Fréttablaðið - 17.09.2002, Page 1
bls. 22
ÚTSKRIFT
Ætlar að
opna lækna-
stofu
bls. 22
ÞRIÐJUDAGUR
bls. 16
177. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 17. september 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Skemmtanir 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
Útvarp 21
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Samson og einka-
væðingarnefndin
FUNDUR Fjárfestingarfélagið Sam-
son og einkavæingarnefnd byrja í
dag að ræða saman um væntanleg
kaup Samson á verulegum hluta
ríkissjóðs í Landsbankanum.
Alfa kynnt
NÁMSKEIÐ Íslenska Kristskirkjan
heldur kynningu á Alfa að Bílds-
höfða 10 klukkan átta í kvöld. Á
Alfa eru mikilvægustu þættir krist-
innar trúar kynntir í lifandi fyrir-
lestrum og umræðuhópum. Kaffi er
á könnunni og aðgangur er ókeypis.
Evrópa
í Gerðubergi
KYNNING Evrópukynning Samfylk-
ingarinnar fer fram á félagsfundi
Kjördæmafélags Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík í menningarmiðstöð-
inni í Gerðubergi í Breiðholti í
kvöld klukkan 20. Tilgangur fund-
arins er að efla umræðu um kosti
og galla aðildar að Evrópusam-
bandinu í aðdraganda kosningar
um það innan Samfylkingarinnar
hvort flokkurinn skuli setja um-
sókn um aðild að sambandinu á
oddinn, en sú kosning fer fram í
næsta mánuði.
PERSÓNAN
Málar, spilar
og semur lög
LEIKHÚS
Heitar
ástir
ÁSLANDSSKÓLI Fræðslunefnd Hafn-
arfjarðar samþykkti síðdegis í
gær að leggja til við bæjarstjórn
að rifta samningnum við Íslensku
menntasamtökin um rekstur Ás-
landsskóla. Bæjarstjórn mun taka
afstöðu til málsins á fundi í dag.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, þvertók fyrir það
að málið snerist um pólitík. Það
gæti hins vegar verið að einhverj-
ir sæju sér hag í að gera málið að
pólitísku deilumáli.
Böðvar Jónsson, formaður
stjórnar Íslensku menntasamtak-
anna, sagðist ekki hafa séð rök-
stuðning fræðslunefndar því væri
hann ekki í stakk búinn að tjá sig
um málið. Íslensku menntasam-
tökin hafa sagt að uppsögn samn-
ingsins standist ekki lög, þar sem
samtökin hafi ekki gerst sek um
stórfelldar eða ítrekaðar vanefnd-
ir. Lúðvík sagðist ekki vilja tjá sig
neitt um það fyrr en málið hefði
verið afgreitt í bæjarstjórn. Böðv-
ar sagði að samtökunum hefði í
raun aldrei verið gefinn kostur á
að leysa vandann. Lúðvík sagði
hins vegar að ekkert annað úrræði
hefði verið í stöðunni en að segja
samningnum upp. Aðspurður
hvort deilan hefði einungis staðið
um Sunitu Gandhi sagði Lúðvík:
„Það hafa sumir sagt, m.a. þeir
sem hafa komið að starfi skólans.“
Aðspurður hvort ekki hefði þá
verið hægt að finna nýjan mann í
hennar stað í stað þess að segja
samningnum upp sagði Lúðvík:
„Ég ætla nú ekki að tjá mig neitt
frekar um það.“
ÍÞRÓTTIR
Á flakk
með
kónginum
SÍÐA 14
SÍÐA 13
Meistara-
deildin að
hefjast
TÓNLIST
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri vissi um skoð-
anakönnunina sem Gallup gerði
fyrir Kreml.is áður en hún var
gerð. Þetta hefur Fréttablaðið eftir
á r e i ð a n l e g u m
heimildum. Ekki
náðist í Ingibjörgu
Sólrúnu vegna
málsins.
S a m k v æ m t
könnuninni sögð-
ust mun fleiri
kjósa Samfylkinguna ef Ingibjörg
Sólrún gæfi kost á sér. Því hefur
verið haldið fram að borgarstjóra
hafi ekki verið kunnugt um könn-
unina fyrr en daginn sem hún var
birt opinberlega.
Í kjölfar könnunarinnar
lagðist borgarstjóri undir
feld og íhugaði viðbrögð
sín við henni. Í kjölfarið
sendi hún frá sér yfirlýs-
ingu þar sem hún sagði að
ekkert hefði breyst frá því
hún gaf það út fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar
að hún stefndi ekki á að
fara í framboð til Alþingis.
