Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 22
22 9. október 2002 MIÐVIKUDAGUR HÚSIÐ Ráðhús Reykjavíkur er teiknað af arkitektunum Margréti Harðar- dóttur og Steve Christer. Tillaga þeirra var meðal 38 sem bárust í samkeppni um hugmyndir um ráðhús við norðurenda Tjarnar- innar sem haldin var árið 1986. Fyrsta skóflustunga var tekin á afmæli Reykjavíkur, 18. ágúst, 1988 og 14. apríl 1992 var Ráðhús- ið vígt. Mikill styr stóð um Ráðhúsið meðan á byggingu þess stóð og árin áður, einkum staðarvalið. Húsið þótti spilla hinni samfelldu röð eldri húsa í Tjarnargötu auk þess sem óttast var um lífríki Tjarnarinnar. Samspil Ráðhússins við um- hverfið er mjög sterkt. Göngu- braut liggur um neðstu hæð húss- ins frá Tjarnargötunni yfir að Iðnó með möguleika á að ganga út í Vonarstrætið. Á þeirri hæð eru iðulega sýningar sem opnar eru almenningi og yfirleitt má skoða hið umfangsmikla upphleypta Ís- landskort sem þar er að finna. Sömuleiðis er kaffihús á hæðinni. Þaðan eru stórir gluggar út að Tjörninni sem gefa mikið návígi við fuglalífið þar. Einn fegursti og sérstæðasti hluti byggingarinnar er mosavax- inn veggurinn sem snýr út að litlu tjörninni á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu.  Skylda okkar að vernda hálendið Hildur Rúna Hauksdóttir vill leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir ósnortinni náttúru. Hún segir börn sín styðja sig með hagsmuni af- komenda þeirra í huga. „Mér líður alveg bærilega og finn ekki fyrir svengd enn,“ seg- ir Hildur Rúna Hauksdóttir sem hóf á mánudag hungurverkfall til að mótmæla virkjunaráformum ríkisstjórnarinnar á hálendi Ís- lands. Hildur er fædd og uppalin í Reykjavík en á ættir að rekja í Mýrdalinn þar sem hún var í sveit sem barn. Hún segist alla tíð hafa verið tengd náttúrunni og ekki síst búi hún að sveita- dvölinni. „Ég hef alltaf dáðst að landinu og lít svo á að við búum yfir forréttindum að eiga hreina og ósnortna náttúru. Að skemma hana fyrir okkur finnst mér hví- lík spjöll að ég get ekki setið og horft á það án þess að leggja mitt af mörkum til að varna því.“ Hildur segist alveg geta séð fyrir sér að hægt væri að virkja á annan hátt. Til að mynda skem- mi virkjanir eins og Nesjavalla- virkjun ekki landið og þannig ætti að vera hægt að virkja á há- lendinu í stað þess að sökkva landinu undir vatn. „Þeir sem vilja virkja nota þær röksemdir að þessir staðir séu aldrei heim- sóttir og enginn verði þess var þó þetta land hverfi. Það er bara ekki rétt því við erum alltaf að verða meðvitaðri um hálendið og bílaeign okkar verður betri með hverju árinu. Menn eiga eftir að heimsækja þessa staði þegar fram líða stundir. Hildur er sannfærð um að þorri almennings hafi gefist of snemma upp við að mótmæla og haldi að allt sé nú þegar ákveðið. „Því fer fjarri og menn eiga ekki að taka þessum áformum sem gefnum. Við getum haft mikil áhrif og ég trúi því að barátta mín eigi eftir að bera árangur.“ Hildur á tvö börn og tvö barnabörn en það síðara eignað- ist dóttir hennar, Björk Guð- mundsdóttir söngkona, fyrir ör- fáum dögum í London. „Vissu- lega gæti ég verið þar en þær eiga eftir að koma fyrr en síðar hingað og ég get beðið þess. Hins vegar gæti það orðið of seint fyr- ir litlu stúlkuna, þegar hún vex úr grasi, að líta landið augum eins og það nú er. Börnin mín styðja mig í þessari baráttu og ekki síst með hagsmuni afkom- enda okkar í huga.