Fréttablaðið - 17.09.2002, Page 7
7ÞRIÐJUDAGUR 17. september 2002
HÚSALEIGA Leiga á 2ja herbergja
íbúðum er um 70 til 100 prósent
hærri en tölur Páls Péturssonar
félagsmálaráðherra gefa til
kynna. Samkvæmt honum kostar
um 35.000 krónur að leigja 2 her-
bergja íbúð, en Guðrún Elíasdótt-
ir, starfsmaður Leigulistans, sagði
að á frjálsum markaði kostaði um
60 til 70 þúsund að leigja 2 her-
bergja íbúð.
„Þetta er náttúrlega bara bull
og ekki í neinum takti við raun-
veruleikann,“ sagði Guðrún. „Mér
þætti gaman að vita hvar þessar
íbúðir eru því ég myndi þá benda
fólkinu sem er að leita til okkar á
þær.“
Tölur ráðherra byggja á þing-
lýstum húsaleigusamningum
vegna húsalegubóta og sam-
kvæmt þeim kostar herbergi um
25.000 krónur, 2 herbergja íbúð
35.000 og 3 herbergja um 45.000
krónur. Um er að ræða meðaltals-
verð og eru húsaleigusamningar
hjá Félagsbústöðum inni í tölun-
um. Leiga þar er töluvert lægri en
á almenna markaðnum og dregur
meðaltalið því niður.
Guðrún sagði ekki hægt að
hafa leiguverð hjá Félagsbústöð-
um inni í þessu meðaltalsverði.
Leiga á hinum frjálsa markaði
væri svo langtum hærri en í fé-
lagslega kerfinu. Hún sagði að
leiguverð hefði staðið í stað síð-
asta ár. Undanfarið hefði verið
jafnvægi milli eftirspurnar og
framboðs.
Tölur ráðherra um meðaltalsleiguverð:
„Ekki í takti við
raunveruleikann“
MISMUNANDI UPPLÝSINGAR UM LEIGUVERÐ
Guðrún Elíasdóttir, starfsmaður Leigulistans, segir leigu á 2 herbergja íbúðum vera um
70% til 100% hærri en tölur ráðherra gefi til kynna.
Bakkabræður kaupa:
Bakkavör
hækkar
KAUPHÖLLIN Bakkabræður sf. sem
er eignarhaldsfélag bræðranna
Lýðs og Ágústs Guðmundssona jók
hlut sinn í Bakkavör Group í gær.
Verðmæti kaupanna var 61 milljón
króna. Gengið í viðskiptunum var
10. Bakkavör hefur hækkað á
markaði á undanförnu og leiddi
hækkun í Kauphöllinni í gær. Vísi-
tala aðallista hækkaði um rúmt
prósent í gær og endaði vísitalan í
1307 stigum. Eignarhlutur Bakka-
bræðra í Bakkavör eftir kaupin er
nálægt fjórum og hálfum milljarði
eftir kaupin í gær. Alls voru 46 við-
skipti með bréf í félaginu og var
lokagengið 10,40.
MIÐBORGIN „Það var enginn að búa
til ýkjusögur þegar ástandi mið-
borgarinnar á menningarnótt var
lýst,“ segir Jóna
Hrönn Bolladóttir,
miðborgarprestur.
Hún hefur á ný
vakið máls á því
ástandi sem var á
unglingum síðustu
m e n n i n g a r n ó t t
ekki síst núna þeg-
ar útivistartími barna hefur frá 1.
september styst um tvær klukku-
stundir. Jóna Hrönn segir börn
undir 16 ára aldri hafa verið í mið-
borginni umrædda nótt og sama
hefði verið uppi á teningnum á 17.
júní. „Ég skil ekki hvernig sú hefð
hefur geta skapast að foreldrar
leyfi börnum sínum að vera í mið-
borginni að næturlagi þessar
tvær nætur. Aðrar helgar er það
tilviljun að hitta fyrir krakka
yngri en 16 ára.“
Mikil umræða um ástandið
skapaðist í kjölfar síðustu menn-
ingarnætur. Jóna Hrönn segir að
óviðeigandi hafi verið að gera að-
stæður á menningarnótt að póli-
tískum þrætum. Þá eigi fullorðna
fólkið ekki að eyða tímanum í að
ásaka hvort annað. Of mikið sé í
húfi. „Það er ljóst að við sem sam-
félag verðum að standa saman um
að rjúfa þá hefð sem er að skapast
í kringum menningarnótt. Þetta
ástand snýst ekki um pólitík held-
ur börnin okkar og hamingju þeir-
ra. Foreldrar mega ekki gleyma
því að þeir bera foreldraábyrgð og
eiga að vera myndugir. Staðreynd-
in er sú að eftir að hátíðarhöldum
lýkur tekur við ástand þar sem
vímunefnaneysla og spenna eru í
hámarki. Við sem þarna vorum
stödd urðum fyrst og fremst sorg-
mædd að sjá börnin innan um allt
þetta. Við héldum að borgarsamfé-
lagið væri komið langt á veg í vit-
undarvakningu um vernd barna og
ungmenna en á menningarnótt
voru stigin tvö skref afturábak“
Jóna Hrönn segir að grípa
verði í taumana. „Það hefur náðst
góður árangur við lok samræmdu
prófanna á síðustu árum. Nú eru
ekki lengur hundruð 15 ára ung-
lingar í neyslu eftir prófin niðri
miðborginni. Með miklum sam-
takamætti fullorðinna og einnig
með skýrum skilaboðum hefur
náðst augljós árangur. Hið sama
þarf að gerast varðandi menning-
arnótt og 17. júní.“
kolbrun@frettabladid.is
Tvö skref
stigin afturábak
JÓNA HRÖNN BOLLADÓTTIR
„Menningarnótt er frábær viðburður og við sem störfum í miðborginni og einnig þeir sem þar búa viljum taka vel á móti fólki á afmælis-
degi Reykjavíkurborgar, en það er niðurdrepandi ef gestirnir sýna hverfinu vanvirðu og þakka gott boð með skrílshætti. Nú þarf að nota
tímann til að rjúfa þessa hefð og styðja foreldra í því að setja börnunum sínum skýrar reglur og brjóta ekki landslög.“
Jóna Hrönn Bolladóttir segir óskiljanlega þá hefð foreldra að leyfa
börnum sínum að vera að næturlagi í miðborginni á menningarnótt og
17. júní. Þá hafi hin pólitíska umræða í kjölfar menningarnætur verið
með öllu óviðeigandi.
Óviðeigandi
að gera að-
stæður á
menningarnótt
að pólitískum
þrætum.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI