Morgunblaðið - 30.06.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.06.2005, Qupperneq 14
14 LJÓSMYNDIR KVIKMYNDIR Annie Leibovitz er einn frægasti ljósmyndari okkar tíma og hefur oft verið kölluð ljósmyndari fræga fólksins. Hún fæddist í lok fimmta áratugarins í Westbury, Conneticut og hóf feril sinn aðeins 24 ára gömul á tímaritinu Rolling Stones. Frá árunum 1970 til 1980 vann hún sem aðalljósmyndari Stones-tímaritsins. Hún hefur auk þess myndað fyrir Vanity Fair frá árinu 1983 og tekur hún ennþá mikið af myndasyrpum og forsíðum fyrir blaðið. Flestar ljósmyndir Annie Leibovitz eru heimsþekktar en allmargar hafa orðið hornsteinn í sögu heimsþekktra einstaklinga, s.s. myndin af John Lennon þar sem hann liggur nakinn upp í rúmi með fullklæddri Yoko Ono. Myndin var sú síðasta sem tekin var af stjörnunni áður en honum var ráðinn bani árið 1980. Nokkrar bækur eru til með myndum Annie Leibovitz, s.s. Women, sem sýnir konur á mismun- andi stað í lífinu og American Music, þar sem ljósmyndarinn nálgast upphaflegt viðfangsefni sitt frá Stone-árunum; þ.e. tónlistarmenn. Síðarnefnda bókin er nú fáanleg m.a. í bókaversl- unum Máls og menningar. MÁLIÐ MÆLIR MEÐ LJÓSMYNDUM ANNIE LEIBOVITZ 2 1 3 4 1. Annie Leibovitz eins og hún birtist í júní- hefti breska Vanity Fair. 2. Fyrirsætan Gisele Bundchen og leik- arinn Gérard De- pardieu í maíhefti Vogue árið 2004. 3. Gwyneth Paltrow og mamma hennar, Blythe Danner. 4. Annie Leibovitz var síðasti ljósmyndarinn til að mynda John Lennon á lífi árið 1980. Texti Elínrós Líndal  Kvikmyndin Sin City verður frumsýnd 15. júlí næstkomandi og er gerð eftir myndasögum Franks Millers um syndaborgina. Kvikmyndin er gerð eftir þremur sögum; fyrstu sögunni „Sin City“ (síðar nefnd „The Hard Good- bye“), „The Big Fat Kill“ og „That Yellow Bastard“.  Frank Miller var aðstoðarleik- stjóri myndarinnar sem hefur ef- laust haft það í för með sér að myndasagan var ekki eyðilögð „a la Hollywood style“ eins og svo oft vill verða.  Handrit myndarinnar eru blað- síðurnar í sögunum. Myndin er öll í svart-hvítu en þó með nokkrum undantekningum, til áhersluauka og er útkoman vægast sagt töff.  Eins og vera ber er ofbeldið mik- ið í myndinni en það er allt útfært á frekar flottan og stílhreinan hátt (enda var Tarantino sjálfur gesta- leikstjóri) og sú staðreynd að næstum allt blóð er hvítt mildar þetta allt saman einhvern veginn.  Eins og oft tíðkast í mynda- sögubókum þá eru allar sögu- persónur í myndinni annaðhvort hrikalega svalar, rosalega vondar eða gríðarlega getnaðarlegar og leikaravalið gæti ekki verið betra með tilliti til þess, Bruce Willis er svalur sem sextug lögga og virkar ekkert of ungur, Mickey Rourke er hér í „come-back“ og er alveg óþekkjanlegur sem Marv í fyrstu sögunni, Clive Owen var vafasam- ur í hlutverk einkaspæjarans Dwight en virkar mjög vel og sama má segja um alla aðra að undan- skilinni Brittany Murphy.  Það verður enginn svikinn af þessari mynd ef hann gerir sér grein fyrir því að þetta er mynda- saga … en hún er í bíó.  Hver sá sem þekkir Max Payne- tölvuleikina og fílar þá getur ekki talist maður með mönnum nema sjá þessa mynd  Myndin er sjóðheit og verður án efa í flokki cult-mynda í framtíð- inni.  You’ve got to prove to your friends you’re worth a damn. Sometimes it means dying. Some- times it means killing a whole lotta people. – Dwight –  I may be dead, but you are screwed! – Jackie Boy – 10 PUNKTAR UM SIN CITY 5 5. Brittany Murphy í hlutverki sínu í Sin City. Texti Ragnar Helgi Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.