Fréttablaðið - 17.09.2002, Qupperneq 11
Jóna Eðvalds og Steinunn lönd-uðu samtals 430 tonnum af
síld í morgun. Jóna kom með 230
tonn og Steinunn 200. Örn KE er
einnig kominn á síldarmiðin í
Berufjarðarál og landar á Djúpa-
vogi. Þetta kemur fram á
horn.is.
Óli Jón Gunnarsson bæjar-stjóri í Stykkishólmi leggst
gegn þeim hugmyndum að legg-
ja Breiðafjarðarferjunni Baldri.
„Mér finnst það lítt ígrundaðar
hugmyndir. Ég held að skynsem-
in hljóti að ráða og að Baldur
verði rekinn áfram, nú eða hrað-
skreiðara skip sem væri mun
betra.“ skessuhorn.is
Björgunarsveitir Slysavarna-félagsins Landsbjargar frá
Húsavík, Mývatni, Aðaldal og
Jökuldal björguðu fólki sem
festist í jeppa í á við Dyngjujök-
ul á áttunda tímanum í fyrra-
kvöld. Jeppinn er talsvert
skemmdur eftir veruna í ánni
þar sem leir og drulla höfðu
komist inn í hann. vikin.is
Bæjarráð Reykjanesbæjarhefur samþykkt að fela Fast-
eignum Reykjanesbæjar ehf. að
kaupa 18 leiguíbúðir. Áður hafði
bæjarráðið samþykkt að nýta
sér 237 milljóna króna lánsheim-
ild úr Íbúðalánasjóði. Auglýst
verður eftir nýjum jafnt sem
notuðum íbúðum.
11ÞRIÐJUDAGUR 17. september 2002
INNLENT
INNLENT
EINANGRUN Biðtími eftir einangrun-
arplássi fyrir hunda í Hrísey er nú
um þrír mánuðir. Hákon Sigur-
grímsson skrifstofustjóri í land-
búnaðarráðuneytinu segir það ekki
svo ýkja langt ef litið sé til þess að
undirbúa þarf alla hunda fyrir Ís-
landsför og taki það minnst tvö
mánuði í viðkomandi landi. Að-
spurður um hvað líði svari ráðu-
neytisins til Dýralæknisstöðvar-
innar í Garðabæ um leyfi til rekst-
urs einangrunarstöðvar hér syðra
svarar hann að mjög fljótlega
muni vera tekin afstaða til þess.
„Við eigum von á áliti nefndar sem
skipuð var til að gera nýtt áhættu-
mat fyrir þennan innflutning og á
grundvelli þess verður sett reglu-
gerð. Í framhaldi af því verður tek-
in afstaða til umsóknar Dýrlækna-
stöðvarinnar í Garðabæ.“
Hákon segir að þessi sama
nefnd fjalli einnig um hvort stytta
eigi einangrunartímann en henni
var falið að gefa álit sitt á því. „Álit
nefndarinnar mun hafa mikið að
segja um þær ákvarðanir sem
teknar verða í ráðuneytinu um
breytingar í á einangrunarferl-
inu.“
Björn Styrmir Árnason á Dýra-
læknastöðinni í Garðabæ segir að
um leið og grænt ljós komi frá
ráðuneytinu fari undirbúningur á
fullt skrið. „Við erum hæfilega
bjartsýn en höfum ekki þorað að
gera neitt fyrr en við fáum eitt-
hvað að vita enda til einskis unnið
ef ráðuneytið hafnar okkur. Okkar
skoðun er að dýr eigi alls ekki að
þurfa að ferðast meira en nauðsyn
krefur og í ljósi þess að yfir 90%
allra innfluttra dýra fer á höfuð-
borgarsvæðið finnst okkur rétt að
svona stöð sé sem næst áfanga-
stað.“
Plastprent sækir út:
Kaupir
fyrirtæki í
Lettlandi
VIÐSKIPTI Plastprent hf. hefur undir-
ritað, með fyrirvara um niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar, samning um
kaup á plastframleiðslufyrirtækinu
Unifleks í Ríga, Lettlandi.
Unifleks er í sambærilegri
starfsemi og Plastprent, hjá því
starfa um 180 manns og velta þess
nemur 4-500 milljónum króna. Uni-
fleks er með söluskrifstofur í
þremur löndum.
Endanleg afstaða til kaupanna
verður tekin að henni lokinni í októ-
ber mánuði.
BÚVÖRUSAMNINGUR Guðni Ágústs-
son, landbúnaðarráðherra hefur
enn ekki skipað nefnd til að end-
urskoða búvörusamning ríkis og
kúabænda.
„Við höfum ekki heyrt orð frá
ráðherra. Ég veit ekki hvað tef-
ur,“ sagði Snorri Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands kúabænda.
Bændur telja nauðsynlegt að
lagfæra nokkur atriði í gildandi
samningi og umfram allt að tryg-
gja rekstraröryggi mjólkurfram-
leiðslunnar til lengri tíma. Samn-
ingur kúabænda við ríkið gildir til
2005 en bændur telja rétt að fram-
lengja hann til 2010 og tryggja
rekstraröryggi mjólkurfram-
leiðslunnar frekar.
