Fréttablaðið - 17.09.2002, Side 6

Fréttablaðið - 17.09.2002, Side 6
6 17. september 2002 ÞRIÐJUDAGURSPURNING DAGSINS Hvað finnst þér um hugmyndir um að banna sölu á rjúpum? Bara fínt. Ég er með þær í jólamatinn en þarf ekki að kaupa þær. Björg Eva Erlendsdóttir. 41 árs. Fréttamaður. SKOPJE, AP Samsteypustjórnin í Makedóníu missti völdin í þing- kosningunum þar í landi á sunnu- daginn. Stjórnmálaflokkur Ali Ah- metis, fyrrverandi uppreisnarfor- ingja albanska minnihlutans í land- inu, vann stórsigur ásamt öðrum stjórnarandstöðuflokkum. „Það er augljóst að við getum ekki myndað nýja stjórn,“ sagði Ljubco Georgivsky forsætisráð- herra. „Við óskum sigurvegaran- um til hamingju.“ Arben Xhaferi, leiðtogi smærri stjórnarflokksins, sagðist í gær vera tilbúinn til að starfa með stjórnarandstöðunni. „Þjóðfélagið í Makedóníu stóðst prófið,“ sagði Kimmo Kiljunen, yf- irmaður kosningaeftirlits Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem fylgdist með framkvæmd kosninganna. Kiljunen segir kosn- ingarnar hafa verið í aðalatriðum frjálsar og réttlátar. Robertson lávarður, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins, hrósaði bæði makedónsk- um sem albönskum kjósendum fyrir að hafa sýnt af sér „pólitísk- an þroska“. Hann sagði kosning- arnar „mikilvægt skref í rétta átt og greinilega höfnun á því ofbeldi sem hefur varpað skugga á síðustu mánuði.“  Umskipti í stjórnmálum í Makedóníu: Stjórnarandstaðan vann stórsigur MAKEDÓNÍUBÚAR FAGNA SIGRI STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR AP /N IK O LA S G IA KO U M ID IS Ölfusárbrú: Ljósasería olli slysi LÖGREGLUMÁL Ökumaður stöðvaði bíl sinn skyndilega þegar hann var að aka yfir Ölfusárbrú. Af- leiðingar þess urðu þær að bíll sem keyrði á eftir ók aftan á bíl- inn. Ástæða þessa var sú að ljósa- sería hafði verið strengd milli handriða á brúnni. Atburðurinn átti sér stað um sjöleytið á sunnu- dagsmorgun. Lögregluna á Selfossi fýsir að vita hverjir strengdu ljósaseríuna yfir brúna þvera. Segja þeir ljóst að með þessu tiltæki hafi lífi og limum fólks verið stefnt í hættu. Þeir sem upplýsingar geta gefið hafi samband við lögregluna.  BERLÍN, AP Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er að komast á flug í skoðanakönnunum á ný. Hægri menn bregðast við með því að krefjast takmarkana á straumi innflytjenda til landsins. Þingkosningar verða haldnar í Þýskalandi um næstu helgi. Ed- mund Stoiber, kanslaraefni hægri manna, hefur haft yfirhöndina í skoðanakönnunum undanfarið, en virðist nú vera að missa hylli kjós- enda. „Schröder vill fleiri innflytj- endur, en hann útvegar ekki það fjármagn sem þarf til þess að stan- da straum af félagslegri aðlögun,“ sagði Stoiber í gær. Hann segir það óverjanlegt að fjölga innflytjend- um þegar fjórar milljónir manna eru atvinnulausar í Þýskalandi. „Þetta er býsna örvæntingar- full tilraun til þess að leita að kosn- ingamáli, og finna mál sem maður vonar að höfði til tilfinninga fólks,“ sagði Schröder. „En ég er alveg viss um að fólk sér í gegnum þetta.“ Í fjórum af fimm síðustu skoð- anakönnununum hljóta Jafnaðar- menn undir forystu Schröders meira fylgi en bandalag hægri- flokkanna tveggja, Kristilegra demókrata og Kristilegra félags- sinna. Á fjölmennum kosningafundi í Berlín á sunnudaginn ítrekaði Schröder loforð sín um að Þýska- land taki ekki þátt í hernaði á hend- ur Írak.  Kjósendur snúast á sveif með Schröder: Stoiber höfðar til útlendingahræðslu Innbrot og þjófnaðir voru tíðirviðburðir í Reykjavík um helg- ina. Helst var um innbrot í bíla og algengast að verið sé að stela hljómflutningstækjum. Lögreglan í Reykjavík fékk tilkynningu um að kona hefði gengið úr verslun með fulla matarkörfu án þess að borga og ekið á brott. Þá stöðvuðu dyra- verðir mann á bar í miðborginni sem hafði verið að misnota debet- kort. Sagðist hann hafa fundið kortið undir barborðinu. Öryggisvörður lenti í átökum viðmann um sjöleytið á laugar- dagsmorgun eftir að hafa komið að honum þar sem hann var að brjót- ast inn í bíl. Hélt hann honum þangað til lögreglan kom á staðinn. Skömmu síðar var tilkynnt að brot- ist hefði verið inn á heimili í mið- borginni. Íbúarnir höfðu vaknað við það að maður stæði við rúm- gaflinn hjá þeim. Þau höfðu verið að lofta út og gleymt að loka svala- hurðinni. Maðurinn komst í burtu og hafði á brott með sér tvö seðla- veski, bankabók og lyklana að bíln- um þeirra. Málið er í rannsókn. KANSLARINN OG UTANRÍKISRÁÐHERRANN Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands og Joschka Fischer, utanríkisráðherra, á kosn- ingafundi í Berlín um helgina. LÖGREGLUFRÉTTIR TAÍPEI, AP „Ef við værum ekki sjálf- stætt ríki, hvernig gæti ég þá ver- ið forsetafrú?