Fréttablaðið - 03.10.2002, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 3. október 2002 21
Kringlunni 8-12
Sími: 553 2888
Litir: Svart
Silfur
Bleikur
Fjólublár
Stærðir: 31-37
TÓNLIST „Munurinn á Stuðmönum og
mér er sá að þeir eru skuttogari en
ég trillukarl,“ segir Valgeir Guð-
jónsson tónlistarmaður sem kom
fram og tók lagið með Stuðmönnum
á tónleikum í Þjóðleikhúskjallaran-
um í fyrrakvöld. Hafði Valgeir þá
ekki leikið með gömlum félögum
sínum um árabil. „Ég fer ekki aftur
í hljómsveitina. Ég fór á tónleikana
með móður minni sem átti afmæli
og var í raun særður upp á svið. Ég
gat ekki skorast undan,“ segir Val-
geir sem varð ekki skotaskuld úr
því að leika aðeins með Stuðmönn-
um - enda kann hann flest lögin
utan að.
VALGEIR GUÐJÓNSSON
Þeir eru skuttogari - ég er trillukarl.
Valgeir Guðjónsson heldur sínu striki:
Ekki aftur í Stuðmenn
GLÆPASÖGUR Glæpasaga Arnald-
ar Indriðasonar, Grafarþögn,
hefur verið valin til að keppa um
árleg verðlaun sem veitt eru fyr-
ir bestu norrænu glæpasöguna.
Þetta kom í ljós á fundi hjá Hinu
íslenska glæpafélagi í gærkvöld
en í þeim félagsskap eru íslensk-
ir glæpasagnahöfundar auk ann-
arra áhugamanna um skugga-
hliðar mannlífsins. Verðlaunin
eru kennd við Glerlykilinn og
Arnaldur hreppti þau einmitt í
vor fyrir sakamálasöguna Mýr-
ina.
ARNALDUR INDRIÐASON
Keppir aftur um Glerlykilinn nú með bók-
inni Grafarþögn sem hefur notið mikilla
vinsælda hérlendis.
Grafarþögn:
Keppir um
Glerlykilinn
HARRODS Liz Hurley, leikkona og
fyrrverandi unnasta Hugh Grant,
opnaði formlega átaksverkefni í
London í gær, sem nefnist Breast
Cancer Awareness Month, eða
Mánuðurinn sem við erum meðvit-
uð um brjóstakrabbamein. Hurley
sagði átakið hafið um leið og hún
ýtti á rofa í Harrod-versluninni í
London og kveikti á mörg þúsund
bleikum perum sem munu lýsa upp
framhlið verslunarinnar meðan á
átakinu stendur.
Þetta er í þriðja skipti í 153 ára
sögu verslunarinnar sem framhlið-
in skiptir um lit. Mohamed Al
Fayed, eigandi Harrods, og Leon-
ard A. Lauder, stjórnarformaður
snyrtivörufyrirtækisins Estee
Lauder, voru viðstaddir athöfnina.
Liz Hurley átti ömmu sem lést úr
brjóstakrabba
FRAMHLIÐ HARRODS
Upplýst með bleikum ljósum í tilefni átaks
gegn brjóstakrabbameini.
Átak gegn brjóstakrabba í Bretlandi:
Harrods-verslunin
lýst upp í bleiku
LAGERÚTSALA
Á ÍÞRÓTTA- OG TÍSKUVÖRUM,
FATNAÐI OG SKÓM.
Fimmtudaginn 9-18
Föstudaginn 9-18
Laugardaginn 11-14
Verðdæmi:
Úlpur frá kr. 990,-
Skór frá 2.990,-
Bolir frá 990,-
Tökum debet og kreditkort.
Sendum í póstkröfu.
UMBRO ÍÞRÓTTAVÖRUR
SKIPHOLTI 35 - 3. HÆÐ
SÍMI 581 1212