Tíminn - 11.06.1971, Page 6
FÖSTUDAGUR 11. júní 1971
Askorendamótið
Hávaðasamir áhorfendur
Ljúffengar
BragStegvndir
ROYAL
SkyndibúSSingar
L JarSarberja
SúkkulaSi
Karamellu
pL Vanillu
ip| Sftrónu
POSTSKNDUM
mótspil, sem hvítur má ekki
vanmeta. Aðrir leikir eru vita
vonlausir).
27. Dxa8t Kh7
28. Dxa7 Dxe3t
29. Kh2 11(18(!)
(Síðasta hálmstráið!).
30. Rf3??
(Og kraftaverkið gerist! Eftir
30. Rc6! hefði Larsen senni-
lega gefið skákina. En nú ger-
ast merkilegir hlutir).
30. — Dfát!
31. Kgl
(31. Khl var skömminni skárra,
þó að hvítur sé glataður eftir
31. — Rxf3, 32. gxf3, Hd2, 33.
Hf2, HxH, 34. DxH, DxH).
31. _ Rxf3t
32. Hxf3
(Eða 32. gxf3, Dg3t, 33. Khl,
Hd2).
32. — Hðl
33. Kf2 Dxh4t
34. g3 Dh2t
35. Ke3 Dd2t
36. Ke4 Dd5t
37. Ke3 Hd3t
Hvítur gafst upp.
Hefði Uhlmann unnið þessa
skák, væri ekki gott að segja,
hver framvinda einvígisins
hefði oríTið.
Þessi þáttur hefur orðið
lengri en ætlunin var og verð-
ur þvi fjallað um einvigið
Fischer—Taimanov í næsta
þættí. — F.Ó.
í frásögn minni af áskorenda
mótinu í síðasta þætti rakti
ég nokkuð gang mála í einvíg-
inu milli Petrosjan og Hiibners
og gaf þá skýringu á hinum
snubbóttu endalyktum einvígis
ins, að Húbner hefði einfald-
lega ekki þolað álagið, sem
slíkri viðureign er samfara.
Nú má ljóst vera, að Hubner
hefur töluverða keppnisreynslu
þótt ungur sé að árum, og má
því telja ósennilegt, að keppnis
álagið eitt hafi verið afgerandi
forsenda fyrir uppgjöf hans. í
síðasta tölublaði skáktimarits-
ins, „Schach Express“ kemur
fram, að Húbner hefur haft
eitt og annað við keppnisað-
stæður að athuga, en einvígi
þetta var, sem kunnugt er, háð
í Sevilla á Spáni. Mun hann
m.a. hafa kvartað undan óþol-
andi hávaða frá áhorfendum,
sem hefði slæm áhrif á taugar
hans, en ekki virðast umkvart-
anir hans hafa komið miklu
til leiðar. Engu að síður stóð
Húbner vel fyrir sínu framan
af, en 7. skákin virðist hafa
gert útslagið. í þeirri skák stóð
Húbner jafn vel til vinnings
um skeið, en lék af sér og tap-
aði skákinni. Áður en gengið
var til leiks í 8. skákinni lýsti
Húbner því yfir við skákstjór-
ann, að hann hyggði ekki á
frekari taflmennsku og mundi
hverfa á braut. Reyndi skák-
stjórinn allt hvað hann gat að
telja Húbner hughvarf, lagði
til að hann fengi nokkurra
daga hvíld og að útvegaður
yrði annar næðissamari mót-
staður, en Húbner sat við sinn
keip og yl.rgaf Sevilla. Neydd-
ist skákstjórnin því til að lýsa
Petrosjan sigurvegara í einvíg
inu.
Óneitanlega er þetta snubb-
óttur og sér í lagi óviðeigandi
endir á svo mikilvægri viður-
eign og finnst manni að Húbn-
er hefði mátt taka málið til
betri íhugunar með hliðsjón af
málamiðlun skákstjórans. Því
má ekki gleyma, að Petrosjan
var varla betur settur í ein-
víginu en Húbner og mætti því
ætla, að ónæðið frá áhorfend-
um hafi bitnað jafnt á tafl-
mennsku hans. En sennilega
naut hann þarna meiri reynslu
sinnar og tókst að varðveita
sálarró sína.
