Tíminn - 25.02.1971, Qupperneq 3

Tíminn - 25.02.1971, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 25. febrúar 1971 TÍMINN MARGI AÐ- KOMUFÚLK A HÖFN í vetur er mikill fjöldi að- komumanna á Höfn í Horna- firði á mælikvarða Hornfirð- imga. Talið er, að aðkomufólk ið sé um 150 talsins. íbúar Hafnar eru aðeins rúmlega 900. svo áðkomufólkið er margt hlutfallslega. Aldrei áður hef ur jafn margt a'ökomufólk ver ið þar á vetrarvertíð, en þó jafnan eitthvað. Flest fólkið kemur annars staðar að af Austfjörðunum, bæði úr ná- grannasveitum Hafnar í Aust ur-Skaftafellssýslu og einnig af fjörðunum og ofan af Hér- aö‘i. Húsnæðisvandi'æði eru nokkur í Höfn, þegar svona margt aðkomufólk fcemur sam tímis á staðinn, en iblóminn í hópi aðkomufólksins eru 11 ; stúlkur, sem vinna í frystiihús inu, og búa þær á hótelinu. Annars eru aðkomumennirnir dreifðir um vinnustaði staðar ins,. og vinna í frystihúsinu, við saltfiskverkun, við sfldina sem er eftir, vió1 loðnuvertíðina og svo á bátunum, sem gerðir eru út í vetur á vetrarvertíð frá Höfn í Hornafirði. Myndin hér með er af stúlkunum, sem hafa komið til þess að vinna á Höfn í vetur. (Tímamynd Kári). DRYKKJAR- VATNIÐ RANNSAKAÐ SJ—Reykjavík, þriðjudag. í morgun. birtist í Tímanum frétt um að drykkjarvatn í sam býlishúsinu nr. 26-28-30 við Háa- leitisbraut væri grugguigt. Starfs menn Heilbrigðiseftirlitsins tóku í morgun sýnishorn af kalda vatn inu í húsinu, næstu húsum og í nágrenninu. Einnig var tekið sýnis horn í Gvendarbrunnunum, vatns- bóli Reykjavíkur. Vatnið verður ranansakað og er fyrstu niðurstöðu þeirrar rannsóknar að vænta á föstudag. Eftir því, sem næst verð ur komizt hafa starfsmenn Vatns veitu Reykjavíkur ekki enn kynnt sér mál þetta. í fréttinni misritað ist nafn eins íbúa hússins. Átti það að vera Hannes Pálsson, en ekki Halldór. Alþingi Framhald al 1? 8. eru í greinargerð með frv. frá því í fyrra taldir ein mikil- vægasta friðunaraðgerð, sem framkvæmd hefur verið hér á landi og meira að segja rætt um það, að þjóðgarðar, a.m.k. tveir, þurfi að vera í hverj- um landsfjórðungi. Staðreynd- in er sú, að það cr alls ekki nóg að friðlýsa land með því að gera það að þjóðgarði, og raunar getur það verið hættu- legt, ef jafnframt er ekki séð fyrir því, að aðstaða vaxandi fjölda manna, sem í þjóðgarð- ana hljóta að leita, sé stórlega bætt og tryggð.“ Fleiri þingmenn tóku þátt i umræðu, þar á meðal Einar Ágústsson, og verða ræðu hans gerð skil í blaðinu á morgun. Vinnuveitendasambandiö segir nei Vinnumálasamband Samvinnuféiaganna enn að kanna málið EJ—Reykjavík, miðvikudag. Vinnuveitendasamband íslands hefur nú tilkynnt Alþýðusambandi íslands bréflega, að það geti ekki fallizt á kröfu 20 manna viðræðu nefndar verkalýðshreyfingarinnar um, að atvinnurekendur bæti laun þegum upp þá 2,6% skerðingu, sem orðið hefur á launagreiðslum samkvæmt þeim samningum, sem gerðir voru í fyrra, vegna að- gerða ríkisvaldsins. Vinnumála- samband Samvinnufélaganna hafði í dag ekki tekið endanlega afstöðu til óska viðræðunefndar Alþýðu- sambandsins, en mun væntanlega gera það alveg á næstunni. Eins og fram hefur komið í Tímanum. fór 20 manna vi'ö'ræðu nefnd á fund með fulltrúum Vinnu veitendasambandsins og Vinnu- málasambandsins fyrir nokkru og lagði þar fram ósk sína um, að þau 2,6%, sem hér um ræðir, yrðu greidd launþegum með hækkun á grunnkaupi. Tóku samtök