Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 23. október 2002 ERLENT BEIJING, AP Jiang Zemin, forseti Kína, hélt af stað til Bandaríkj- anna í gær. Hann ætlar að heim- sækja George W. Bush Banda- ríkjaforseta á búgarði hans í Crawford í Texas. Á föstudaginn ætlar hann svo að bregða sér til Mexíkó og taka þar þátt í leiðtoga- ráðstefnu Asíu- og Kyrrahafs- ríkja um efnahagsmál. Mannréttindasamtök hvetja Bush til þess að ræða um mann- réttindamál við Kínaforseta. Ólík- legt þykir þó að Bush geri það, vegna þess að honum er mikið í mun að Kínverjar samþykki ályktun gegn Írak í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þetta verður líklega síðasta embættisheimsókn Jiangs til Bandaríkjanna. Á flokksþingi kín- verska Kommúnistaflokksins í nóvember er búist við því að Ji- ang láti af embætti flokksleið- toga. Á næsta ári rennur svo kjör- tímabil hans í forsetaembættinu út. Búist er við að arftaki hans verði valinn á samkomu í mars. Arftaki Jiangs í embætti flokksleiðtoga verður að öllum líkindum Hu Jintao, sem nú er varaforseti Kína. Hu var meðal þeirra sem kvöddu Jiang er hann hélt frá Kína í gær.  Jiang Zemin bregður undir sig betri fætinum: Ætlar að heimsækja Bandaríkjaforseta ÞEGAR BUSH VAR Í KÍNA Vel fór á með þeim George W. Bush og Ji- ang Zemin þegar sá fyrrnefndi skrapp til Kína fyrir ári. AP /V IN C EN T YU Aðstoðarmaður dóms- málaráðherra: Stefnir á þingsæti PRÓFKJÖR „Ég hef tekið þessa ákvörðun ekki síst fyrir hvatningu félaga minna í Sambandi ungra sjálfstæðismanna, ég hef einnig fundið fyrir mikl- um stuðningi með- al margra sjálf- s t æ ð i s m a n n a , “ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, for- maður SUS. Hann gefur kost á sér í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. „Ég stefni á öruggt þingsæti og nefni töluna átta. Það er fjórða sætið í öðru hvoru kjördæm- inu.“ Ingvi Hrafn er aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. „Það hefur veitt mér innsýn í þingstörfin og góða þekkingu á því sviði sem ráðu- neytið fæst við. Ég hef þekkingu á því hvernig stjórnsýslan virkar og hvernig málin ganga fyrir sig í póli- tíkinni. Ég tel ótvírætt að það sé góð reynsla sem ég muni búa að.“ Ingvi Hrafn er þriðji sjálfstæð- ismaðurinn sem ekki á sæti á þingi til að lýsa yfir framboði. Áður hafa Stefanía Óskarsdóttir og Birgir Ár- mannsson lýst því yfir að þau setji stefnuna á sjötta sætið. Framboðs- frestur rennur út á morgun.  MAFÍÓSI DÆMDUR Luigi Faccher- ini hlaut í gær átta mánaða fang- elsisdóm í Frakklandi fyrir að vera með fölsuð skírteini. Faccherini, sem er 36 ára, er eftirlýstur á Ítal- íu sem mafíuforingi. FERJA SÖKK Ferja sökk á Kaspía- hafi í gær. Rúmlega fimmtíu manns voru um borð. Ferjan var á leið frá Kasakstan til Aserbaídjan. FRANSKUR BÓNDI SEKTAÐUR Hinn herskái franski bóndi Jose Bove hlaut í gær tæplega 270.000 króna sekt fyrir að eyðileggja uppskeru með erfðabreyttu korni. Bove hef- ur verið iðinn við að mótmæla skyndibitastöðum og líftækni. INGVI HRAFN ÓSKARSSON Berst fyrir grund- vallarsjónarmið- um Sjálfstæðis- flokksins en legg- ur áherslu á mál sem tengjast ungu fólki. Pantaðu jólamyndatökuna tímanlega. Gerðu verðsamanburð. Hjá okkur eru allar myndirnar sem þú færð í myndatökunni stækkaðar og fullunnar. Innifalið í myndatökunni: 12 stækkanir, 13x18cmn 2 stækk- anir 20x25 cm og ein stækkun 30x40 cm í ramma. Ljósmyndastofan Mynd sími 565 4207 • www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs sími : 554 3020 Passamyndatökur alla virka daga GLÆSIBÆR ÁLFHEIMAR Gallabuxur BERTY WASH tilboðsverð kr 3.990 Gallakjóll BERTY WASH tilboðsverð kr 5.900 Vesti tilboðsverð kr 3.990 KÍKIÐ ENDILEGA VIÐ Í DAG

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.