Fréttablaðið - 03.10.2002, Side 1
bls. 8
FÓLK
Rokkstjarna
kaupir túnfiskkvóta
bls. 10
FIMMTUDAGUR
bls. 11
191. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 3. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Tólf ár
frá sameiningu
Framsókn í Suð-
vesturkjördæmi
BERLÍN Brandenborgarhliðið í Berlín
opnar á nýjan leik eftir þriggja ára
hreinsun. Liðin er tólf ár frá sam-
einingu þýsku ríkjanna í eitt.
KOSNINGAR Kjördæmisþing Fram-
sóknarflokksins í Suðvesturkjör-
dæmi verður haldið í Kópavogi í
dag. Rætt verður hvernig staðið
verður að vali á frambjóðendum
flokksins í kjördæminu.
Selló á
Sinfóníutónleikum
TÓNLEIKAR Sellóleikarinn Torleif
Thedéen leikur einleik með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í kvöld. Tón-
leikarnir fara fram í Háskólabíói
og hefjast klukkan 19.30. David
Stern stjórnar hljómsveitinni.
Frönsk
nútímaleiklist
FYRIRLESTUR Franski rithöfundurinn
Gabor Rassov flytur fyrirlestur um
Franska nútíma leiklist í húsakynn-
um Alliance française, Hringbraut
121, 3. hæð. Fyrirlesturinn hefst
klukkan 20.00. Rassov er höfundur
leikrits sem frumsýnt verður í
Borgarleikhúsinu á morgun.
SAMFÉLAG
Tíðni
afbrota hækkar
BANDARÍKIN
Heimild til
að ráðast á Írak
KVIKMYNDIR Aðstandendur Ungfrú
Ísland.is hafa fallið frá lögbanns-
kröfu á sýningu heimildarmyndar-
innar Í skóm drekans, sem Hrönn
Sveinsdóttir gerði um þátttöku
sína í keppninni árið 2000. Böðvar
Bjarki Pétursson, framleiðandi
myndarinnar, segist afar ánægður
með niðurstöðuna. „Aðstandendur
keppninnar hafa haft myndina til
skoðunar í sumar og þeir fóru upp-
haflega fram á að nokkur atriði
yrðu klippt út úr myndinni áður en
hún færi í almennar sýningar. Það
kom aldrei til greina af okkar hálfu
en við buðumst til að rugla andlit
þeirra stúlkna sem það vildu. Þetta
sáttarboð okkar gekk hraðar í gegn
en við áttum von á og við segjum
því bara loksins, loksins. Myndin
er óskemmd og við stefnum að því
að frumsýna hana þann 31. október
og koma henni í Eddukeppnina.“
Ljóst er að framleiðendurnir
tapa í það minnsta fjórum milljón-
um króna á töfinni og málaferlun-
um. „Þátttaka Kvikmyndasjóðs í
myndinni gerði okkur kleift að
gera þetta sáttatilboð en framlag
sjóðsins mun þó að mestu fara
beint í tapið. Við erum engu að síð-
ur afskaplega ánægð með þessar
málalyktir enda er það martröð
hvers kvikmyndagerðarmanns að
standa í stríði við viðfangsefni
sitt.“
Í klóm drekans:
Fallið frá lögbanni á sýningu
REYKJAVÍK Suðvestanátt 8-13
m/s. Skúrir eða dálítil
rigning. Hiti 6 til 11 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Skúrir 7
Akureyri 3-8 Skýjað 10
Egilsstaðir 3-8 Skýjað 12
Vestmannaeyjar 8-13 Rigning 7
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
DAVÍÐ ODDSSON
Snupraði stjórnarandstæðinga og aðra þá sem töldu ríkisstjórnina hafa misst tökin á efnahagsstjórninni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
STEFNURÆÐA Efnahagsstjórn ríkis-
stjórnarinnar var fyrirferðamikil
í stefnuræðu Davíðs Oddssonar,
forsætisráðherra í gærkvöld.
Hann sagði stórtíðindi
vera að gerast í efnahags-
málum.
„Tíðindi sem fáir sáu
fyrir, þar með taldir þeir,
sem áttu að hafa mesta
þekkingu og bestu aðstæð-
ur til að rýna inn í efna-
hagslega framtíð lands-
ins,“ sagði Davíð. Hann
rifjaði upp að fyrir örfáum
mánuðum töldu stjórnarandstæð-
ingar og forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar sálugu að ríkisstjórnin væri
að missa tökin, efnahagsleg
framtíð landsins væri í voða. Nú
ríkti friður á vinnumarkaði, verð-
bólga væri í takti við meðaltal
samanburðarþjóðanna, allgóður
hagvöxtur yrði á næsta ári og það
án þess að virkjanaframkvæmdir
væru reiknaðar inn í dæmið og
viðskiptahallinn yrði enginn.
