Fréttablaðið - 16.08.2002, Síða 6
6 16. ágúst 2002 FÖSTUDAGURSPURNING DAGSINS
Ætlar þú að taka þátt
í menningarnótt?
Já, ég verð að vinna á Lækjartorgi
og tek þátt.
Borghildur Antonsdóttir
VIÐSKIPTI
FASTEIGNIR Bíóborgin, gamla Aust-
urbæjarbíó við Snorrabraut, stend-
ur enn auð en þar hafa ekki verið
kvikmyndasýningar frá því
snemmsumars. Eigendurnir, Árni
Samúelsson og fjölskylda, sitja því
uppi með húsið án þess að hafa af
því arð:
„Þetta er dýrt hús en það var
dýrara að hafa það opið,“ segir
Björn Árnason, framkvæmdastjóri
hjá SAM - bíóunum, en hann vinnur
nú að því að selja húsið og koma því
þannig í önnur not. „Það var bull-
andi tap á Bíóboginni síðustu árin
og það varð einfaldlega að skrúfa
fyrir það,“ segir hann.
Einhverjir munu hafa sýnt bygg-
ingunni áhuga en húsið er um margt
sérstakt og þyrfti gagngerra breyt-
inga við ef nýta ætti það til annars
en kvikmynda - eða leiksýninga.
Eigendurnir telja að skortur á bíla-
stæðum í nágrenni hússins sé meg-
inástæðan fyrir því hvernig fór.
Óvíst hvað verður um Bíóborgina við Snorrabraut:
Bullandi tap olli lokun
BÍÓBORGIN
Auð og yfirgefin.
Þrír ökumenn voru stöðvaðirfyrir hraðakstur í Keflavík í
fyrrinótt. Einn ökumannanna
mældist á 137 km hraða á
Reykjanesbraut og einn mældist
á 110 km hraða á Njarðarbraut á
móts við Hagkaup en þar er há-
markshraði 50 km.
Þjóðverji tilkynnti um stoliðreiðhjól til lögreglunnar í
Reykjanesbæ um fimmleytið í
gærmorgun. Hafði maðurinn ver-
ið sofandi í tjaldi sínu á tjald-
svæði í Njarðvík. Maðurinn fór
af landi brott í gærkveldi, líklega
án þess að taka með sér hjólið.
Var það enn ekki komið í leitirn-
ar þegar Fréttablaðið hafði sam-
band.
DRESDEN, ÞÝSKALANDI, AP Gífurleg
flóð gengu yfir suðausturhluta
Þýskalands í gær. Í borginni Dres-
den hækkaði vatnsyfirborð í ánni
Elbe um 20 sentimetra á klukku-
stund. Flæddi mikið vatn yfir
bakka árinnnar. Samkvæmt veð-
urspám var búist við því að vatns-
hæðin ætti eftir að aukast og ná
hámarki í 8,5 metrum. Er það
skammt frá þeim 8,76 metrum
sem vatnshæðin náði árið 1845.
Um 20 þúsund manns hafa þurft
að yfirgefa heimili sín í Dresden
vegna flóðanna.
Stífla skammt frá Bitterfeld í
Þýskalandi gaf sig í gær. Þurftu
um 16 þúsund manns að yfirgefa
heimili sín vegna flóðahættu.
Alls hafa 11 manns farist í flóð-
unum í Þýskalandi. Spáð er batn-
andi veðri í landinu á næstu dög-
um.
Danir, Svíar og Finnar sendu í
gær sérfræðinga ásamt kröftug-
um dælubúnaði til Prag, höfuð-
borgar Tékklands, vegna flóðanna
sem þar hafa gengið yfir. Þannig
vildu þjóðirnar bregðast við ósk
tékkneskra yfirvalda um aðstoð.
Að minnsta kosti 100 manns
hafa nú farist í flóðunum um gjör-
valla Evrópu.
Neyðarástand í suðaust-
urhluta Þýskalands:
Mestu flóðin
í 150 ár
ÁHYGGJUFULLUR
Arno Horstmann situr áhyggjufullur á svip á tröppunum fyrir framan búðina sína, af ótta
um að flóðin muni aukast.
