Fréttablaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 16
16 28. ágúst 2002 MIÐVIKUDAGURHVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
FYRIRLESTUR
17.00 Cyrus Karingithi efnafræðingur
heldur fyrirlestur í stofu 158 í VR
II, húsi verkfræði- og raunvísinda-
deilda Háskóla Íslands. Yfirskrift
fyrirlestursins er: Túlkun á þeim
ferlum sem stjórna styrk gasteg-
unda í jarðhitaferlinu í Olkaria í
Kenýa. Fjallar hann um rannsókn-
arverkefni Cyrusar til meistara-
prófs í jarðefnafræði við raunvís-
indadeild HÍ. Fyrirlesturinn er öll-
um opinn.
FUNDUR
17.00 Stuðningshópur kvenna sem
fengið hafa krabbamein í eggja-
stokka heldur rabbfund í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógar-
hlíð 8 í dag. Kaffiveitingar.
FÉLAGSSTARF
11.00 Félag eldri borgara í Hafnarfirði,
Hraunseli , Flatahrauni 3. Línu-
dans kl. 11.00 og pílukast kl.
13.30.
TÓNLEIKAR
21.00 Dúndurfréttir leika bestu lög Pink
Floyd og Led Zeppelin á Gauk á
Stöng.
MYNDLIST
Jón Sæmundur Auðarson hefur opnað
sýningu í Gallerí Hlemmi. Sýningin
stendur til 15. september og er opin
fimmtudaga til sunnudaga frá kl 14-18.
Bandaríski listamaðurinn Holly Hughes
heldur ljósmyndasýningu í kjallara Gall-
erí Skugga, Hverfisgötu. Sýningin ber yf-
irskriftina Choices. Á sýningunni eru ljós-
myndum af samstarfsverkefnum Holly
með bæjarbúum í íslenskum byggðar-
lögum. Sýningin stendur til 8. septem-
ber. Gallerí Skuggi er opið alla daga
nema mánudaga kl. 13 -17 og er að-
gangur ókeypis.
Berglind Björnsdóttir ljósmyndari sýnir
í aðalsal Gallerí Skugga á Hverfisgötu.
Sýningin nefnist Trufluð tilvera. Sýningin
stendur til 8. september. Opnunartími
Gallerí Skugga er kl. 13-17 alla daga
nema mánudaga. Ókeypis aðgangur.
Rebekka Gunnarsdóttir sýnir í Sjó-
minjasafni Íslands, Vesturgötu 8, Hafn-
arfirði. Rebekka sýnir vatnslitamyndir og
glerverk sem að mestu eru unnin á
þessu ári. Aðal viðfangsefni myndanna
er landslag, götumyndir og hús í Hafnar-
firði. Sýningin stendur til 8. september
og er opin alla daga frá kl. 13-17 á opn-
unartíma safnsins.
Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís-
lands stendur yfir í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv-
arar sýna. Sýningin er fjölbreytt og sýnir
þá miklu breidd sem ríkir innan félags-
ins sem fagnar 30 ára afmæli sínu. Sýn-
ingin stendur til 6. október.
Sýning á nýjum verkum hafnfirska mál-
arans Jóns Thors Gíslasonar er í Hafn-
arborg, menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar Á sýningunni eru málverk,
grafík, vatnslitamyndir og teikningar.
Sýningin er opin alla daga nema þriðju-
daga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 9.
september.
Grafíski hönnuðurinn og myndlistarkon-
an, Valgerður Einarsdóttir, sýnir verk
sín á Kaffi Sólon. Sýningin stendur til 6.
september.
Arnfinnur Amazeen og Bryndís Erla
Hjálmarsdóttir sýna í rými undir stigan-
um í i8, Klapparstíg 33. Verkið sem þau
sýna nefnist „Við erum í svo miklu jafn-
vægi“ og er innsetning með ljósmynd
og spegli. Sýningin stendur til 6. sept-
ember. i8 er opið þriðjudaga til laugar-
daga frá kl. 13.00-17.00.
