Tíminn - 06.06.1971, Page 2
TÍMINN
SUNNUDAGUR 6. júní 1971
® KARNABÆR
FRÁ HLJÓMPLÖTUDEILD KARNABÆJAR
Plöturnar, sem mest eru spilaðar:
UMSJÓN: EINAR BJÖRGVIN
• JESUS CHRIST SUPERSTAR
• WOODSTOCK
• WOODSTOCK 2
• CROSBY, STILLS, NASH and YOUNG . . .
CROSBY, STILLS and NASH.
Ný tvöföld 4 WAY STREET.
• JANIS JOPLIN
PEARL
I GOT DEM OL’ KOZMIC BLUES AGAIN,
MAMA.
• SANTANA
SANTANA
ABRAXAS
• URIAH HEEP
SALISBURY
• THE YES ALBUM
• LEONARD COHEN
SONGS OF LOVE AND HATE.
• BLACK SABBATH
BLACK SABBATH
PARANOID
• DEEP PURPLE IN ROCK
• WISHBONE ASH
• GEORGE HARRISON . . .
ALL THINGS MUST PASS
• TEN YEARS AFTER
WATT
• EMERSON, LAKE and PALMER
• DAVID CROSBY
• STEPHEN STILLS
0 JIMI HENDRIX
CRY OF LOVE
ELECTRIC LADYLAND
AXIS BOLD AS LOVE
ARE YOU EXPERIENCED
SMASH HITS
• BLOODROCK 2
• HAIR
LONDON CAST
BROADWAY CAST
• CAT STEVENS
TEA FOR THE TILLERMAN
MONA BONA JAKOM
• STEPPENW OLF
MONSTER
7
• BOB DYLAN
ALLAR PLÖTUR
• SIMON & GARFUNKEL
ALLAR PLÖTUR
• CHICAGO
I, n & III.
• THE BEST OF NICE.
— Póstkröfuþjónusta. — Sími 13630.
© KARNABÆR
Laugavegi 66. Box 75.
11 Við ! /eljum mmiisl
þa? i borg crr sig
j;
- Of 'NAH H/F.
Síðumúl a 27 . Reykjavík
.» Símar 3 •55-55 og 3-42-00
Skrukka kom í Saltvík
En enginn hneykslast á henni, því hún er ekki lengur góða barnið.
Jæja krakkar, þetta var nú
meira fjörið á Saltvíkurhátíð
inni nm h vítasunnuhelgina.
fjörið var svo óskaplegt, að
Iiægt er að minnast þess enn,
þótt ný helgi sé upprunnin.
Þarna var áfengi drukkið —
sumir reyktu meira að segja
hass — og það sem ef til vill
var merkilegast við þetta allt
saman, var að fólk, sem tilheyr
ir því fullorðna, kom líka og
leyfði sér þann munað að
dýrka Bakkus, sem það gerir
örugglega e kki oft. Svo var
tónlistin í hávegum höfð og
ýmis önnur skemmtilegheit.
Og á þessari hátíð „sjokker-
uðust“ einhverjir, aðrir týndu
skónum sínum og meiddu sig
á því, að vaða berfættir brot-
ið gler, nokkrir fengu háls-
bólgu og kvef, einhverjir glöt
uðu tjöldum sínum og öðrum
farangri, margir urðu drullug
ir frá tá til toppar á því að
vaða forarsvað (eru vonandi
orðnir hreinir aftur), nokkrir
voru svo óheppnir að detta í
sjóinn, einhverjir komust á
fast og eilítið færri urðu fyrir
því' óhappi að verða einstæð-
ingar á nýjan, leik, nokkrir
lömdu og líklöga jafnmargir
voru barðir — og margir urðu
einfaldlega blankir, svo að
pabbi og mamma þurfa að
standa í meiri útgjöldum (fyr-
ir hann Nonna litla og Siggu
sína, sem þótti svo leiðinlegt
í Saltvík innan um allar fylli-
bytturnar).
