Fréttablaðið - 28.08.2002, Qupperneq 1
bls. 22
TÓNLIST
Stærri
Airways hátið
bls. 14
MIÐVIKUDAGUR
bls. 12
160. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 28. ágúst 2002
Tónlist 14
Leikhús 16
Myndlist 16
Skemmtanir 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
Útvarp 21
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Frestur rennur út
SKIPULAG Frestur til að skila inn at-
hugasemdum vegna fyrirhugaðrar
byggðar í Norðlingaholti rennur út
í dag. Byggingarsvæðið, sem er um
72 hektarar, afmarkast af Breið-
holtsbraut, Suðurlandsvegi, Bugðu
og Elliðavatni. Gert er ráð fyrir
1.100 manna byggð á svæðinu. Stef-
án Hermannsson, borgarverkfræð-
ingur, segir að framkvæmdir gætu
hafist á næsta ári. Nánar bls. 2
Rabbað um
krabbamein
FUNDUR Stuðningshópur kvenna sem
fengið hafa krabbamein í eggja-
stokka heldur rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð
8 í dag. Fundurinn hefst klukkan
17.00
Íslensk myndlist á
20. öld
MYNDLIST Á Listasafni Íslands stend-
ur yfir yfirlitssýning sem gefur
mynd af íslenskri myndlistarsögu á
20. öld. Tæplega 100 verk í eigu
safnsins eftir 36 listamenn eru til
sýnis á sýningunni sem lýkur
næsta sunnudag.
AFMÆLI
Blótar stundum
á laun
ÍÞRÓTTIR
Einn nýliði
í hópnum
Íslandsbanki hefur sölutryggtöll hlutabréf Orcahópsins að
verðmæti yfir 11 milljarða króna.
bls. 2
Deild fyrir minnisskerta áLandakotsspítala verður lok-
að á föstudaginn vegna fjár-
skorts. bls. 2
Flóðavarnir í Kína hafa staðistálagið nokkuð vel þetta árið.
Öldum saman hafa Kínverjar
þurft að glíma við flóðahættuna á
hverju sumri. bls. 4
Aldraðir ökumenn eru vaxandivandamál í umferðinni að
sögn Einars Guðmundssonar hjá
Sjóvá-Almennum. bls. 8
STJÓRNMÁL „Hins vegar er mér
óskiljanleg ofurvarfærni fram-
sóknarmanna að ganga fram á
veginn í þá átt sem aðrar Norður-
landaþjóðir hafa markvisst stefnt
að á síðustu árum, skjólstæðing-
um og starfsmönn-
um heilbrigðisþjón-
ustunnar til góðs,“
segir Ásta Möller,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, í
pistli á heimasíðu
sinni. Hún gagnrýn-
ir að rekstur í heil-
brigðiskerfinu hafi
ekki verið færður frá ríki til
einkaaðila og segir kreddur koma
í veg fyrir framfarir. „Enda hafa
þeir sem ráðið hafa málaflokki
heilbrigðismála síðasta áratuginn
eða svo, verið kaþólskari en páf-
inn í þessum efnum:“
Ásta segir að ríkið eigi að sjá til
þess að heilbrigðisþjónustan sé til
staðar. Það þýði þó ekki að ríkið
þurfi einnig að
reka þjónust-
una. Gera megi
s a m k o m u l a g
við einkaaðila
um að veita
þjónustuna. Sú
leið hafi verið
farin á Norður-
löndum að
semja við
einkaaðila um
rekstur ein-
stakra þátta
h e i l b r i g ð i s -
þjónustu. Þessu
hafi Framsóknarmenn staðið gegn
hér á landi.
„Ég get ekki tekið það til mín
eða okkar Framsóknarmanna þeg-
ar hún talar um kreddur varðandi
einkarekstur í heilbrigðisþjónust-
unni,“ segir Jón
Kristjánsson,
heilbrigðisráð-
herra. „Það er
mikill einka-
rekstur í heil-
b r i g ð i s þ j ó n -
ustu hér.“ Próf-
að hafi verið að
bjóða út rekst-
ur heilsugæslu-
stöðvar í Kópa-
vogi, þjónustu-
samningar séu
við heilsu-
gæslustöð í
Lágmúla og samningar séu við
sjálfstætt starfandi sérfræðinga
utan sjúkrahúsa. „Það hefur ekki
gengið betur að hemja kostnað í
þeim geira en annars staðar nema
síður sé. Sá liður hefur farið fram
úr fjárlögum oft og tíðum.“ Hann
segir vandann í heilbrigðiskerfinu
ekki þann að starfsfólk afkasti
ekki nægilega miklu. „Okkur
vantar meiri fjármuni.“ Það séu
ekki rekstrarformið eða afköstin
sem hamli heilbrigðiskerfinu.