Helgi Þorgils Friðjónsson og Kristinn
G. Harðarson sýna í i8, Klapparstíg 33.
Kristinn sýnir vatnslitaverk og útsaumað-
ar myndir og Helgi leirskúlptúra. Að auki
sýna þeir myndbandsverk sem þeir
unnu í sameiningu ásamt söngvaranum
Sverri Guðjónssyni sérstaklega fyrir sýn-
inguna. Sýningin stendur til 12. október.
i8 er opið þriðjudaga til laugardaga frá
kl. 13-17.
Nú stendur yfir í Listhúsi Ófeigs á
Skólavörðustíg 5 sýningin Úr fórum
gengins listamanns. Á sýningunni eru
verk Jóhannesar Jóhannessonar (1921-
1998), vatnslitamyndir, pastel og teikn-
ingar. Sýningin stendur til 28. ágúst.
Í Gerðarsafni standa yfir tvær sýningar, í
Austur- og Vestursal er sýning ber heitið
Stefnumót. Á henni eru málverk eftir
Jóhannes Jóhannesson listmálara og
höggmyndir og glergluggar Gerðar
Helgadóttur myndhöggvara.
Á neðri hæð safnsins stendur sýningin
Yfirgrip. Á henni eru eldri og nýrri verk
eftir Valgerði Hafstað listmálara. Sýn-
ingarnar standa til og með sunnudags-
ins 8. september. Listasafn Kópavogs er
opið alla daga nema mánudaga frá 11-
17.
Á Listasafni Íslands eru sýnd tæplega
100 verk í eigu safnsins eftir 36 lista-
menn. Verkin gefa yfirlit yfir íslenska
myndlistarsögu á 20. öld, einkum fyrir
1980. Sýningin skiptist í fimm hluta:
Upphafsmenn íslenskrar myndlistar á
20. öld; Koma nútímans/módernismans
í myndlist á Íslandi; Listamenn 4. ára-
tugarins; Abstraktlist; Nýraunsæi áttunda
áratugarins. Listasafn Íslands er opið alla
daga nema mánudaga. Sýningin stend-
ur til 1. september.
Listin meðal fólksins er yfirskrift sýn-
ingar Listasafns Reykjavíkur í Ásmund-
arsafni. Á sýningunni eru verk Ásmund-
ar Sveinssonar myndhöggvara skoðuð
út frá þeirri hugsjón hans að myndlistin
ætti að vera hluti af daglegu umhverfi
fólks en ekki lokuð inni á söfnum. Sýn-
ingin stendur til ársloka.
SÝNINGAR
Í Þjóðmenningarhúsinu standa þrjár
sýningar. Sýndar eru ljósmyndir úr svo-
nefndum Fox-leiðangri sem eru með
elstu myndum sem teknar voru á Ís-
landi, Grænlandi og í Færeyjum, sýning
er á vegum Landsbókasafns á bók-
menntum Vestur-Íslendinga og loks er
Landafundasýningin sem opnuð var árið
2000 og hefur nú verið framlengd. Að-
gangur er ókeypis á sunnudögum.
Í Grófarsal í Grófarhúsi við Tryggvagötu
er sýning á íslenskum blaðaljósmynd-
um frá árunum 1965 til 1975. Blaðaljós-
myndir eru einn stærsti flokkur
myndefnis á Ljósmyndasafni Reykjavík-
ur, sem sýnir hér hátt á annað hundrað
blaðaljósmyndir. Fjölbreytt myndavalið
veitir innsýn í tíðarandann. Opið er frá
kl. 12.00-18.00 virka daga og kl. 13.00-
17.00 um helgar.
Í sýningarsal Handverks og hönnunar
við Aðalstræti er sýning á íslenskum
þjóðbúningum. Hún nefnist Með rauð-
an skúf. Þar eru sýndir búningar í eigu
Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Þjóð-
dansafélags Reykjavíkur og Búningaleigu
Kolfinnu Sigurvinsdóttur.
MIÐVIKUDAGURINN
28. ÁGÚST
SÖGUFERÐ „Ég hef lengi horft á
húsið í Herdísarvík þar sem Ein-
ar Benediktsson bjó síðustu átta
ár ævinnar og hugsað með mér
hvað væri gaman að fara með ís-
lenska ferðamenn og segja þeim
sögu þessa merka manns. Þetta
er gamall draumur að rætast“,
segir Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona sem stendur fyrir sögu-
ferð um slóðir Einars Benedikts-
sonar, skálds og athafnamanns.
