Fréttablaðið - 09.10.2002, Síða 10

Fréttablaðið - 09.10.2002, Síða 10
10 9. október 2002 MIÐVIKUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Vegna yfirlýsingar forsætis-ráðherra vors Davíðs Odds- sonar í viðtali við DV, þann 5. október sl. um það hvernig hann hélt uppi aga þegar hann kenndi í Versló í gamla daga, það er að segja: „þá lamdi ég þá alveg leift- ursnöggt í hausinn,“ langar mig að biðja fréttamenn þessa lands að grafa upp eftirfarandi: 1. Not- aði Davíð Oddsson barefli eða ekki? 2. Ef Davíð Oddsson notaði ekki barefli, notaði hann þá til dæmis krepptan hnefa eða karate- högg? 3. Finnast einhverjir sem sátu í þessum kennslustundum sem geta lýst skoðun sinni á því hvernig þessi kennsluaðferð Dav- íðs Oddssonar reyndist?  Það mun gilda einu hvort stjórn-málaflokkarnir muni klípa einn eða fleiri þingmenn hverjir af öðr- um í kosningum næstkomandi vor. Öruggur meirihluti einnar kynslóðar mun halda velli – k y n s l ó ð a r i n n a r sem tók stúdents- próf frá útgáfu Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band með Bítlunum fram að því að Sex Pistols gáfu út An- archy in the UK. Í dag á þessi kynslóð 35 þingmenn af 63. Tuttugu þingmenn eru eldri en 57 ára en aðeins átta þingmenn eru 45 ára eða yngri. Það má færa rök fyrir því að það sé minni munur á milli fólks af þessari kynslóð sem er í sitt- hvorum stjórnmálaflokknum en fólki af sitthvorri kynslóðinni í sama flokki. Umhverfi mótar fólk. Þessi kynslóð er fyrsta stóra kynslóðin sem elst upp við allsnægtir og er fræg fyrir að hafa brugðist öndverð við þessu happi sínu. Hún varð sjálfhverf, frek og tilætlunarsöm. En einmitt sökum þess hefur hún haft mikil áhrif á samfélag okkar, hún var snögg að komast til valda. Í dag eigum við forseta, forsætisráð- herra, borgarstjóra og biskup af þessari kynslóð. Það má rekja slóð þessarar kynslóðar eftir vinsældalistum málefna líðandi stundar. Snemma á áttunda áratugnum voru það námslán, en þá var þessi kynslóð í háskóla. Fljótlega eftir það tóku dagvistunarmálin við, þá voru börn þessarar kynslóðar komin undir. Um og upp úr 1980 voru það húsnæðismálin, þá var þessi kyn- slóð að koma undir sig fjögurra herbergja íbúð, raðhúsi eða ein- býlishúsi og vildi helst ekki borga vexti af lánunum. Þegar börn þessarar kynslóðar komu full heim skutust forvarnir upp vin- sældalistann og þegar hún vildi aftur i skóla varð endurmenntun lausnarorð. Svona mætti lengi telja. Og ástæða þess að í dag virðast stjórnmálin ekki snúast um eitt né neitt er að þessi kyn- slóð er nú á tiltölulega vandamála- fríu æviskeiði, hefur komið sér upp flestum lífsgæðum og er enn við þolanlega heilsu. Eftir tíu ár mun líklega meiri- hluti þingmanna vera á aldrinum 57 til 67 ára. Þá mun ríkissjóður verða settur á hausinn til að hækka ellilífeyri þessarar kyn- slóðar. Og fram að þeim tíma mun eintóna viðhorf þessarar kynslóð- ar halda áfram að móta samfélag- ið.  „Þessi kynslóð er fyrsta stóra kynslóðin sem elst upp við allsnægtir og er fræg fyrir að hafa brugðist öndvert við þessu happi sínu. Hún varð sjálfhverf, frek og tilætlunar- söm.“ Sjálfhverfa kynslóðin með öruggan meirihluta skrifar um öruggan meirihluta freku kynslóðarinnar á Alþingi. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON Aukið umfang rekstrar embættis ríkislögreglustjóra frá stofnun þess til fjárlagafrumvarps ársins 2003 hefur verið í umræðunni. Einar Már Sigurðarson alþingismaður gerir athugasemdir við rekstrartölur ríkislögreglustjóra. Rekstur ríkislögreglustjóra ÓLÍK SJÓNARMIÐ Ríkislögreglustjóri bendir áástæður svo sem aukinn mannafla og segir 42 stöður í beinu samhengi við tilfærslu verkefna innan lögreglunnar og ný viðfangsefni sem stjórnvöld hafi falið embættinu. Haraldur segir heildarfjárveitingu til emb- ættisins í fjárlagafrumvarpi árs- ins 2003 vera 938,7 m.kr. Þar af séu sértekjur 276,6 m.kr. vegna bílareksturs lögreglu og sam- starfs við Vegagerðina um um- ferðareftirlit. Mismunur fjárveit- inga vegna sömu verkefna 1998 og 2003 séu 113,1 m.kr. Hækkunin nemi 51,2%, sem skýrist af verð- lagshækkunum fjárlaga frá 1998, launahækkunum og fjölgun starfsmanna um fjóra í grunnvið- fangsefnum. Í lokin bendir hann á að árið 2003 hafi 64% af rekstrin- um verið ný verkefni sem nýtist fyrst og fremst lögregluliðum landsins.  Útgjöld ríkislögreglustjórahafa aukist um 260% frá 1998 til fjárlagafrumvarpsins nú,“ segir Einar Már Sigurðar- son alþingismaður. „Ég hef ekki haft tækifæri til að bera talna- leik ríkislögreglustjóra saman við mínar tölur en heyri ekki hagræðingar- og sparnaðartón- inn.“ Einar segir að sér hafi ver- ið ljóst í þessari umræðu að ýms- um verkefnum hafi verið bætt við embættið. „Við hljótum að spyrja okkur þegar hlutir gerast svona hratt hvort faglega sé staðið að öllu þessu máli. Ég hef engar getgátur um að bruðlað sé með almannafé en þessi við- kvæmni öll hlýtur að kalla á það að við förum sérstaklega yfir þetta í fjárlaganefnd. Ef raunin er að menn hafi gætt ítrasta sparnaðar og hagræðingar þá finnst mér jafn eðlilegt að draga það fram.“  Haraldur Johannessen: Ný viðfangsefni og tilfærsla verkefna Einar Már Sigurðarson: Útgjöldin kalla á nánari skoðun 17 ára ökumaður: Flýði lögreglu á ofsahraða LÖGREGLUMÁL Sautján ára ökumað- ur sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar í Kópavogi aðfaranótt sunnudags heldur ók í burtu á ofsa- hraða. Honum var veitt eftirför þar sem hann ók gegn umferð og eftir göngustígum. Að lokum stöðvaði hann bíl sinn og reyndi að komast undan á tveimur jafnfljótum ásamt farþegum sem voru með honum í bílnum. Lögreglan hljóp ökumann- inn uppi og handtók. Hann reyndist vera 17 ára og var sviptur ökurétt- indum. Við leit í bílnum fundust fíkniefni og landi.  Þýski fjölmiðlarisinn Bertelsmann: Græddi stórlega í tíð nasista ERLENT Þýski fjölmiðlarisinn Ber- telsmann hefur játað að hafa grætt stórlega í tíð nasista fyrir miðja síðustu öld. Nefnd sem skipuð var af fyrirtækinu komst að því að Bertelsmann breyttist úr því að vera útgefandi trúarlegra bóka og skólabóka yfir í útgefanda millj- óna rita sem höfðu uppi áróður gegn gyðingum. Fyrirtækið not- færði sér einnig á óbeinan hátt þrælavinnu gyðinga bæði í Lett- landi og Litháen.  