Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 6
6 9. október 2002 MIÐVIKUDAGURSPURNING DAGSINS Tekur þú ummæli forsætisráð- herra til þín? „Davíð hlýtur að eiga við þá sem verða sér til skammar hvað eft- ir annað með furðu- ummælum. Til dæmis var einn háskólapró- fessor sem sagði 1994 að það væri fjarstæða að kreppan væri búin. Sá heitir Þorvaldur Gylfason. Sami maður sagði 1996 að Tælendingar gætu þakkað sér góðan ár- angur í efnahagsmálum um leið og Íslend- ingar gætu kennt sér um vondan árangur. Síðan hefur verið samfellt góðæri á Íslandi en í Tælandi hrundi allt hálfu ári seinna. Skóladúxarnir setjast því miður oft á tossa- bekk tilverunnar.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra segir menn úr há- skólalífi síður henta í starf seðlabankastjóra. Þá vanti stjórnunarreynslu og tengsl við þjóðfélagið. Hannes Hólmsteinn Gissurarson háskólaprófessor situr í bankaráði Seðlabankans. INNLENT STJÓRNMÁL „Það að álykta um fisk- veiðistjórnunarkerfi án þess að hafa nægar upplýsingar um það eru fordómar. Það skiptir þá engu hvort menn mæla með því eða á móti,“ segir Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokks. Hann vill að skipuð verði nefnd fagaðila til að meta kosti og galla færeyska fisk- veiðistjórnunarkerfisins. Í umræðu síðustu missera hafa þær raddir orðið stöðugt háværari sem vilja að færeyska kerfið verði tekið upp hér, segir Hjálmar. Sú umræða hafi ekki byggt á vísinda- legum grunni. Hann vilji því að kannað verði hvaða árangri fær- eyska kerfið skili og hvaða þjóð- hagslegu áhrif það hefði hér á landi. „Við getum þá tekið afstöðu þegar þetta liggur fyrir.“ Hjálmar segir að af viðræðum sínum við færeyska útgerðarmenn, sjómenn, fiskvinnslufólk og banka- menn hafi hann komist að því að al- menn ánægja ríki með kerfið í Fær- eyjum. Slíkt gefi vísbendingu um kosti þess. Það þurfi þó að skoða betur. Meðal annars hvort kerfið hafi verið nógu lengi við lýði til að hægt sé að meta árangur þess.  Færeyska fiskveiðistjórnin verði metin: Umræðan byggi ekki á fordómum HJÁLMAR ÁRNASON Vill að sjávarútvegsráðherra skipi nefnd til að meta færeyska kerfið. Háskólinn, sjávar- útvegsdeild Háskólans á Akureyri, Hafrann- sóknastofnun og Samtök fiskvinnslustöðva tilnefni hvert sinn fulltrúa. Hvalfjörður: Ekið á hross LÖGREGLA Ekið var á hross á Hval- fjarðarvegi á móts við Saurbæ um kvöldmatarleytið á föstudag. Hesturinn hafði tekið sig út úr hrossahópi, sem verið var að reka, eftir að hópurinn slapp úr afgirtu hólfi þar í grenndinni. Skepnan varð fyrir bíl sem kom úr gagn- stæðri átt. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi var hrossið óbrotið að sjá en talsvert skorið á brjósti. Enn var verið að meta ástand þess þegar lögregla hvarf af vettvangi. Fólkið í bílnum meiddist ekki en bílinn var töluvert skemmdur. Hann var þó ökufær á eftir.  Handtekinn í Singapúr: Henti rusli út um gluggann SINGAPÚR, AP Í Singapúr var 63 ára maður handtekinn fyrir að henda rusli út um gluggann sinn. Ná- grannarnir höfðu kvartað. Það var heldur ekkert smá- ræði sem Lau Seng Fatt henti út um eldhúsgluggann á annarri hæð: þremur stólum, klukku, nokkrum bjórflöskum, lampa, tveimur plastfötum, nokkrum samanbrotnum ferðarúmum, hægindastól og einni könnu. Lau hefur reyndar lifibrauð sitt af því að safna því sem aðrir henda, og selja svo. En hann get- ur ekki selt allt sem hann safnar að sér.  