Fréttablaðið - 09.10.2002, Page 9

Fréttablaðið - 09.10.2002, Page 9
9MIÐVIKUDAGUR 9. október 2002 Gylfi Þór Þorsteinsson Auglýsingastjóri DV Þórmundur Bergsson Auglýsingastjóri Fréttablaðsins Gestur Einarsson Auglýsingastjóri Morgunblaðsins Á www.sau.is Með léttum veitingum og kaffi 2500 - fyrir félagsmenn 3500 - fyrir aðra Hádegisverðarfundur SAU Í hvaða dagblaði á ég að auglýsa? Samtök auglýsenda standa fyrir hádegisverðarfundi fimmtudaginn 10. okt. kl. 12:00 - 13:30 á Hótel Loftleiðum Þingsölum 1-3. Fjallað verður um auglýsingar í dagblöðum frá ýmsum hliðum. Svo sem hvað er auglýsandinn að borga og hvað er hann að fá fyrir peninginn. GAZA-BORG, AP Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, lætur gagn- rýni Bandaríkjamanna og annarra sem vind um eyru þjóta og segir blóðuga árás hermanna sinna á Gazaströnd aðfaranótt þriðjudags hafa borið tilætlaðan árangur. Hann segir að búast megi við fleiri slíkum árásum. Bandaríkin, Rússland, Evrópu- sambandið og Sameinuðu þjóðirn- ar gagnrýndu þessa árás harðlega. Ísraelsher segir tilganginn með árásinni á bæinn Kan Júnis á Gaza-strönd hafa verið að gera ís- lömskum skæruliðum ljóst að þeir geti ekki lengur litið á Gaza- strönd sem öruggt skjól til þess að undirbúa hryðjuverk. Árásin kostaði fjórtán Palest- ínumenn lífið. Á annað hundrað manns særðist. Palestínumenn segja hina látnu alla hafa verið óbreytta borgara. Ísraelsmenn segja þá hins vegar hafa verið vopnaða þátttakendur í bardaga. Israel Ziv, hershöfðinginn sem stjórnaði árásinni á Kan Júnis, viðurkenndi að enginn hinna látnu hefði verið meðal þeirra sem eftir- lýstir eru. Samtökin Hamas og Fatah, stjórnmálahreyfing Yassers Ara- fats, hafa hótað hefndum.  FJÖLMIÐLAR „Ég er búinn að vera í þessu síðan 1989 og því kominn á tíma, búinn með skammtinn,“ segir Ari Trausti Guðmundsson veðurfréttamaður, sem sagt hef- ur upp starfi sínu á Stöð 2 og hyg- gst hverfa til nýrra sjónvarps- verkefna hjá Ríkissjónvarpinu. Hann segist ekki eiga eftir að sakna veðurfréttastarfsins eftir 13 ár á skjánum: „Þetta er líka leiðinlegur vinnutími,“ segir hann. Ari Trausti er þegar farinn að vinna að undirbúningi sjónvarps- þátta fyrir Ríkissjónvarpið sem hlotið hafa vinnuheitið Vísindi fyrir alla. Þættina gerir hann með sjónvarpskonunni Rögnu Söru Jónsdóttur: „Þetta verða vikulegir 10 mínútna þættir sem sýndir verða allt árið, líklega á eftir seinni fréttum Ríkissjón- varpsins,“ segir Ari Trausti en í þáttunum munu hann og Ragna Sara fjalla um það sem efst er á baugi í vísindum hér á landi hverju sinni. Þáttur Ara Trausta hefur göngu sína á Ríkissjón- varpinu eftir áramót.  ARI TRAUSTI Á ekki eftir að sakna veðurfréttanna eftir þrettán ár á skjánum. Ari Trausti hættir á Stöð 2: Búinn með skammtinn Palestínumenn hóta hefndum eftir árásina á Gaza-strönd: Sharon ánægður með árangurinn HLAUPIÐ Í ÁTT AÐ ÁTÖKUM Stuðningsmenn Hamas lentu í átökum við palestínska lögreglumenn í Gaza-borg þegar útför tveggja Hamas-liða fór fram. AP /C H AR LE S D H AR AP AK Verð: Með framsögu verða: Skráning: www.sau.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.