Fréttablaðið - 28.08.2002, Síða 14
14 28. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kim Cattrall, sem leikurSamönthu í sjónvarpsþáttun-
um Sex And The City, ætlar að
bregða sér í hlutverk lesbíu á
leiksviði á Broadway. Cattrall
mun leika á móti Mörthu
Plimpton í leikritinu Boston
Marriage eftir David Mamet.
Verkið fjallar um lesbíur á Vikt-
oríutímabilinu og var sett á svið í
Lundúnum fyrir stuttu. Þar fór
Zoe Wanamaker með aðalhlut-
verkið.
Leikstjórinn Kevin Smith leitarnú að leikurum í aukahlutverk
fyrir myndina Jersey Girl á Net-
inu. Með aðalhlut-
verk fara Jenni-
fer Lopez og Ben
Affleck en auk
þeirra kemur
Jason Briggs, úr
American Pie,
fram í myndinni.
Talið er að þús-
undir manna
muni leitast eftir aukahlutverk-
inu en sá hinn heppni sem hrepp-
ir það fær þó ekki að segja neitt í
myndinni. Þeir sem vilja sækja
um hlutverk geta farið á heima-
síðu Smith, www.newsaskew.com.
Verið er að leggja lokahönd áframhaldið af grínmyndinni
Analyze This sem sló í gegn fyrir
þremur árum. Í
fyrri myndinni
lék Billy Crystal
sálfræðing sem
þurfti að hjálpa
mafíuforingja,
leikinn af Robert
De Niro, með öll
sín vandamál.
Vinurinn Liza
Kudrow mun sem fyrr leika eig-
inkonu sálfræðingsins. Myndin
hefur fengið hið frumlega nafn
Analyze That og verður frum-
sýnd þann 7. mars.
Chris Martin, söngvari Cold-play, hefur hafnað 85 milljón
dollara tilboði frá fatafyrirtæk-
inu Gap sem vill nota tónlist
sveitarinnar í auglýsingaher-
ferð. Margir tónlistarmenn hafa
leyft notkun á verkum sínum í
auglýsingar, þar á meðal Moby
sem gaf leyfi á öll lög plötunnar
Play. Martin segir það skipta
miklu máli að tónlistin sé ekki
notuð í auglýsingar og tekur
leikarann Mike Myers sem
dæmi. „Fyrir fimm árum gerði
Myers grín að auglýsingum í
kvikmyndum þegar hann gerði
Waynes World. Nú er hann með
auglýsingar í nánast hverju ein-
asta atriði í Goldmember og það
er það sem fer í taugarnar á
mér. Hann notast við sömu
brandarana en bætir bara við
nokkrum kaffibollum til að aug-
lýsa.“ Fleiri breskar sveitir hafa
þó hafnað slíkum tilboðum, þar á
meðal Blur sem vildi ekki leyfa
bandaríska hernum að nota lagið
Song 2 í auglýsingu. Martin virð-
ist þó hafa húmor fyrir sjálfum
sér og segir að ef allt fari í bál
og brand hjá sveitinni eigi hún
ábyggilega eftir að koma skríð-
andi til Gap og bjóða þeim tón-
listina til notkunar.
TÓNLIST Icelandic Airwaves tón-
listarhátíðin verður haldin í
fjórða sinn dagana 16. - 20. októ-
ber næstkomandi. Margar sveitir
eru skráðar til leiks, innlendar
sem erlendar. Að sögn Þorsteins
Stephensen, hjá fyrirtækinu Hr.
Örlygi sem stendur að hátíðinni,
verður hátíðin í ár enginn eftir-
bátur þeirra fyrri en verið er að
leggja lokahönd á dagskrána.
„Við höfum reynt að stækka há-
tíðina frá ári til árs og ég held
hún verði stærri nú en áður,“ seg-
ir Þorsteinn.
Hátíðin verður að vanda hald-
in víðs vegar um Reykjavík svo
sem í Iðnó, Nasa, Vídalín, Vestur-
porti, Gauki á Stöng og Spotlight.
Lokakvöldið verður hins veg-
ar á laugardag í Laugardalshöll-
inni og þar munu öll stærstu
númerin troða upp. Af erlendum
sveitum bera hæst nöfn Fat Boy
Slim frá Bretlandi, The Hives frá
Svíþjóð, Remy Zero og
Blackalicious frá Bandaríkjunum
og Xploding Plastix frá Noregi.
Þorsteinn segir að verið sé að
vinna í því að fá hljómsveit, sem
er á mikilli uppleið, á hátíðina en
vildi þó ekki gefa upp nafn sveit-
arinnar að svo stöddu.
Hátíðin hefur reynst ágætis
stökkpallur fyrir íslenskar sveit-
ir til að koma sér á framfæri fyr-
ir erlend útgáfufyrirtæki. Í kjöl-
far fyrstu hátíðarinnar var
rapp/rokkhljómsveitinni Quaras-
hi boðinn samningur ytra. Í fyrra
komu um 60 íslensk bönd fram og
hafa einhver þeirra verið að
þreifa fyrir sér með tónleikahaldi
í Evrópu og Bandaríkjunum. Í ár
munu Gus Gus, The Leaves,
Vinyl, Apparat Organ Quartet,
Trabant, Singapore Sling, Fidel,
Mínus og Silt meðal annars troða
upp.