HÁSKÓLINN Í SKATTINN Háskóli Íslands og Ríkisskattstjóri hafa gert með sér samning um sam- vinnu og samstarf á sviði rann- sókna og kennslu á sviði skatta- mála. Meðal annars er horft til þess að nemar geti unnið að verk- efnum sínum hjá Ríkisskatt- stjóra. HEIMSÓKN Á ALÞINGI Kúveiskir þingmenn sóttu Alþingi heim og funduðu með fulltrúum þing- flokka og utanríkismálanefndar. Að því loknu fylgdust þeir með þingfundi þar sem ráðherrar svöruðu fyrirspurnum. SKIPULAGSMÁL Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar, segist vel skilja þá afstöðu íbúa við Sigtún að vilja kæra ákvörðun borgaryf- irvalda um að leyfa byggingu tveggja 13 hæða háhýsa við Grand Hótel til úr- s k u r ð a r n e f n d a r skipulags- og bygg- ingarmála. Stein- unn Valdís var eini nefndarmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn tillög- unni, þegar hún var samþykkt. Málið kom fyrst inn á borð skipulags- og byggingarnefndar þegar Árni Þór Sigurðsson var formaður nefndarinnar. Steinunn Valdís sagðist hafa verið á móti þessum áformum þá og það hefði ekkert breyst þó hún væri nú orð- in formaður nefndarinnar. „Auðvitað er mjög óvenjulegt að formaður sé á móti svona máli,“ sagði Steinunn Valdís. „Ég hef séð tillögur sem gera ráð fyr- ir sambærilegri uppbyggingu á þessum reit án þess að byggt sé svona hátt upp í loftið. Mér fannst og finnst ennþá að þetta sé í hróp- legu ósamræmi við byggða- mynstrið á þessu svæði.“ Steinunn Valdís sagði að ástæð- an fyrir því að byggingaraðilarnir vildu byggja tvær 13 hæða bygg- ingar væri rekstrarlegs eðlis. Það væri hagkvæmara. Hún sagði ekki rétt að málið hefði ekki farið í grenndarkynningu eins og haft var eftir Páli Skaptasyni, íbúa við Sigtún, í Fréttablaðinu í gær. Grenndarkynningin hefði verið haldin í sumar og þá hefðu komið mótmæli frá fjórum íbúum. Árni Þór sagði að nefndin hefði á sínum tíma verið sam- mála um að leyfa ætti uppbygg- ingu hótels á þessum stað. Ef menn vildu hótel í Reykjavík þá væri þetta langhentugasta bygg- ingarformið. Málið hefði verið kynnt á sínum tíma og gerðar mjög ítarlegar athuganir á skuggavarpi. Vissulega myndað- ist skuggi einhversstaðar í Teiga- hverfinu en niðurstaðan hefði orðið sú að með því að byggja tvo háa og tiltölulega mjóa turna myndi skugginn vera stutt á hverjum stað. Varðandi hæð bygginganna sagðist Árni gera sér fyllilega grein fyrir því að hún væri ekki í samræmi við hæð annarra bygginga í Teigahverf- inu. Í nágrenninu væru hins veg- ar svipað há hús, eins og t.d. hús í Hátúni og Hótel Esja. trausti@frettabladid.is Formaðurinn skil- ur ákvörðun íbúa Formaður skipulags- og byggingarnefndar skilur ákvörðun íbúa við Sigtún að kæra byggingu 13 hæða háhýsa við Grand Hótel. Formaður- inn greiddi atkvæði gegn tillögunni. Fyrrverandi formaður nefndarinn- ar segir að svipað há hús séu í nágrenninu. TÖ LV U G R AF ÍK /O N N O E H F. NÝBYGGING VIÐ GRAND HÓTEL Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulags- og byggingarnefndar, sagði að ástæðan fyrir því að byggingaraðilarnir vildu byggja tvær þrettán hæða byggingar væri rekstrarlegs eðlis. Það væri hagkvæmara. Auðvitað er mjög óvenju- legt að for- maður sé á móti í svona máli. Kristján Möller: Krefst upplýsinga ALÞINGI Kristján L. Möller, þing- maður Samfylkingarinnar á Norð- urlandi Vestra, vill að félagsmála- ráðherra upplýsi hver íbúaþróun- in hafi verið í sveitarfélögum landsins, eins og þau eru nú, síð- astliðin tíu ár. Kristján vill ennfremur fá að vita hver þróunin hefur verið í hverju kjördæmi fyrir sig, miðað við nýja kjördæmaskipan, síðustu tíu ár, Hver hlutfallsleg fjölgun eða fækkun íbúa hafi verið í ein- stökum sveitarfélögum og loks hvert hlutfall erlendra ríkisborg- ara er í hverju sveitarfélagi fyrir sig.  