Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 1
bls. 10 LEIKHÚS Drepfyndin angist í firrtum heimi bls. 16 MIÐVIKUDAGUR bls. 4 208. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 23. október 2002 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Bíó 16 Íþróttir 14 Sjónvarp 20 KVÖLDIÐ Í KVÖLD Niðurstöður íbúaþings FUNDUR Niðurstöður íbúaþings sem haldið var í Garðabæ á laugardag verða kynntar á opnum fundi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Á íbúaþinginu var annars vegar rætt um málefni eins og fræðslu- og menningarmál, þjónustu við aldr- aða og atvinnumál og hins vegar unnið í skipulagshópum þar sem meðal annars var farið yfir skipu- lag nýrra íbúðasvæða, miðbæ Garðabæjar og stígakerfi bæjar- ins. Fundurinn hefst klukkan 20.30. Skeggrætt um hvalinn FUNDUR Lagadeild Háskóla Íslands og Hafréttarstofnun Íslands efna til málstofu um aðild Íslands að Al- þjóðahvalveiðiráðinu í Háskóla Ís- lands í dag. Málshefjendur eru Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræð- ingur í utanríkisráðuneytinu, og Stefán Ásmundsson, þjóðréttar- fræðingur í sjávarútvegsráðuneyt- inu. Fundurinn verður í Lögbergi, stofu 101, og hefst klukkan 12.15. UPPBYGGING Þjálfar atvinnulaus ungmenni VEIÐI Veiðimenn hóta bændum Byggðu á þínum tíma Grafarvogi Vestur í bæ Kópavogi Ármúla + REYKJAVÍK Norðaustlæg átt 8- 13 m/s og skýjað að mestu. Hiti 1-4 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Él 0 Akureyri 10-15 Snjókoma 0 Egilsstaðir 10-15 Snjókoma 0 Vestmannaeyjar 8-13 Léttskýjað 3 + + + VEÐRIÐ Í DAG ➜ ➜ ➜ ➜ AFHENTI GJAFAMIÐA AÐ UPPHÆÐ 25 MILLJÓNIR KRÓNA Jóhannes Jónsson í Bónus afhenti Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanni Mæðrastyrksnefndar, stærstu gjöf sem nefndin hefur fengið til þessa. Viðstaddir voru biskupinn yfir Íslandi, Karl Sigurbjörnsson, Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, og Jónas Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T JAFNRÉTTISMÁL Konur hafa haslað sér völl í stjórnunarstörfum á Blönduósi svo eftir er tekið. Jóna Fanney Friðriksdóttir var ráðin bæjarstjóri á Blönduósi að lokn- um síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum og skipaði sér þar í sveit vaskra kvenna sem flestu ráða á staðnum. Útibússtjóri Búnaðar- bankans er kona, formaður verka- lýðsfélagsins líka, framkvæmda- stjóri héraðsnefndarinnar, útibús- stjóri ÁTVR, formaður leikfélags- ins, stöðvarstjóri Blönduvirkjun- ar og meira að segja póstmeistar- inn á Blönduósi er kona. „Ég held að Húnvetningar séu að vakna til vitundar um hvers konur eru megnugar,“ segir Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjar- stjóri. „Konur eru svo sterkar hér og svo er ef til vill verið að leita að nýjum viðhorfum og gildum,“ seg- ir hún.  Athyglisverð þróun í Húnavatnssýslum: Konur ráða flestu á Blönduósi Fylltu út -það er kaffið! póstkort sem flú fær› í næstu verslun og draumurinn gæti or›i› a› veruleika JÓNA FANNEY FRIÐRIKSDÓTTIR Bæjarstjórinn fer fyrir hópi kvenna sem flestu ráða á Blönduósi. NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá september 2002 24% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á miðviku- dögum? 