Heimildir blaðsins
segja að eftir einkafund
með Steingrími J. Sigfús-
son, formanni Vinstri-
hreyfingar græns fram-
boðs, hafi borgarstjóri
ákveðið að gefa ekki kost á sér
fyrir alþingiskosningarnar næsta
vor þrátt fyrir mikinn
þrýsting innan Samfylk-
ingarinnar. Fram að því
voru félagar hennar von-
góðir um að hún færi í
framboð. Sömu heimildir
herma að Steingrímur
hafi gefið til kynna að
Vinstri grænir myndu
ekki styðja Ingibjörgu
Sólrúnu til áframhaldandi
starfa í stól borgarstjóra.
Hvorki Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir né Steingrím-
ur J. Sigfússon vildu
segja nokkuð um hvað
þeim fór á milli þegar
Fréttablaðið leitaði til þeirra
vegna þessa máls.
Borgarstjóri vissi
um könnunina
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgastjóri vissi að til stæði að gera skoð-
anakönnun um áhrif framboðs hennar á fylgi Samfylkingarinnar. Gaf
framboðið frá sér eftir fund með Steingrími J. Sigfússyni.
ÞETTA HELST
Lettarnir sjö um borð í togar-anum Faxa eru þar enn. Patt-
staða er í máli skipverjanna og
útgerðarinnar Gjörva. bls. 2
Göran Persson, forsætisráð-herra Svíþjóðar, er bjartsýnn
á að geta haldið minnihlutastjórn
sinni með stuðningi Vinstri-
flokksins og Umhverfisflokksins.
bls. 2
Íslensk erfðagreining hefurásamt nýjum hluthöfum náð
undirtökunum í sjúkraskrárfyrir-
tækinu eMR. bls. 4
Veitingastaðurinn Tavern ogthe Green í Central Park í
New York hefur ákveðið að setja
íslenska kjötsúpu á matseðil sinn.
bls. 4
REYKJAVÍK Hæg suðlæg eða
breytileg átt. Dálítil súld
öðru hverju. Hiti 8 til 13 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Rigning 11
Akureyri 5-10 Skýjað 12
Egilsstaðir 3-8 Skýjað 12
Vestmannaeyjar 3-8 Súld 11
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
ÓHEPPNAR Guðlaug Jónsdóttir sendir hér knöttinn fyrir í leik Íslands og Englands í undankeppni heimsmeistaramótsins í gær. Knöttur-
inn lenti á kolli Erlu Hendriksdóttur sem skallaði hann af öryggi í netið. Leikurinn endaði 2-2 og voru íslensku stelpurnar óheppnar að
fara ekki með sigur af hólmi. Nánar á blaðsíðu 12.
Fræðslunefnd leggur til að samningi um rekstur Áslandsskóla verði rift:
Bæjarstjóri segir málið ekki pólitískt
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í MARS 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 39
ára á þriðjudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
18,4%
D
V
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-
borgarsvæð-
inu á þriðju-
dögum?
51,5%
64,5%
INGIBJÖRG
SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
Var kunnugt um
gerð skoðanakönn-
unar um áhrif end-
urkomu sinnar í
landsmálin áður en
hún var gerð.
Fram að því
voru félagar
hennar vongóð-
ir um að hún
færi í framboð.
Skuldamál einstaklinga
vegna hlutabréfakaupa í
deCODE:
Ekki rædd í
bankaráðum
HLUTABRÉF „Þessi mál hafa ekki
komið inn á borð til okkar. Starfs-
menn bankans verða að svara fyr-
ir þetta,“ segir Kristján Ragnars-
son, bankaráðsformaður Íslands-
banka, um skuldamál fjölmargra
einstaklinga sem keyptu hluta-
bréf í deCODE fyrir liðlega
tveimur árum. Fjármálastofnanir
lánuðu fjölmörgum til hlutabréfa-
kaupannakaupa, lán sem átti eð
endurgreiða með söluhagnaði af
bréfunum Lán þessi hafa nú í
flestum tilvikum verið í frysti í
lánastofnunum en óðum styttist
að gengið verði að veðum:
„Nei, þetta hefur ekki verið
rætt á fundum hjá okkur,“ segi
Magnús Gunnarsson, formaður
bankaráðs Búnaðarbankans, og
tekur þar með undir með starfs-
bróður sínum í Íslandsbanka.
Yfirmenn útlánaeftirlits bank-
anna eru tregir til að tjá sig um
fjölda viðskiptavina sinna sem í
vandræðum er vegna fyrrnefndra
hlutabréfakaupa. Þó er víst að all-
ir sitja þeir með langa lista skuld-
ara fyrir framan sig; nöfn við-
skiptavina bankanna sem keyptu í
deCODE í góðri von um verulegan
hagnað sem snerist upp í and-
hverfu sína.