Allt þetta og miklu meira
Já, allt þetta og margt,
margt fleira gerðist á Saltvík-
urhátíðinni, en vonandi hafa
allir komizt heilir í höfn aftur
eða því sem næst.
Svo eru menn að segja að
„tilraunin“ hafi mistekizt, há-
tíðin hafi speglað vandamál ís-
lenzku þjóðarinnar, það sé
eins og unglingunum sé ekki
treystandi til neins og þar
fram eftir götunum. Vesalings
þeir, sem héldu að enginn
sýndi þann ósóma, að drekka
áfengi í henni Salvík um hvíta
sunnuna, allir myndu lifa í
sátt og samlyndi, hlusta bara
á tónlist og anda djúpt að sér
hinu tæra íslenzka andrúms
lofti.
Allir í kór
Jæja, eftir allt þetta fjör,
hlýtur að vera kominn tími til
þess að huga að einhverju á-
líka æðisgengnu á næstunni,
þar sem ekki einu sinni allar
helztu popphljómsveitir og aðr
ir aðalskemmtiskraftar lands
ins þendu sig á palli fyrir
framan forarsvað, heldur væri
tilvalið að fá súparstjömur ut
an úr hinum stóra heimi til
þess að taka þátt í slíku alls-
herjarballi. Einnig væri tilval-
ið að fá skemmtikrafta eldri
kynslóðarinnar líka: 200
punda óperusöngkonur, lands
eða heimsfrægar hermikrákur,
söngkóra, 10—20 tónsnjalla
presta, og gjaman nokkra lag
lausa líka og þar fram eftir
götunum. Itó. gætu allir, bæði
ungir sem afdnir, drukkið sitt
vín og réykt eða étið sitt dóp
og sungið í sameiningu einn
kröftugan hallúja- söng í lok-
in. Síðan sneru allir aftur að
sínum daglegu störfum, þreytt
ir og sælir yfir lifsins gæðum
og þyrftu ekki að hneykslast
eða gráta yfir ólifnaði hvers
annars. Sannarlega yrði þetta
ekki eins fráleitt og þegar kerl
ingin áleit margt skrýtið í kýr
hausnum, þegar hún handleggs
braut sig á því að fara í sokk
ana öfugu megin.
Eftirþankar
og svo skáluðu þeir eldri fyrir forarsvaði og ungu fólki
Stúlka, sem sagðist vera 17
ára, hringdi í MUF á þriðju-
daginn og bað að láta það
koma fram, að hún sjálf hefði
unnið fyrir peningunum er
hún eyddi í Salvíkuráfengið
sitt.
Sama stúlka bað ennfremur
MUF um að geta þess, að sér
hefði fundizt gaman í Saltvk.
Piltur, sem sagðist heita Jón
Jónsson, kom að máli við MUF
í fyrradag og bað um að það
kæmi skýrt fram, að hann
hefði ekki reykt hass á Saltvík
urhátíðinni. Sami Jón kveðst
álíta, að óeinkennisklæddur
lögregluþjónn hafi rifið af hon
reykjarpípu, sem í var hálft
gramm af Prince Albert-pípu-
tóbaki.
14 ára stúlka, sem kallar sig
Mettu, kveðst f viðtali við
MUF „aðeins“ hafa hlustað á
tónlistina á Saltvíkurhátíðinni.
250 pör af strigaskóm ku
hafa týnzt í Saltvík um helgina.
Finnendur mega nota þá kæri
þeir sig um, annars setja
skóna í ruslatunnu.
51 árs kona biður að taka
það fram, að sonur sinn, sem
er 22 ára, laglegur piltur, frem
'ur hávaxinn eftir aldri, hafi
ekki verið undir áhrifum
áfengis í Saltvík enda hafi
honum l^iðzt svo í öllum ósóm-
anum, að hann hafi komið
heim tveim klst. áður en hátíð
inni var slitið.
Að lokum verður MUF að
biðja 35 hneykslaðar konur for
láts á því, að ekki er pláss fyr
ir greinar þeirra og biður þær
vinsamlegast að senda þessar
ágætu greinar til Velvakanda
Morgunblaðsins.