“ spurði Wu Shu- chen, eiginkona forseta Taívans, Chen Shui-bien. „Ég þarf ekki sí- fellt að endurtaka þetta. Ekki frekar en að ég þurfi alltaf að taka fram að ég er kona.“ E i g i n m a ð u r hennar, Chen for- seti, hefur verið óhræddari við að bjóða Kínverjum byrginn en aðrir ráðamenn í Taív- an. Hann hefur oftar en einu sinni fullyrt að Taívan sé sjálfstætt ríki, þótt hann hafi stundum dregið í land með slíkar yfirlýsingar eftir að Kínverjar hafa sýnt tennurnar. Frú Wu, sem er lömuð fyrir neðan mitti, heldur í níu daga ferð til Bandaríkjanna á fimmtudag- inn. Hún segist ekki að fyrra bragði ætla að ræða í heimsókn- inni deilurnar við Kínverja, sem líta svo á að Taívan sé aðeins hér- að í Kína. Hins vegar lofar hún því að segja álit sitt umbúðalaust ef hún verður spurð. Þetta er í fyrsta sinn í hálfa öld sem forsetafrú Taívans kemur til Bandaríkjanna. Heimsóknin þykir til marks um það, að George W. Bush Bandaríkjaforsti leyfi sér meira gagnvart kínverskum stjórnvöldum í málefnum Taívans en forverar hans í embætti. Kín- verjar hafa jafnan hótað öllu illu þeim ríkjum sem umgangast Taív- an sem sjálfstætt ríki. Í Bandaríkjunum ætlar frú Wu að flytja nokkrar ræður, þar sem hún fjallar um þann árangur sem Taívanar hafa náð í þróuninni frá alræðisstjórn til lýðræðis. Ummæli hennar í viðtali á sunnudaginn hafa reyndar vakið hörð viðbrögð frá barnabarni Chi- ang Kai-sheks, sem stjórnaði í Kína þangað til kommúnistar gerðu þar byltingu árið 1949. Chi- ang Kai-shek flúði ásamt ríkis- stjórn sinni til Taívans, sem þá var aðeins hérað í Kína, og viður- kenndi aldrei stjórn Kommúnista- flokksins. Wu sagði í viðtalinu að munur- inn á sér og Soong Mayling, eigin- konu Chiangs, væri sá að eigin- maður hennar hefði verið einræð- isherra. Eiginmaður sinn væri hins vegar lýðræðislega kjörinn forseti. Hún minnti líka á að frú Chi- ang hefði verið kölluð „forsetafrú til æviloka“. Wu sagðist aldrei samþykkja slíkan titil. „Þegar kjörtímabili mínu sem forsetafrú lýkur, þá er það búið,“ sagði hún. „Þá verð ég venjuleg manneskja á ný.“  Lætur Kínastjórn ekki þagga niður í sér Forsetafrúin á Taívan er ekki hrædd við að segjast búa í sjálfstæðu ríki. Hún er á leið til Bandaríkjanna í níu daga heimsókn. FORSETAFRÚIN Á TAÍVAN Hún ætlar ekkert að minnast á deilurnar við Kínverja í Bandaríkjaför sinni - nema hún verði spurð. „Ef við værum ekki sjálfstætt ríki, hvernig gæti ég þá verið forseta- frú?“ GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 87.56 1.16% Sterlingspund 134.97 -0.10% Dönsk króna 11.42 -0.16% Evra 84.81 -0.16% Gengisvístala krónu 128,78 0,37% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 247 Velta 3.450m ICEX-15 1.306 1,09% Mestu viðskipti Íslandsbanki hf. 1.207.756.945 Bakkavör Group hf. 222.992.111 Össur hf. 85.829.851 Mesta hækkun Opin kerfi hf. 5,11% Bakkavör Group hf. 5,05% Össur hf. 4,00% Mesta lækkun SR-Mjöl hf. -13,89% Frumherji hf. -5,17% Marel hf. -4,74% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8305 -0,10% Nsdaq*: 1274,1 -1,30% FTSE: 4044,3 0,90% DAX: 3305 -1,70% Nikkei: 9241,9 -1,80% S&P*: 882,1 -0,90% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI Misjafnlega gengur að hagnast á útflutn- ingi sjávarafurða. Afkoma SÍF í Frakklandi olli vonbrigðum, en betur gengur í Banda- ríkjunum. Afkoma SÍF undir mark- miðum: Vonbrigði í Frakklandi UPPGJÖR Hagnaður Sölusambands Íslenskra fiskframleiðenda nam 22 milljónum króna eftir skatta fyrstu sex mánuði ársins. Þetta er mun lakari niðurstaða en fyrir sama tímabil í fyrra. Rekstrar- tekjur drógust saman milli ára. Fyrirtækið sendi frá sér afkomu- viðvörun vegna þess að afkoman stefndi í að verða lakari en áætl- anir höfðu gert ráð fyrir. Rekstur SÍF í Frakklandi olli vonbrigðum. Fyrstu mánuði ársins glímdi fyr- irtækið við harða samkeppni, en helstu samkeppnisaðilar á þeim markaði urðu gjaldþrota í vor. SÍF er aðili að yfirtöku fyrirtækjanna. Félagið telur horfur góðar á þeim mörkuðum síðari hluta ársins. Sölutregða varð vegna upptöku evrunnar, en fyrirtækið telur að henni sé að létta. Þrátt fyrir að betur horfi er gert ráð fyrir tapi á þriðja árs- fjórðungi og afkoman fyrir árið í heild verði heldur lakari en mark- mið fyrirtækisins. Reiknað er með að aðhaldsaðgerðir muni skila sér í rekstrinum á síðari hluta ársins. 

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.