Tíminn - 24.02.1971, Side 5
KBvihITDAGUR 24. febrúar 1971
TIMINN
5
MEÐ MORGUN
KAFFINU
— Hérna, smakkaffu. Þetta er hreint ekki svo vitlaust.
Lögfræðiugar tveir voru að
ræða um lckrfræði. Samræðurn-
ar gengn slitrótt, því báðir voru
kenndir og famir að gerast
Mökkir.
Eftir stundarþögn segir þó
annar:
„Þa'ð verð ég nú að segja, að
alltaf þykir mér vænzt um refsi
réttinn — næst konunni minni“,
bætti hinn þá við, klökkum
rónri.
— M ættir heldur að vera
hreykmn yfir, að ég skuli þora
að koma heim með svona eink-
ranrir.
Hollenzkur bóndi var á ferða-
lagi í Bandaríkjunum og hann
ræddi um heilsufari®.
— Læknirinn minn sagði, að
ég þyrfti á meiri hreyfingu að
halda, sagði Bandarikjamaður-
inn, — í staðinn fyrir að nota
bilinn, ætti ég að hjóla.
— Það er skrýtið, sagði Hol-
lendingurinn, en eins og kunn-
ugt er, hjóla allir í Hollandi, —
Læknirinn minn sagði mér að
hætta a0 nota hjólið og ganga
heldur.
Þegar ég var ungur og innan-
búðar í matvöruverzlun, kom 4
eða 5 ára snáði inn í búðina og
sagði: „Manni, viltu lána mér
krónu?“
„Hvað ætlarðu að gera við
hana?“ spurði ég.
,,Ég ætla að kaupa mér kara-
niellur fyrir hana“, sagði hann.
Hann fékk aurana og keypti
fyrir þá karamellur.
„Hvenær fæ ég svo pening-
ana aftur?“ spurð'i ég.
,,Þú ert búinn aið fá þá,“ anz-
aði sá litli.
DENNI
DÆMALAU5I
— Þótt þú sért slæm að slá,
geturðu þó svei mér slegið á
góða slaði, eða hitt þó heldur!
Fyrir rúmum tíu árum fæddi
frú Tiesse í París fyrsta barn
sitt, dóttur, sem hlaut nafnið'
Patricia. Á sama andaraki fædd-
ist í Teheran íranski krónprins-
inn, Reza. Frú Tiesse las um
það í blöðunum og þar sem
svona hittist á, ákvað hún að
senda keisarafrúnni í íran
skeyti og óska henni til ham-
ingju með prinsinn. Farah Diba
fékk skeytið og svaraði í sömu
tnynt og síðan hefur Tiessefjöl-
skyldan elskað og dáð írönsku
keisarafjölskylduna fram úr
hófi. Tiessehjónin haía öH þessi
ár klippt allt um keisarafjöl-
skylduna út úr blöðum og límt
inn í bækur, og nú er þetta orð-
ið heilmikið safn. Patricia litla
hefur sjálf í mörg ár séð um
innlímingarnar. Svo kom að þvi
fyrir rúmu ári, að Patricia las
í blaði, að krónprinsinn væri
væntanlegur til Parísar. Þá
skrifaði hún íranska sendiráð-
inu og skýrði málið og bað um
að fá að koma og sjá prinsinn
við móttökuna. Þetta endaði
með því, að Farah Diba lét
halda sérstaka veizlu í sendi-
ráðinu fyrir Patriciu og bauð
henni til Teheran í sumar. Þang-
að fór hún og þar var haldin
mikil afniælisveizla fyri>- hana
og Reza og öllum vinum hans
boðið. Daginn eftir var svo þjóð
hátíðardagurinn í íran og veizi-
an hélt áfram og þetta var lík-
ast ævintýri úr Þúsund og einni
nótt fyrir Patriciu. Hún dvaldi
í keisarahöllinni í nokkra daga
og bílstjórar fjölskyldunnar
voru til reiðu að sýna henni
borgina og allt það merkileg-
asta. Þær Farahnaz prinsessa
urðu góðar vinkonur og Reza
prins viH endilega að Patricia
komi aftur til Teheran næsta
sumar, þegar hann er í sumar-
fríi. Þegar Patricia lagði af stað
heim úr ævintýrinu, sagði prins
inn við hana: — Það er leiðin-
legt, að þú skulir ekki vera
strákur, en ég hlakka samt til
að sjá þig næsta sumar. Mynd-
in var tekin, þegar Patricia
heilsaði upp á draumaprinsinn
sinn í fyrsta sinn.
— ★ —
„Lifi la Marianne!" hrópuðn
Frakkar, þegar þeir geystust
fram til Verdun, Marne og Sed-
an, til að jafna um keisarann í
fyrri heimsstyrjöldinni. En 25
ár liðu og Maginot féll á einni
nóttu og sem tákn Frakklands
féll la Marianne svo mikið í áliti
að ráðizt hefur verið í að breyta
henni. Styttan af Marianne
sýndi konu me»ð grískan vanga-
svip og íklædda efnismikiHi
skikkju, og einhverju gamal-
dags höfuðfati, en sú nýja la
Marianne er greinilega Brigitte
Bardot, eftir myndinni að
dæma. Það ætti að vera óhætt
að hafa hana að vemdardýr-
lingi í stríði og það myndi ekki
hvaða land sem er hætta sér
gegn öðru, sem hefur á að skipa
svona öflugri brjóstvörn...
□
— Maður verSur að fylgjast
með tízkunni, segir Liz Taylor,
sem er búin að seúda alla
pelsana sína til feldskera, til að
láta framlengja þá í midistídd.
Þetta hljómar eins og frúin sé
hagsýn, en varla er hægt að
segja það, því Liz á 3 zobelpelsa,
4 minkapelsa, 2 hlébarðapelsa
og 11 af öðrum skepnum, en sá
verðmætasti þeirra allra er úr
Kojah-mink og kostaði margar
milljónir. Talið er, að kosta
munu rúma milljón að gera úr
honum midipels. En vissulega
værd dýrara að kaupa nýjan.
★ -