Fréttablaðið - 09.10.2002, Page 19
19MIÐVIKUDAGUR 9. október 2002
FÓLK Bandaríski leikarinn Robert
Blake, sem ákærður er fyrir að
myrða einkonu sína, gæti losnað
undan varðhaldi gegn tryggingar-
gjaldi. Blake hefur verið í fang-
elsi í fimm mánuði og íhuga yfir-
völd nú að veita honum frelsi þar
til réttarhöldin í málinu hefjast.
Eiginkona Blake var skotin til
bana fyrir utan veitingahús í
fyrra. Hún sat þá í framsæti bíls
hjónanna fyrir utan veitingastað
sem þau höfðu snætt á. Blake
heldur því fram að hún hafi verið
skotin til bana á meðan hann hljóp
aftur inn á veitingastaðinn til þess
að ná í byssu sem hann hafði
gleymt þar.
Blake var ákærður fyrir morðið
og lífvörður hans að hafa aðstoðað
hann. Leikarinn neitar allri sök og
segir marga hafa haft ástæðu til
þess að vilja eiginkonu sína feiga.
Blake er aðallega þekktur fyrir
leik sinn í sjónvarpsþáttunum
„Beretta“, sem vinsælir voru á
áttunda áratugnum.
Réttarhöldin hefjast 11. des-
ember. Ef Blake verður fundinn
sekur af ákærunum á hann yfir
höfði sér lífstíðardóm.
ROBERT BLAKE
Sést hér í hlutverki sínu í „Beretta“ sjón-
varpsþáttunum sem áttu miklum vinsæld-
um að fagna á áttunda áratugnum.
Leikarinn Robert Blake:
Gæti öðlast tímabundið frelsi
LISTIR Ástralski leikstjórinn Baz
Luhrman, sem gerði síðast
söngvamyndina Moulin Rouge,
ætlar sér að hrista upp í óperu-
unnendum með afar framandi
uppfærslu á La Boheme eftir Gi-
acomo Puccini. Þetta uppátæki
hans er tilraun til þess að kynna
óperuna fyrir breiðari áhorfenda-
hóp. Uppfærsla hans verður
frumsýnd í San Francisco 15.
október en verður svo færð yfir á
Broadway í New York frá og með
26. nóvember.
„Puccini samdi verk sín með
það í huga að þau yrðu sýnd öllum
aldurshópum og fólki úr öllum
hópum samfélagsins,“ sagði Baz í
viðtali við BBC. „Það þýðir að hún
á að höfða til mannsins sem sópar
göturnar jafnt sem kóngsins í
Napólí. Það er takmark okkar. Þú
þarft ekki að hafa gráðu í tón-
fræði til þess að skilja óperu eða
tengjast sögunni tilfinningar-
böndum.“
Stærsta breytingin á upp-
færslu Luhrmans er að færa sögu-
tíma til ársins 1950 en upphaflega
útgáfan á að gerist um 1840.
Einnig hefur sú ákvörðun
Luhrmans að láta alla söngvara
syngja með hljóðnema verið
gagnrýnd en slíkt þykir ekki eiga
heima í óperuflutningi.
„Takmarkið er að reyna að búa
til svipaða upplifun og fólk fékk á
að sjá sýninguna árið 1840. Það
þýðir að gestir verða að heyra
sýninguna. Í litlu óperuhúsi á Ítal-
íu áttu gestir afar auðvelt með að
heyra hvað fram fór.“
Það vekur þó athygli að Luhrm-
an ætlar sér ekki að bregða frá
þeirri hefð að óperan skuli sungin
á frummálinu. Eiginkona hans,
Catherine Martin, verður list-
rænn hönnuður sýningarinnar.
Hún vann allt útlit myndanna
„Moulin Rouge“ og „Romeo + Juli-
et“ og vann Óskarsverðlaun fyrir
þá fyrrnefndu. Hún segir að útlit-
ið sé unnið eftir svart/hvítum ljós-
myndum frá sjötta áratugnum.
biggi@frettabladid.is
BAZ LUHRMAN
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann setur upp La Boheme. Fyrsta tilraun var í Sydney, í
heimalandi hans Ástralíu, árið 1990. Þá rifu gagnrýnendur uppfærsluna hreinlega í sig.
La Boheme fær
andlitslyftingu
Leikstjórinn Baz Luhrman er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir.
Hann blés nýju lífi í Shakespeare með mynd sinni „Romeo + Juliet“ og
sýndi menningarlífið í París í nýju ljósi með „Moulin Rouge“. Næsta
verkefni hans er sérkennileg sviðsuppfærsla óperunnar „La Boheme“
eftir Puccini á Broadway.
JEAN-PAUL GAULTIER
Sýning Jean-Paul Gaultier á tískuvikunni í
París vakti athygli. Hér sést fyrirsæta í rokk-
stjörnugírnum, klædd sérkennilegum
sundfatnaði og svörtum sokkabuxum.
Svona vill Gaultier að kvenmenn klæði sig
næsta sumar. Við sjáum hvað setur.
FÓLK Fyrir þá sem ekki vita er það
engin önnur en poppdrottningin
Madonna sem sér um flutninginn
á næsta James Bond-lagi. Lagið
heitir „Die another Day“, eins og
myndin, og kemur út á smáskífu
28. október. Óhætt er að segja að
lagið sé róttæk breyting frá fyrri
Bond-lögum en Madonna vann
lagið ástamt franska raftónlistar-
manninum Mirwais.
Í myndbandinu við lagið mun
Madonna taka þátt í handalögmál-
um. Það á að vera í hefðbundnum
Bond-stíl þar sem poppsöngkonan
berst við hið illa.
Madonna lét sér ekki nægja að
flytja titillagið því hún fer einnig
með aukahlutverk í myndinni,
sem verður sú 20. í röðinni. Mynd-
in verður frumsýnd á Íslandi 29.
nóvember.
Madonna vinnur nú að nýrri
breiðskífu sem koma á út á næsta
ári.
MADONNA
Ofbeldisfull í nýjasta
myndbandi sínu.
Madonna:
Ofbeldisfull í
Bond-myndbandi