Fréttablaðið - 23.10.2002, Page 2
2 23. október 2002 MIÐVIKUDAGUR
STÓRBRUNINN Lögregla telur víst að
íkveikja hafi valdið brunanum að
Laugavegi á laugardagskvöld.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að eldur hafi verið laus á fleiri en
einum stað þegar fyrstu menn
komu á brunastað. Einn maður sit-
ur í gæsluvarðhaldi vegna máls-
ins, Lalli Johns, og er hann grun-
aður um að vera valdur að brun-
anum. Lögregla getur ekki útilok-
að að fleiri tengist málinu. Hörður
Jóhannesson yfirlögregluþjónn
vill ekki staðfesta þetta og segir
of snemmt að segja til um hvort
fleiri hafi verið að verki.
Rannsókn er ekki lokið á
brunastað og því ekki hægt að
segja um hvort upptök eldsins
hafi verið á tveimur stöðum eða
fleiri. Eldurinn varð laus við bak-
hús. Snemma varð hann það mikill
að ógerningur var fyrir slökkvi-
liðið að komast að eldinum þeim
megin frá. Byggingar í garðinum
voru í ljósum logum og féllu
brennandi að hluta á þá einu leið
sem venjulega er fær í bakgarð-
inn. „Mannslíf eru mikilvægust.
Að því einbeittum við okkur í
starfi okkar,“ sagði Jón Viðar
Matthíasson aðstoðarslökkviliðs-
stjóri. Hann segir eldinn hafa
magnast hratt. Jón Viðar segir
skil milli húsanna ekki skýr. Í
framhaldi verði bakhús og við-
byggingar í eldri hverfum borgar-
innar skoðuð. Hann segir mörg
húsa ekki samrýmast reglugerð-
um.
Stórbruninn á Laugaveginum:
Allt bendir til íkveikju
BRUNARÚSTIR
Tjón af völdum eldsvoðans er mikið. Nú
verður kannað hvort fleiri eldgildrur eru í
eldri hverfum borgarinnar.
ÖRORKA „Það er ekki alveg einfalt
að skýra hverjar ástæðurnar eru
en á síðasta ári gerðum við rann-
sókn á þessu. Við gerðum saman-
burð á árunum 1976 og 1996. Ef
miðað er við fjölgun fólks á aldr-
inum 16-66 ára þá var ekki um
fjölgun á öryrkjum að ræða á
þessu tímabili,“ segir Sigurður
Thorlacius tryggingayfirlæknir.
Hann segir öryrkjum hafa fjölg-
að eftir breytingu á örorkumati
1999.
„Ástæðuna teljum við vera að
nú er hætt að líta til tekna öryrkja
við örorkumat. Eftir breytinguna
var einungis litið til færni við-
komandi en ekki lengur til tekna
við mat á örorku.“
Sigurður telur að fjölgun ör-
yrkja sé væntanlega vegna þeirra
breytinga sem gerðar voru. „Það
þýðir ekki endilega að allir sem
metnir eru öryrkjar séu á bótum
frá TR.“
Í skýrslu sem nefnd um sveigj-
anleg starfslok vann fyrir forsæt-
isráðuneytið er komið inn á fjölgun
öryrkja síðustu ár. Þar eru til-
greindar nokkrar ástæður fyrir
þeirri aukningu. Meðal annars er
þess getið að aldurssamsetning
þjóðarinnar breytist nú hratt og
tíðni örorku sé mun meiri því eldri
sem þjóðin sé. Í skýrslunni kemur
fram að öryrkjar eru færri hér en
á hinum Norðurlöndunum. Í Finn-
landi eru 3.5 sinnum fleiri öryrkjar
á aldrinum 60-64 ára og 2.5 sinnum
fleiri í Noregi og Svíþjóð.
Sigurður Thorlacius tryggingayfirlæknir:
Fleiri öryrkjar á
öðrum Norðurlöndum
ÖRYRKJAR Á NORÐURLÖNDUM
Svo virðist sem þessar þjóðir noti örorku-
bætur í ríkum mæli til að hverfa fyrr af
vinnumarkaði enda eru bætur í þessum
löndum mun ríflegri en hér.