Guðrún segist hafa mætt velvild
þeirra sem hún leitaði til. „Ég
fékk umsvifalaust lykilinn að
húsinu í hendurnar frá rektor
Háskóla Íslands og út frá því fór
þetta að vinda upp á sig. Mér
fannst áhugavert að hefja ferð-
ina í Höfða þar sem Einar bjó og
sýna fram á þessar stórkostlegu
mótsagnir í lífi eins manns. Búa
í Höfða og enda síðan ævina í
litlu húsi í Herdísarvík.“
Ferðin um söguslóðir Einars
tekur einn dag og segist Guðrún
ekki taka fleiri í ferð en 20
manns. Hún hefjist í Höfða og
eftir stutta dagskrá þar liggi
leiðin um Kleifarvatn, Krísuvík
og Herdísarvík. „Ég styðst við
heimildir Sigurveigar Guð-
mundsdóttur sem hafði farið til
Herdísarvíkur sem ung kona
ásamt systur Einars. Út frá þess-
ari bók hef ég lýsingar á því
hvernig var fyrir ungt fólk hér
áður fyrr að mæta þessu stór-
menni.“
Einar bjó í Herdísarvík ásamt
Hlín Johnson sem Guðrún heim-
sótti sjálf fimmtán ára gömul.
„Fólki verður boðið upp á eftir-
miðdagskaffi í anda Hlínar og
upp á eitt brennivínsstaup. Það
er gaman að segja frá því að
Hlín bruggaði allt sitt vín sjálf
og hafði fengið til þess sérstakt
leyfi sýslumannsins á Selfossi.“
Meðan á dvöl stendur nýtur Guð-
rún aðstoðar Eyvindar Erlends-
sonar leikara. Flytja þau tvö
ljóða Einars. Að því loknu er
haldið í Strandakirkju þar sem
ljóðið Messan í Mosfelli er flutt.
Að því búnu liggur leiðin í kvöld-
verð í Rauða húsið á Eyrar-
bakka. „Þegar kemur að eftir-
rétti flyt ég ferðalangana í alda-
mótastemmingu í Byggðarsafnið
á Eyrarbakka. Í plusssófunum er
hlýtt á tónlist og tengsl Einars
við húsið útskýrð.“
Guðrún segir engu líkt að
segja frá mönnum og málefnum
í þeim húsum sem það bjó. „Það
er engu líkara en að veggirnir
tali með manni. Hreint ævin-
týri,“ segir Guðrún að lokum.
kolbrun@frettabladid.is
Á slóðir Einars
Benediktssonar
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona hefur skipulagt ferðir sem leiðir fólk
á slóðir Einars Benediktssonar, skálds og athafnamanns. Ferðin hefst í
Höfða og endar með kvöldverði á Eyrarbakka.
GUÐRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR
Guðrún segir þessa söguferð eiga erindi við alla. Þegar sé búið að fara í eina prufuferð
sem hafi lukkast vel. Ef fólk hefur áhuga á að fara í ferðina getur sett sig í samband við
Guðrúnu.
Viktoría Jónasdóttir
Mávahlátur eftir Kristínu Marju. Hún er frábær.
Nóttin hefur þúsund augu:
Gefin út í
Þýskalandi
BÆKUR Glæpasaga Árna Þórarins-
sonar, „Nóttin hefur þúsund
augu“, er komin út í Þýskalandi
hjá forlaginu Verlagshaus No. 8.
Þetta er fyrsta íslenska glæpasag-
an sem gefin er út þar í landi.