“  SAGA DAGSINS 9. OKTÓBER FÓLK Í FRÉTTUM PERSÓNAN Lára Margrét Ragnarsdóttir al-þingismaður er 55 ára í dag. Hún er formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsins og er því mikið á faraldsfæti. Hún er nýkomin úr mánaðarþeytingi þar sem hún tók þátt í friðarumleitunum í Tsjet- sjeníu og leitaði leiða fyrir rúss- neska þegna til að komast frá Kalíníngrad til Rússlands og ann- arra landa. „Septembermánuður fór allur meira og minna í þetta, þannig að ég er nú ekki með nein stóráform fyrir afmælisdaginn. Ég ætla þó að borða góðan kvöldmat, með fjölskyldunni, heima hjá dótt- ur minni en annars verður dagur- inn ósköp venjulegur hjá mér.“ Lára Margrét segir framlag Ís- lendinga á vettvangi Evrópuráðs- ins mikils metið. „Ég hef verið virk í þessu starfi síðastliðin 11 ár og hef tekið að mér ýmis ábyrgðar- störf sem ekki hefur alltaf farið mikið fyrir. Ég hef bæði haft gagn og gaman af þessari vinnu minni og vona að mér hafi tekist að koma íslenskum viðhorfum að úti um leið og ég hef haft alþjóðleg við- horf með mér heim.“ Lára Margrét deilir afmælis- degi með Bítlinum John Lennon en segir það þó aldrei hafa stigið sér til höfuðs þó hún hafi haft gaman af því. „Ég var hins vegar formað- ur Íslensk-ameríska félagsins í sex ár og þá kom það mér skemmtilega á óvart að 9. október er dagur Leifs heppna fyrir vestan og er opinber hátíðisdagur.“ Lára Margrét á þrjú börn og þrjú barnabörn. „Ég byrjaði snem- ma á barneignum og eignaðist elstu dóttur mína þegar ég var 18 ára. Þá gekk ég heim úr löngufrí- mínútunum í 5. bekk í MR með verk í baki og eignaðist hana síðar um daginn. Það vildi nú svo heppi- lega til að páskafríið var á næsta leiti og ég mætti aftur í skólann strax að því loknu. Þessi reynsla mín er dæmi um að þó fólk byrji snemma að eignast börn þá þarf það ekki að koma í veg fyrir að það nái markmiðum sínum.“  Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður er 55 ára í dag. Hún er nýkomin heim úr mán- aðarflakki á vegum Evrópuráðsins og hyggst því ekki gera of mikið úr afmælisdeginum. Afmæli Á faraldsfæti JARÐARFARIR 15.00 Jóna Vilborg Jónsdóttir, Klepps- vegi 134, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Fossvogskapellu. AFMÆLI Steinar S. Waage skókaupmaður er sjö- tugur í dag. Lára Margrét Ragnarsdóttir alþingis- maður er 55 ára. ANDLÁT Ásta Einarsdóttir, Bergstaðastræti 12a, Reykjavík, lést 23. september. Útförin hefur farið fram. Kristín Gunnbjörg Björnsdóttir, Brim- nesvegi 22, Flateyri, lést 24. september. Jarðarförin hefur farið fram. Jóhann V. Guðlaugsson lést 6. október. Björg Lilja Jónsdóttir, hjúkrunarheimil- inu Sóltúni, áður Álagranda 8, lést 5. október. Þóra Eiríksdóttir, Sléttuvegi 11, Reykjavík, lést 5. október. Sigríður Ingibjörnsdóttir, fyrrverandi Skáldatími kom út. Þetta varfyrsta bók Nóbelsskáldsins sem var merkt Halldóri Laxness en ekki Halldóri Kiljan Laxness. Stöð 2, fyrsta sjónvarpsstöðin íeinkaeign, hóf útsendingar árið 1986. Að loknu ávarpi Jóns Óttars Ragnarssonar sjónvarps- stjóra voru meðal annars fréttir, umræðuþáttur um leiðtogafund- inn og