46% 75% Besta lagið TÓNLIST Unglist heldur áfram og í kvöld er röðin komin að Lagakeppni framhaldskólanna. Keppt verður um besta frumsamda lagið og er það í fyrsta sinn sem slík keppni er haldin meðal framhaldsskólanna. Skólóvision verður í Austurbæjar- bíói og hefst klukkan 20. Mæðrastyrksnefnd fær stórgjöf: Andvirði 25 milljóna GJÖF Bónus afhenti Mæðrastyrks- nefnd Reykjavíkur gjafamiða að verðmæti tuttugu og fimm millj- ónir króna. „Við gerðum ágætis viðskipti erlendis á árinu og vor- um búnir að ákveða að ef það gengi eftir myndum við láta eitt- hvað af hendi rakna til góðgerða- mála,“ sagði Jóhannes í samtali við Fréttablaðið. meira bls. 22 SJÓÐUR „Þetta lýsir henni mjög vel og hug hennar til barna. Hún var sjálf barnlaus en þótti ýmislegt mega betur fara hvað börnin varð- ar. Þetta verður vonandi öðrum til eftirbreytni,“ sagði Guðmundur A. Birgisson á Núpum í Ölf- usi um höfðinglega gjöf Sonju Zorrilla. Erfðaskrá Sonju kvað á um það að auðæfi hennar skyldu nýtt í þágu barna á Íslandi og í Bandaríkjun- um. Stofnaður verður minn- ingarsjóður, „The Sonja Zorrilla foundation“, og er ætlunin að fjármunirnir verði nýttir í þágu lang- veikra og veikra barna hér og í Bandaríkjunum. Ennfremur í þágu menntunar barna í báðum löndum. Stjórnarmenn sjóðsins verða tveir til að byrja með, þeir Guðmundur Birgisson, frændi Sonju, og John Ferguson, sem var lögmaður Sonju síðustu 20 árin. Ætlunin er að fjölgað verði í stjórn sjóðsins eftir að hann hefur verið settur upp. Sonja Zorrilla skóp auð- æfi sín með verðbréfavið- skiptum á hlutabréfamarkaðnum á Wall Street. Sonja lýsir við- skiptum sínum í ævisögu sinni „Sonja - líf og leyndar- dómar“. „Ég fjárfesti töluvert í útvarpsstöðvum. Dæmi var um að slík fjárfesting fjög- urhundruðfaldaðist á skömmum tíma. Seinna hélt ég mig við örugg fyrirtæki og tók litla áhættu. Galdurinn var sá að elta aldrei slæma peninga, heldur selja þegar bréf höfðu fallið eitt- hvað ákveðið í verði. Þar miðaði ég gjarnan við að selja bréf þegar þau höfðu fallið um tíu prósentu- stig í stað þess að halda áfram að tapa. En það var alltaf nauðsyn- legt að kunna að taka tapi,“ segir Sonja í bók Reynis Traustasonar sem væntanleg er í verslanir á mánudag. Enginn veit með vissu hver auðæfi Sonja Zorrilla skildi eftir sig en í bókinni „Ríkir Íslend- ingar“ voru auðæfi hennar metin á 9.500 milljónir króna. Stærstur hluti þess rennur í minningarsjóð- inn. Undirbúningur að stofnun sjóðsins stendur nú sem hæst en vart verður úthlutað úr sjóðnum fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Ekki er ætlunin að einstaklingar fái framlög úr sjóðnum heldur ein- göngu samtök hér og í Bandaríkj- unum. the@frettabladid.is SONJA ZORRILLA Skóp auðæfi sín á Wall Street og skildi eftir sig gríðarlega fjármuni. Í bókinni „Ríkir Ís- lendingar“ er talið að auðæfi hennar nemi 10,5 milljörðum króna. Þessir fjármunir verða nú nýttir í þágu langveikra barna hér og í Bandaríkjunum. Milljarða minningar- sjóður í þágu barna Ætlaður langveikum börnum hér og í Bandaríkjunum. Ennfremur ætlað til menntunar barna. Annar tveggja stjórnarmanna er frændi Sonju, Guðmundur á Núpum. Vart úthlutað úr sjóðnum fyrr en að liðnum tveimur til þremur árum. Sonja Zorrilla skóp auðæfi sín með verð- bréfavið- skiptum á hlutabréfa- markaðnum á Wall Street.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.