Tíminn - 11.06.1971, Page 9
FÖSTUDAGUR 11. júrn' 1971
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
9
V7
<
v
+ Einn hinna ungu og efnilegu
kylfinga á Akurej'ri, Björgvin Þor
steinsson, varð sigurvegari í keppn
inni um Sjóvábikarinn, sem fram
fór á gamla golfvellinum þar.
Voru leiknar 36 holur til að byrja
með, en þar sem úrslitin urðu
þau, að þrír menn voru jafnir
með forgjöf á 140 höggum,
urðu þeir að heyja 18 holu auka-
keppni um verðlaunin.
Þeir voru auk Björgvins, Gunn
ar Konráðsson og Gunnar Berg.
í aukakeppninni urðu úrslit
þessi:
1. Björgvin Þorsteinsson, 35:41
-r-7=69.
2. Gunnar Konráðsson, 40:41
-^11=70.
3. Gunnar Berg, 45:48-f-16=77.
í keppninni án forgjafar varð
Björgvin, einnig sigurvegari, en
þar urðu úrslit þessi:
1. Björgvin Þorsteinsson, 34:40
:40:40=154.
2. Gunnar Konráðsson, 39:44
:38:41 = 162.
3. Þórarinn B. Jónsson, 39:42:
41:41=163.
'k Um síðustu helgi lauk hjá
Golfklúbbnum Ness keppnin um
„Bubnov-bikarinn“ en verðlaun
til hennar gaf sendiráðsritari Sov-
étríkjanna Vladimir Bubnov, fyr-
ir skömmu. Var þessi keppni holu-
keppni (með forgjöf), og hefur
hún staðið í rúmar tvær vikur.
Til úrslita í keppninni léku
Sverrir Guðmundsson, lögreglu-
varðstjóri og Magnús Guðmunds-
son, flugstjóri, og lauk henni með
sigri Sverris 3:2. Eftir 9 holur
voru þeir jafnir 0:0, en á síðari
hring náði Sverrir að komast 3
holur upp, þegar 2 voru eftir.
Um helgina fer fram opin
keppni hjá Golfklúbbnum Ness —
eina opna keppnin sem þar fer
fram á sumrinu. Verður þessi
keppni flokkakeppni, og verður
keppt í f jórum flokkum.
Á laugardag verður keppt í
meistaraflokki og í 1. flokki, en
á sunnudag í unglingaflokki (18
ára og yngri) og í 2. flokki (for-
gjöf 18 og meira).
Leiknar verða 18 holur — ekki
36 eins og stendur 1 kappleikja-
skránum, og veitt verða þrenn
verðlaun í öllum flokkum. Verð-
launin gefur íslenzk—ameríska
verzlunarfélagi, sem hefur umboð
fyrir Pierre Roberts, herrasnyrti-
vörumar á íslandi, en nafn keppn
innar ber heiti fyrirtækisins.
Þessi keppni veitir stig í kcppn-
rnni um landsliðssætið og er
þriðja keppnin í röðinni, sem
>að veitir.
VALSMENN FÓRU AF STAÐ
í SÍÐARI HÁLFLEIK
SkoruSu þá tvö mörk, sem nægðu til sigurs yfir KR í 1. deildinni.
Eftir markalausan fyrri hálfleik
gegn KR í gærkvöldi náðu Vals-
menn að bjarga andlitinu, með því
að skora tvö mörk í síðari hálfleik
og hljóta þar með bæði stigin út
úr viðureigninni. Þar með gátu
þeir andað léttara því ef þcir hefðu
tapað lciknum var útlitið ekki
gott — 1 stig eftir 3 leiki, í stað
þiess að vcra nú með 3 stig cftir 3
léiki.
Sigurinn var þó ekki tckinn út
með sældinni, því KR-ingar börð-
ust vel og áttu svo sannarlega skil-
ið að skora mark, en úrslit leiks-
ins voru þó ekki fjarri lagi.
