Fréttablaðið - 17.09.2002, Side 9
9ÞRIÐJUDAGUR 17. september 2002
BJÖRGUNARAÐGERÐ Tæpan sóla-
hring tók að ná Toyota-jeppa upp
úr straumharðri jökulsá sem
rennur undan Dyngjujökli. Jepp-
inn hafði oltið á hliðina eftir að
ökumaður gerði tilraun til að
fara yfir ána og upp á árbakkann
hinum megin.
Lögreglunni í Húsavík var
beðin um aðstoð um níuleytið á
laugardagskvöld eftir að annar
af tveimur jeppum sat kirfilega
fastur í jökulsánni. Tókst mönn-
unum tveimur sem voru í jepp-
anum að komast af sjálfsdáðum
upp á árbakkann þeim megin
sem hinn jeppinn var.
Björgunarsveitarmenn frá
Garðari í Húsavík, Stefáni frá
Mývatni og Hjálparsveit skáta í
Aðaldal komu til aðstoðar á
þremur öflugum björgunarsveit-
arjeppum. Þegar að var komið
þótti ráðlegt að bæta við slöngu-
bát til aðstoðar enda jökulsáin
mun straumharðari en upplýs-
ingar gáfu til kynna. Ekki tókst
að draga jeppann upp úr ánni.
Það var ekki fyrr en tæplega sól-
arhring síðar, um átta á sunnu-
dagskvöldinu, að hertrukki frá
Björgunarsveitinni Jökli í Jökul-
dal tókst að draga jeppann upp
sem er talsvert skemmdur eftir
veruna í ánni en leir og drulla
höfðu komist í hann.
Jeppi valt á hliðina í jökulsá:
Sólarhring tók að
ná jeppanum upp
BÍLLINN DREGINN UPP
Tæpan sólarhring tók að ná bílnum upp en það tókst ekki fyrr en hertrukkur kom á staðinn.
UNNIÐ VIÐ BJÖRGUN
Ráðlegt þótti að notast við slöngubát til
að koma taug í jeppann sem var kirfilega
fastur í ánni.
STJÓRNMÁL Tveir af fimm þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins í
nýju norðvesturkjördæmi sækjast
eftir því að leiða lista flokksins.
Það eru Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra, og
Vilhjálmur Egils-
son. Hinir þrír þing-
menn flokksins
hafa allir lýst því
yfir að þeir sækist
eftir öruggu þing-
sæti. Það er því eitt
af þremur efstu
sætum á lista
flokksins. Vonlítið
er talið að flokkur-
inn nái inn fjórða manni.
„Ég stefni á fyrsta eða annað
sæti ef það verður prófkjör,“ segir
Vilhjálmur Egilsson. Hann skipaði
annað sæti á lista flokksins á Norð-
urlandi vestra fyrir síðustu þing-
kosningar. Hann segist eiga von á
að þetta verði mjög mikil barátta.
Ekki náðist í Sturlu Böðvarsson,
samgönguráðherra, í gær en ljóst
þykir að hann stefni á að leiða lista
flokksins í nýja kjördæminu. Hann
leiddi lista flokksins á Vesturlandi
fyrir síðustu þingkosningar og er
eini ráðherra Sjálfstæðisflokksins
í kjördæminu.
Aðrir þingmenn flokksins gefa
lítið út um ákveðin sæti en segjast
stefna að því að sitja áfram. „Ég
sækist eftir áframhaldandi þing-
sæti,“ segir Einar Oddur Kristins-
son, þingmaður af Vestfjörðum.
„Ég hef sagt fólki að ég stefni að
einu af þremur efstu sætunum.
Það er þá helst að ég horfi til ann-
ars eða þriðja sætisins,“ segir
Guðjón Guðmundsson, annar
þingmaður flokksins af Vestur-
landi. „Ég stefni að því að ná góð-
um árangri og öruggu þingsæti,“
segir Einar K. Guðfinnsson, odd-
viti Sjálfstæðismanna á Vestfjörð-
um.
Mörgum þykir erfitt að meta
styrkleika þingmannanna. Sturla
hefur verið talinn líklegur til að
leiða lista flokksins. Óvíst er hver-
su mikla samkeppni Vilhjálmur
veitir honum. Einar K. er sagður
geta treyst á stuðning víðar en af
Vestfjörðum. Guðjón kemur af
Akranesi, fjölmennasta sveitarfé-
lagi kjördæmisins.
Baráttan stendur um þrjú efstu
sætin. Önnur duga vart til þing-
sætis. Einar Oddur orðaði það
einna best: „Það má segja að á góð-
um dögum geti sætin verið fjögur.
Okkur finnst nú góðu dagarnir
sjaldan lenda á kjördegi.“
brynjolfur@frettabladid.is
Tveir stefna á efsta sætið
Þingmenn Sjálfstæðisflokks í norðvesturkjördæmi berjast fyrir áframhaldandi þingsetu sinni.
Sturla Böðvarsson og Vilhjálmur Egilsson stefna báðir á efsta sætið. Aðrir á örugg þingsæti.
ALÞINGISHÚSIÐ
Ólíklegt er að meira en þrír af fimm núverandi þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í norðvesturkjördæmi gangi inn um dyr Alþingis til star-
fa sinna eftir næstu þingkosningar
„Það má segja
að á góðum
dögum geti
sætin verið
fjögur. Okkur
finnst nú
góðu dagarnir
sjaldan lenda
á kjördegi.“
Kaupin á Arcadia:
Green
ætlar ekki
að selja
VIÐSKIPTI Breski auðjöfurinn Phil-
ip Green ætlar ekki að skipta upp
og selja frá sér verslanir Arcadia.
