Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 4
4 9. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUFRÉTTIR
ERLENT
STJÓRNMÁL Það er eitt af mestu
hneykslum stjórnmálasögunnar
„hvernig milljarðar hafa verið
hafðir af almenningi í þessu landi
með hneykslanlegri framkvæmd
þar sem hver eignin á fætur annar-
ri hefur verið látin fara á bullandi
undirverði,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri-græn-
na, í umræðum á Alþingi um tillögu
flokksins þess efnis að einkavæð-
ingarnefnd yrði lögð af og einka-
væðingin stöðvuð.
„Mér finnst háttvirtur þingmað-
ur vera alltof reiður í þessari um-
ræðu. Þetta er ekki ástæða til að
vera að æsa sig,“ sagði Valgerður
Sverrisdóttir viðskiptaráðherra,
sem kom í ræðustól á eftir Stein-
grími.
„Með sölu á þessum fyrirtækj-
um er verið að losa fjármuni til að
fara í mikilvægar framkvæmdir úti
á landi,“ sagði Kristján Pálsson,
Sjálfstæðisflokki, og furðaði sig á
málflutningi Vinstri-grænna. „Mér
sýnist með þessum málflutningi að
það eigi einfaldlega að koma í veg
fyrir það.“
Ögmundur Jónasson hóf um-
ræðuna. Hann sagði að talsvert sko-
rti á að farið hefði verið vel með al-
mannafé í einkavæðingunni.
Einkavæðingin komin í óefni að mati VG:
Eitt mesta hneyksli
stjórnmálasögunnar
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Sagði stjórnarliða hætta að þora að gang-
ast við einkavæðingu. Nú töluðu þeir um
einkarekstur. Spurði hver munurinn væri.
KVIKNAÐI Í ÞVOTTAVÉL Eldur
kviknaði í þvottavél á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund við
Hringbraut um hádegisbilið í
gærdag. Búið var að slökkva eld-
inn þegar Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins kom á vettvang. Ekki
urðu miklar skemmdir.
RÚÐUR BROTNAR Á AKRANESI Er-
ill var hjá lögreglunni á Akranesi
um síðustu helgi. Mikil ölvun var
vegna dansleiks í Fjölbrautaskól-
anum og rúða brotin af einum
samkomugesti. Þá var önnur rúða
brotin í íbúðarhúsi við Laugar-
braut. Hafði kastað stórum steini
verið kastað inn um stofuglugga
og skemmdir hlotist af. Lögregl-
an hvetur þá sem upplýsingar
geta gefið að hafa samband.
Undarleg hegðun
innbrotsþjófs:
Tók póstkort
en skildi eftir
myndavél
INNBROT Brotist var inn í íbúðar-
hús við Hafnargötu í Keflavík að-
faranótt sunnudagsins. Þjófurinn
hafði troðið sér inn um glugga og
meðal annars tekið með sér 45-50
geisladiska, eina mynd, þrjú póst-
kort og eina litla trékistu fulla af
pennum. Fannst húsráðanda þetta
vægast sagt undarlegt því þjófur-
inn virtist engan áhuga hafa á
GSM-síma sem var á borði, mynd-
bandstæki eða myndavél að and-
virði 50 þúsund krónur. Húsráð-
andinn biður innbrotsþjófinn um
að koma þessum persónulegu
munum aftur til skila eða skilja
eftir vísbendingu hvar þá er að
finna.
FJÓRTÁN ÁRA OG FULLUR Lög-
reglan í Reykjavík komu á sunnu-
dagsmorgun að bifreið í Ártúns-
brekku sem var með brotið vin-
stra framhjól. Í ljós kom að öku-
maðurinn var 14 ára gamall og að
auki ölvaður. Hafði hann ekið á
vegarkant og brotið hjólið undan
bílnum. Farið var með drenginn
og bílinn á lögreglustöðina. Haft
var samband við foreldra og full-
trúa barnaverndarnefndar.
HUNDEIGANDI HÓTAR LÍFLÁTI
Tveir hundaeigendur voru að
viðra hunda sína á Grandagarði á
laugardag. Annar þeirra var með
hundinn sinn í bandi en hinn var
með tvo hunda lausa. Réðist ann-
ar þeirra á hundinn sem var í
bandi og til að verja hundinn sinn
sparkaði eigandinn í hann. Sá
sem átti lausu hundana hótaði þá
hinum að drepa hann. Lögregla
var send á staðinn og skakkaði
hún leikinn.
VÍSINDI Bandaríkjamennirnir
Raymond Davis Jr. og Riccardo
Giacconi ásamt Japananum
Masatoshi Koshiba hljóta Nóbels-
verðlaunin í eðlisfræði þetta árið.
