Tíminn - 16.05.1971, Page 5

Tíminn - 16.05.1971, Page 5
I Oi STJNNUDAGUR 16. maí 1971 TÍMINN .iAiiani Y7 Ársþing Ungmennasambands Eyjafjarðar „Stöndum traustan yörö um íslenzk þjóðarverömæti og fornan menningararf" Ársþing Ungmennasambands Eyjaf;jaríiar, hið fimmtngasta, var haifflé í Bamaskóla Svalbarðs- sirandar 24. og 25. apríl s.l. Forsetar þingsins voru Haukur Halldórssoo og Sigurður Sig- mnndsstm, en ritarar Haukur SteindórssMi, Magnús Kristins- son og Friðrik Friðriksson. Að- komnir gestir voru: Hafsteinn Þorvaldsson formaður UMFÍ, Sig- urður Gcirdal framkvæmdastj. UMFÍ, Sveinn Björnsson vara- form. ÍSÍ, og Hermann Guðmunds son iramkvæmdarstjóri ÍSÍ. Fluttu þeir allir ávörp, ræddu m.a. mál- efni sinna samtaka og svöruðu fyr irspumunr Einnig afhenti vara- formaður ÍSÍ þeim Sveini Jóns- syni og Þóroddi Jóhannssyni, þjónustumerki ÍSÍ, sem viður- keimingu fyrir störf þeirra í þágu iþróttasamtakanna. í skýrslu stjórnar UMSE, sem lögð ,yar fram á þinginu, kom í Ijós, að starfsemi sambandsins hafði vcrið margþætt. Mest var sterfað á sviði íþrótta. Má þar nefiia mikla íþróttakennslu, stað- ið var fyrir fjölda íþróttamóta og keppendur sendir á mörg mót ut- an héraðs, oft með góðum ár- angri. Komið var á sumarbúðumi fyrir börn, farið í landgræðslu- fcrð, unnið að bindindismálum og staðið fyrir skemmtanahaldi. — B.eikningar sýndu fremur lélegan fjárhag UMSE. Ársþingið gerði starfsáætlun, í stórum dráttum fyrir yfirstand- andi ár, en hér verður stiklað á stóru. Ákveðið var að halda uppi íþróttakennslu eftir því sem tök væru á, koma á iþróttamót- um með svipuðum hætti og áður, og standa fyrir sumarbúðum. Lögð var áherzla á, að gera þátt- töku UMSE í Landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki nú í sumar, sem glæsilegasta og átak skyldi gert til að efla starfsiþróttir í hérað- inu. Á þessu þingi var rætt um „Trimmið“. Var m.a. samþykkt á- skorun til forráðamanna skólanna á sambandssvæðinu, um að koma á sérstökum útivistar skokktím- um fyrir nemendur á hverjum kennsludegi. Einnig var skorað á forráðamenn sveitarfélaga, að sjá tíl þess, að íþróttamannvirki, svo sem sundlaugar, yrðu opnar al- menningi til „Trimm“ æfinga. Þeirri ábendingu var beint til viðkomandi forráðamanna í hér- aðinu, að þeir gættu þess við byggingu íþróttamannvirkja, að þau verði hæf til löglegrar íþrótta keppni. Þingið lagði áherzlu á aukna bindindisfræðslu og fagnaði banni á tóbaksauglýsingum. Samþykkt var að auka starf við iandgræðslu og landvernd. Svohljóðandi tillaga var sam- þykkt samhljóða. „50. þing UMSE fagnar lieimflutningi handrit- anna og þakkar öllum þeim, sem studdu að farsælli lausn handrita- málsins. Jafnframt heitir þingið á alla ungmennafélaga að standa traustan vörð um íslenzk þjóðar- verðmæti og foman menningar- arf;“ Á næsta ári verður UMSE/50 ára. Á þinginu var kosin 5 mpnna afmælisnefnd, sem undirbúi, í samráði 'við stjórn sambandsins, hátíðarhöld af því tilefni. Var rætt um að athuga möguleika á að koma á Eyfirðingavöku í sam bandi við afmælið .Þá var einnig ákveðið að gefa út vandað afmæl- isrit. Umf. Æskan á Svalbarðsströnd hafði veg og vanda af, að taka á móti þinginu. Var öll fyrir- greiðsla félagsins veitt af mikilli prýði. f þinglok bauð félagið öll- um fulltrúum til ágætrar veizlu og stýrði formaður félagsins, Haukur Halldórsson, þeim fagn- aði. Við það tækifæri var Umf. Svarfdæla Dalvík afhentur „Sjó- vábikarinn“ til eignar, en félagið hefur orðið stigahæst á mótum UMSE s.l. þrjú ár. Umboð Krist- jáns P. Guðmundssonar Akureyri, gaf þennan grip. Innan UMSE eru nú 15 félög, með rúmlega 1000 félagsmenn. Stjórn sambandsins var öil end- urkosin, en hana skipa: Sveinn Jónsson formaður, Haukur Stein- dórsson ritari, Birgir Marinósson gjaldkeri, Páll Garðarsson vara- formaður og Sigurður Jósefsson meðstjómandi. f varastjóm eru: Sigurður Sigmundsson, Haukur Halldórsson og Vilhjálmur Björns son. — Framkvæmdastjóri er Þór- oddur Jóhannsson. Akranes StaSa innheimtumanns á bæjarskrifstofunni er laus til umsóknar. Reynsla í hliðstæðum störfum auk staðþekkingar æskileg. Laun samkvæmt Kjarasamningi. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 22. maí n.k. Bæjarstjórinn á Akranesi. Frá Ársþingi UMSE. Hafsteinn Þorvaldsson, formaSor UMFÍ, t. h„ ræðir við nokkra forráðamenn UMSE. Þeir ero, taklir frá hægri: Haukur Steindórsson, Sveinn Jónsson, Birgir Marinósson og Pált Garóarsson. n c\i i 1 i < z Z Nýuppgötvnö ferðamannaparadís Mörg góð hótel. Dásamlegt landslag. Hollt og hressandi úthafsloftslag. Matur, sem hæfir yður vel (og þér skiljið matseðilinn). Engíft gjaldeyrishömlur. Þér getið haft mpð yður allt yðar fé, ef þér óskið. Engin tollsköðun. Ekkert vegabréfsstýss. Nóg af friðsælum stöðum. Þér getið hvílzt í fríinu. Og íbúarnir tala yðar tungu. Við kynnum yður paradís ferðamanna: island. Við veitum innlendum ferðamönnum hvers konar þjónustu í ferðalögum innanlands. Gefum út fa^eðla, skipu- leggjum hópferðir, tryggjum gistingu, útve;gum veiðileyfi, ferðatryggingu og bfl frá bílaieigu, veitum upplýsingar og ieiðbeiningar um ferðir. Öll þessi þjónusta stendur yður til boða án sérstaks endurgjalds. Notfærið yður það. þérfáið yóarferð hjáokkur hringió í síma 25544

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.