Fréttablaðið - 23.10.2002, Síða 16

Fréttablaðið - 23.10.2002, Síða 16
16 23. október 2002 MIÐVIKUDAGUR STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6 PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4 MR. DEEDS kl. 5.50, 8 og 10.10 WINDTALKERS kl. 8 og 10.50 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 kl. 5,40, 8 og 10.20SECRETS OF YAYA... kl. 8.30PAM OG NÓI... kl. 10 THE GURU kl. 6 MAÐUR EINS OG ÉG THE BOURNE IDENTITY kl. 6 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 10 LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 3.50 VIT429 INSOMNIA kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT444 HAFIÐ kl. 4 og 6 VIT 433 SIGNS kl. 8 og 10.10 VIT427 MAX KLEEBLE´S... kl. 4 og 6 VIT441 BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.10 VIT427 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT 455 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 457 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 458 KVIKMYND Stundum fer maður í bíó meðhálfum huga og ég verð að við- urkenna að ég var þannig stemmdur þegar ég fór að sjá Val Kilmer í Saltonsjó. Ég vissi fyrir að myndin fjallaði um mann sem dvelst meðal fíkniefnaneytenda til að finna morðingja konu sinn- ar. Fannst þetta einhvern veginn dáldið þreytt. En fordómar eru heimskulegir. Saltonsjór er prýði- leg mynd, frábærlega vel leikin (Val Kilmer, Vincent D´Onofrio o.fl.), leikstýrt af mikilli vinnu- gleði (D.J. Caruso) og byggð á flottu handriti (Tony Gayton). Söguþráðurinn er kannski svolít- ið lúinn, en í myndinni er sagan sögð af mikilli hugkvæmni svo að maður getur aldrei getið sér til hvaða atriði kemur næst. Það má mikið vera ef Vincent D´Onofrio fær ekki Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki, en hann kemur þarna fram sem hinn geð- veiki eiturlyfjasali Bangsímon, sem er talsvert erfiðari persónu- leiki heldur en nafni hans í barna- bókinni. Þetta er pottþétt glæpa- spennuhasarmynd, á köflum bæði ofbeldisfull og viðbjóðsleg, en inn á milli er að finna mann- eskjuleg atriði, einsemd, hlýju, angurværð og jafnvel soldinn húmor. Þráinn Bertelsson SALTON SEA (SALTONSJÓR): Aðalhlutverk: Val Kilmer, Vincent D´Onofrio, Adam Goldberg, Doug Hutchi- son, Anthony LaPaglia Handrit: Tony Gayton Leikstjórn: D.J. Caruso Bangsímon fær sér í nefið TÓNLIST Kúbakóla heitir fyrsta breið-skífa hljómsveitarinnar Búdrýginda sem sigraði í Mús- íktilraunum fyrr á árinu. Þetta er greinilega efnileg hljómsveit því Kúbakóla er bráðskemmti- leg skífa. Þarna eru fjölmörg fersk rokklög með skondnum textum, sem stundum eru þó ekki sérlega inninhaldsríkir. Lögin eru samanbræðingur úr mörgum rokk- og pönksveitum og minnir „Gangsta Man“ til að mynda mikið á Rage Against the Machine. Hljómurinn á skífunn- ni er hrár og þó svo að rödd söngvarans sé enn ómótuð kem- ur hún samt ágætlega út. Lagaheitin bera vott um mik- ið hugmyndaflug hljómsveitar- innar, samanber lögin „Buffuð bein í bernesósu“, „Krabbadjús á Kanarí“ og „Krókódíla kúrbít- ur“, sem jafnframt er eitt besta lag skífunnar. Þar skiptast á létt laglína og öskur að hætti Sy- stem of a Down, stórskemmtileg blanda. Þegar strákarnir í Búdrýg- indum verða búnir að fínpússa hljóminn og prufa sig betur áfram eiga þeir tvímælalaust eftir að gera enn betri hluti í framtíðinni. Freyr Bjarnason BÚDRÝGINDI: Kúbakóla Ferskir íslenskir rokkarar kl. 5.45, 8 og 10.15HAFIÐ kl. 8FÁLKAR LEIKHÚS Mig hefur dreymt um að fá að