Fréttablaðið - 17.09.2002, Page 10

Fréttablaðið - 17.09.2002, Page 10
10 17. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Nú skal herða á læknis hönd Pétur G. Kristbergsson skrifar Pétur G. Kristbergsson sendieftirfarandi vísu vegna vilja heilbrigðisráðherra að setja heim- ilislækna á afkastahvetjandi laun. Nú skal herða á læknis hönd hverfa tökin mjúku. Sem fiskarnir á færibönd fari hinir sjúku. VEFUR „Alþingi og Althing eru tví- myndir. Þær ná báðar yfir Alþingi Íslendinga. Mér finnst mjög óvið- kunnanlegt að taka það upp sem heiti á vef einstaklings eða sam- taka sem eru ótengd Alþingi,“ segir Halldór Blöndal, forseti Al- þingis, um vef Friðar 2000 sem settur hefur verið upp á slóðinni Althing.org. „Ég átta mig ekki á hvað verið er að gefa í skyn með þessu. Athygli mín hefur verið vakin á þessu og ég er með þetta í athugun.“ Halldór segist ekki telja að Ástþór Magnússon og Friður 2000 hafi mikið upp úr upptækinu. „Ég hygg að niðurstaðan sé sú að menn eða félagasamtök hafa ekk- ert upp úr því að reyna að nota nafn Alþingis sér til framdráttar. Ég held að menn sjái í gegnum það og þyki það ekki viðeigandi.“ Árni R. Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur kvatt til þess að forsætisnefnd Alþingis finni leiðir til að láta loka vefnum. Óviðunandi sé að nafn Alþingis sé notað sem skálkaskjól.  Forseti Alþingis ósáttur við Althing.org: Óviðeigandi notkun á heiti Alþingis Saksóknarar í Svíþjóð óskuðu ígær eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir manninum sem grunaður er um að hafa ætl- að að ræna flugvél á leið til Lundúna í síðasta mánuði. Mað- urinn hefur játað að hafa verið vopnaður byssu en neitar því að hafa ætlað að ræna vélinni. Stærsta fangelsi Brasilíu, Car-andiru fangelsinu í San Paulo, hefur verið lokað. Mikið hefur verið um uppreisnir og blóðsút- hellingar í fangelsinu. Um 7000 fangar voru lokaðir inni í fang- elsinu, tvöfalt fleiri en upphaf- lega var gert ráð fyrir. Mannrétt- indahópar hafa fagnað lokuninni. Einn lést og fjórir særðust þeg-ar handsprengja sprakk á næturklúbbi í borginni Diyar- bakira í Tyrklandi í fyrrinótt. Talið er að sprengjan hafi sprungið fyrir mistök. HALLDÓR BLÖNDAL Skoðar hvernig bregðast skuli við því að Friður 2000 opni vef í nafni Alþingis. ERLENT KVIKMYND „Staða fátækra á Íslandi er svo slæm að óreyndu héldi maður að um skáldskap væri að ræða,“ segir Ragnar Halldórsson kvikmyndagerða- maður sem frá ár- inu 2000 hefur unn- ið að gerð heimild- arkvikmyndar um fátækt á Íslandi. Fyrir undirbúning kvikmyndarinnar þótti Ragnari rétt að kalla saman fulltrúa frá öllum helstu mannúðarstofnunum landsins á fund hjá Mannréttinda- skrifstofu Íslands. „Mér þótti ráðlegt að leita til þessara félagasamtaka í ljósi þess að kvikmynd um fátækt er við- kvæmt verkefni á allan hátt. Eftir fundinn var ég með að leiðarljósi að þeir sem kæmu fram í mynd- inni væri ekki í óreglu eða hefðu ekki að baki fjármálaóreiðu. Þetta var ekki síst áríðandi svo að þeir sem sæju myndina gætu ekki af- greitt málið þannig að fólkinu væri um að kenna hvernig staða þess væri. Einnig var ekki síður mikilvægt að gæta ítrustu varúð- ar vegna barna þessa fólks. Þrátt fyrir að foreldrarnir væru tilbún- ir að taka þátt í verkefninu gæti það bitnað á börnum þeirra.“ Ragnar segir að leitast hafi verið við að fá í myndina einstak- linga sem byggju raunverulega við kröpp kjör. Þrjá mánuði hefðu tekið að finna þátttakendur sem væru fulltrúar þeirra þriggja hópa sem verst eru settir þ.e. ör- yrkjar, einstæðir foreldrar og elli- lífeyrisþegar. Tveir eintaklingar og þeirra nánasta fjölskylda urðu fyrir valinu sem þungamiðja myndarinnar. Þeim er fylgt náið eftir í daglega lífinu. Erfitt reynd- ist að fá fulltrúa ellilífeyrisþega og því var horfið frá því. Hins vegar segja einstaklingar úr þeim hópi auk annarra sögu sína í myndinni án þess að sýna andlit- ið.“ Ragnar segir að við undirbún- ing og töku myndarinnar hafi það komið sér á óvart hversu slæmt fólki hafi það í raun. „Það er til fólk sem á ekki að borða eina viku í mánuði. Staðreyndin um fátækt er falin. Þeir sem hana upplifa vilja leyna því og þjóðfé- lagið neitar að viðurkenna að hún sé til staðar. Við trúum því ekki að til sé fólk sem á ekki fyrir mat.