AP
/M
YN
D
FLÓÐ Flóð eins og þau sem nú eru í
Mið-Evrópu eru ekki algeng á Ís-
landi. Jónas Elíasson, prófessor
við verkfræðideild Háskóla Ís-
lands, sagði að um væri að ræða
svokölluð ofanflóð
sem orsökuðust af
mikilli úrkomu. Á
Íslandi myndi mest
hætta skapast af
svokölluðum storm-
flóðum, en þá flæð-
ir sjór yfir land. Jónas sagði að
flóðin væru alltaf að verða verri og
verri í Mið-Evrópu. Þar væru tvö
megin árkerfi, Rínarkerfið og
Dónárkerfið og einnig minni kerfi
eins og Saxelfurkerfið, þar sem
Prag væri.
„Það sem er að gerast þarna er
að það er alltaf verið að byggja
meira og meira í kringum þessar
ár sem eru fyrst og fremst notaðar
sem samgönguæðar,“ sagði Jónas.
„Eftir því sem byggt er meira í
kringum þær og þrengt meira að
þeim, þeim mun hærri verða flóð-
in. Það dregur úr flóðhæð ef að áin
fær í flóðinu að breiða sig út yfir
nægilega stórt landssvæði. Þegar
búið er að byggja stíflugarða og
varnargarða meðfram ám til að
hindra það að land fari undir vatn,
þá verður árfarvegurinn einfald-
lega mjórri og flóðin hærri.“
Jónas sagði að til væru tvenns
konar flóð. Annars vegar ofanflóð,
sem orsökuðust af mikilli úrkomu,
sem ylli því að ár flæddu yfir
bakka sína. Hins vegar stormflóð,
sem orsökuðust af því að vindur
hleður upp sjó á grunnu vatni og
keyrði hann inn í ár eða yfir land.
Jónas sagði að þegar þetta tvennt
gerðist á sama tíma skapaðist al-
gjört neyðarástand og nýleg dæmi
um þetta væri að finna í Svarta-
hafi. Stormflóð hefðu reglulega átt
sér stað í Hollandi og Bretlandi, en
þó væri búið að útiloka þau í
Thames og Rín með sérstökum
lokum.
„Það er viss hætta á stormflóð-
um hér á landi, sérstaklega á Suð-
urlandi við Stokkseyri og Eyrar-
bakka og í Reykjavík. Í miklu
stormflóði getur Reykjavík
breyst í þrjár eyjar, þá nær sjór-
inn saman í gegnum Kvosina og
yfir Eiðisgranda. Þetta gerðist í
Básendaflóðinu árið 1799 og getur
gerst hvenær sem er þó þetta sé
ekki algengt.. Árið 1894 eyðilagði
stormflóð verslunarhús í Hafnar-
stræti, en stærsta flóðið sem
mælst hefur varð 1936. Þá flæddi
yfir Örfirisey og stóran hluta Sel-
tjarnarness. Það er vonlaust að
koma í veg fyrir svona flóð, en
hægt er að viðhafa varnaraðgerð-
ir gegn því að sjór gangi á land. Á
Eyrarbakka og Stokkseyri er Sigl-
ingamálastofnun að reyna það
með byggingu sérstakra varnar-
garða.“
trausti@frettabladid.is
Reykjavík breytist í
þrjár eyjar í stormflóði
Jónas Elíasson prófessor segir að stormflóð geti orðið hvenær sem er á Íslandi. Árið 1894
eyðilögðust verslunarhús í Hafnarstræti í stormflóði. Flóðin í Mið-Evrópu eru alltaf að verða
verri og verri.
Það er viss
hætta á
stormflóðum
hér á landi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
TJÖRNINKVOSIN
REYKJAVÍKURHÖFN
ÁHRIF STORMFLÓÐS Á MIÐBORGINA
Litaða svæðið sýnir það landsvæði borgarinnar sem er
undir fjögurra metra hæð yfir sjávarmáli. Stærstu storm-
flóðin sem mælst hafa á Íslandi hafa verið 5 metrar.
Akranes:
Strætó til
Reykjavíkur
SAMGÖNGUR Bæjarráð Akraness
hyggst kanna möguleikann á því
að hefja strætisvagnasamgöngur
milli Akraness og Reykjavíkur.
Kvartanir hafa borist til bæjaryf-
irvalda vegna þess hvernig núver-
andi sérleyfishafi hefur staðið að
sérleyfisakstri milli sveitarfélag-
anna.
Bæjarráð hefur óskað eftir
fundi með samgönguráðherra og
fyrsta þingmanni kjördæmisins
til að ræða málin áður en gengið
verður frá nýju leyfi. Atvinnu-
málanefnd hefur ennfremur verið
falið að koma með hugmyndir að
fyrirkomulagi almenningssam-
gangna milli Akraness og höfuð-
borgarsvæðisins. Skessuhorn.
Hagnaður Olíuverzlunar Ís-lands hf. og dótturfélagsins
Nafta ehf., eftir skatta, fyrstu sex
mánuði ársins nam 774 m.kr., en á
sama tímabili í fyrra höfðu félög-
in tapað 197 milljónum. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
(EBITA), nam 506 milljónum
króna, samanborið við 532 millj-
ónir fyrstu sex mánuði ársins
2001.
Afkoma Sæplasts hf. og dóttur-félaga, á fyrri helmingi ársins
er mun betri en á sama tíma í
fyrra. Hagnaður félagsins var
tæpar 46 milljónir eftir skatta
samanborið við 5 milljóna hagnað
á fyrstu sex mánuðum síðasta árs.
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf.hagnaðist um 244,4 milljónir
króna á fyrstu sex mánuðum árs-
ins. Rekstrartekjur tímabilsins
voru 987 m.kr. og rekstrargjöld
voru 726 m.kr. Hagnaður sam-
stæðunnar fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði nemur 261 m.kr.,sem er
26% af tekjum.
Verulegur
afkomubati HB:
Tapi snúið
í góðan
hagnað
ÁRSHLUTAUPPGJÖR Hagnaður sam-
stæðu Haraldar Böðvarssonar
hf. á fyrstu sex mánuðum ársins
var 784 milljónir króna, saman-
borið við 398 milljóna tap sama
tímabil árið 2001. Afkomubati á
milli tímabilanna er því 1.182
m.kr. Hagnaður HB og dótturfé-
lagsins Baltic Seafood SIA í
Lettlandi nemur 923 m.kr. fyrir
skatta. Veltufé frá rekstri er 689
m.kr., samanborið við 365 m.kr.
sama tímabili árið áður. Styrk-
ing krónunnar skilaði HB 477
m.kr. gengishagnaði og hafa
heildarskuldir samstæðunnar
lækkað um 808 milljónir frá síð-
ustu áramótum.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85.91 0.19%
Sterlingspund 131.58 -0.62%
Dönsk króna 11.31 -0.88%
Evra 83.97 -0.94%
Gengisvísitala krónu 126,61 0,5%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 257
Velta 3.673,4 milljónir
ICEX-15 1.267,1 0,31%
Mestu viðskipti
Húsasmiðjan hf. 784.657.098
Ker hf. 132.973.876
Pharmaco hf. 106.023.500
Mesta hækkun
Nýherji hf. 11,48%
Sæplast hf. 6,06%
Þróunarfélag Íslands hf. 3,13%
Mesta lækkun
Fiskiðijusamlag Húsavíkur hf. -60,61%
Marel hf. -8,68%
Flugleiðir hf. -3,67%
ERLENDAR VÍSITÖLUR**
Dow Jones 8743,4 0,0%
Nasdaq 1333,8 0,0%
FTSE 4327,5 3,8%
DAX 3653,8 1,8%
Nikkei 9795,6 1,6%
S&P 923,3 0,4%
*Gengi Seðlabanka Íslands kl. 11.00
**Erlendar vísitölur kl. 18.00