Tíminn - 07.07.1971, Síða 1
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÓTTIR
Sporiv5ruverzlun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR i
QzpparsíSg 44 - Sími 11783.
55. árg.
Þessi mynd var tekin af Louis Armstrong í langferðabíl á leiðinni frá
Keflavík til Reykjavíkur, er hann kom hér um ári3, og þa3 er
þáverandi blaðamaður Tímans, Magnús Bjarnfreðsson, sein situr
69. aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga í Bifrösfc
Tekjuafgangur SÍS
nam 45 milljónum kr.
15.3% þjóðarinnar félagsmenn í samvinnufélögunum
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Fyrir hádegið í dag hófst 69.
aðalfundur Sambands ísl. sam-
vinnufélaigá í Bifröst í Borgar-
firði, og stendur fundurinn þang-
að til á morgun. Umsetning Sam-
bandsins jókst um rúman milljarð
á árinu 1970, og var alls 6,9 millj-
arðar króna, og eigin fjáitnuna-
myndun nam 140 milljónum, en
tekjuafgangur á rekstrarreikningi
nam 43 milljónum króna og launa
greiðslur voru tæplega þrjú hundr
uð milljónir, og höfðu aukizt um
36.5% frá því árinu áður.
Ilér á eftir fer fréttatilkynn-
ing frá Sambandi isl. samvinnu-
félaga um aðalfundinn í Bifröst:
„69. aðalfundur Satnbands ísl.
samvinnufélaga hófst að Bifröst
Fundur var
fram á kvöld
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
í dag klukkan fimm komu við-
ræðunefndir stjórnarandstöðuflokk
anna saman til fundar, og stóð
sá fundur fram undir kvöldtnat,
en nefndirnar komu síðan aftur
saman í kvöld. Er því að vænta
að til úrslita dragi í viðræðunum
um stjórnarmyndun, en þingflokk-
ur Framsóknarflokksins kemur
saman til fundar á morgun, þar
sem stjórnarmyndunarmálin verða
rædd.
í gær, þriðjudag, og stendur fram
yfir hádegi í dag. Mættir voru um
100 fulltrúar 50 sambandsfélaga
auk stjórnar, framkvæmdastjórnar
og allmargra gesta.
Formaður Sambandsstjórnar,
Jakob Frímannsson, setti fundinn,
minntist forvígismanna samvinnu-
hreyfingarinnar sem létust á síð-
asta ári, en tilnefndi síðan Ágúst
Þorvaldsson alþingismann fund-
arstjóra, en fundarritarar voru
kosnir þeir Sigurður Ingi Sigurðs
son frá Selfossi og Ragnar Guð-
leifsson frá Keflavík. Síðan flutti
formaður skýrslu stjórnarinnar og
skýrði frá helztu verkefnum henn
ar á liðnu ári.
Að lokinni skýrslu formanns
flutti Erlendur Einarsson forstjóri
Sambandsins ítarlega skýrslu um
rekstur þess árið 1970. Kom þar
m.a. fram, að rekstrarniðurstað-
an varð svipuð og árið 1969. Iðn-
aður og skiparekstur SÍS var held
ur lakari og sömuleiðis rekstur
Búvörudeildar, en rekstur Inn-
flutnings- og Véladeildar var hag-
stæðari.
Tekjuafgangur á rekstrarreikn-
ingi var 43 milljónir króna á móti
21,9 millj. árið 1969.
Úthlutað var afslætti til fé-
laganna og frystihúsa, sem nam
um 20 milljónum króna, en vext-
ir af stofnsjóði félaganna námu
rúmum 13 milljónum og hækk-
uðu úr 7% í 9% p.a.
Eigin fjármyndun, áður en af-
slættir og stofnsjóðsvextir voru
færðir til gjalda, nam um 140
millj. kiróna. Sjóðir og höfuð-
stóll að viðbættum tekjuafgangi
jukust um 83 milljónir frá fyrra
ári.
Á árinu 1970 var meira um
framkvæmdir hjá Sambandinu en
árið á undan. Mikil uppbygging
var í iðnaði og samið var á árinu
um nýtt vöruflutningaskip, það 9.
í röðinni af Sambandsskipum.
Starfsfólki Sambandsins fjölgaði
um 118 á árinu upp í 1196.
Lausafjárstaðan versnaði á ár-
inu, sérstaklega síðustu tvo mán-
Framhald á bls. 14
Hafa ekki
séð lækni
í 9 mánuði
GV—Bæ- Trékyllisvík, þriðjudag.
Héraðslæknirinn okkar, sem bii-
settur er á Hólmavík, er hér
staddur í dag í almennri sjúkra-
vitjun. Þykir okkur það tíðind-
um sæta, því liðnir eru níu mán-
uðir frá því hann kom hér síð-
ast.
Sem betur fer er heilsufar yf-
irleitt gott hjá fólki hér norður-
frá, en óncitanlega væri betra að
hafa tryggari læknisþjónustu.
fyrír aftan „gamla manninn" (Tímamynd Kári)
Louis látinn
NTB—New York, þriðjudag.
Louis „Satchmo“ Armstrong,
trompetleikarinn heimsfrægi,
lézt í morgun, þriðjudag, á
heimili sínu í New York, 71 árs
að aldri. Armstrong, sem einn-
ig var þekktur fyrir hina sér-
stæðu söngrödd sína, hafði ver-
ið mjög veikur fyrr á árinu.
Hann var nýkominn heim frá
sjúkrahúsinu og hafði ýmislegt
á prjónunum, þegar honum
versnaði skyndilega með fyrr-
greindum afleiðingum. Lois
Armstrong lézt um kl. hálf ell-
efu í morgun að ísl. tíma,
i tveimur dögwm eftir 71. afmæl-
l____________________
isdag sinn, — og þrettán dög-
um eftir að hann hafði haldið
fund með blaðamönnum á heim-
ili sínu, þar sem hann virtist
hress og blés m.a, í trompetinn
fyrir blaðamennina. Fjölskylda
hans afþakkaði allar blómasend-
ingar til heimilisins eða við út-
förina, en benti þeim, sem vilja
minnast hans, á sjóð til eflingar
rannsóknum í læknavísindum,
er þessi dáði jazz-leikari hefur
alla tíð stutt með ráðum og
dáð.
Á 7. síðu blaðsins í dag er
grein um Louis Armstrong.
HAPPDRÆTTI DAS
SJÁ BLS. 12
Frá aSalfundi Sambandsins í Blfröst. Erlendur Elnnrsson forstjórl Sambandsins er í ræ'ðustól, að flytja yflr-
gripsmikla skýrslu sína um reksturínn á s.l. ári. Yzt til vinstri er Jakob Frímansson stiórnarformaður Sam-
bandsins og vlð hlið hans Ágúst Þorvaldsson alþingismaður, sem var fundarstjórl á fundinum (Tímamynd Kári)