.
Fór á mikilli drossíu í veiðitúrinn og síðan á
Akureyri að spila. Bíllinn tók niðri og skemmd-
ist. Þurfti að draga hann í bæinn og túrinn
ónýtur.“
Hvað finnst þér um ketti?
„Kettir eru yndisleg dýr. Við eigum tvo. Jökul
Ljónshjarta sem er Persi og Emmu Línu sem er
hálfur síams. Kettir hafa alltaf verið í minni
fjölskyldu og eru í miklu uppáhaldi.“
Ef þú ættir eina ósk hvers myndir þú óska þér?
„Fara út í himingeiminn.“
Hvað finnst þér um ungt fólk í dag?
„Unga fólkið í dag er fullt af eldmóði og með
vasa fulla af draumum. Oft er sagt að æska
landsins sé með versta móti í dag, en það eru
þeir eldri sem láta þetta út úr sér. Það er búið
að gleyma sinni æsku.
Unga fólkið verður bara betra með hverri kyn-
slóð. Tækifærin eru samt meiri en þegar ég var
yngri.“
Hvað finnst þér um að bæði börnin þín hafa
lagt tónlistina fyrir sig?
„Við erum stolt af Svölu og Krumma. Þau eru
að fást við það sem þau hafa áhuga á, og gera
það vel. Ég fékk að ráða því sjálfur hvað ég tók
mér fyrir hendur á sínum tíma. Þau hafa feng-
ið að ráða því líka. Ég er til ráðgjafar ef þau
þurfa.“
Hvað er mikilvægast að muna?
„Ekki gleyma þeim sem standa þér næst og
uppruna þínum.“
Hverju ertu bestur í?
„Þetta er nú ekki sanngjarnt að spyrja svona
spurninga. Ætli ég sé ekki bestur í því að
syngja, og leika mér við tónlistargyðjuna. Svo
vil ég halda að ég sé ágætur matreiðslumeist-
ari.“
En verstur?
„Garðyrkju.“
Hvað var það sem heillaði þig fyrst við eigin-
konu þína?
„Hvað hún var falleg og bros hennar.“
Hvað er velgengni?
„Lykillinn að velgengni og hamingju í framtíð-
inni býr innra með okkur öllum og nefnist já-
kvætt hugarfar. Við þurfum að skoða hug okk-
ar vandlega og útiloka neikvæðar hugsanir og
kenndir og koma fyrir jákvæðum hugsunum í
staðinn. Ekki er verra að hafa lukkuna sín meg-
in í lífinu.“
AÐ GLEYMA ÆSKUNNI
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
Oft er sagt að æska landsins sé með versta móti í
dag, en það eru þeir eldri sem láta þetta út úr sér