Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 16
16 9. október 2002 MIÐVIKUDAGURHVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
FUNDIR
12.05 Málstofa sálfræðiskorar stendur
fyrir málstofunni Kvíðanæmi,
vímuefnaneysla og hugræn
hópatferlismeðferð í Odda, stofu
201. Guðrún Oddsdóttir, sálfræð-
ingur á Barna- og unglingageð-
deild LSH, flytur erindið.
16.00 Magnús Þorkell Bernharðsson
flytur fyrirlestur í Hátíðasal í Aðal-
byggingu Háskóla Íslands undir
heitinu Af hverju hatar Bush
Saddam? Þar verða stjórnmála-
afskipti Íraks og Bandaríkjanna
skoðuð í sögulegu ljósi.
20.00 Námskeiðið Slegist í för með
Guðríði Símonardóttur, um
Tyrkjaránið og Guðríði Símonar-
dóttur, hefst hjá Tómstundaskól-
anum, Grensásvegi 16-16a. Nám-
skeiðið verður fjögur næstu mið-
vikudagskvöld. Verð krónur
10.700.
20.30 Félag íslenskra fræða heldur rann-
sóknakvöld í Sögufélagshúsinu,
Fischersundi 3. Fyrirlesari verður
Eiríkur Rögnvaldsson og erindi
hans nefnist Íslensk tungutækni
- tilgangur og forsendur.
LEIKHÚS
20.00 Lífið þrisvar sinnum eftir Yasm-
inu Reza er sýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
20.00 Veislan eftir Bo Hanssen er sýnd
á Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss-
ins.
SÝNINGAR
Svava Björnsdóttir sýnir verk á mynd-
vegg Maríellu að Skólavörðustíg 12. Sýn-
ingin stendur til 9. nóvember.
Sýning á myndskreytingum úr nýútgefnu
ritsafni Snorra Sturlusonar stendur yfir í
Skála við Alþingishúsið. Sýningin er opin
frá klukkan 10 til 12 og 13 til 16 alla
virka daga og stendur til 18. október.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Félag trérennismiða á Íslandi stendur
fyrir sýningunni Skáldað í tré - skógar-
spuni í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýndir eru
renndir listmunir úr innlendum og inn-
fluttum viði. Sýningin stendur til 20.
október og er opið alla daga frá 12 til
18.
Þorri Hringsson sýnir olíu- og vatnslita-
myndir í Listasafni Borgarness. Sýningin
er opin frá 13 til 18 alla virka daga og til
klukkan 20 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum. Sýningin stendur til 30.
október.
Tvær sýningar, Gallerí Hlemmur og
Unnar og Egill/Ný verk, standa yfir í
Gerðarsafni, Kópavogi. Sýningarnar
standa til 21. október og er opið frá 11
til 17.
Óli G. Jóhannsson sýnir í galleríi Sæv-
ars Karls.
Harpa Karls sýnir á Kaffi Sólon. Sýning-
in stendur til 18. október.
Annu Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir
og Sólrún Trausta Auðunsdóttir sýna í
listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Yfirskrift
sýningarinnar er Hugmyndir um Frelsi/
Theories of Freedom. Sýningin stendur
yfir til 20. október. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur stendur fyrir
sýningunni Aenne Biermann Preis:
þýsk samtímaljósmyndun í Grófarsal,
Grófarhúsinu, Tryggvagötu 15. Sýningin
stendur til 15. október og er opnunar-
tími 12 til 18 virka daga og 13 til 17 um
helgar. Aðgangur ókeypis.
Margrét St. Hafsteinsdóttir er með
myndlistarsýningu í kaffistofunni Lóu-
hreiðri, Kjörgarði, Laugavegi 59, Reykja-
vík. Lóuhreiður er opið virka daga klukk-
an 10 til 17 og laugardaga klukkan 10 til
16. Sýningin stendur til 14. október.
Austurríski ljósmyndarinn Marielis
Seyler sýnir í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Myndirnar á sýningunni voru
teknar á Íslandi sumarið 2001.
Þóra Þórisdóttir sýnir í Gallerí Hlemmi
undir titlinum „Rauða tímabilið“ (“The
red period“). Gallerí Hlemmur er í Þver-
holti 5, Reykjavík.