Mat á umhverfisáhrifum á Siglufirði: Snjóvarnar- garður sam- þykktur SAMÞYKKT Skipulagsstofnun hef- ur fallist á byggingu snjóflóða- varnargarðs á Siglufirði. Stofn- un telur að fyrirhuguð bygging muni ekki hafa í för með sér um- talsverð umhverfisáhrif. Skipulagsstofnun telur ljóst að helstu umhverfisáhrif af byggingu fimm þvergarða og eins leiðigarðs allt að 15 metra að hæð og uppsetningu stoð- virkja verði sjónræns eðlis. Þá telur stofnunin að fyrirhugaðir varnargarðar muni hafa veruleg óafturkræf áhrif á landslag bæði úr fjarlægð og innan þéttbýlis- ins. Stofnunin telur hins vegar að bygging varnargarðanna sé viðunandi að teknu tilliti til nið- urstöðu nýlega staðfests hættu- mats, þar sem fram kemur að stór hluti þéttbýlisins er innan skilgreindra snjóflóðahættu- svæða. Kæra má úrskurð Skipulags- stofnunar til umverfisráðherra og er kærufrestur til 13. nóvem- ber.  VEÐUR Snjórinn ætlar að láta bíða eftir sér í ár. Verður líklega sein- na á ferðinni en í fyrra. Þá gerði slyddu í Reykjavík samfleytt í fjóra daga frá 10. október og þann 13. mældist eins sentímetra jafn- fallinn snjór í Reykjavík. Fyrsta frostið í höfuðborginni mældist þó ekki fyrr en 27. október, tvegg- ja stiga frost. Á Akureyri var slydda 14. október í fyrra. Þar féll fyrsti mælanlegi snjórinn 29. október en 1,2 stiga frost hafði mælst deginum áður. „Snjórinn er ekki á leiðinni í bráð en ég er nokkuð viss um að hann komi þó svo fólk hafi verið að lifa einhver mestu hlýinda- skeið á landinu á síðari árum,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veð- urfréttamaður.  HANN SNJÓAR Þó ekki sé von á snókomu í Reykjavík snjóar í Arizona þessa dagana. Íslenskur vetur: Snjórinn ekki á leiðinni SPRENGJULEIT Í KEFLAVÍK Unnið er að uppsetningu á sérstökum sprengjuleitarbúnaði á Keflavík- urflugvelli sem taka á í notkun 1. janúar. Búnaðurinn sem kostar um 300 milljónir króna er settur upp af kröfu Evrópustofnunar Flugmálastjóra. vf.is BÖÐVAR Í FRAMBOÐ Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs í Reykjanesbæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í nýju Suð- urkjördæmi. KAFFI AUSTURSTRÆTI ÁFRAM Borgaryfirvöld hafa framlengt leyfi Kaffi Austurstrætis til áfengisveitinga í eitt ár. Er talin ástæða til þess að fylgjast sér- staklega með rekstri staðarins vegna kvartana sem borist hafa borgaryfirvöldum. VERKNÁMSHÚS Á AKUREYRI Nýtt verknámshús heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri var form- lega tekið í notkun á mánudaginn. Húsið verður það einkum nýtt til starfsþjálfunar nemenda í hjúkr- unarfræði og iðjuþjálfum. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 87.41 0.40% Sterlingspund 136.74 0.47% Dönsk króna 11.53 0.52% Evra 85.65 0.52% Gengisvístala krónu 129,57 0,43% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 290 Velta 3.601 m ICEX-15 1.304 0,47% Mestu viðskipti Búnaðarbanki Íslands hf. 931.241.613 SÍF hf. 640.222.079 Pharmaco hf. 568.713.598 Mesta hækkun Líf hf. 6,58% SÍF hf. 5,75% Íslandssími hf. 5,71% Mesta lækkun Guðmundur Runólfsson hf. -4,88% Marel hf. -3,24% Opin kerfi hf. -2,86% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7448 0,30% Nsdaq*: 1121,1 0,10% FTSE: 3730,5 -1,30% DAX: 2592,4 -2,80% Nikkei: 8708,9 0,20% S&P*: 788,1 0,40% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 INNLENT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.