Tíminn - 06.06.1971, Page 5
«. jfarf Mia
TÍMINN
MEÐMORGUN
KAFFINU
— Verta ekki að oskra þetta drengur, pabbi þinn sefur.
vahjábnur Stefánsson, land-
körmuður, hélt eitt sinn mið-
degisverðarboð fyrir íslendinga
á heimiE sínu í New York.
EfBr borðhaldið settust karl
mennirnir inn í skrifstofu Vil-
hjálms, og fer hann að lýsa
fyrir þeim Kfnaðarháttum sela
í norðurhöfum.
— Fyrst koma urtumar á
vorin, og svo koma brimlamir
á eftir þeim upp á ísinn og
öskra á urturnar. — Ég held
annars að ég geti líkt eftir
þessu hljóði, segir Vilhjálmur
og rekur upp ámátlegt öskur.
— f>á opnast skrifstofudym
ar og inn gægist eiginkona Vil
hjálms og spyr.
— Varstu að kalla á mig
ViBi?
Guðní bóndi hafði keypt eyði-
kot, sem komið var í fulla ó-
raekt, en kom því á fáum árum
í ágæta rækt.
Söknarpresturinn heimsótti
eitt sinn Guðna, dáðist að um
bótum hans á kotinu og sagði:
— Mikið hefur þér tekizt,
Guðni minn, með guðs hjálp-
að endurbæta jörðina þína.
Þá sagði Guðni.
— Já, þú hefðir bara átt
að sjá kotið, meðan guð var
einn vnn endurbæturnar.
Sigurður skáld hitti kunn-
ingja sinn á götu og sagði:
— Hvað heldurðu, að hafi
komið fyrir mig? — Þegar ég
kom heim í gærkvöld, var litli
strákurinn minn að enda við
að rífa í tætlur handritið að
Ijóðasafninu mínu.
— Hvað er þetta svaraði
kunningi hans. Er hann orð-
inn læs?
Michelsen úrsmiður á Sauð-
árkróki hafði ýmiss konar smá
varning á boðstólum auk úra
og skartgripa.
Eitt sinn kom kona ein í
búð hans og bað um eitt kíló
af grænsápu. En hún gekk bón
leið til búðar.
Vi haver . ikke matvarer,-
sagði Miehelsen.
Kona ein sagði við mann
sinn.
— Ég fór til spákonu í gær,
og nú veit ég, að ég verð
gömul.
— Þú hefðir ekki þurft að
fara til spákonu til þess að
vita það, sagði bóndi hennar.
— Þú hefSir ekki þurft ann-
að en að líta í spegil.
DENNI
DÆMALAU5!
Ég þarf að minuast á svo
margt í kvöld Guð, ef til vill
væri liezt fyrir þig að ná þér í
blað og blýant áður en ég byrja.
Þetta er hún Rose Kennedy,
móðir Kennedy heitins Banda-
ríkjaforseta, og með henni er
„sonur“ hennar Ari Onassis.
Rose kallar Ari son sinn, og
Jackie dóttir sína. Hún lætur
hafa það eftir sér, að hún sé
óendanlega hamingjusöm, þeg-
ar henni gefst tækifæri til þess
að dveljast með þeim, og henn-
ar heitasta ósk sé, að þau gefi
henni enn eitt „barnabarn".
Rose gamla er nú 79 ára göm-
ul, og varð ekkja síðast liðið
haust. Hún hefur misst þrjá
syni sína á hryllilegan hátt, þeir
John og Robert voru mvrtir og
á stríðsárunum fórst Joseph
> .*—
■Ml « ti J y I .4'"HSiií’l i (
Það eru fleiri en kvenfcíkið,
sem taka inn Pilluna — með
stórum staf. Alllengi hefur
tíðkazt að gefa læðum Pilluna,
og nú síðast hefur þessi pillu-
taka komizt í blöðin í Svíþjóð
í sambandi við verðlaunakött að
nafni Isabella. Eigandi Isabellu,
sem er frá Skövde í Svíþjóð
greip til þess ráðs að gefa henni
Pilluna fyrir nokkru til þess að
hún fjölgaði ekki kattakyninu
um of. Síðan var ákveðið að
tími væri til þess kominn, að
ísabella hitti fress. Á réttum
tíma var ísabella léttari, en öll-
um til hinnar mestu furðu átti
hún ekki nema einn ketling,
en næstum undantekningalaust
eru kettlingamir ekki færri en
fjórir til fimm. Nú era menn
mjög áhyggjufullir yfir því,
hvort Pilluátið hafi orðið til
þess að draga svona úr frjósemi
Isabellu. Hún hefur aftur hitt
sinn draumafress, og nú er beð-
ið í ofvæni eftir árangrinum.
Það skiptir mjög mildu máli,
að ketlingarnir verði fleiri en
einn, því þcir eru dýrmætir,
þar sem móðirin er verðlauna-
köttur, og kettlingarnir sagðir
kosta að minnsta kosti 8000
krónur íslenzkar.
— ★ — ★ —
Öhamingjan eltir Jackie
Onassis og hennar fjölricvldu,
og hefur gert um langan aldur.
Þegar John-John, sonur
hennar var nýlega í heimsókn
hjá Lee Radziwill móðursystur
sinni í Barbados í Vestur Indí-
um, var hann nærri drukknað-
ur. Atta lífverðir áttu að gæta
drengsins og annarra á staðn-
um, en aðeinS einn þeirra var
syndur, og tókst honum á síð-
ustu stundu að bjarga John-
John frá drukknun.
sonur hennar í flugslysi. Mörg-
um þykir undarlegt, að frúin
skuli nú halla sér einmitt að
þessum gríska skipakóngi, sem
— ★ - * —
staðið hefur í svo nánum tengsl ■
unr við grísku hershöfðingjana,
sem féllu látnum sýni hennar
Róbent síður en svo í geð.
- * - * -
Þið haldið eflaust að myndin
hér með sé af ungum dreng,
en svo er ekki, þetta er 22 ára
gamall maður, Hann heitir
Johann Neumann og býr í Stokk-
hólmi. Hann er dvergur, og að-
eins 125 cm að hæð, og likams-
byggingin er eins og hjá 11
ára dreng. Johann á í miklum
erfiðleikum með að ganga upp
stiga, því tröppurnar eru of
háar fyrir hann, einnig er erfitt
fyrir hann að komast upp í
strætisvagna, og hann getur
alls ekki ferðazt hjálparlaust
með járnbrautarlest. Líkami
Johanns framleiðir ekki vaxtar
—Jl 'M' ' I
hormón, en nú hafa læknar
byrjað að gefa honum sérstak-
ar sprautur, sem hann fær
fimm sinnum í viku. Gera þeir
sér vonir um, að hann geti á
næsturini bætt við sig einum
20 cm. og á einúm mánuði hef-
ur hann hækkað um 3 cm. Jó-
hann er úrsmiður að mennt, en
honúm gengur illa í starfinu,
þar sem stólarnir’ og borðin á
úrsmíðaverkstæðunum henta
ekki stærð hans sjálfs. Klukk-
urnar, sumar hverjar, eru bæði
of stórar og þungar fyrir hann,
og vinnuveitendurnir eru Skki
hrifnir af að ráða hann í vinnu.
I