Fyrri hálfleikurinn var jafn og
nokkuð um tækifæri á báða bóga
— öllu þó fleiri og hættulegri hjá
KR. Eins og t.d. þegar Baldvin
Baldvinsson, komst einn innfyrir
og lék á Sigurð Dagsson, en það
mikill hraði var á honum að hann
náði ekki að senda knöttinn í net-
ið. Þá átti Sigurþór Jakobsson,
þrumuskot, sem rétt fór utan við
stöng, og síðan skalla á markið á
síðustu sekúndu hálfleiksins, en
þá var Sigurður heppinn að fá
knöttinn beint í hendurnar. Bezta
tækifæri Valsmanna kom í byrjun
leiksins, er Hermann Gunnarsson,
fékk knöttinn í opnu færi eftir
laglegan samleik, en honum brást
bogalistin í það skiptið eins og í
önnur í þessum leik.
f síðari hálfleik voru Valsmenn
sterkari aðilinn, og þegar á 5. mín.
skoruðu þeir mark eftir nokkuð
góðan samleik á vallarhelmingi
KR, sem lauk með því að Þórir
! Jónsson, gaf knöttinn á Jóhannes
: Eðvaldsson, sem sendi hann með
\ föstu skoti í netið.
KR-ingar áttu möguleika á að
jafna um miðjan hálfleiMnn, þeg
ar Baldvin átti þrumuskot á mark
ið, sem Sigurður varði meistara-
lega, en frá honum hrökk knött-
urinn fyrir fætur Sigurþórs, sem
þegar skaut, en þá bjargaði einn
varnarmanna Vals á línu.
Á 30. mín. hálfleiksins var mik
il þvaga við mark KR, og úr henni
náði Þórir Jónsson, að pota knett-
inum í gegnum þvöguna og í net-
ið. Á sömu mín. komst Hermann
einn að vítateigi, og sendi knött-
inn með miklum krafti á markið,
en Magnús Guðmundsson, sýndi þá
glæsilega markvörzlu, sem áhorf-
endur gáfu honum langt og mikið
klapp fyrir.
Valsmenn voru öllu sókndjarf-
ari í síðari hálfleiknum en KR-
ingar, sem áttu nokkur snögg
upphlaup, og voru Valsmenn þá
ívið betri aðilinn.
KR-ingar voru ekki eins ákveðn
ir í þessum leik og gegn Val í
Reykjavíkurmótinu, sem var bezti
leikur liðsins til þessa. Vörnin
var góð í þessum leik, sérstaklefia
Framhald á bls. 10.
Mannaskipti hjá handknattBeiksliði Vals:
Gísli Blöndal kemur í stað Bjarna Jónssonar
Klp-Reykjavík, fimmtudag.
ÞaS má með sanni segja, að það séu mannaskipti
hjá 1. deildarliði Vals í handknattleik. í gær sögðum við
frá því að Bjarni Jónsson, sem leikið hefur með Val und-
anfarin ár, muni næstu árin leika með danska 1. deildar-
liðinu Aarhus KFUM, en jafnframt því mun hann stunda
nám í Tækniháskólanum í Aarhus. En hann hefur lokið
námi í Tækniskólanum hér. í hans stað fá Valsmenn þó
ekki síðri mann, því hinn kunni landsliðsmaður frá Akur-
eyri og fyrrum leikmaður með KR, Gísli Blöndal, kemur
suður í haúsT'ög mun hann leika með Valsmönnum nræsta
vetur. Hann kemur til með að stunda nám í Tækniskólan-
um, sama skólanum og Bjarni er nú að yfirgefa, svo segja
má að hann taki við af honum í tvennum skilningi.
Þessi ákvörðun Gísla að leika
með Val kemur nokkuð á óvart,
því hann lék með KR áður en
hann fór til Akureyrar, og
bjuggust flestir við að hann
færi aftur í KR, þegar hann
kæmi suður.
