Tíminn - 25.02.1971, Qupperneq 2
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 25. febrúar 1971
Bandarískur hljómsveitarstjóri
og búlgarskur fiðluleikari með Sinfóníusveitinni i kvöld
George Cleve og Stoika Milanova
. Bandaríski hljómsveitarstjórinn
George Cleve stjórnar Sinfóníu-
hljómsveit fslands á tónleikum
hcnnar fimmtudaginn 25. febrúar
kl. 21:00. Einlcikari verðiir búlg-
arski fiðluleikarinn Stoika Milan-
ova. Á efnisskrá tónleikanna er
Oberon forleikur eftir Weber,
fiðlukonsert í e-moll eftir Mendels-
sohn og Sinfónía nr. 9 í C-dúr eftir
Schubert.
Hljómsveitarstjórinn George
Cleve fæddist í Vínarborg árið
1936, en fluttist til Bandaríkjanna
4 ára gamall. Hann stundaði alhliða
tónlistamám við Mannes tónlistar-
skólann í New York. Á árunucn
1954 til 1963 var hann nemandi
og aðstoðarhljómsveitarstjóri hjá
Pierre Monteux og stjómaði öll-
um helztu tónleikum, sem fluttir
voru í hljómsveitarstjóra-skóla
Pierre Monteuxs í Hancock í Maine
Bandaríkjunum. Árið 1965 bauð
(Tímamynd GH) George Szell honum að stjórna
MENGUNARRÁÐSTEFNA
HALDSN UM HELGINA
EJ—Reykjavík, miðvikudag. i Landvernd, sem gangast fyrir ráð-
| stefnunni, í samvinnu við Rann-
Á laugardag og sunnudag verður | sóknarráð ríkisins, Náttúmverad-
í Víkingasal Hótel Loftleiða ráð- arráð og Eiturefnanefnd. Tilgang-
stefna um mengun. Verða þar flutt ur ráðstefnunnar er að vekja at-
yfir 20 erindi um mengun í ýms-1 hygli almcnnings á mengunarvanda
um myndun. Það eru samtökin
Tilefnið er...
í Tímanum á laugardaginn er
gerð sú fyrirspurn hvert sé hið
gefna tilefni til yfirlýsingar þeirr
ar, sem birtist í Mbl. s. 1. föstu
dag, um að undirritaður hafi sfcrif
að „Rabbið“ í Lesbók Mbl. 14.
febrúar s. 1. sem einstaklingur en !
ekki sem fulltrúi stúdenta. Ástæð .
an er sú, að á miðvikudagskvöld t
ift kom að máli við mig formáður i
Félags stúdenta í Heimspekideild
og tjáði hann mér að sú hugmynd
hefði skotið upp kollinum að
þarna hafi ég gengið úr einstakl-
injgnum til að túlka skoðanir
stjórnar FSH.
Mér hafði ekki til hugar kom
10 að slíkur misskilningur gæti
risið, enda sendi stjórn félagsins
frá sér athugasemd um hluta þessa
máls fyrr í vetur. En þar sem ég
ér embættismaður FSM, eins og
fram kemur í greininni, þótti mér
rétt að undirstrika að ,,Rabbið“
skrifaði ég sem einstaklingur en
ekki sem fulltrúi einhverra stúd
entasamtaka.
Haukur Ingibcrgsson.
málum og benda á þá þætti þeirra,
sem þarfnast rannsókna eða að-
gerða hérlendis.
Hákon Guðmundsson, yfirborgar
mála deildar Norræna rannsóknar-
ráðsins, NORDFORSK.
Fyrri daginn verða auk þess
flutt erindi um rannsóknir á loft-
mengun á íslandi, geislamengun,
gerlamengun í vatni, mengun frá
efnaiðnaði, mengun. vatnsbóla og
öflun neyzluvatns, olíumengun í
sjó. efnamengun í sjó og mengun
frá sorþi Ög' nölfæsum. Síðari clag-
inn verða flutt erindi um jarðvegs-
hljómsveitinni í Cleveland og var
hann um skeið aðstoðarhljómsveit
arstjóri Cleveland hljómsveitarinn-
ar. Fastráðinn stjórnandi hefur
hann verið vi® Sinfóníuhljómsveit-
ina í St. Louis 1967/68 og aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Winnipeg 1968—70.
Fiðiuleikarinn Stoika Milanova
er fædd í Búlgaríu og er 25 ára
gömul. Hún er af tónlistarfólki
komin. Faðir hennar er fiðluleik-
ari og hjá honum stun aði hún
nám við Tónlistarskólann í Sofíu.