Þeir hafa rannsakað „allra smæstu
einingar alheimsins til þess að efla
skilning okkar á þeim allra
stærstu: sólinni, stjörnum, stjörnu-
kerfum og stjörnuþokum,“ eins og
segir í tilkynningu sænsku Nóbels-
nefndarinnar.
Með því að rannsaka smæstu
agnir sem berast til jarðar utan úr
geimnum hefur þeim meðal ann-
ars tekist að sýna fram á að sólin
skín vegna kjarnasamruna í henni.
Þessir þrír vísindamenn hafa
átt stóran þátt í því hve mynd okk-
ar af alheiminum hefur tekið gíf-
urlegum breytingum síðustu ára-
tugi. Hann er ekki bara safn af
stjörnum og stjörnukerfum í kyrr-
látum geimi heldur er þar að finna
fjölbreytileg fyrirbæri þar sem
gífurleg orka leysist úr læðingi á
undraskömmum tíma.
Á morgun verður skýrt frá því
hver hlýtur bókmenntaverðlaun
Nóbels þetta árið. Á föstudag verð-
ur svo skýrt frá því hverjir hljóta
friðarverðlaunin.
Nóbelsverðlaun í eðlisfræði:
Hvers vegna skín sólin?
KOSHIBA HNEIGIR SIG
Masatoshi Koshiba hélt blaðamannafund í
gær eftir að ljóst var að hann deildi Nóbels-
verðlaunum í eðlisfræði þetta árið með
tveimur bandarískum vísindamönnum.
AP
/J
U
N
JI
K
U
RO
K
AW
A
TÓKÍÓ, WASHINGTON, AP „Við getum
ekki beðið eftir endanlegri sönn-
un,“ sagði George W. Bush í ræðu
sinni á mánudagskvöld, þar sem
hann reyndi að
snúa almenningsá-
litinu í Bandaríkj-
unum á sveif með
sér varðandi stríð
gegn Írak. „Við
höfum alla ástæðu
til að gera ráð fyr-
ir því versta,“ sagði hann og dró
fram rök fyrir því að Saddam
Hussein hafi yfir hættulegum
vopnum að ráða og sé til alls lík-
legur. Ný rök komu þó ekki fram í
máli hans.
Bandaríkjamenn hafa hreint
ekki verið jafn áhugasamir og for-
seti þeirra um að fara í stríð gegn
Írak. Samkvæmt skoðanakönnun,
sem birt var á sunnudag, telja 70
prósent nauðsynlegt að Bush fái
samþykki Bandaríkjaþings áður
en ráðist verður gegn Írak. Þá
telja 65 prósent betra að Banda-
ríkin standi ekki ein að slíkri árás,
heldur fái bandamenn sína í lið
með sér. Ennfremur telja 56 pró-
sent ekki rétt að ráðast á annað
ríki nema það geri árás fyrst.
Hvort forsetanum tókst að fá
almenning á sitt band í þessu máli
kemur væntanlega í ljós á næstu
dögum.
Hins vegar hefur honum hvor-
ki tekist að tryggja stuðning í Ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna hé
að fá Evrópuríki almennt í lið með
sér.
Rússar ítrekuðu í gær þá af-
stöðu sína að í ályktun Sameinuðu
þjóðanna megi ekki vera nein
ákvæði sem geti sjálfkrafa leitt til
þess að ráðist verði á Írak. Í álykt-
uninni megi heldur ekki gera svo
strangar kröfur að Írakar geti
engan veginn fallist á þær.
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, segir að það
yrði „mikill harmleikur“ ef ráðist
yrði á Írak. Nauðsynlegt sé að Ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
taki ákvörðun um hvernig tekið
verði á Írak. Hins vegar verði
Írakar skilyrðislaust að uppfylla
skyldur sínar gagnvart Öryggis-
ráðinu.
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, er undantekningin í Evr-
ópu. Hann segist hafa komist að
sömu niðurstöðu og Bush um
hættuna sem stafar af Írak.
Bretar virðast samt almennt
ekki jafn ákafir stuðningsmenn
Bandaríkjanna og forsætisráð-
herrann. Einungis tæpur þriðj-
ungur Breta segir rétt að gera
árás á Írak.
Búist er við því að Bandaríkja-
þing greiði á fimmtudaginn at-
kvæði um ályktun, sem veitir
Bush heimild til þess að beita her-
valdi gegn Írak ef hann mtelur
það nauðsynlegt. Líklegast þykir
að ályktunin verði samþykkt,
enda hafa leiðtogar þingflokk-
anna í báðum deildum þegar sam-
þykkt orðalag hennar.
Bush getur
ekki beðið
Bandaríkjaforseta gengur treglega að fá heiminn í lið með sér gegn Írak.