Ástæðan fyrir þessu mun
vera sú, að honurn féll mjög
vel við leikmenn Vals þegar
hann kynntist þeim í sambandi
við æfingar og leiki með lands
liðinu í vetur, og einnig að
Valur hefur endurráðið Reyni
Ólafsson, sem þjálfara liðsins,
en þcir hafa verið góðir kunn-
ingjar, síðan Gísli hóf að æfa
handknattleik hjá Reyni í KR.
Gísli telur hann eins og marg-
ir, sem þekkja til handknatt-
leiksins, bezta þjálfara sem völ
er á hér á landi, og hann vill
fá að æfa undir hans stjóm.
Þessi ákvörðun Gísla er vel
skiljanleg. Áhuginn meðal Vals
manna til að ná árangri er
mun meiri en hjá KR-ingum,
sem sést bezt á því, að Vals-
menn eru þegar byrjaðir æfing-
ar, en KR-ingar hafa ekki enn
ráðið til sín þjálfara fyrir næsta
vetur. Menn eins og Gísli, sem
hafa verið áberandi beztu menn
sinna liða — og fá þess vegna
oft sérstaka „meðhöndlun“ hjá
mótherjunum, geta notið sín
betur með mönnum, sem eru
álíka góðir, og er ekki að efa
að Gísli á eftir að vcra mikill
styrkur fyrir Val í 1 deildar-
keppninni næsta vetur.
Gísli sagði í viðtali við íþrótta
síðuna í gær, að þessi ákvörð-
un hafi verið erfið, því hann
ætti marga góða vini og félaga
Gisli Blöndal — klæðist rauðri peysu Valsmanna, en ekki svart-hvítrl
peysu KR-inga, næsta vetor.
innan KR, og hjá þvf félagi
hafi hann mikið til verið alinn
upp. En hann hefði frekar valið
þann kostinn að reyna að ná
lengra í handknattleiknum, og
þess vegna hefði Valur orðið
fyrir valinu. Hann sagðist ekki
kom suður fyrr en í haust, en
þar til myndi hann æfa eftir
sérstöku æfingaprógrammi, sem
hann fengi sent frá Val ein-
hvern næstu daga.
Gísli hefur verið mjög áhuga
samur um æfingar í allan vet-
ur, og er ekki að efa að hann
slær ekki slöku við í sumar, og
kemur því tvíefldur til að klæð
ast rauðri peysu Valsmanna, í
haust.
Fyrstu verðlaunin, sem veitt eru í Pierre Roberts-keppninni
fram fer um helgina hjá Golfklúbbi Ness.
golfi, sem
Ármanni og KR boðið á alþjoðlegt
körfuknattleiksmót í Skotlandi
Verða þrjú íslenzk lið í keppninni?
klp—Reykjavik.
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum var íslandsmeisturunum
í kurfuknattleik, ÍR, hoðið að taka
þátt í alþjóðlegu móti, sem fram
fer í Edinborg I Skotlandi í sum-
ar. ÍR þáði þetta boð, en nú hefur
tveim öðnirn ísierizkum liðum
einnig verið boðið að taka þátt
í þessu sama móti.
Eru það lið KR og Ármanns,
sem voru í öðru og þriðja sæti í
1. deild sl. vetur. Eftir því sem
íþróltasíðan hefur fregnað hafa
bæði liðin óhuga á að taka þátt í
mótinu, en ekki er enn vitað hvort
úr því verður, þvf æfingar hafa
verið heldur af skornum skammti
að undanförnu.
Mótið mun hefjast 14. júM og
standa til 19. júlí. Liðin sem taka
þátt í þvi eru mörg af beztu
körfuknattleiksliðum Evrópu, en
auk þeirra verða þar lið frá Eng-
landi, Skotlandi og flestum Norð-
urlöndunum.
Þetta er glæsilegt boð og mikil
viðurkenning fyrir íslenzkan körfu
knattleik, og væri óskandi að öll
þrjú liðin gætu tekiðþátt í því.