Hún stundaði framhaldsnám hjá
David Oistrak í Moskvu á árunum
1964—1969. Milanova tók þátt í
alþjóðlegri fiðlukeppni sem háð
var í Brussel 1967 og kennd er við
Elísabetu Belgíudrottningu og
vann 2. verðlaun. Fyrstu vehðlaun
hlaut hún í Carl Flesch fiðlukeppn
inni í London á siðastliðnu ári. Hún
hefur haldið tónleika mjög víða
og leikið með hljómsveitum.
dómari, formaður Landverndar, tnengun, áhrif mengunar á villt
setur ráðstefnuna kl. 10 á laugar-
daginn. Að setningu lokinni flytja
tveir erlendir sérfræðingar yfir-
litserindi, en þeir eru Robert E.
Boote, formaður náttúruverndar-
nefndar Evrópuráðsins, og Nils
Mustelin, deildarstjóri mengunar-
Sáttafundur í nótt
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
Sáttafundur í togaradeilunni
hófst kl. 14 í dag. Hlé var gert í
kvöld, en fundinum verður hald-
ið áfram í nótt.
Frá skrifstofu
Framsóknarflokksins
Vegna jarðarfarar Sigtryggs
Klemenzsonar, seðlabankastjóra,
verður skrifstofa Framsóknar-
flokksins lokuð kl. 13—15 í dag,
fimmtudag.
dýr, áhrif mengunar á plöntur,
heilbrigðiseftirlit, eiturefni og
mengun, löggjöf og reglur og meng
un og lífsgæði.
Inn á milli verða umræður og
fyrirspurnir til ræðumanna.
Ráðstefnunni á að ljúka um
kvöldmatarleytið á sunnudag.
Þrír
hljóta
sár af
menn
bruna-
völdum
sprengingar
SJ-Reykjavík, miðvikudag.
Á tíunda tímanum í kvöld,
varð sprenging í sfcúr vio húsið
Rauðagerði 52 í Reykjavík. Einn
maður brenndist allmikið og
tveir aðrir nokkuð, voru þeir
fluttir á Slysavarðstofuna. Menn-
irnir voru að vinna við logsuðu,
en ekki var fullkunnugt um orsak-
ir sprengingarinnar né meiðsl
mannanna þriggja þegar blaðið
fór í prentun.
Skákkeppnin
Svart: Taflfélag Akureyrarj
Jóhann Snorrason og
Margeir Steingrímsson.
vgoaaáoe
œ
ia
n
M
ABCDEFGH
Hvítt: Taflfélag Reykjavfknri
Gunnar Gunnarsson
og Trausti Björnsson.
22. leikur hvíts: Rc3—e2
Framkvæmdastjóri
Fióttamannastofnun-
arinnar væntanlegur
Prins Sadruddin Aga Khan
framkvæmdastjóri Flóttamanna
stofnunar S.Þ. mun koma hing
að til lands 17. — 18. april n.
k. á vegum ríkisstjórnarinnar
og Flóttamannaráðs íslands í
'Tilefni af landssöfnuninni
„Flóttafólk 71“, sem fram fer
á öllum Norðurlöndum 25.
apríl.
Sadruddin prins tók fyrst
þátt í störfum fyrir flóttafólk
árið 1959 er hann sá um sér-
stök verkefni Flóttamannastofn
unar S. Þ. vegna undirbúnings
Flóttam anna ársins.
Sadruddin prins gegndi stö&ú
varaframkvæmdastj. Flótta-
mannastofnunarinnar frá 1962
—1965, en stöðu framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar tók hann
l. janúar 1966, og var endur-
kjörinn til 31. desember 1973.
Þess má geta að Sadruddin
Aga Khan prins er nú mjög til
umræðu sem hugsanlegur fram
kvæmdastjóri S. Þ. er U Thant
dregur sig í hlé.
FUF í Reykjavík
Um helgina:
RAÐSTEFNA UM VELFERÐARMAL
Félag ungra framsóknarmanna í
Reykjavík efnir til Velferðarráð
stefnu á sunnudaginn, 28. febrú
ar. Ráðstefnan verður í Glaumbæ
uppi og hefst fcl. 14.
Fjallað verður um velferð aldr
aðra og um almannatryggingar.
Framsögumenn verða:
Gunnar Gunnarsson. deildarstjóri
hjá Sjúkrasamlagi Reykjavífcur, og
Tómas Karlsson, ritstjóri.
Að framsöguerindum loknum
verða alniennar umræður, en í
lok ráðstefnunnar verður afgreidd
ályktun ráðstefnunnar.