MYX Youth Artist Exchange sýnir í
Gallerí Tukt, Hinu húsinu. MYX Youth
Artist Exchange er hópur ungra mynd-
listarmanna frá Bandaríkjunum og Ís-
landi. Á sýningunni gefur að líta verk
sem þau unnu saman á Íslandi síðast-
liðið sumar út frá þemanu „landslag,
fólk og menning.“
MIÐVIKUDAGURINN
9. OKTÓBER
BÆKUR Finnski kennarinn og
blaðakonan Marjatta Ísberg hef-
ur gefið út smásagnasafnið Ljóð-
elskur maður borinn til grafar –
Sögur af lífi og dauða. Marjatta,
sem skrifar undir höfundarnafn-
inu María Rún Karlsdóttir, hefur
búið á Íslandi með hléum frá ár-
inu 1975. Hún byrjaði snemma
að semja á íslensku og smásögur
hennar og ljóð hafa gengið á
milli fólks í ljósritum en þetta er
fyrsta bók hennar á íslensku sem
kemur út á prenti og í henni fær
rödd og stíll nýbúa að njóta sín á
prenti.
Marjatta segir ástæðurnar
fyrir því að hún settist að hér-
lendis vera hefðbundnar enda sé
hún gift íslenskum manni. „Ég
lauk háskólanámi í Helsinki og
hóf störf sem skólastjóri á gagn-
fræðaskólastigi að því loknu. Ég
fann mig ekki í því starfi og
ákvað því að taka mér smá tíma
til umhugsunar. Ég fékk styrk til
að stunda háskólanám á Íslandi
og hóf nám í íslensku við Há-
skóla Íslands árið 1975. Þar
kynntist ég manninum mínum og
hef verið hér með annan fótinn
síðan og hef haft fasta búsetu
hér frá árinu 1991.“
„Sögurnar mínar eru að vissu
leyti sprottnar upp úr glímu
minni við tungumálið. Þegar ég
kom hingað fyrst kunni ég enga
íslensku og þurfti að byrja frá
grunni. Það voru mikil átök enda
íslenskan ekki auðvelt mál. Ég
hef svo alltaf verið að fjarlægj-
ast móðurmálið og áhrif íslensks
umhverfis, lífsmáta og hugsun-
arháttar verða stöðugt sterkari.
Þegar ég byrjaði að skrifa hefði
ég þó líklega getað skrifað fimm
bækur á finnsku á meðan ég
kláraði eina á íslensku.“
„Smásögurnar í bókinni
tengjast ákveðnum þemum en ég
hef þegar skrifað heilmikið og ef
það gengur vel að selja þessa
bók ætla ég að gefa aðra út á
næsta ári. Skrif mín byrjuðu nú
einfaldlega á því að ég fann að
mig langaði að tjá mig og byrjaði
á þessu mér og vinum mínum til
skemmtunar. Ég vann á Suður-
nesjum í sex ár og samdi þá yfir-
leitt eina sögu í huganum á með-
an ég var að keyra þangað. Ég
byrjaði að segja samferðarfólki
mínu sögurnar og þau hvöttu
mig áfram. Sögurnar eru því í
hálfgerðum spjallstíl. Þær ger-
ast flestar í skandinavískum
löndum og íslensku áhrifin eru
sterk.“
Marjatta ætlar að kynna bók-
ina sína í sal Norræna hússins á
sunnudaginn klukkan 16 um leið
og hún spjallar um þá erfiðleika
sem innflytjandi mætir þegar
hann kemur mállaus til landsins
og verður að tileinka sér nýtt
tungumál áður en hann verður
fullgildur samfélagsþegn.
thorarinn@frettabladid.is
Nýbúi kveður sér
hljóðs á íslensku
Marjatta Ísberg kom fyrst til Íslands frá Finnlandi árið 1975. Hún
byrjaði fljótt að skrifa á íslensku og hefur nú gefið út smásagnasafn
þar sem rödd nýbúans fær að njóta sín í sögum sem eiga sér stað í
Skandinavíu og eru undir sterkum íslenskum áhrifum.
MARJATTA ÍSBERG
Kom fyrst til Íslands árið 1975 og er nú að gefa út smásagnasafn á íslensku. Hún er sérkennari við Digranesskóla í Kópavogi og á ís-
lenskan eiginmann og þrjú uppkomin börn sem öll búa á Íslandi en eru jafnvíg á finnsku og íslensku.
Erla Þórarinsdóttir myndlistarmaður.
Ég sá myndlistarsýningarnar Gallerí
Hlemmur og Unnar og Egill/Ný verk í Gerð-
arsafni um síðustu helgi. Þetta er sýning
sem ég mæli með að sem flestir sjái en
þarna kemur bersýnilega í ljós sú mikla
fjölbreytni og gróska sem er í íslenskri
myndlist.