Larsen 5j,4 — 3% Uhlman.
Sigur Larsens í þessu ein-
vígi var tvímælalaust verðskuld
aður, en engan veginn fyrir-
hafnarlaus, því að Uhlmann
veitti öflugt viðnám fram undir
það síðasta. Við skulum nú
sjá, hvað Larsen sjálfur hefur
um einvígið að segja (í „Ekstra
bladet“ 1. júní s.l.):
„Um gang mála í einvíginu
er það að segja, að báðum
teflendum urðu á grófir fingur
brjótar, en þá ber líka að hafa
það í huga, að óvenju margar
skákanna í einvíginu voru
sérlega flóknar og vandasam-
ar. Uhlmann lék illilega af sér
í 4, skákinni, þar sem hann
stóð til vinnings, og sama gildir
um 9. skákina, þar sem hann
átti að ná jafntefli. Mín verstu
afglöp áttu sér stað í 8. skák-
inni, en þau má skrifa á reikn
ing illræmds sjúkdóms, sem
nefndur er skákblinda. En
svona þegai^a heiimJ#im!jnr>r
þá veB ‘HSplJni rHg,"^þþhi ' u
|- 'a.“-hvor.íiði‘a linijr llínal
■ Við skulum nú líta i snar-
heitum á 4 .skákina, sem Lars-
en minntist á í umsögn sinni,
en þar reyndist Larsen sannar-
lega lukkunnar pamfQL
Hv.: Wolfgang Uhlmann
Sv.: Bcnt Larsen
Drottningarbragð.
L c4 Rf6
2. Rc3 e6
3. Rf3 d5
17. Be3!
(Sterkur leikur, sem afhjúpar
veilumar í byrjunarkerfi
svarts)
17. — Rxe3
18. fxe3 Kg8
18. Hacl Re4
19. Bc6 Bxc6
20. Hxc6 Dxa2
(Svartur hefur farið svo algjör
lega halloka í byrjuninni, að
hann sér enga leið út úr ógöng
unum. Hann afræður því að
taka það, sem að honum er
rétt í þeirri von, að kraftaverk
gerist).
21. Dc2 Rg5
22. Rd4!
(Beztí leikurinn. Hvitur fær
engu áorkað eftir 22. Rxg5,
hxg5 23. Hc7 Hf8, eins og
gaumgæfileg athugun á stöð-
unni leiðir í ljós).
22. — Dd5
23. Hc5 Dd8
24. Hc7
(24. h4! var einnig mjög sterkt
áframhald).
24. — b3
25. Dc6
(Nú er 26. h4 yfirþyrmandi
hótun. Larsen finnur einu leið-
ina, sem einhver vonameistí
er í).
25. — Dd5
26. h4 Dxe5
(Með því að fóma hróknum
á a8 skapar svartur sér örlítið
a8
4. d4 c6
5. e3 Rbd7
6. Bd3 dxc4
7. Bxc4 b5
8. Bd3 Bb7
9. e4 b4
10. Ra4 c5
11. e5 Rd5
12. Rxc5 Bxc5
(12. — Rxc5! sbr. 6. skáldna,
en hún birtist hér í þættínum
fyrir skömmu)
13. dxc5 Da5
14. De2 Rxc5
15. Bb5t KfS
16. 0—0 h€
TrlT
Spur Colo
HF: OLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON
STRIGASKÓR
í öllum stærSum
ÆFINGABUNINGAR
í öllum stærSum
Enskir og íslenzkir félagsbúningar
í miklu úrvali
Adidastöskur
Fótboltaskrigaskór
Æfingatöskur og pokar meS
íslenzkum félagsmerkjum. —
Æfingatöskur og pokar,
meS enskum félags-
merkjum
7 tegundir
af fótboltum
^ívöruvet^
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44 — slmi 11783
SVEIT
Röskur 15 til 16 ára dreng-
tr óskast á gott sveitaheim
ili í A-Húnavatnssýslu
strax. Þarf ekki að vera
vanur. Upplýsingar í síma
40930.
Sumardvöl
12 ára drengur óskar eftir
að komast í sveit í sumar.
Upplýsingar í síma 41338.