vinnu veitenda sér síðan frest til þess að taka afstöðu til þessara óska verkalýci'shreyfingarinnar. Vinnuveitendasambandið hefur nú svarað þessum óskum neit- andi, og lýst því jafnframt yfir, að það telji kjarasamningana frá því í fyrra í fullu gildi til enda loka samningstímans. Verkalýðs Framhald á 14. síi.'u. Klapparstíg 26, sími 19800, Rvk. og N Brekkugötu 9, Akureyri, sími 21630. Það þarf talsvert til að standa fremst á þýzkum sjónvarps- markaði. Tæknileg fullkomnun, glæsi- bragur og úrval ólíkra gerða segja sitt. Nordmende þýðir að njóta þess bezta. Óskirnar fá menn uppfylltar þar sem úrvalið er mest. Verð frá kr.* 18.500.00 Útborgun kr. 5.000.00 Eftirstöðvar á 10 mán. 3 AVIÐA JHBsjl Jafnaðarhugsjónin og hinir öldruðu Ingvar Gíslason, alþingis- maður, ritaði mjög athyglis- verða grein um kjaramál aldr- aðs fólks í Tímann sl. þriðju- dag. Á undanförnum áratug- um hafa verið stofnaðir margir lífeyrissjóðir í landinu á þröng Ium grundvelli í stað þess að efla einn sjóð, sem flestir eða allir landsmenn ættu aðild að. í nágrannalöndunum hefur átt sér stað gagnger endurskipulagn ing lífeyriskerfisins og þar hefur hagur ahlraðra stórbatnað með v auknum kaupmætti launa, en á | sl. áratug hefur kaupmiáttur launa vaxið um 20—40% á | sama tíma og kaupmáttur tíma- i kaupsins hefur staðið í stað hér % og eins og áður liefur verið sýnt fram á hér í blaðinu, þá rýrn- aði t.d. kaupmáttur ellilífeyris Tryggingastofnunarinnar frá 1967 til ársloka 1970 um 9.6%. Það má til sanns vegar færa að það sé vandasamt verk að sameina hina fjölmörgu líf- eyrissjóði, sem mjög eru mis- jafnir að uppbyggingu og fjár- hagsgetu í einn sjóð. Það verð ur naumast gert með góðu sam- komulagi nema ríkissjóður komi myndarlega til móts við þá og tryggi öllum lífeyrisþeg- um verulega bætt kjör með slíkri sameiningu. Margir eru þeir ellilífeyris- þegar, sem ekki hafa átt þess kost að greiða í sérstakan líf- eyrissjóð stéttar sinnar meðan Iþeir þjónuðu þjóðfélaginu. Kjaramismunur er af þessum sökum mjög mikill meðal aldr- aðs fólks hér á landi, en í ná- grannalöndunum hefur verið stefnt að kjarajöfnuði og kerfið miðað við það, að öllu öldruðu fólki séu tryggðar lágmarkslíf- eyrisgreiðslur, sem séu í því horfi, að aldrað fólk geti lifað sæmilega og án erfiðleika á líf- j eyri sínum. I ÓlíScar aðstæður Um þetta sagði Ingvar Gísla- son m.a.: „Það gæti verið fróðlegt að ræða frekar tekjumismuninn hjá aldraða fólkinu, til þess að sýna betur fram á, hvílíkt haf- djúp ranglætis og ójafnaðar ríkir í hinu svokallaða vel- fcrðarþjóðfélagi. Við höfum mitt á meðal okkar aldrað fólk, verkamenn, bændur, sjómenn, iðnaðarjneun o.s.frv., — fólk, sem hefur slitið sér út á strit- vinnu allt sitt iíf, — sem ekki hefur aðrar peningatekjur til framfæris sér í ellinni en 4.900 kr. á mánuði. Svo er annað fólk, kannski á næstu grösum, kannski náskylt hinu fyrra. eða vina- og kunningjafólk, sem nýtur ríflegs lífeyris úr Iífeyrissjóði auk hins almcnna lífeyris. í fyrra dæminu er aldraða fólkið dæmt tii örbirgð ar og efnalegs ósjálfstæðis, en í síðara dæminu nýtur fólkið viðunandi tekna, er efnalega sjálfstætt og getur dregið sig í hlé frá störfum með sæmd og kvíðalaust. f þessum dæmum er ekki fyrir að fara neinum mann- dómsmun. En hér gerir þjóðfélagið sér mannamun. Framhald á 14. sföu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.