Í viðtali við Bloomberg upplýs-
ingaveituna segist Green ætla að
reka verslanir Arcadia. „Ég keyp-
ti þær ekki til að selja þær.“ Baug-
ur var í upphafi aðili að tilboði
Green og hafði fyritækið auga-
stað á vörumerkjum samstæðunn-
ar sem höfða til yngra fólks. Ef
marka má yfirlýsingar Green er
hann ekki á þeim buxunum að láta
þær frá sér.
HÓMÓPATAR „Hingað hafa komið
menn sem kynnt hafa fyrir okkur
starf og nám hómópata en enginn
afstaða hefur verið tekin til þess
náms hjá embætti landlæknis, seg-
ir Haukur Valdimarsson aðstoðar-
landlæknir. Á laugardag útskrifað-
ist sextán manna hópur hómópata
eftir fjögurra ára nám við breskan
skóla sem hér hefur starfað. Þetta
er í annað sinn sem útskrifað er
frá skólanum hér á landi.
Guðríður Þorsteinsdóttir skrif-
stofustjóri í heilbrigðisráðuneyt-
inu staðfesti að bréf hafi borist
ráðuneytinu meðal annar frá
hómópötum. Hún segir að nú á
haustmánuðum muni fara af stað
nefnd sem ætlað sé að gera úttekt
á námi og störfum allra þeirra sem
stundi óhefðbundar lækningar.
„Það er í samræmi við þingsálykt-
unartillögu sem samþykkt var á
síðast ári. Í henni var talað um all-
ar óhefðbundnar lækningar og til-
gangur nefndar sem skipuð verður
af heilbrigðisráðuneytinu verður
að skoða þessa starfsemi frá öllum
hliðum.“ Guðríður segir nefndinni
ætlað skila frá sér skýrslu um
þessa starfsemi og í framhaldi
megi búast við að afstaða verði
tekin í ráðuneytinu. „Tilgangurinn
er að þeir sem hafa aflað sér
menntunar njóti þess og einnig að
yfirvöld hafi eftirlit með starfsemi
af þessu tagi.“
Haukur Valdimarsson aðstoðar-
landlæknir leggur áherslu á að
embættið sé alls ekki á móti óhefð-
bundum lækningum en vísar í
starf þeirrar nefndar sem muni
ætlað að gera úttekt á þeim og um-
fangi þeirra.
ÓHEFÐBUNDAR LÆKNINGAR SÆKJA Á
Hérlendis hefur undanfarin ár verið skipulagt nám fyrir hómópata frá Bretlandi.
Mikill áhugi á óhefðbundnum lækningum:
Hómópatar óska eftir
viðurkenningu
Tölur um skólasókn:
Áberandi
minnst á Suð-
urnesjum
SKÓLAMÁL Skólasókn 16 ára ung-
menna er áberandi minnst á Suður-
nesjum eða 80%, en landsmeðal-
talið er 90%. Þetta kemur fram í út-
tekt Hagstofu Íslands á skólasókn
íslenskra ungmenna á aldrinum 16
til 29 ára, eins og hún var á miðju
haustmisseri árið 2001.
Skólasókn 16 ára drengja á Suð-
urnesjum er 75% en 87% stúlkna
þar stunda nám. Strax á fyrstu
tveimur árum framhaldsskólans
dregur úr skólasókn. Um 80% 17
ára ungmenna er við nám, en 70%
18 ára ungmenna. Við 18 ára aldur
er aðeins helmingur drengja á Suð-
urnesjum í námi, 58% á Norður-
landi eystra og á Austurlandi, en
yfir 70% drengja á höfuðborgar-
svæðinu og Norðurlandi vestra.
Við 20 ára aldur er skólasóknin
48%, en við 24 ára aldur eru um
30% við nám í framhalds- og há-
skólum. Um 10% 29 ára fólks er í
námi.
Þegar skólasókn er skoðuð með
tilliti til kynskiptingar kemur í ljós
að skólasókn 16 ára pilta er 88% en
16 ára stúlkna um 90%. Mismunur
á skólasókn kynjanna fer vaxandi
til 19 ára aldurs en þá eru um 10%
fleiri stúlkur en piltar í námi. Við 20
ára aldur snýst þetta við, en þá er
50% drengja í námi miðað við 46%
stúlkna. Þegar komið er fram yfir
tvítugt eru stúlkur aftur orðnar
fjölmennari en drengir meðal dag-
skólanema.
FJÖLBRAUTASKÓLINN Í ÁRMÚLA
Yfir 70% 18 ára drengja á höfuðborgar-
svæðinu og Norðurlandi vestra stunda nám.
Elsta manneskja heims:
Fagnar 115
ára afmæli
AFMÆLI Elsta manneskja heims,
Kamato Hongo, fagnaði í fyrradag
115 ára afmæli
sínu. Hongo, sem
sefur í tvo daga
og vakir í tvo
daga í senn, svaf
fram eftir á af-
mælisdegi sínum
en fagnaði svo
ásamt fjölskyldu
sinni og vinum í
suðurhluta Jap-
ans. Heilsu
Hongo hefur
hrakað mikið á
síðustu mánuðum
og er hún undir
stöðugu eftirliti
hjúkrunarkonu. Henni finnst gott
að fá sér í staupinu og notar hend-
urnar til að dansa Tokunoshima-
dansinn sem er ættaður frá Kagos-
hima eyjunum suður af landinu.
ÁNÆGÐ MEÐ
AFMÆLIÐ
Kamato Hongo svaf
fram eftir á afmæl-
isdegi sínum en
fagnaði svo ásamt
fjölskyldu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T