“ Til stendur að sýna myndina Hin þjóðin í kvikmyndahúsum eftir áramót. Þess má geta að hljómsveitin Sigurrós semur tón- listina í myndinni. kolbrun@frettabladid.is Hin þjóðin fjallar um fátækt fólk Ragnar Halldórsson kvikmyndagerðarmaður er um þessar mundir að leggja lokahönd á kvik- mynd sem fjallar um fátækt á Íslandi. Hann segir þjóðfélagið neita að viðurkenna fátækt. ATRIÐI ÚR KVIKMYNDINNI HIN ÞJÓÐIN Líf tveggja einstaklinga og fjölskyldu þeirra er þungamiðja myndarinnar. Annar var valinn úr hópi öryrkja. Hann er ungur 2ja barna faðir sem greindist með MS-sjúkdóm. Hinn er 52 ára einstæð móðir sem þó er óvenjuleg sem slík því hjá henni er 3 ára sonardóttir hennar. Það er til fólk sem á ekki að borða eina viku í mánuði. Ekki fyrir okkur Einar Þveræringur: Háttvirtur þingmaður, ÁstaMöller, hefur nú fundið hvar gallarnir í íslenska heilbrigðs- kerfinu eru. Að hennar mati er ekki nóg einkavæðing. Allir Ís- lendingar kannast við sögur af ís- lenskum konum giftar Ameríkön- um sem fljúga um hálfan hnöttinn til þess að eignast barn hér heima í landi miskunsama Samverjans. Okrið er svo gegndarlaust í Bandaríkjunum. Gamall maður sem var í blöðruspeglun þar í landi kvaldist mikið. Íslenskur læknir sem var viðstaddur spurði hvort gamli maðurinn hafi ekki verið deyfður. „Hann átti ekki fyrir deifing- unni,“ svöruðu læknar í Guðs eig- in landi. Frú Möller. Taktu ofan Heimdallargleraugun. Reyndu ekki að troða á okkur amerísku viðskiptasiðleysi.  Lesendur geta skrifað bréf íblaðið. Æskilegt er að hvert bréf sé ekki lengra en sem nemur hálfri A4-blaðsíðu. Hægt er að senda bréfin í tölvupósti, rit- stjorn@frettabladid.is, hringja í síma 515 7500, faxa í síma 515 7506 eða senda bréf á Fréttablaðið, Þverholti 9, 105 Reykjavík. LESENDABRÉF Hver dagur er heimsendir. Ver-öldin sem var tortímist. Göm- ul gildi glatast, verðmæti tapast. Haldreipi okkar reynast gagnslaus. Ný veröld fæðist á hverjum degi. Ný tækifæri opnast, sannindi finnast, verðmæti skapast. Ný vissa verður til. Mannlífið er eins og náttúran; sísköp- un. Endalaus þráður endaloka og upphafs. Dauðinn er forsenda lífsins í náttúrunni. Þess- ar andstæður eru óaðskiljanlegar. Það er ekki hægt að fá annað en hafna hinu. Þetta vita allir. Þrátt fyrir það er eitt helsta ein- kenni opinberrar umræðu staðföst trú á að við getum stöðvað þessa hringekju lífsins. Og að það sé eft- irsóknarvert. Það er sama hvaða mál er á dagskrá; alltaf skal mest- ur tími og flest orð fara í að vara við breytingum. Stundum er eins og flestir trúi að samfélag okkar sé eins og það best geti orðið. Minnsta röskun geti aðeins fært okkur verri niðurstöðu. Auðvitað trúir því enginn. Óttinn getur hins vegar látið okkur finnast sem allt sé að fara til fjandans. Að það sé skárra að sætta sig við ástandið eins og það er en taka áhættu um eitthvað ann- að og verra. Samt segir sagan okk- ur að breytingar hafi síður en svo verið skaðlegri en fastheldni. Þrátt fyrir allt umrót samfélagsins á Ís- landi á síðustu öld má færa fyrir því haldgóð rök að þrjóskt íhaldið hafi leikið samfélagið verr en breytingarnar. Í það minnsta vild- um við fæst snúa aftur. Ástæðan er nokkurs konar til- finningaleg trygging mannskepn- unnar fyrir breytingum. Hver vill rífa Hallgrímskirkju í dag? Við breytumst með breytingunum. Frá sjónarhóli dagsins í dag hefur sam- félagið þróast til bóta. Þannig verður það líka á morgun. En þetta vita líka allir. Ástæðan fyrir því að heimsendatal leggur undir sig alla umræðu er að framtíðin á sér fáa málsvara. Hagsmunir dagsins hafa hins vegar myndað skipulögð sam- tök og ráðið sér málpípur. Í okkar eigin lífi lærum við fljótt að hlusta ekki á óttann, vonleysið og hatrið þótt þessar tilfinningar geti haft hátt. Við lærum að ef við eltum þær uppskerum við aðeins enn meiri ótta, vonleysi og hatur. Þess vegna hlustum við frekar á vonina þótt hún sé veik og mjóróma. Við ættum að nota þessa reynslu í umræðu um sameiginleg málefni okkar. Hlusta á þá sem bjóða upp á skynsamlegar lausnir en skella skollaeyrum við þeim sem sífellt ala á ótta okkar við heimsendi. Þeir sem ala á ótta við breytingar standa í vegi fyrir að við getum bætt samfélagið.  „Frá sjónarhóli dagsins í dag hefur samfé- lagið þróast til bóta. Þannig verður það líka á morg- un.“ Fögnum hverjum heimsendi skrifar um áhrif óttans við heim- sendi á opinbera umræðu. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.