Veitingahúsið
Kaupfélagið:
Leyfi
afturkallað
SKIPULAGSMÁL Úrskurðarnefnd
skipulags- og byggingarmála hefur
fellt úr gildi ákvörðun byggingar-
fulltrúans í Reykjavík sem í nóv-
ember síðastliðnum veitti bygg-
ingaleyfi fyrir breyttri starfsemi
og breyttu fyrirkomulagi á 1. hæð
og í kjallara að Laugavegi 3. Áður
var bankastarfsemi í húsinu en í
nóvember síðastliðnum voru breyt-
ingar heimilaðar á húsnæðinu og
hefur síðan verið rekinn þar veit-
ingastaðurinn Kaupfélagið.
Kröfu nágranna um afturköllun
leyfisins var hafnað af skipulags-
og bygginganefnd Reykjavíkur og
var málinu vísað til úrskurðar-
nefndarinnar. Kvartað var undan
hávaða frá veitingastaðnum og enn-
fremur því að formreglur skipu-
lags- og byggingarlaga hefðu verið
brotnar, þar sem ekki fór fram
grenndarkynning. Félagsíbúðir iðn-
nema, sem eiga 3 íbúðir í áföstu
húsi, töldu hávaðamengun svo
mikla að ekki væri búandi í íbúðun-
um. Þær hafa ekki verið í útleigu
undanfarið ár.
Úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála telur að meðferð
borgaryfirvalda hafi verið áfátt í
málinu. Ákvörðun um að heimila
breytingar hafi í upphafi ekki verið
reist á lögmætum grundvelli og
málsrannsókn verið áfátt. Þá hafi
ákvörðunin ekki getað átt sér stoð í
deiliskipulagi svæðisins að
óbreyttu. Eigendur Kaupfélagsins
sögðust í gær vera að fara yfir úr-
skurðinn með lögfræðingum en
vildu að öðru leyti ekki tjá sig.
BANDARÍKIN Lögreglan í Bandaríkj-
unum hefur að minnsta kosti tvis-
var sinnum fengið upphringingu
frá leyniskyttunni sem myrt hefur
tíu manns og sært þrjá í Was-
hington og nágrenni. Lögreglan
vill endilega heyra meira frá hon-
um, enda er vonast til þess að hann
veiti henni með því upplýsingar
sem leitt geta til handtöku hans.
Snemma í gærmorgun varð
strætisvagnastjóri um fertugt
fyrir skoti í maga og lést nokkru
síðar á sjúkrahúsi. Þetta gerðist í
bænum Silver Spring í Maryland,
skammt norður af Washington.
Strætisvagnastjórinn stóð í
vagndyrunum á endastöð leiðar-
innar þegar skotið reið af skömmu
fyrir klukkan sex að staðartíma.
Þetta var ekki langt frá þeim stað
þar sem leyniskyttan hleypti
fyrsta skotinu af í byrjun október.
Enginn varð fyrir því skoti, en
næstu tvo daga myrti hann fimm
manns á svipuðum slóðum.
Vangaveltur hafa verið í
bandarískum fjölmiðlum um það
hvað morðingjanum gangi til með
því að tala við lögregluna. Haft er
eftir sérfræðingum að yfirleitt sé
tilgangur slíkra samskipta annað
hvort að gera lítið úr lögreglunni
eða að koma því til skila hve
morðinginn telur sig kláran og
yfir aðra hafinn.
Í dagblaðinu Washington Post
er því haldið fram að bréfið sem
fannst á laugardaginn sé að
minnsta kosti þriggja blaðsíðna
langt. Þar segir einnig að karl-
mannsrödd í símanum hafi að
minnsta kosti einu sinni sagt: „Ég
er guð.“
Heimildarmenn CNN-sjón-
varpsstöðvarinnar segja að í
bréfinu sem fannst á laugardag-
inn hafi morðinginn krafist þess
að fá afhenta peninga. Hann hafi
einnig sett lögreglunni tímamörk
og hótað fleiri morðum ef ekki
yrði farið eftir þeim.
Lögreglan hefur ekkert sagt
opinberlega um samtöl sín við
morðingjann. Charles Moose,
lögreglustjóri í Montgomery-
sýslu, hefur þó þrisvar komið
fram í sjónvarpi með orðsend-
ingar til morðingjans frá því á
laugardaginn, en ekki viljað út-
skýra nánar hvað um væri að
ræða. Hann hefur ekki viljað
segja annað en að sá sem orð-
sendingarnar séu ætlaðar eigi að
skilja þær.
gudsteinn@frettabladid.is
Strætisvagnastjóri
myrtur í Maryland
Þrettánda fórnarlambið varð fyrir skoti leyniskyttunnar í gærmorgun.