kvikmyndin 48 stundir. TÍMAMÓT HILDUR RÚNA HAUKSDÓTTIR Dóttir hennar, Björk, eignaðist litla stúlku fyrir nokkrum dögum. Það gæti verið of seint fyrir barnið að líta íslenska náttúru augum þegar hún vex úr grasi. Þingmönnum þykir stundumsem ráðherrar sýni málum sín- um ekki nægilega mikinn áhuga. Þannig kvartaði Ögmundur Jónas- son undan því þegar hann flutti framsögu fyrir tillögu sinni þess efnis að einkavæðingarnefnd yrði leyst frá störfum. Hann kvartaði undan því að Valgerður Sverris- dóttir væri eini ráðherrann sem málið snerti sem léti sjá sig í þingsal. Enda var það eins og við manninn mælt að hún hvarf úr þingsal skömmu síðar. Þó Davíð Oddsson hafi ekki sýntfyrirspurn Jóhönnu Sigurðar- dóttur um fákeppni og misskipt- ingu mikinn áhuga í fyrirspurnartíma virti hann Jó- hönnu þó viðlits. Jóhanna var reyndar ekki sátt við svörin og ít- rekaði spurningar sínar. Davíð bætti kannski ekki miklu við svör sín. Hann bætti þó nýjum punkti inn í umræðuna, óskaði Jóhönnu til hamingju með nýliðið stórafmæli hennar. Fyrsta afmæliskveðja vetrarins úr ræðustóli á Alþingi því orðin að veruleika. Síðdegisblaðið DV missti í gæreina helstu skrautfjöðrina úr hatti sínum þegar Reynir Trausta- son sagði þar upp störfum. Reynir hefur unnið á DV um árabil og á síðustu misserum gefið blaðinu það bragð sem það hefur orðið hvað þekktast fyrir. Reynir átti Árna Johnsen-málið eins og það lagði sig og Landsímamálið líka. Með brotthvarfi Reynis frá DV er enn höggvið skarð í þann hóp þungaviktarmanna sem áður báru blaðið uppi og nægir þar að nefna Jónas Kristjánsson og Eirík Jóns- son sem báðir hurfu frá blaðinu vegna ágreinings við nýja eigend- ur, sem síðan hafa stýrt blaðinu með þeim afleiðingum að Reynir kveður einnig - vegna leiða, eins og hann orðar það sjálfur. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Að gefnu tilefni skal tekið fram að gengi hlutabréfa í deCODE var í gær jafnhátt og Davíð Oddsson, 1,78. Leiðrétting VIÐ ÆGISÍÐUNA Á haustdögum er gott að fara í göngutúr við sjóinn. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT Maður nokkur var á leið á funden fann hvergi bílastæði. Hann lagði því ólöglega og setti miða á bílrúðuna sem á stóð: „Kæri stöðumælavörður. Ég er búinn að keyra í 20 mínútur um hverfið og finn hvergi stæði. Ég er að fara á mikilvægan fund og missi vinnuna ef ég kem of seint. Sem sagt: Fyrir- gef oss vorar syndir.“ Þegar hann kom til baka sá hann nýjan miða á rúðunni. Þar stóð: „Kæri bíleigandi. Ég hef gengið um þetta hverfi í 20 ár. Ef ég sekta þig ekki, þá missi ég vinnuna. Sem sagt: Leið oss ekki í freistni...“ LÁRA MARGRÉT RAGNARSDÓTTIR „Ég var hins vegar formaður Íslensk-amer- íska félagsins í sex ár og þá kom það mér skemmtilega á óvart að 9. október er dag- ur Leifs heppna fyrir vestan og er opinber hátíðisdagur.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T aðstoðarskólastjóri Njarðvíkurskóla, lést 4. október. Vaka Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, Álfheimum 70, lést 4. október. Jóhann Jón Jónsson, áður kaupmaður, Hvammi, Ólafsvík, Hvassaleiti 12, Reykjavík, lést 3. október. Hjörtur Guðmundsson frá Lýtingsstöð- um, Skúlagötu 20, lést 2. október.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.