Í grein sinni vísar Ásta til þess
að nokkur sveitarfélög sjái sér hag
í því að selja sjúkrahús og semja
við einkaaðila um rekstur þjónust-
unnar. „Ég hef ekki áform um að
selja Landspítalann,“ segir Jón.
„Ég hef enga trú á að Ásta eigi við
það.“ Breyta megi þó rekstrar-
formi í einhverjum deildum. Gegn
því hafi hann ekki staðið.
brynjolfur@frettabladid.is
FÁTÆKT Í JÓHANNESARBORG Helsta markmið ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg er að draga úr fátækt í heiminum.
Ólíklegt þykir þó að margir ráðstefnugesta leggi leið sína til fátækrahverfanna í sömu borg til þess að kynna sér ástandið þar af eigin
raun. Á myndinni sést kona að nafni Rósa vera að brenna pappakassa til þess að halda á sér hita.
ÞETTA HELST
„Ég hef ekki
áform um að
selja Lands-
spítalann. Ég
hef enga trú á
að Ásta eigi
við það.“
AP
/S
AU
R
AB
H
D
AS
TRÚMÁL Búast má við því að presta-
kallið í Árnesi á Ströndum verði
fljótlega sameinað Hólmavíkur-
prestakalli.
Eins og kunnugt er hafa víðtæk-
ir samskiptaörðugleikar sóknar-
prestsins í Árnesi, Jóns Ísleifsson-
ar, við sóknarbörn sín valdið því að
biskupsstofa hefur boðið honum
starfslokasamning.
Árnessókn er með fámennustu
prestaköllum landsins en íbúar þar
eru aðeins um 100 talsins. Kirkju-
þing samþykkti því fyrir nokkrum
árum að prestkallið yrði í fyllingu
tímans sameinað Hólmavíkur-
prestakalli. Það skyldi verða þegar
annar hvor þáverandi sóknar-
presta léti af starfi. Það er nú yfir-
vofandi að séra Jón hætti. Þá mun
sér Sigríður Óladóttir, sóknar-
prestur á Hólmavík, verða prestur
sameinaðra sókna Árness og
Hólmavíkur. Á milli þessara tvegg-
ja staða eru 101 kílómetrar af
fremur erfiðum vegi sem oftast er
lokaður stóran hluta á hverjum
vetri.
Jón hefur hafnað tilboði um
starfslokasamning en fékk frest
fram í miðjan september til að afla
nýrra gagna í málinu. Þess er vænst
að þá verði gengið frá brotthvarfi
hans úr sókninni. Ljós þykir að Jón
muni ekki fara til annarra starfa
fyrir Þjóðkirkjuna að sinni.
Árnesprestakall lagt niður í kjölfar óánægju sóknarbarna:
Hólmavíkurprestur þjóni
einnig Norðurströndum
Kreddur hamla framför-
um í heilbrigðiskerfinu
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í heilbrigðisnefnd Alþingis gagnrýnir Framsóknarmenn harkalega fyr-
ir hægagang í heilbrigðiskerfinu. Vill meiri einkarekstur. Höfum ekki staðið gegn þessu segir
heilbrigðisráðherra. Fjárskortur er vandinn en ekki rekstrarform.
REYKJAVÍK Hæg breytileg átt
og styttir upp síðdegis. Hiti 8
til 13 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Rigning 10
Akureyri 8-15 Rigning 11
Egilsstaðir 8-10 Rigning 11
Vestmannaeyjar 5-10 Súld 11
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
ÁSTA MÖLLER
Á Norðurlöndum hef-
ur reksturinn verið
færður til einkaaðila
þó ríkið greiði enn
reikningana.
JÓN
KRISTJÁNSSON
Geri greinarmun á
einkarekstri og einka-
væðingu þar sem
kostnaðurinn lendir á
sjúklingnum.
Alþjóðaráðstefnan
í Jóhannesarborg:
Frakkar gera
sér litlar vonir
PARÍS, AP „Við eigum ekki von á
kraftaverki,“ sagði Tokia Saifi,
þróunarmálaráðherra Frakklands,
um tíu daga ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Suður-Afríku. Hún
sagðist þó vonast til þess að á ráð-
stefnunni verði samþykkt „áætlun
með nákvæmum markmiðum, dag-
setningum og fjármögnun.“
Margir fulltrúar á ráðstefnunni
gera sér von um að á henni verði
samþykkt hvernig takast á við
ýmis helstu vandamál sem mann-
kynið þarf að glíma við í orkumál-
um, umhverfismálum, heilbrigðis-
málum og næringarmálum.
Umhverfisráðherra Frakka,
Roselyne Bachelot, gagnrýndi
Bandaríkjamenn harðlega og sagði
þá hafa „reynst mjög stífa“ í öllum
undirbúningi ráðstefnunn-
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 39
ára á miðvikudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
14,4%
D
V
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á miðviku-
dögum?
48,7%
61,3%