Fréttablaðið - 17.09.2002, Síða 14
útsölustaðir
kennsludiskarnir
Windows
Word
Excel
Outlook
2.990 kr stk.
BT
Fjarkennsla ehf. Sími: 511 4510
www.fjarkennsla.is
Sendum í póstkröfu
www.tolvuvirkni.net
netverslun
Söngvarinn Beck og hljómsveitinThe Flaming Lips eru að fara í
tónleikaferðalag saman. Ferðalagið
hefst þann 17. október í Minnea-
polis í Bandaríkjunum. The
Flaming Lips munu hita upp fyrir
Beck á ferðalaginu auk þess sem
hljómsveitin mun spila undir hjá
honum á tónleikum. Nýjasta breið-
skífa Beck, „Sea Change“, er vænt-
anleg 24. september og skífa The
Flaming Lips, „Yoshimi Battles the
Pink Robots“ er nýútkomin.
Sýnishorn úr kvikmyndinni“Harry Potter og leyniklefinn“
er nú komið á Netið. Var sýnis-
hornið sýnt í fyrs-
ta sinn í banda-
rísku sjónvarpi
fyrir helgi. Í sýn-
ishorninu gefur að
líta nýjar persón-
ur sem ekki voru í
fyrri myndinni, þá
Gilderoy Lockhart
og Lucius Malfoy
sem Kenneth Branagh og Jason
Isaacs leika.
Nýjasta kvikmynd söngkon-unnar Mariah Carey, „Wise-
girls“, sem sýnd var við góðar
undirtektir á
Sundance-kvik-
myndahátíðinni
fyrr á árinu, verð-
ur frumsýnd á
myndbandi í stað
þess að fara í
kvikmyndahús.
Myndin fjallar
um þrjár gengil-
beinur á ítölskum veitingastað
þar sem meðlimir mafíunnar eru
á meðal matargesta. Leikkonan
Mira Sorvino, sem hlaut Ósk-
arsverðlaun fyrir hlutverk sitt í
Woody Allen-myndinni Mighty
Aphrodite, fer með eitt aðalhlut-
verkanna í myndinni.
Beth Gibbons, söngkonabresku hljómsveitarinnar
Portishead, sendir á næstunni frá
sér nýja sólóskífu. Skífan, sem
ber heitið „Out of Season,“ er
væntanleg í búðir síðar á þessu
ári. Gibbons hefur verið að vinna
að nýrri breiðskífu með Portis-
head en ákvað að taka sér frí til
að sinna sólóverkefninu.
Eddie Vedder og félagar í PearlJam eru að fara gefa út nýja
breiðskífu sem hlotið hefur nafn-
ið Riot Act. Platan kemur út í
nóvember en fyrsta smáskífan, I
am Mine, kemur út þann sjöunda
næsta mánaðar. Meðal annarra
laga eru Love Boat Captain og
Bushleaguer. Sveitin hyggst fylg-
ja plötunni eftir með tónleika-
ferðalagi á komandi ári.
Leikkonan Angelina Jolie hefurgefið hjálparstofnunum Sam-
einuðu þjóðanna í Afríku um átta
og hálfa milljón króna sem nota á
til að gefa flóttamönnum í Alsír
að borða. Jolie, sem tók við hlut-
verki sendiherra hjá Sameinuðu
þjóðunum fyrir nokkru síðan, vill
vekja athygli á ástandinu í land-
inu með fjárframlagi sínu.
14 17. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
TÓNLIST Það er greinilegt að Bubbi
Morthens hefur mikla trú á hinni
19 ára gömlu söngkonu Heru
Hjartardóttur. Þau léku fyrst
saman á Þorláksmessutónleikum
kappans í fyrra. Nú er hún komin
hingað til lands í þriðja skipti
meðal annars til að fara í ferðalag
með honum um landið. Konungur
rokksins var meira að segja svo
blíður að hann lánaði prinsess-
unni frá Nýja Sjálandi hljómsveit
sína, Stríð & Frið, til einkanota.
„Við erum að taka upp nýtt
lag,“ segir Hera með sérkenni-
lega hárri og líflegri rödd sinni.
Hún segir að útkoman sé rokk-
aðri en fyrri lög hennar. „Já,
þetta verður öðruvísi en ég hef
gert áður. Það eru reyndar fleiri
hljóðfæri en kassagítar á plöt-
unni minni en hún er langt frá því
að vera rokk. Ég hlusta á blöndu
af öllu.“
Hera segist hafa samið lög frá
átta ára aldri. Hún byrjaði að
hljóðrita lög sín 15 ára gömul og
vann fyrstu breiðskífu sína,
Homemade, ein í heimahúsi eins
og titillinn gefur til kynna. Það
gaf henni tækifæri til þess að
vinna aðra plötu sína á fag-
mannalegri hátt. Báðar skífurn-
ar voru gefnar út á Nýja Sjálandi
en sú seinni er einnig fáanleg
hér á landi.
Hera virðist einnig stolt af
uppruna sínum og viðurkennir að
hún bæti stundum íslenskum lög-
um inn á tónleikadagskrá sína.
Nefnir þar „Vísur vatnsenda
Rósu“ og lög Bubba Morthens.
„Það er mjög skemmtilegt að
sjá hvernig fólk tekur því. Uppá-
haldslagið mitt með honum hefur
alltaf verið „Stúlkan sem starir á
hafið“. Amma mín var búin að
safna úrklippum með gítarnótum
í mörg ár. Þar fann ég „Stál og
Hníf“ og hef verið að syngja það
síðan. Þeir taka þessu mjög vel á
Nýja Sjálandi án þess að vita
hvað ég er að syngja,“ segir hún
og hlær léttilega.
Hera segist ætla ætla að eyða
að minnsta kosti fjórum mánuð-
um á landinu í þetta skipti og
hljómar spennt fyrir því að vera
lengur. Tónleikaferðalag Bubba
THE SWEETEST THING kl. 8
MINORITY REPORT b.i. 14 kl. 5 og 8
LITLA LIRFAN - Stutt kl. 4 og 4.30
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40 b.i. 14
Sýnd kl. 4.45, 7.30 og 10.10
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i. 12
kl. 8 og 10.15 SIGNS kl. 6 og 8 MAÐUR EINS OG ÉG
THE SUM OF ALL FEARS kl. 10
24 HOUR PARTY P. kl. 5.45, 8 og10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30
MAÐUR EINS OG ÉG 8 og 10.15 VIT422LILO OG STITCH kl. 4 og 6
VIT
430
LILO OG STITCH ísl. tali kl. 4 VIT429
SIGNS kl. 5.50, 8 og 10.15 VIT427
PLUTO NASH kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT432
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8, 10.10 VIT 435
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 VIT 433
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
KVIKMYND
Einhvern tímann fyrir löngulas ég „The Bourne
Identity“ eftir spennusagnahöf-
undinn Robert Ludlum og man
það eitt að hún var svo löng og
flókin að þegar loksins kom að
endinum var ég búinn að gley-
ma byrjuninni. Kvikmyndin er
miklu skemmtilegri en bókin og
á köflum er hún svo listavel
gerð að litlu munar að maður
geti farið að trúa atburðarásinni
sem hefst á því að minnislaus
maður með skotsár á bakinu
finnst fljótandi í Miðjarðarhaf-
inu suður af frönsku Rívíerunni.
Um leið og þessi maður sem
veit ekki hver hann er fer að
svipast um eftir sjálfum sér
kemur í ljós að mikill fjöldi of-
beldismanna er reiðubúinn að
leggja á sig mikla fyrirhöfn til
að stúta honum. Nafnlausi mað-
urinn sem á bankareikning und-
ir nafninu Jason Bourne hittir
lögulegan kvenmann sem er
reiðubúinn að hjálpa honum úr
ógöngunum, enda er það segin
saga að ævinlega er til hjálpfús
og trúgjörn kona handa hverj-
um vandræðamanni. Söguna má
vitaskuld ekki rekja frekar, en
þetta er fyrsta flokks hasar-
mynd og Matt Damon er prýði-
leg tilbreyting frá þeim ster-
atröllum sem reyna að heilla
leiklistargyðjuna með upphand-
leggsvöðvunum einum saman.
Þráinn Bertelsson
Hver er
maðurinn?
THE BOURNE IDENTITY:
Aðalhlutverk: Matt Damon, Julia Stiles,
Brian Cox, Clive Owen
Leikstjóri: Doug Liman
Á flakk með kóng
FRÉTTIR AF FÓLKI
Söngkonan Hera Hjartardóttir hefur búið á Nýja Sjálandi í átta ár, gef-
ið þar út tvær plötur og m. a. sungið lög Bubba Morthens fyrir íbúa
landsins. Nú er þessi 19 ára stúlka komin undir verndarvæng kóngsins
og saman ætla þau í tónleikaferðalag um landið.
Frænka Camillu
Parker Bowles:
Hikar ekki
við að koma
nakin fram
NEKT Emma Parker Bowles, bróð-
ursystir Camillu heitkonu Karls
Bretaprins, stripplast í nýjasta
tölublaði tímaritsins Tatler. Hún
hefur skrifað um bíla fyrir blaðið
í tvö ár og iðulega fylgja glæsileg-
ar myndir af henni með greinun-
um og að þessu sinni kastaði hún
af sér hverri spjör fyrir mynda-
tökuna.
Hún lætur það fylgja sögunni í
pistli sínum að hún kunni best við
sig nakin, ekki síst þar sem hún sé
með ómögulegan fatasmekk. Þá
hefur hún viðurkennt að hafa far-
ið í meðferð vegna ofneyslu
áfengis og lyfja fyrir tveimur
árum.
Talsmaður blaðsins segir stúlk-
una oft hafa gengið langt en hún
hafi þó aldrei stripplast áður. Eng-
um sögum fer af hvort Camilla
kunni að meta framtak stúlkunnar
en lífstíll litlu frænkunnar er
varla til þess fallin að ganga í aug-
un í drottningunni.
Carmela Soprano:
Leikkonan
rennur
saman við
persónuna
SJÓNVARP Fjórða þáttaröðin um
Sópranó fjölskylduna verður frum-
sýnd í bandarísku sjónvarpi um
helgina og fregnir herma að nú
verði sjónum beint enn frekar að
samskiptum fjölskyldumeðlima en í
fyrri þáttum. Edie Falco, sem leikur
Carmleu, eiginkonu mafíósans
taugabilaða, segist vera farin að
þekkja persónuna ansi vel eftir fjög-
ur ár: „Það verður auðveldara að
leika hana með hverju árinu sem líð-
ur og hún er að verða hluti af mér.“
Hún segir útganginn á Carmelu
hjálpa sér heilmikið: „Fötin, augun
og neglurnar eru hluti af henni og
þegar ég er komin í þetta allt saman
finnst mér ég vera hún.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
SJOKKERANDI TÍSKA
Fyrirsæta sýnir hér hönnun frá David Delf-
in á lokadegi Pasarela Cibele tískusýning-
arinnar í Madrid á Spáni. Fjöldinn allur af
gestum gekk út af sýningunni þar sem
hönnun Delfin fór fyrir brjóstið á þeim.