Í ávarpi sínu á aðalfundi kúa-
bænda fyrir réttum mánuði sagð-
ist ráðherra myndi skipa samn-
inganefnd og koma viðræðum um
endurskoðun samningsins af stað.
Ráðherra lofaði ekki nýjum
mjólkursamningi en sagði að ef
nýr samningur yrði gerður, væri
ekki sjálfgefið að hann fæli það
sama í sér og núverandi samning-
ur.
Ekki náðist í landbúnaðarráð-
herra.
Endurskoðun mjólkursamnings ríkis og bænda:
Dráttur á nefndaskipan
landbúnaðarráðherra
GUÐNI
ÁGÚSTSSON
Mánuður frá yfirlýs-
ingu ráðherrans. Hef-
ur þó ekki enn skipað
fulltrúa í endurskoð-
unarnefnd mjólkur-
samnings ríkis og
bænda.
Myndbönd:
Landsmót
á leiðinni
HESTAMENNSKA Landsmót hesta-
manna, sem haldið var á Vind-
heimamelum í sumar, er vænt-
anlegt á fjórum myndböndum
sem sett verða á markað á næstu
dögum. Myndböndin eru unnin
af Plús Film og Sveini Sveins-
syni og eru fjögur að tölu. Á
fyrstu spólu er Landsmótið allt
eins og það lagði sig, á annarri
stóðhestar, á því þriðja hryssur
og svo loks gæðingar. Mynd-
böndum um Landsmótið verða
fáanleg í íslenskri og enskri út-
gáfu en þulur er Samúel Örn Er-
lingsson.
Ákvörðun um nýja stöð syðra tekin fljótlega:
Bið eftir plássi í Hrísey
nú þrír mánuðir
ÞAÐ ER EKKI ÞAÐ SAMA AÐ VERA HUNDUR EÐA FUGLINN FJÚGANDI
Hundar og önnur dýr en fuglinn fljúgandi þurfa að ganga í gegnum mikið og langt ferli til
að komast til Íslands
Göngufólk við Akranes:
Gengu
fram á djúp-
sprengjur
SPRENGJUR Hópur göngufólks sem
átti leið um Ás- og Melabakka
nærri Akranesi um helgina gekk
fram á djúpsprengjur fyrir
nokkru. Milli 30 og 40 manns voru
í gönguhópnum. Tveir þeirra
komu á það sem í fyrstu virtist
vera olíufötur. Við nánari eftir-
grennslan virtist sem um djúp-
sprengju væri að ræða. Sprengju-
deild Landhelgisgæslunnar lét
ganga svæðið þar sem hlutirnir
sáust. Fundust þá fjórar óvirkar
djúpsprengjur úr síðari heims-
styrjöld að því er fram kemur á
heimasíðu Akranesbæjar.
Bensínstríð er hafið á Suður-nesjum. Orkan opnaði nýja
bensínstöð við Hagkaup á Fitjum í
Njarðvík á laugardag og bauð þá
þegar lægsta bensínverð á Íslandi,
89.90 kr. fyrir bensínlítrann og
39.90 kr. fyrir lítran á dísel. ÓB-
stöðin í Njarðvík hefur nú ákveðið
að jafna verðið hjá Orkunni. vf.is
Boeing 707 eldsneytisflugvélfrá Varnarliðinu, sem lenti í
vandræðum með nefhjólsbúnað
sinn, tókst að lenda á Keflavíkur-
flugvelli um klukkan 13 í gær.
Tekist hafði að koma nefhjóli vél-
arinnar niður eftir að áhöfn vélar-
innar hafði verið í sambandi við
sérfræðinga í Bandaríkjunum.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
var í viðbragðsstöðu. vf.is
Sparisjóður Keflavíkur:
Engin hreyf-
ing á kæru-
málum
LÖGREGLUMÁL Kæra stjórnar Spari-
sjóðs Keflavíkur á hendur einum
af stofnendum fyrirtækisins
Thermo Plus bíður enn afgreiðslu
hjá embætti Sýslumannsins í
Hafnarfirði. Lögmaður spari-
sjóðsins lagði fram kæruna 24.
júní vegna rangra sakargifta
mannsins og tilraunar hans til
fjárkúgunar. Jafnframt var Siða-
nefnd Blaðamannafélags Íslands
send kæra vegna fjölmiðlaum-
fjöllunar um málið.
Thermo Plus var úrskurðað
gjaldþrota í fyrra og hefur Spari-
sjóðurinn í Keflavík verið sakað-
ur um ýmis konar misgjörðir í
tengslum við gjaldþrotið, meðal
annars skjalafals, umboðssvik,
veðsvik, þjófnaði og fleira.
Kærur eins stofnanda Thermo
Plus vegna þessa eru enn til af-
greiðslu hjá efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóra. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins hyggst emb-
ætti Sýslumanns í Hafnarfirði ekki
aðhafast í kærumáli Sparisjóðsins
fyrr en niðurstaða úr rannsókn
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra liggur fyrir.