Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.09.2002, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 17.09.2002, Qupperneq 22
22 17. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR HRÓSIÐ ... fær Elías Einarsson, eða Elli bryti í Ráðstefnusölum ríkisins. Fyrir utan að veita birtu og yl göfugra veiga í sálir ráðamanna þjóðarinnar hefur hann ákveðið að halda Valhöll á Þingvöllum op- inni yfir vetrarmánuðina. Það er tími til kominn að sú þjóðarger- semi sem Þingvellir eru sé betur nýtt en fyrr. Fegurð staðarins nýtur sín ekkert síður á fögrum vetrardegi, en um hásumar eða litríkt haust. Um leið og þessu frumkvæði er fagnað er rétt að hvetja landsmenn til að njóta feg- urðar og kyrrðar Þingvalla að vetri og njóta um leið veitinga í Valhöll.  Málar, spilar og semur lög og ljóð Ingrid Hlíðberg opnaði nýlega sýningu í Garðabergi á Garðatorgi. Hún sýnir olíumálverk og glerlist. Þar að auki semur hún lög og ljóð og er oft með upplestur fyrir eldri borgara. TÍMAMÓT PERSÓNAN Við vorum 15 konur sem út-skrifuðumst með réttindi í heildrænum lækningum síðast- liðinn laugardag,“ segir Birna Imsland, nýútskrifaður hómó- pati. „Við höfum stundað námið hérlendis í fjögur ár, en þetta er útibú frá breskum skóla. Kenn- ararnir koma reglulega til lands- ins landsins til að kenna okkur og við fáum leyfisbréf frá skól- anum að námi loknu.“ Enn hafa hómópatar ekki fengið viður- kenningu heilbrigðisyfirvalda á Íslandi en víða í Evrópu eru þeir viðurkenndir og í góðri sam- vinnu við aðrar heilbrigðisstétt- ir, „Við vonumst auðvitað til að öðlast viðurkenningu sem heil- brigðisstétt,“ segir Birna. Að- spurð um aðferðir í heildrænum lækningum segir hún að munur- inn á þeim og hinum hefðbundnu felist kannski helst í því að hómópatar vinni með orsakir ekki síður en einkenni. „Við lít- um ekki eingöngu á meinið held- ur tökum hug og tilfinningar inn í myndina.“ Birna segir að eftir þetta nám eigi hún að ráða við al- mennar heimilislækningar á mjög breiðu sviði. Aðaláhugamál Birnu tengjast náminu sem hún var að ljúka og tungumálum. Hún er með BA- próf í þýsku og rússnesku og hómópatanámið fór allt fram á ensku. „Ég hef starfað við þýð- ingar og oft verið túlkur á nám- skeiðum.“ En hvað kom til að Birna lærði rússnesku? „Ja, ég var með stúdentspróf í rússnesku og átti auðvelt með að bæta henni við stundaskrá þegar ég var kom- in í háskólann.“ En lækningarnar segist Birna stunda vegna þess að hún vilji leggja sitt af mörkum til að heimurinn verði betri. „Það hljómar kannski asnalega,“ segir Birna, en það finnst blaðamanni ekki og óskar Birnu, sem ætlar á næstunni að opna læknastofu ásamt fjórum öðrum hómópötum, til hamingju með áfangann.  Birna Imsland útskrifaðist sem hómópati frá breskum skóla, með útibú á Íslandi, síð- astliðinn laugardag. Námið tók fjögur ár. Útskrift Ætlar að opna læknastofu JARÐARFARIR 13.30 Eyvindur Valdimarsson, Fann- borg 8, Kópavogi, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju 14.00 Gunnleif Þórunn Bárðardóttir frá Hellissandi verður jarðsungin frá Ingjaldshólskirkju. ANDLÁT Haraldur Kristjánsson, Austurbrún 8, lést 12. september. Sigurður Guðmundsson, Eyjahrauni 17, Þorlákshöfn, lést 12. september. Valdimar Guðjónsson, Kirkjusandi 3, lést 12. september. Charlotta María Hjaltadóttir, Melabraut 21, Seltjarnarnesi, lést 11. september. FÓLK Í FRÉTTUM FÓLK Í FRÉTTUM Sveitarstjórnir víða um landhafa annað augað á 1. desem- ber og hitt á reglum jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga þessa dag- ana. Útreikningar um greiðslur úr sjóðnum miðast við 1. desem- ber og ráðast meðal annars af fólksfjölda og meðaltekjum íbúa. Á Raufarhöfn vantar 16 íbúa upp á að íbúar nái þriðja hundraðinu og flytjist í heppilegri saman- burðarhóp sveitarfélaga þegar kemur að út- reikningum á framlögum úr jöfnunarsjóði. Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri, leggur hart að heimamönnum að ná 300 manna mark- inu. Á heima- síðu sveitarfélagsins segir hún að vissulega sé orðið of seint að búa til börn. Hins vegar sé ráð að þeir sem búa á Raufarhöfn en séu með skráð lögheimili annars staðar skundi á bæjarskrifstof- urnar, fái sér kaffi og glassúr- köku og færi lögheimili sitt á Raufarhöfn. Halldór Blöndal, forseti Al-þingis, hefur vart undan við að taka á móti erlendum þingfor- setum og þingmönnum. Forseti neðri deildar írska þingsins er í heimsókn í boði Halldórs þessa vikuna. Í síðustu viku mætti starfs- bróðir hans frá Ítalíu. Í síðasta mánuði tók Halldór á móti kanadíska þingforsetan- um og sendi- nefnd frá jap- anska þinginu. Halldór hefur einnig ferðast talsvert starfs síns vegna frá því Alþingi fór í sumarfrí. Hann hefur farið í op- inberar heimsóknir til Kanada og Brima í Þýskalandi, á fund norrænna þingforseta í Svíþjóð og verið við setningu lögþings Færeyja. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Að gefnu tilefni skal tekið fram að heimilislæknar lækna ekki heimilisböl. Leiðrétting UNGUR NEMUR, GAMALL TEMUR Það er ómögulegt að vita hvað unga kynslóðin nemur af þeirri eldri en áhuginn virðist þó vera meiri á gæsunum en styttunni. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT Gos hófst í Kverkfjöllum viðnorðanverðan Vatnajökul árið 1717. „Varð svo mikið myrk- ur með dunum og jarðskjálftum í Þingeyjarsýslum, að eigi sá á hönd sér,“ segir í ritinu Land- skjálftar á Íslandi. Landsbankinn tók eignir Sam-bands íslenskra samvinnufé- laga upp í skuldir árið 1992. Þar með mátti heita að lokið væri starfsemi stærsta fyrirtækis landsins um áratuga skeið. Jose Carrerars var vel fagnað íLaugardalshöll árið 2001, þar sem stórtenórinn söng fyrir fullu húsi ásamt Diddú, kór Íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sovétríkin gerðu innrás í Pól-land árið1939. SAGA DAGSINS 17. SEPTEMBER Ég var sótt í hvítri limmósínumeð bar og öllu, þá leið mér eins og prinsessu,“ segir Ingrid Hlíðberg, 68 ára ellilífeyrisþegi, sem nýlega opnaði sýningu á olíu- málverkum í Garðabergi á Garðatorgi. Ingrid var sótt á lim- mósínunni þegar hún fór sem fulltrúi Íslands á sýningu sem Al- heimssamtök postulínsmálara héldu í St. Charles árið 1995. „Ég bar íslenska fánann og var klædd í íslenskan þjóðbúning, þá var ég nú aldeilis stolt af því að vera Ís- lendingur.“ Ingrid lærði postulínsmálun fyrir 25 árum og hefur kennt í tíu ár, bæði hér heima og erlendis. „Ég hef teiknað frá því ég man eftir mér,“ segir Ingrid. „Þegar ég var 13 ára voru sendar mynd- ir eftir mig á sýningu í Þýska- landi og Danmörku. Ingrid fór svo ung stúlka á kvöldnámskeið í Myndlistarskóla Reykjavíkur árið 1951. „Ég þurfti auðvitað að vinna fyrir mér, því ég var föður- laus og mamma sjúklingur.“ Síð- an hefur Ingrid sótt fjölda nám- skeiða í myndlista- og handíða- skólanum. „Ég byrjaði þó ekki að mála olíumálverk fyrr en um ára- mótin síðustu. Hafdís Benedikts- dóttir hvatti mig og var svo stolt þegar við opnuðum sýninguna að hún tárfelldi.“ Ingrid er mikill orkubolti og leggur stund á margar listgrein- ar, málar á kerti, spilar á gítar og semur lög og ljóð. „Ég er ein af þeim sem hef ekki nógu marga klukkutíma í sólarhringnum og vaki oft til klukkan fjögur. Það eru svo margar konur á mínum aldri sem gera ekki neitt, en mér endist aldrei sólarhringurinn.“ Eiginmaður Ingridar er Bragi Hlíðberg harmonikuleikari. „Við opnuðum sýninguna með harm- oniku- og píanóleik, það var ákaf- lega huggulegt og skemmtilegt. Svo héldum við hjónin ball á Ströndum í sumar og lékum fyrir dansi,“ segir Ingrid glettnislega. „Mér finnst bara svona voðalega gaman að lifa.“ Sýning Ingridar á Garðatorgi er opin frá kl. 13 til 17 virka daga. edda@frettabladid.is INGRID HLÍÐBERG Atorkusamur ellilífeyrisþegi sem finnst aldrei nógu margar stundir í sólarhringnum. Lítil ljóska var á gangi meðpabba sínum þegar pabbinn sagði: „Sjáðu dauða fuglinn“ Litla ljóskan horfði þá til him- ins og svaraði: „Hvar?“  Spænska kvikmyndahátíðin íRegnboganum hefur slegið í gegn. Fullt út úr dyrum á flestar sýningar og kaupa þarf miða í forsölu á það sem hæst ber. Topp- urinn er án efa Hable con ella eftir Pedro Almodovar sem held- ur áhorfendum hugföngnum frá upphafi til enda. Í myndinni leyf- ir þessi heimsfrægi leikstóri sér að vera væminn og hrífur alla með. Líklega besta kvikmynd sem sýnd hefur verið hér á landi síðan Pulp fiction. Sjaldan verið hlegið jafn mikið í Regnbogan- um. BIRNA IMSLAND Hefur brennandi áhuga á heildrænum lækningum og talar þrjú tungumál reiprennandi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.