„Þýðingarmikið er einnig að
þjóðhagslegur sparnaður
fer nú vaxandi á nýjan leik.
Allir þessir þættir munu
tryggja að kaupmáttur í
landinu mun aukast um 2%
á næsta ári og verður það
níunda árið í röð sem kaup-
máttur þjóðarinnar vex.
Það eru engin dæmi um
slíkt áður í íslenskri þjóð-
arsögu,“ sagði Davíð.
Og víst er að bændur eiga
frekari stuðning vísan hjá ríkis-
stjórninni.
„Þýðingarmikið er að styrkja
grundvöll innlendrar landbúnað-
arframleiðslu við aukna sam-
keppni, með því meðal annars að
efla mennta- og rannsóknarþátt
íslensks landbúnaðar og styrkja
með öðrum hætti stöðu íslenskra
bænda.“
Og Davíð lauk stefnuræðu
sinni á sömu nótum og hann hóf
hana, sagði það segja sína sögu að
virtar fjármálastofnanir ræddu
efnahagsþróunina undir heitinu
Kreppan sem aldrei kom.
„Ríkisstjórnin lá undir ámæli
fyrir bjartsýni sína og fyrir að
vilja ekki kokgleypa kreppuvell-
inginn sem soðinn var. Þjóðhags-
spár sýna að bjartara er nú
framundan í efnahagsmálum en
meira að segja hin bjartsýna rík-
isstjórn þorði að vona. Við höfum
áfram góð tækifæri til að vera í
röð fremstu þjóða heims, bæði
hvað tekjur og velferð varðar.
Þau tækifæri erum við fastá-
kveðin í að grípa til heilla fyrir
land og þjóð,“ sagði Davíð Odds-
son.
the@frettabladid.is
Útlitið framar
björtustu vonum
Traust efnahagsstjórn og batnandi efnahagslíf, þrátt fyrir bölsýni stjórnar-
andstöðu og Þjóðhagsstofnunar. Kaupmáttaraukning níu ár í röð. Þýðing-
armikið að styrkja grundvöll innlendrar landbúnaðarframleiðslu.
Gólfefna
dagar
25-40%
afsláttur
Össur Skarphéðinsson:
Hólmganga
STJÓRNMÁL Tekist verður á um
stefnu Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokksins,“ sagði Össur
Skarphéðinsson. Átökin snúast
um tengslin við Evrópu, velferð-
arkerfið, kvótakerfið og fjárfest-
ingu í menntun.
Evrópumálin snúist um lífs-
kjör sem geti batnað við aðild að
Evrópusambandinu. Skattheimta
á aldraða og öryrkja hafi aukist
undir forystu Sjálfstæðisflokks-
ins. Árangur af nær 12 ára stjórn
Sjálfstæðismanna í menntamála-
ráðuneytinu sé sá að íslensk ung-
menni standi jafnöldum sínum að
baki í lykilgreinum.
Guðni Ágústsson:
Á réttri leið
STEFNURÆÐA „Ég minni á að við ís-
lendingar höfum lifað sjö góð ár,
uppgangsár, sagði Guðni Ágústs-
son og bætti við að samstarf
stjórnarflokkanna hefði verið far-
sælt. Þrjú þúsund manns hefðu
flutt til landsins á nýjan leik og
kaupmáttur hefði aukist um 25%.
„Ríkisstjórnin hefur verið á
réttri leið. Hún hefur getað lækk-
að skatta unga fólksins með háu
skuldirnar og skatta fyrirtækj-
anna. Við erum á góðri leið, við
höfum náð lífskjörum Íslendinga
á nýjan leik í fremstu röð.“
Steingrímur J. Sigfússon:
Velferðarstjórn
STJÓRNMÁL „Myndun velferðar-
stjórnar að loknum næstu kosn-
ingum verður meginbaráttumál
okkar í vetur og um það munum
við safna liði. Verkefni þessarar
velferðarstjórnar verður stórátak
til endurreisnar velferðarkerfinu
í landinu. Það stórsér á velferðar-
kerfinu eftir ellefu ára valdatíð
Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfússon.
Steingrímur sagði útlitið í
efnahagsmálum hafa batnað.
Skuldir heimilanna væru þó gríð-
arlegar, sömuleiðis atvinnulífs og
sveitarfélaga. Ófremdarástand
væri í heilbrigðismálum og hús-
næðismálum.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
28%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
49%
76%
Bjartara er nú
framundan í
efnahagsmál-
um en meira
að segja hin
bjartsýna ríkis-
stjórn þorði
að vona