Rússar standa enn harðir gegn hernaði. Bandaríkjaþing greiðir atkvæði
í vikunni um heimild handa Bush til að fara í stríð.
Einungis tæp-
ur þriðjungur
Breta segir
rétt að gera
árás á Írak.
BANDARÍSKIR HERMENN HLUSTA Á BUSH
Bandarískir hermenn á Bagram-flugvellinum, skammt norður af Kabúl í Afganistan, fylgd-
ust með sjónvarpsávarpi forseta síns í gærmorgun. Sumir þeirra sögðust ekki sjá fyrir sér
að Írak ætti bjarta framtíð fyrir sér eftir að búið yrði að steypa Saddam Hussein af stóli.
AP
/D
AR
KO
B
AN
D
IC
MÁLVERND Í RÚMENÍU Þingið í
Rúmeníu samþykkti í gær lög
sem banna fyrirtækjum og stofn-
unum að setja upp skilti eða birta
auglýsingar á erlendu máli nema
þýðing fylgi á rúmensku. Svipuð
lög voru samþykkt fyrir ári í
Ungverjalandi.
LYGAMÆLIR DUGAR EKKI Rann-
sóknarráð Bandaríkjanna hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
lygamælar séu ekki nógu ná-
kvæmir til þess að hægt sé að
treysta þeim þegar öryggi þjóð-
arinnar er í húfi.
KOSNINGUM LOKIÐ Í KASMÍR
Kosningaþátttaka í Kasmír var
44 prósent, sem er meira en búist
var við. Kosið hefur verið í
áföngum frá því 16. september. Í
gær var kosið í tveimur síðustu
sýslum héraðsins, þrátt fyrir
árásir skæruliða. Reiknað er með
fyrstu tölum á morgun.
Reykjaneshryggur:
Öflug jarð-
skjálftahrina
JARÐSKJÁLFTAR Öflugasta jarð-
skjálftahrina sem mælst hefur á
Reykjaneshrygg síðustu þrjátíu til
fjörutíu ár hefur verið frá því að-
faranótt sunnudagsins. Mælst hafa
sex skjálftar á stærðarbilinu 5.0-5.5
á Richter. Eiga skjálftarnir upptök
sín langt suður Reykjaneshrygg um
780 kílómetra SV af Reykjanestá.
Samkvæmt upplýsingum frá al-
þjóðlegri jarðskjálftastofnun í
Bandaríkjunum mældist síðasti
skjálftinn 5.5 á Richter í fyrra-
kvöld.
Norður-írska heima-
stjórnin riðar til falls:
Vilja út-
hýsa Sinn
Fein
BELFAST, AP Heimastjórnin á Norð-
ur-Írlandi riðar nú til falls. Sam-
bandssinnar í stjórninni krefjast
þess að Sinn Fein verði rekinn úr
stjórninni eftir að nýjar upplýs-
ingar komu fram um tengsl við
Írska lýðveldisherinn.
David Trimble, forsætisráð-
herra heimastjórnarinnar og leið-
togi stærsta flokks sambands-
sinna, segir að Bretar verði að
styðja kröfur um að Sinn Fein
verði vikið úr stjórninni. Að öðr-
um kosti sjái hann sér ekki annað
fært en að segja sig úr stjórninni
sjálfur og þar með væri stjórnin
sjálfkrafa hrunin.
Væntanlega myndu Bretar þá
taka á ný við stjórn héraðsins.
HUNDAR
Fá að gista á hótelum.
Fosshótel:
Hundar
velkomnir
HÓTEL Hótelkeðjan Fosshótel hef-
ur bryddað upp á þeirri nýjung að
bjóða hunda velkomna til gisting-
ar með eigendum sínum. Hundar
hafa til þessa ekki verið aufúsu-
gestir á hótelum hérlendis. Hótel-
in sem bjóða hundana velkomna
eru Hótel Húsavík, sem býður
upp á 44 nýuppgerð herbergi með
sjónvarpi og síma, og svo Hótel
Ingólfur í Ölfusi, í aðeins 45 mín-
útna akstursfjarlægð frá Reykja-
vík. Yfir hávetrartímann er Hótel
Ingólfur aðeins opið um helgar
nema um annað sé samið. Þar er
heitur pottur sem rúmar 30
manns. Bæði hótelin munu kapp-
kosta að gera hundum og eigend-
um þeirra til hæfis á meðan á
dvölinni stendur.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
26,5%
Er löggæslu ábótavant í
Reykjavík?
Spurning dagsins í dag:
Á Jón Baldvin Hannibalsson að snúa
aftur í íslensk stjórnmál?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
Nei
67,4%Já
LÖGGÆSLU ER
ÁBÓTAVANT
Næstum 70% kjósenda
á frett.is telja að lög-
gæslu í Reykjavík sé
ábótavant.