Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 12
12 9. október 2002 MIÐVIKUDAGURTENNIS
ÁNÆGÐUR
Boris Jeltsín, fyrrverandi forseti Rússlands,
klappar hér landa sínum, Marat Safin, lof í
lófa á Kremlin Cup-mótinu í tennis sem
fram fór í Moskvu.
MARC OVERMARS
Hinn 29 ára gamli Overmars á 71 lands-
leik að baki með hollenska landsliðinu.
Hann var keyptur árið 2000 frá Arsenal
fyrir metfé.
Marc Overmars:
Spilaði
meiddur
á síðasta
tímabili
BARCELONA, AP Hollendingurinn
Marc Overmars spilar á morgun
fyrsta leik sinn með spænska lið-
inu Barcelona í sýningarleik
gegn liðinu Gava, eftir fimm
mánaða fjarveru vegna hné-
meiðsla. Kantmaðurinn knái seg-
ir að á síðasta tímabili hafi hann
ekki náð að spila einn leik full-
komlega heill. „Ég var alltaf
meiddur á síðasta tímabili en hélt
samt áfram þar til því lauk. Það
er frábær tilfinning að geta æft
aftur og spilað án þess að vera
sprautaður með verkjastillandi
lyfjum,“ sagði Overmars.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.10 Stöð 2
Íþróttir um allan heim
(Trans World Sport)
18.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
19.00 KA-heimilið
Bikarkeppni kvenna
(KA/Þór - Grótta/KR)
20.00 Seltjarnarnes
Esso deild karla (Grótta/KR - KA)
20.00 Víkin
Bikarkeppni kvenna (Víkingur - FH)
20.45 Framhús
Bikarkeppni kvenna
(Fram 2 - Fylkir/ÍR)
22.15 RÚV
Handboltakvöld
BORÐTENNISBORÐ
Verð frá 26.900.-
S. V. Sverrisson
Suðurlandsbraut 10 (2h) - Rvk.
sími: 568 3920 - 897 1715
umboðið
borðtennisvörur
FORMÚLA Forsvarsmenn BMW-
Williams-liðsins mótmæla hug-
myndum Bernie Ecclestone, yfir-
manns Formúlu 1, um að taka upp
forgjafarkerfi í kappaksturskeppn-
inni. Ecclestone vill sjá breytingar
eftir yfirburðasigur Ferrari í ár.
Patrick Head, tæknistjóri BMW-
Williams, segir það vera undir öðr-
um liðum komið að ná Ferrari-liðinu
í stað þess að finna leið til að hægja
á því. „Mér finnst það fáránleg hug-
mynd að ætla að þyngja bílana,“
sagði Head. „Á þá að láta Arsenal
spila með níu leikmenn inni á vellin-
um þegar það mætir Chelsea?“
Patrick Head, tæknistjóri BMW-Williams:
Vill ekki þyngja
formúlubílana
KÖRFUBOLTI Latrell Sprewell, leik-
maður New York Knicks í NBA-
deildinni í körfubolta, hefur verið
sektaður um tæpar 22 milljónir
króna fyrir að hafa
ekki sagt forráða-
mönnum liðsins frá
handarbroti sem
hann varð fyrir
tveimur vikum
áður en æfingabúð-
ir fyrir næsta
keppnistímabil áttu
að hefjast.
Sprewell hefur ein-
nig verið sagt að
hann þurfi ekki að
mæta aftur til fé-
lagsins fyrr en hann hefur eitt-
hvað „jákvætt til málanna að leg-
gja.“ Leikmaðurinn, sem þekktur
er fyrir vandræðagang í gegnum
tíðina, fór í aðgerð í síðustu viku
og verður frá vegna meiðslanna
næstu fimm vikurnar.
Talið er að Sprewell hafi brotið
höndina er hann sló í átt til kæras-
ta konu nokkurrar sem kastaði
upp í teiti sem haldið var um borð
í snekkju hans. Í bræðiskasti
lamdi hann með skothönd sinni í
vegg þar sem kærastinn stóð, með
fyrrgreindum afleiðingum.
„Ég skil ekki af hverju þeir eru
að halda mér frá liðinu,“ sagði
Sprewell í viðtali á heimasíðu dag-
blaðsins The Daily News. „Ég veit
aðeins eitt, að þeir vilja ekki að ég
tali við fjölmiðla svo að ég geti
sagt frá minni hlið málsins.“
Árið 1997 þegar Sprewell var
leikmaður Golden State Warriors
var hann dæmdur í 68 leikja bann
fyrir að taka þjálfara sinn háls-
taki. Hann hefur margoft gert
óskunda hjá New York Knicks í
gegnum tíðina. Árið 1999 mætti
hann ekki í æfingabúðir fyrir leik-
tímabilið og gaf enga skýringu á
fjarveru sinni. Auk þess hefur
hann margoft mætt seint í leiki
Knicks þau fjögur ár sem hann
hefur leikið með liðinu. Hingað til
hafa forráðamenn liðsins ákveðið
að horfa framhjá uppátækjum
kappans, en nú virðist þeim vera
nóg boðið.
Sprewell var næststigahæsti
leikmaður New York á síðasta
tímabili með 19,4 stig í leik. Fyrsti
leikur liðsins á þessu keppnis-
tímabili hefst þann 30. október og
ljóst er að Sprewell verður þar
fjarri góðu gamni.
Sektaður um 22 millj-
ónir vegna handarbrots
Latrell Sprewell, leikmaður New York Knicks, enn í vandræðum. Frá næstu fimm vikurnar eftir
að hafa meiðst tveimur vikum fyrir upphaf æfingabúða. Settur í tímabundið leyfi frá félaginu
fyrir að segja ekki frá meiðslunum.
„Árið 1997
þegar
Sprewell var
leikmaður
Golden State
Warriors var
hann dæmdur
í 68 leikja
bann fyrir að
taka þjálfara
sinn hálstaki“
KARFA
Latrell Sprewell treður boltanum í körfuna.
Hann var næststigahæsti leikmaður New
York Knicks á síðasta keppnistímabili.
FÓTBOLTI Skoskir fjölmiðlar hafa
fjallað mikið um komandi viður-
eign Íslands og Skotlands sem
háð verður á Laugardalsvelli
næstkomandi laugardag í und-
ankeppni EM. Í viðtali við skos-
ka vefmiðilinn sport.scotsm-
an.com er viðtal við Atla Eð-
valdsson, landsliðsþjálfara. „Ég
er líka undir miklum þrýstingi,“
segir Atli er minnst er á þann
þrýsting sem Berti Vogts, lands-
liðsþjálfari Skota, er undir fyrir
leikinn. „Fólk heldur að það sé
að duga eða drepast í þessum
eina leik en það er ekki bara
þessi leikur sem er í umræð-
unni. Við höfum ekki spilað einn
leik í keppninni en samt er talað
um möguleikann á að íslenska
liðið komist áfram. Við skulum
frekar spila leikina fyrst og tala
eftir á,“ segir Atli.
Þegar Atli er spurður út í Eið
Smára Guðjohnsen segir hann að
um afar efnilegan leikmann sé
að ræða. „Hann spilaði ekkert
frá sautján ára aldri til tvítugs
vegna alvarlegra meiðsla. Núna
hefur hann spilað í þrjú til fjög-
ur ár og ég myndi segja að hann
spili aðeins af 70% af þeirri getu
sem hann býr yfir. Hann á eftir
að taka framförum.“
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari:
Spilum fyrst og
tölum eftir á
ATLI EÐVALDSSON
Atli segist vera undir miklum þrýstingi heima fyrir.