Lögreglan hefur verið í sambandi við morðingjann og bíður eftir fleiri
símhringingum. Hann biður um peninga og hótar fleiri morðum.
AP
/E
VA
N
V
U
C
C
I
Á VETTVANGI MORÐSINS
Lögreglurannsókn í fullum gangi skammt norður af Washington þar sem strætisvagna-
stjóri var myrtur á endastöð.
Faðir fórnarlambs:
Óskar svara
hjá ráðherra
SKERJAFJARÐARSLYSIÐ Jón Ólafur
Skarphéðinsson vill að samgöngu-
ráðherra svari því hvaða erindi Ís-
leifur Ottesen, eigandi flugvélar-
innar sem fórst, hafi átt á skrif-
stofu Rannsóknarnefndar flugslysa
í fyrradag, rétt eftir að í hámæli
hafi komist að tekist hefði að finna
kaupanda mótorsins sem var í vél-
inni við brotlendinguna. Jón Ólafur
sendi ráðherra bréf með fyrir-
spurninni í gær. Upplýsingar kaup-
anda mótorsins stangast í veiga-
miklum atriðum á við það sem RNF
sagði um hann. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra svaraði ekki
skilaboðum Fréttablaðsins í gær.
Í hvaða kjördæmi býður þú
þig fram?
Ég er Reykjavíkurþingmaður. Ég hef sagt að
ég gefi kost á mér í Reykjavíkurkjördæmi
suður. Í næstu viku verður kjördæmisþing
hjá framsóknarmönnum og þá verður tekin
ákvörðun um hvernig staðið verður að
framboðsmálum. Sjálf er ég kjósandi í því
kjördæmi.
Jónína Bjartmarz er 16. þingmaður Reykvíkinga.
Kjördæmavika er á Alþingi. Þingmenn Reykjavíkur
eru margir hverjir ekki vissir um í hvaða kjördæmi
þeir verða í framboði.
SPURNING DAGSINS
Aðgerðir gegn Atlants-
skipum:
Uppskipun
hindruð
KJARMÁL „Krafan okkar er sem
fyrr íslenska kjarasamninga um
borð. Nú er áhöfn skipsins samn-
ingslaus. Það var þýskur samning-
ur í gildi á skipinu en honum var
sagt upp í sumar og okkur afhent
samningsumboðið,“ sagði Birgir
Björgvinsson á sjöunda tímanum í
gærkvöldi. Hann var þá mættur á
kajann í Njarðvík ásamt fjölda fé-
laga úr Sjómannafélagi Reykjavík-
ur og Verkalýðs- og sjómannafé-
lagi Keflavíkur til að hindra upp-
skipun úr Bremer Uranusi, einu
þriggja leiguskipa Atlantsskipa,
sem var að leggjast að. Um borð er
hollenskur skipstjóri en aðrir í
áhöfn eru Rússar.
Birgir sagði ekki loku fyrir það
skotið að Atlantsskip leituðu ásjár
sýslumannsins í Keflavík og færu
fram á lögbann vegna aðgerðanna,
það hefði verið gert áður.
Forsætisráðherra mis-
líkaði blaðagrein:
Hallgrímur
á teppið
FUNDUR Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra kallaði Hallgrím Helga-
son rithöfund á sinn fund eftir að
grein eftir hinn síðarnefnda
birtist í Morgunblaðinu undir
heitinu Baugur og bláa höndin.
Mislíkaði forsætisráðherra grein-
in og sendi Hallgrími þegar í stað
tölvupóst með skilaboðum um að
mæta í Stjórnarráðið:
„Fundurinn stóð í um það bil
klukkustund og við Davíð skipt-
umst á skoðunum,“ segir Hall-
grímur. „Nei, ég lofaði honum
ekki að hætta að skrifa greinar
sem þessar enda þarf ég þess
ekki. Ég veit ekki hvort við skild-
um sáttir,“ segir Hallgrímur
Helgason, sem vill að öðru leyti
ekki tjá sig um viðræðurnar.
KAUPFÉLAGIÐ
Nágrannar veitingastaðarins sættu sig ekki
við að banka væri breytt í bar.