Þorsteinn segir að þúsundir
Íslendinga hafi lagt leið sína á há-
tíðina í fyrra auk þess sem um
1.300 útlendingar hafi komið
hingað til lands.
„Ætli það séu ekki um 30% af
útlendingunum að koma hingað
vegna vinnu en hinir eru komnir
til að skemmta sér og sjá íslenska
tónlist.“
kristjan@frettabladid.is
THE SWEETEST THING kl. 8 og 10
MEN IN BLACK 2 kl. 4 og 6
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
STÚART LITLI 2 m/ens. tali kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 8 og 10
kl. 6FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali
kl. 6 og 8CLOCKSTOPPERS
VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 6
ABOUT A BOY kl. 8 og 10.05MOTHMAN PROPHECIES 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10 Sýnd kl. 6, 8 og 10.30
kl. 10NOVOCAINE
SCOOBY DOO kl. 4 og 6 VIT398
EIGHT LEGGED FREAKS 8 og 10.10 VIT417
SUM OF ALL FEARS 5.30, 8 og 10.30 VIT420
MR. BONES kl. 8 og 10.10 VIT415
FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 4 og 6 VIT418
VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 3.45 VIT410
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 426
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 422
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10.10 VIT 423
Feiti strákurinn
mjói á leið til landsins
Airwaves hátíðin verður haldin í fjórða sinn í október. Fat Boy Slim
mun troða upp í Laugardalshöll á lokakvöldinu. Fjöldinn allur af út-
lendingum leggur leið sína á hátíðina.
THE SUGABABES
Eru ekki orðnar ríkar þótt margir haldi það.
Eru bara fátækar stelpur sem geta ekki
keypt sér óðalssetur fyrr en um þrítugt.
The Sugababes:
Eru
ekki ríkar
TÓNLIST Stelpubandið The Suga-
babes munu ekki fá krónu fyrir
fyrstu tvær smáskífur sínar fyrr
en eftir tvö ár eða svo. Að sögn
stúlknanna verða þær að bíða þar
til ársins 2004 eftir að fá peninga
fyrir lögin Freak Like Me og
Round Round. Ástæðan er víst sú
að bókhaldsaðferðirnar sem not-
aðar eru í músikiðnaðinum eru
svo tímafrekar.
„Við höfum ekki fengið krónu
fyrir fyrstu tvær smáskífurnar
sem báðar náðu toppsæti á vin-
sældarlistum. Okkur hefur verið
sagt að það taki nokkur ár áður en
við fáum að sjá peningana,“ sagði
Mutya, meðlimur Sugababes.
„Það er rosalega pirrandi því fólk
heldur að við séum ríkar af því að
við erum í hljómsveit. En við
erum það ekki. Við þurfum að leg-
gja hart að okkur til að fá þá pen-
inga sem við viljum. Ég mun ekki
geta keypt mér óðalssetur fyrr en
um þrítugt. Fjölskyldan mín var
ekki auðug og því minnist ég þess
að hún þurfti að leggja mikið á sig
til að framfleyta sér.“
GÍTAR Gítar sem var í eigu Jimi
Hendrix og hann kveikti tvívegis í
á sviði, verður seldur á uppboði í
Copper Owen Rock Legends Auct-
ion í september. Búist er við að gít-
arinn seljist á 400.000 dali, eða sem
samsvarar 34 milljónum íslenskra
króna. Hendrix lagði eld að gítarn-
um á London Astoria árið 1967 og
aftur á Miami pop-hátíðinni ári síð-
ar. Frank Zappa, sem líka spilaði á
Miami-tónleikunum, fann gítarinn,
gerði við hann og notaði hann á
plötu sinni, Zoot Allures, árið 1976.
Eftir það gleymdi hann öllu um
hljóðfærið, en sonur hans,
Dweezil, fann gítarinn í pörtum
undir stiganum í stúdíói föður síns
og gerði við hann í annað sinn.
„Þetta er stórmerkilegur gítar með
einstaka sögu,“ segir Dwesil. „Þeg-
ar ég fann hann árið 1971 og sagði
pabba frá því sagði hann að ég
mæti eiga hann. Nú finnst mér
tímabært að gítarinn skipti um eig-
anda.“
Jimi Hendrix var nýlega kos-
inn besti gítarleikari allra tíma af
lesendum bresks tónlistartíma-
rits.
Brenndur gítar í eigu Jimi Hendrix:
Seldur á uppboði
fyrir milljónir
RÁNDÝR GÍTAR
Dweezil Zappa, sonur rokkstjörnunnar
Franks Zappa, heldur hér á hinum sögu-
lega Stratocaster-gítar, sem Hendrix kveikti
tvívegis í.
THE LEAVES
Munu spila á Airwaves hátíðinni í ár. Þeir hafa verið að gera það gott á tónleikaferðalagi um Evrópu og eru með samning
við Dreamworks.