Áður hefur bókin verið gefin út í
Danmörku þar sem hún hlaut
góða dóma. Meðal annars sagði
gagnrýnandi Berlingske Tidende
að sagan gæfi „hinum harðsoðnu
amerísku reyfurum ekkert eftir.“
„Nóttin hefur þúsund augu“
kom fyrst út hjá Máli og menn-
ingu árið 1998. Hún er sú fyrsta af
þremur útgefnum verkum Árna
sem fjalla um ævintýri Einars
blaðamanns. Þar er Einar rifinn
timbraður upp úr rúminu til að
flytja fréttir af morði á Flugvall-
arhótelinu. Af tilviljun fær hann
að heyra ýmislegt sem starfsfé-
lagarnir heyra ekki og verður
óvænt helsti heimildamaður þjóð-
arinnar um þennan hrottafengna
glæp.
TÓNLIST Vinafélag Íslensku óper-
unnar opnar nú dyr sínar fyrir
nýjum félögum. Af því tilefni
bjóða Vinafélagið og Íslenska
óperan félagsmönnum á hátíðar-
sýningar á Rakaranum í Sevilla
29. og 30. nóvember. Þessar tvær
sýningar eru þær einu þar sem
Kristinn Sigmundsson og Gunnar
Guðbjörnsson syngja báðir í óp-
erunni.
Einungis félagsmönnum í
Vinafélaginu gefst kostur á mið-
um og að því er aðstandendur Ís-
lensku óperunnar segja er alls
óvíst að slíkt tækifæri bjóðist
aftur í bráð. Óperan verður
frumsýnd 20. september. Krist-
inn fer með hlutverk Don Basili-
os í fimm sýningum og Gunnar
syngur hlutverk Almaviva greifa
í ellefu sýningum. Saman syngja
þeir félagar þó aðeins í tveimur
síðustu sýningunum.
Sérstök kynning á Rakaranum
verður fyrir félagsmenn í Vina-
félaginu einni klukkustund áður
en hátíðarsýningar hefjast.
Gunnsteinn Ólafsson tónlistar-
maður sér um kynningu en hann
kennir einnig á námskeiði Vina-
félagsins og Endurmenntunar
Háskóla Íslands um Rakarann og
Rossini.
Matreiðslubækur:
Beint úr eld-
húsi Sopranos
BÆKUR Er sjónvarpið orðinn svona
stór þáttur í lífi fólks að mörk
hins raunverulega og óraunveru-
lega skarast? Ástæðan fyrir þess-
ari spurningu er sú að í 3. sæti á
lista amazon.com yfir mest seldu
matreiðslubækurnar er að finna
matreiðslubók Soprano fjölskyld-
unnar. Þættirnir um mafíufjöl-
skylduna hafa verið sýndir á RÚV
við miklar vinsældir. Í kynningu
um bókina segir að í henni megi
finna uppskriftir sem komi beint
úr eldhúsi Soprano fjölskyldunn-
ar. Lesendur geti töfrað fram jafn
girnilega réttir og hún Carmela á
núll komma einni. Uppskriftirnar
í bókinni á Soprano fjölskyldan að
hafa tekið með sér frá Napólí til
Bandaríkjanna. Bókin er mynd-
skreytt Tony og fjölskyldu hans
við matarborðið!
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU MATREIÐSLUBÆKURNAR
Á AMAZON.COM
Rachael Ray
30-MINUTE MEALS
Dean Ornish
EVERYDAY COOKING
Artie Bucco
THE SOPRANOS FAMILY COOKB.
Dean Ornish
EAT MORE, WEIGH LESS
Alton Brown
I’M JUST HERE FOR THE FOOD
Katie Brown
KATIE BROWN ENTERTAINS
Anthony Bourdain
KITCHEN CONFIDENTIAL
Lidia Matticchio Bastianich
LIDIA’S ITALIAN-AMERICAN...
H. Leighton Steward
SUGAR BUSTERS
Weight Watchers
MAKE IT IN MINUTES
ÍSLENSKA ÓPERAN
Forgangsmiðasala fyrir félagsmenn Vinafélags Íslensku óperunnar á hátíðarsýningarnar er
hafin og stendur til 7. september. Þeir sem áhuga hafa á að ganga til liðs við félagið geta
haft samband á skrifstofu Íslensku óperunnar eða sent netfang á vinafelag@opera.is.
Vinafélag Íslensku óperunnar:
Sérstök hátíðarsýning
á Rakaranum í Sevilla
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T