Ráðstefna þessi er öllum opin,
og er ngt fólk sérstaklega hvatt
til að mæta og ræó'a velferðarmál
aldraða fólksins í landinu.
FUF í Reykjavík.
n
i
i
l
Gunnar
Tómas
Þegar páfar kveðja, setjast kardí-
nálar á rökstóla til að velja eftir-
manninn, og gengur stundurr? í brös-
um, þótt allt fari fram með sikipu-
legum hætti samkvæmt venju rétt-
trúnaðarins. Við Islendingar höfum
ekki haft neitt af páfum að segja
síðan um miðja sextándu öld, þótt
fyrir hafi komið að innan einstakra
greina jþjóðfélagsins hafi sprottið
upp menn með páfalega til'burði. Nú
hefur einn slíkur páfi kvatt opin-
berlega, þótt enn sé í fuliu fjöri, og
hyggst halla sér á lárviðarlaufin.
Þessi ágæti maður er sjáltfur Krist-
inn E. Andrésson, sem í áratugi var
einskonar bókmenntalegur ægiskelf-
ir í landinu, og safnaði um sig rót-
tækum höfundum eins og svertingja
kerling glerperlum, og tefldi þeim
síðan fram á vettvang þjóðmála og
listar með slikum giæsibrag, að ín
heidur ungt fólk að það beri vott
um gáfur að tileinka sér öreiy f->c og
sérstakan talanda. 1 síðasta eintaki
Tímarits Máis og menningar kveður
Kristinn og segir m.a.: „Það getur
ekki héðan af orðið neins að sakna
þó að óg láti af ritstjórn tímarits-
ins, . . .“. Þetta er næsta mæðuleg
kveðja mikilsmetins og virðingar-
verðs manns, sem Kristinn var og
er. Hinu er ekikd að neita, að páfa-
garðurinn er nú næsta eyðilegur
yfir að Mta, og sú endurnýjun, sem
byltingafólkið reynir ætíð að skipu-
leggja, hefur að mestu runmið út 1
sandinn. Nú eru flest hin rauðu
ljón orðin öldruð. Svo er um Jó-
hannes úr Kötlum, Gunnar Benedikts
son, Guðmund Böðvarsson og Hall-
dór Stefánsson. Einn sagði hrein-
lega bless; sjálfur yfirsnillingurinn
Halldór Laxness og leitar nú víða
vegu að nógu liressum Eyjólfi.
Dagar
kardinálanna.
Engu er líkara en nokkrir félagar
i Rithöfundafélagi Islands ætli nú á
farardögum Kristins E. Andrésson-
ar að taka upp einskonar samvirka
forustu, sem endurreisi hinn forna
páfagarð bókmenntanna. Hafa þeir
sýnt tilburði í þá átt að setja menn
og stofnanir undir aga og skikk sam-
kvæmt öreigaformúlunni frá kreppu-
árunum. Nefna má í þvi sambandi
þá Einar Braga, Thor Vilhjálmsson
og Sigurð A. Magnússon, ritstjóra
Samvinnunnar. Alyktun sú sem barst
Timanum, frá Rithöfundafélagi 's-
lands, varðandi tillögu Rithöfunda-
þings um gestaprófessorserr.bættið
hefur á sér ýms einkenni þess, að
þeir þrír hafi um hana fjatlað, enda
er lögð áherzla á það, að menn eigi
ekki að vera að ergja prófessora, held
ur styðja þá í því að komið verði á
fót nýrri stofnun handa einhverjum
þeirra, og mun þeirri stofnun ef-
laust fylgja sérherbergi, sími, rit-
vél og skrifstof-upía, en slíkt stendur
náttúrlega bókmenntunum fnamar.
En séu þetta kardinálamir sem ætíia
sér að ráða nokkru í hinum gamla
páfagarði Kristins E. Andréssonar,
þá gleyma þeir því að Kristinn stóð
alltaf með bókmenntunum, minna
með sjálfum sér. Auk þess lét hann
öðrum eftir að yrkja. Það er þvi
varla við því að búast að kardinál-
arnir ætli sér sjálfir embætti páf-
ans. Hins vegar ættu þeir að geta
ráðið miklu um hver hinn nýi páfi
verður, Hvitur reyfcur úr strompi
gefur heiminum til kynna þegar nýr
páfi hefur verið kjörinn í Vatikan-
inu. Enn hefur ekki sézt rjúka úr
neinum strompi í Reykjavik, hvorld
á Háskólanum né Rúblunni. Þvl er
ekki um annað að gera en fara að
dæmi kaþólsfcra og bíða.
Svarthöfðl.