setja þetta verk upp á Ís- landi í tíu ár,“ segir Felix Bergs- son leikari, sem í kvöld stígur á svið í Vesturporti á frumsýningu leikritsins Kvetch eftir Steven Berkoff. „Þetta er einfaldlega alveg brjálaður farsi fyrir nú- tímafólk. Kvetch er jiddíska sem þýðir í rauninni það sem kremur mann eða kreistir, ang- istin sem við búum öll yfir. Verk- ið fjallar um venjulegt fólk sem er orðið gjörsamlega klemmt af þessum kvetsum og það í raun- inni stígur út úr sjálfu sér í venjulegum aðstæðum og talar hinar raunverulegu hugsanir. Úr þessu verður alveg drepfyndin blanda.“ Felix segir að leikritið snerti við fólki þannig að það nánast skammist sín fyrir að hlæja, en geti samt ekki annað. „Það er auðvitað af því maður þekkir sjálfan sig í þessu.“ Felix fékk styrk úr leiklistar- ráði til að setja sýninguna upp og segist hafa náð að safna saman einvalaliði til að taka þátt í grín- inu. „Steinn Ármann Magnússon og Edda Heiðrún Backman eru til dæmis í aðalhlutverkum og Stef- án Jónsson leikstýrir.“ Felix las leikritið fyrst þegar hann var í leiklistarnámi í Skotlandi árið 1989, en sá það ekki á sviði fyrr en í Frakklandi í fyrra. „Þegar Vesturport kom svo upp var ég akkúrat kominn með stað fyrir þessa sýningu.“ Þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir Steven Berkoff er sýnt hér á landi, en Berkoff, sem er Breti, er mjög þekktur leikhús- maður. „Hann lék vonda kallinn í Rambo,“ segir Felix, „og í leik- húsinu er hann uppreisnarsegg- ur sem hefur vakið athygli fyrir að fara algjörlega eigin leiðir. Hann er af mörgum talinn einn besti og frumlegasti leikhús- listamaður í heiminum.“ edda@frettabladid.is ABSÚRD VERULEIKI Í VESTURPORTI Edda Heiðrún Backman í hlutverki Donnu. Leikritið Kvetch er fyndið á sama tíma og það er skerandi sorglegt. Leikritið Kvetch eftir Steven Berkoff verður frumsýnt í Vesturporti í kvöld. Það fjallar meðal annars um hjónin Frank og Donnu, sem eiga fátt sameiginlegt nema endalausa angist og hræðslu við hvort annað og umhverfið. Áttunda breiðskífa söngkon-unnar Mariah Carey, „Charm- bracelet,“ kemur út þann 10. des- ember næstkom- andi. Skífan verð- ur sú fyrsta sem kemur út undir merkjum Mon- arC, sem Carey stofnaði ásamt Is- land útgáfufyrir- tækinu eftir að hafa verið sagt upp hjá Virgin. Tveir unglingar voru stungnir íGlasgow fyrir skömmu er þeir biðu eftir að komast á tónleika með rokkurunum í Queens of the Stone Age. Sautján ára gamall piltur hefur verið handtekinn í tengslum við málið. Unglingarnir tveir hlutu minniháttar meiðsl. Moby ætlar að gefa aðdáend-um sínum kost á að leikstýra nýjasta tónlistarmyndbandinu sínu. Allir þeir sem hafa áhuga á verkefninu geta sent sína mynd- bandsútgáfu af einhverju laganna af breiðskífunni „18,“ sem Moby gaf út fyrir skömmu. Sigurvegar- inn fær um 700 þúsund krónur til að búa til tónlistarmyndband í fullri lengd fyrir Moby. Plötusnúðurinn Fatboy Slim seg-ir að nýjasta breiðskífa Blur hljómi meira eins og The Clash heldur en dans- plata. Slim, sem heitir réttu nafni Norman Cook, dvaldi nýverið í Marokkó við upp- tökur á skífunni, sem kemur út snemma á næsta ári. „Ég er ekki búinn að breyta þeim í danshljóm- sveit. Við höfum skemmt okkur konunglega. Það eina sem ég get sagt er að skífan hljómar meira eins og The Clash á góðum degi,“ sagði Íslandsvinurinn. FRÉTTIR AF FÓLKI Drepfyndin angist í firrtum heimi M YN D /Á R N I T O R FA SO N

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.