Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 23
Stundum er sagt að ekki séu lagðarmeiri byrðar á herðar nokkurs manns en hann getur borið. Slík stað- hæfing hefði hljómað eins og inni- haldslaus klisja þegar blákaldur hrammur veruleikans lagðist eins og mara yfir líf Jacqueline Pascarl. Hún missti börn sín í hendur ofstækisfulls múslíma, mannsins sem hún treysti, elskaði og ól þessi börn, mannsins sem reyndist úlfur í sauðargæru þeg- ar á hólminn var komið. Saga Jacqueline Pascarl er saga margra mæðra sem stöðugt berjast fyrir því að endurheimta börn sín úr lokuðum heimi. En saga hennar er þó jafnframt einstök, því eftir að hafa verið á barmi örvæntingar um langa hríð tók hún þá ákvörðun að með skelfilega lífsreynslu sína í fartesk- inu skyldi hún láta gott af sér leiða. Og hún hefur ekki setið við orðin tóm. Sjálf segir hún: „Starfssamning- ur minn sem móður fellur aldrei úr gildi og honum eru engin tímatak- mörk sett.“ Í himnaríki eða helvíti Jacqueline Pascarl er frá Ástralíu og hún átti erfiða ævi, ólst upp við kyn- ferðislega misnotkun og vanmátt þar til henni tókst að slíta sig undan of- urvaldi stjúpa síns. Og hún hélt að hún hefði himin höndum tekið þegar hún kynntist múslímska prinsinum Raja Bahrin Shah frá Malasíu sem var við nám í Ástralíu. Hann bar hana á höndum sér – lífið með hon- um var eins og klippt út úr ævintýra- bókum, rómantískir kvöldverðir, heilu bílfarmarnir af blómum, öll merkjavaran, Jacqueline kynntist nýjum heimi fjarri ógn bernskuár- anna. Hún var aðeins sautján ára, yfir sig ástfangin og hún fylgir hon- um í blindni til Malasíu þar sem þau giftust við hátíð- lega athöfn að viðstöddu fjöl- menni. Henni fannst hún svífa á rósrauðu skýi – Yasmin prinsessa eins og hún var nefnd. Brúðkaups- nóttin varð henni áfall, strax þá hrundi grím- an af drauma- prinsinum. Æv- intýrið var á enda, hún varð þræll eigin- manns síns, eign hans, í sífellu beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi. Í fjögur ár er hún fangi í heimi harðsnúinna múslíma, misnotuð og niðurlægð. Hún hafði eignast tvö börn, dreng og stúlku, og um leið og tækifæri gafst fór hún með þau til Ástralíu. Sloppin fyrir horn? Í sínum gömlu heimahögum tekst henni að skapa sér og börnunum nýja tilveru og lífið brosir við þeim á nýjan leik. Sjö ár líða og hún er viss um að hún er ekki bara sloppin fyrir horn – hún er orðin sjálfstæð og ör- ugg kona. Heimsóknir Bahrins til barnanna eru þó ávallt til ama – og það er ekki fyrr en allt er orðið um seinan að hún áttar sig á fyrirætlun- um hans. Einn góðan veðurdag árið 1992 nemur hann börnin á brott. Skelfing, hryllingur og vanmáttur heltekur líf móðurinnar sem eftir sit- ur – og enn þann dag í dag, tíu árum síðar, hefur hún ekki fengið að sjá þau. Vonin sem aldrei deyr Enda þótt þrotlaus bar- átta Jacqueline Pascarl hafi ekki orðið til þess að hún hafi náð endurfundum við börnin sín, sem nú eru orðin sautján og nítján ára, hefur hún gætt líf hennar ríkum tilgangi og hjálpað svo ótalmörgum öðr- um. Hún er sérlegur sendifulltrúi CARE International, sem eru ein stærstu h j á l p a r s a m t ö k heims, og er talsmað- ur þeirra um víða veröld. Hún hefur tekið þátt í hjálpar- starfi víða um heim, m.a. í Bosníu, Makedóníu, Austur- Tímor og í Afríku, og hlotið margvís- legar viðurkenning- ar fyrir störf sín að mannúðarmálum. Í bók sinni, Vonin deyr aldrei, segir hún á áhrifamikinn og einlægan hátt frá ævintýralegu lífi sínu, barnæsku sinni, árunum með konungsfjölskyld- unni í Malasíu og lífi sínu í Ástralíu. Jacqueline lifir nú í hamingjusömu hjónabandi og er búin að eignast aðra dóttur. Æðsta ósk hennar er sú að einn góðan veðurdag muni hún geta kynnt hana fyrir systkinum sín- um, og strokið þeim um vangann án þess að þau hverfi henni eins og í draumi. Hún sjálf er einfaldlega lifandi dæmi um þann boðskap sem hún flytur, að lífið sé verkefni sem taki sí- felldum breytingum, kjarkmikil kona sem vonandi fær að sjá drauma sína rætast. Draumurinn um ástina breyttist í martröð Hún þoldi kúgun og ofbeldi í framandi landi og mátti að lokum sjá á bak ungum börnum sínum. Oftast tók ég sjálf myndirnar af börn- unum mínum en hér er ég aldrei þessu vant með þeim á mynd í maí árið 1990. AUGLÝSING Afi Bahrins, soldáninn Ismail Nasiruddin Shah, stjórnaði fjöl- skyldu sinni með harðri hendi allt fram í andlátið. Þarna situr hann í hásæti ásamt eiginkonu sinni Tengku Ampuan Intan Zaharah (Omar). Þarna hefur Bahrin smurt sig andlitsmaska á meðan hann les blaðið. Þessi mynd var notuð á kápu ensku útgáfu bókarinnar – og hinnar íslensku einnig.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.