BORGARSTJÓRN Meirihluti R-listans í borgarstjórn samþykkti að vísa tillögu Frjálslyndra, um að skora á ríkisstjórn og Alþingi að hækka skattleysismörkin, til borgarráðs. Sjálfstæðismenn greiddu ekki at- kvæði með tillög- unni, sem gengur út að mörkin verði hækkuð til sam- ræmis við þróun verðlags og kaup- gjalds frá árinu 1988. Tillagan gengur út á að skattleysismörkin verði hækkuð í þremur áföngum og að því verði lokið árið 2004. Ólafur F. Magnússon borgar- fulltrúi sagði athyglisvert að Sjálfstæðisflokkurinn væri á móti hækkun skattleysismarka á sama tíma og hann vildi létta álögum á fyrirtæki, sem ella myndu borga hundruð milljóna króna eða millj- arða í skatta. Ólafur F. sagði að þessi tillaga hefði mikla þýðingu. Þetta væru skýr pólitísk skilaboð frá borginni um að meirihluti borgarstjórnar væri á móti þeirri skattastefnu ríkisstjórnarinnar að draga stórlega úr sköttum á fyrir- tæki og stóreignafólki en halda al- menningi niðri. „Sjálfstæðisflokkurinn lætur sig síst varða málefni láglauna- fólks, öryrkja og ellilífeyrisþega,“ sagði Ólafur F. „Hann virðist hins vegar bera mun meiri umhyggju fyrir auðmönnum, stórfyrirtækj- um, einkavinum og gæðingum ríkisstjórnarinnar.“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins lögðu fram bókun í borgarstjórn þar sem lýst var yfir undrun á því að Gísli Helga- son, borgarfulltrúi F-listans, hefði setið hjá fyrir skömmu,þeg- ar R-listinn hefði fellt tillögu Sjálfstæðisflokksins um lækkun fasteignaskatta á eldri borgara og öryrkja. Það væri tvískinn- ungur að borgarstjórn gerði kröfu á hendur ríkisstjórninni um skattalækkun með hækkun skattleysismarka á sama tíma og hún hafnaði skattalækkun í þágu eldri borgara og öryrkja. Í bók- uninni sagði ennfremur að Sjálf- stæðisflokkurinn væri sjálfum sér samkvæmur í afstöðu sinni til að bæta hag eldri borgara og öryrkja og myndi vinna að því bæði í borgarstjórn og á Alþingi. trausti@frettabladid.is Borgarstjórn á móti skattastefnu ríkisstjórnar R-listinn samþykkir tillögu F-listans um að skora á ríkisstjórnina að hækka skattleysismörk. Sjálfstæðismenn greiddu ekki atkvæði með til- lögunni. Borgarfulltrúi F-listans segir þetta skýr pólitísk skilaboð. RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Meirihluti borgarstjórnar samþykkti tillögu F-listans um að skora á ríkisstjórnina að hækka skattleysismörkin í þremur áföngum fyrir árið 2004. Sjálfstæðis- flokkurinn læt- ur sig síst varða málefni láglaunafólks, öryrkja og elli- lífeyrisþega. Nánari upplýsingar um höfuð- höggin Áhugamaður um bættar kennsluaðferðir hringdi: Betri Laug- ardalslaug Sundkappi skrifar: Hvað veldur því að ekki er gertvið í Laugardalslauginni? Þá er ég að tala um niðurfall í stærs- ta pottinum sem er búið að vera brotið síðan í júlí og plaströrbút stungið ofan í. Svokölluð iðjulaug er búin að standa tóm á annan mánuð. Ekki koma kúnnarnir þar á meðan vatnslaust er. Baðverðir mættu taka sig verulega á og hætta að öskra á skólabörn sem mæta í skólasund. Það er hægt að tala við þau á annan máta. Hægt væri að senda baðverðina út á Nes (Seltjarnarnes) þar sem baðvarsla er til fyrirmyndar og þeir gefa manni kaffi. Geri aðrir betur. Kippið þessu í liðinn. 

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.