SÖGUR Um þessar mundir fagnar
Hekla hf., umboðsaðili Volkswagen,
50 ára afmæli Volkswagen á Ís-
landi. Af því tilefni er nú haldin
VW-örsögusamkeppni þar sem
þátttakendur geta rifjað upp og
sent inn Volkswagen-sögu og unnið
til verðlauna. Sögurnar mega ekki
vera lengri en 500 orð og er skila-
frestur 15. október 2002. Sögurnar
má senda á netfangið saga@volk-
swagen.is eða í pósti til Heklu,
Laugavegi 170-174, 105 Reykjavík,
merkt „VW sögur“. Bestu sögurnar
verða valdar af dómnefnd og kyn-
ntar sérstaklega í tengslum við 50
ára afmælið.“
Volkswagen í 50 ár:
Örsögusam-
keppni
Sýningin Handritin var opnuð íÞjóðmenningarhúsinu á laug-
ardaginn. Stofnun Árna Magnús-
sonar og Þjóðmenningarhúsið
standa sameiginlega að sýning-
unni þar sem almenningi gefst
kostur á að berja handritin aug-
um. Steinþór Sigurðsson listmál-
ari hannaði sýninguna.
Dulúðug
stemning
Ég var mjög ánægð með sýning-
una og finnst uppsetningin hafa
tekist vel í stórum
dráttum. Þegar
gengið er inn á
sýninguna er farið
í gegnum berg-
hvelfingu þar sem
rúnir eru ristar í
loftið, þannig að
innkoman er mjög
skrautleg. Hand-
ritin sjálf eru í
upplýstum kössum
í myrkvuðum her-
bergjum þannig að stemningin er
dulúðug. Þá eru myndböndin tvö
góð viðbót þannig að í heildina var
mjög gaman að sjá þessa sýningu.
Falleg sýning
Þetta er falleg sýning. Hún er
smekklega uppsett og hefur tekist
vel. Það er eigin-
lega eins og að
koma inn í hálf-
gert musteri þegar
maður kemur að
Flateyjarbók og
K o n u n g s b ó k
Eddukvæða. Þá er
einnig gaman að
sjá Stjórn AM 350
sem er fallega
myndskreytt. Bók-
in sem gefin er út í tilefni af sýn-
ingunni er með fróðlegum og fjöl-
breyttum greinum. Ríkulega
myndskreytt og fallega hönnuð.
rit eru gefin út í tengslum við sýn-
ingar. Þetta sér maður mjög víða
erlendis þar sem iðulega má velja
úr fjölda bóka á söfnum.
Brýn hugvekja
Ég er glaður yfir því að það sé
ekki lengur vandræðagangur með
þetta tigna hús og
að það hafi verið
afhent Árnastofn-
un sem hefur sína
lögsögu í húsinu
með þeim mikla
ljóma sem er yfir
sýningunni. Þetta
er holl og brýn
hugvekja okkur
öllum enda sýning-
in hugsuð og hönn-
uð af hinum fær-
ustu mönnum, þeim Vésteini,
Gísla og Steinþóri.
Ég hlakka til að koma þarna oft,
þegar það verður greiðara að
komast að sýningunni sjálfri, og
njóta þess að dvelja við handritin
og skynja vandfýsnina og lotning-
una í hverjum drætti. Þar er eng-
in naumhyggja eins og nú er farið
heldur geðhylli.
HVERNIG FANNST ÞÉR?
GUÐRÚN
KRISTJÁNS-
DÓTTIR
myndlistarmaður.
THOR VIL-
HJÁLMSSON
rithöfundur.
SVERRIR
KRISTINSSON
fasteignasali.
BÓKASÝNINGIN Í FRANKFURT
Sýningin hefst í dag og stendur til 14. október. Ástríkur Galvaski er mættur til leiks enda
teljast sögurnar um hann sjálfsagt til heimsbókmennta. Hér kemur Frakkinn Bernard
Christophe síðustu bókinni um rómverjaskelfinn knáa fyrir í drekkhlaðinni hillu af ævintýr-
um Ástríks og Steinríks.
Bókin Frida er komin út hjáJPV Útgáfu. Þetta er
skáldævisaga eftir Barböru
Mujico sem fjallar
um litríka og
stormasama ævi
myndlistarkon-
unnar Fridu Kahlo
sem hneykslaði
heiminn með
taumlausu líferni
sínu og stórbrot-
inni myndlist. Sagan er sögð frá
sjónarhorni Cristinu, yngri systur
Fridu, sem alla ævi stóð í skugga
systur sinnar. Hún segir frá
stormasömu hjónabandi Fridu og
myndlistarmannsins Diego Rivera
en það einkenndist af ást, afbrýði-
semi og svikum hefur lengi vakið
vangaveltur og örvað ímyndunar-
aflið.
NÝJAR BÆKUR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI