Fréttablaðið - 23.10.2002, Blaðsíða 17
17MIÐVIKUDAGUR 23. október 2002
XXX kl. 8
KUNG FU SOCCER kl. 10.30 HABLE CON ELLA kl. 8 og 10.10
Sýnd kl. 8 og 10
Sýnd kl. 8.30 og 10.20
SÍMI 553 2075
AUSTIN POWERS kl. 8 og 10
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 6
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 6, 8 og 10
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 4 VIT429
SERVING SARA kl. 8.10 og 10.15 VIT435
MAX KEEBLE’S kl. 4 og 6 VIT441
Sýnd kl. 6.15, 8 og 10.15 VIT 453
Sýnd kl. 4, 5.45, 8 og 10.15 VIT 460
MIÐVIKUDAGUR
23. OKTÓBER
12.00 Sigurlína Davíðsdóttir kynnir
rannsóknarniðurstöður sínar um
Líðan fíkla í málstofu uppeldis-
og menntunarfræðiskorar sem
haldin verður í Odda, stofu 101.
Sigurlína stendur að rannsókn í
samvinnu við Heilsustofnun NLFÍ,
þar sem þetta efni var skoðað.
12.05 Ingibjörg Sigurjónsdóttir, cand.
psych., flytur erindið Lestur
barna í 1. til 4. bekk og tengsl
hans við Ravens-greindarprófið.
í málstofu sálfræðiskorar. Málstof-
an er haldin í stofu 201 í Odda
og er öllum opin.
12.30 Graci Moore, tískuhönnuður frá
Bandaríkjunum, flytur fyrirlestur
um tískuhönnun í stofu 113 í
Listaháskóla Íslands, Skipholti 1.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og nefnist Louis Vuitton-
Fabric Design.
16.00 Helgi Tómasson dósent flytur er-
indi er hann nefnir Notkun á
stokastískum diffurjöfnum við
líkanagerð fyrir strjál viðskipti á
fjármagnsmörkuðum í málstofu
viðskipta- og hagfræðideildar HÍ.
Málstofan fer fram í húsnæði
Hagfræðistofnunar að Aragötu 14
og er öllum opin og enginn að-
gangseyrir.
16.15 Babette Brown félagsfræðingur
og kennari heldur kynningu um
fordóma og viðhorf kennara og
barna svo og um mikilvægt
hlutverk kennara í því að hafa
áhrif á sjálfsmynd barna á veg-
um Rannsóknarstofnunar KHÍ.
Kynningin verður haldin í sal 1 í
nýbyggingu Kennaraháskóla Ís-
lands við Stakkahlíð og er öllum
opin.
20.00 Ungir Vinstri-Grænir efna til op-
ins fundar um málefni aldraðra
og nýbúa á Íslandi á Hótel Loft-
leiðum, í þingsal 8. Allir velkomn-
ir, ungir sem aldnir.
20.30 Félag íslenskra fræða heldur
rannsóknakvöld í Sögufélagshús-
inu, Fischersundi 3. Fyrirlesari
verður Lára Magnúsardóttir
sagnfræðingur og erindi hennar
nefnist: Veraldlegt og andlegt
vald á miðöldum. Lára fjallar um
samband ríkis og kirkju á Íslandi
á miðöldum, einkum á síðmið-
öldum.
20.00 Nafnlausi leikhópurinn og Smell-
arar í Hana-nú standa fyrir nám-
skeiði um sögu leiklistar. Nám-
skeiðið fer fram í Gjábakka, Fann-
borg 8.
DANS
20.00 Dansþytur, fjölbreytt skemmti-
atriði úr dansskólum borgarinnar,
verður í Tjarnarbíói. Skemmtunin
er hluti af Unglist.
LEIKSÝNINGAR
Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur er sýnt
í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Uppselt.
SÝNINGAR
Kakklamyndir hughrif úr íslenskri nátt-
úru nefnist sýning sem Bjarni Sigurðs-
son heldur í Gallerí Fold, Rauðarárstíg
14-16. Sýningin stendur til 4. nóvem-
ber.
Marisa Navarro Arason sýnir ljós-
myndir í Ljósfold, Gallerí Fold, Rauðar-
árstíg. Sýninguna nefnir hún Quo Vad-
is? Sýningunni lýkur 4. nóvember.
Listmálarinn Steinn Sigurðsson sýnir á
Kaffi Sólon. Sýningin er opin á opnun-
artíma Sólon og stendur til 8. nóvem-
ber.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misok-
ilis sýna ljósmyndir sínar á Kaffi
Mokka. Sýningin heitir „Orbital Reflect-
ions“. Allir eru velkomnir.
TÓNLIST Það var rokksveitin
Radiohead sem hirti eftir-
sóttasta verðlaunagripinn
á Q-verðlaunahátíðinni í ár.
Lesendur blaðsins völdu
sveitina sem „það besta í
tónlist í dag“, annað árið í
röð. Þetta kom ansi flatt
upp á marga, sérstaklega í
ljósi þess að sveitin sendi
ekkert nýtt efni frá sér á
árinu.
Brúnir Gallagher-
bræðra voru óvenju þung-
ar þetta kvöld þar sem
sveitin tapaði í öllum þeim
flokkum sem hún var til-
nefnd í. Einstaklega leiðin-
legt fyrir þá, þar sem
sveitin fékk flestar tilnefn-
ingar í ár.
Gary Numan hefur lík-
legast hoppað hæð sína
þegar smáskífa stúlknanna
í Sugarbabes, „Freak Like
Me“, var valin sú besta á
árinu. Lag þeirra er nefni-
lega að stórum hluta byggt
upp á lagi hans „Are Friends El-
ectric?“.
Það ætti ekki að koma neinum
þeim sem lagði leið sína í Laugar-
dalshöll á laugardagskvöldið að
The Hives hafi fengið verðlaunin
sem „besta tónleikabandið“.
Íslandsvinirnir í Coldplay
unnu svo sigur yfir Doves, Beth
Orton, Red Hot Chili Peppers og
The Vines þegar þeir unnu verð-
launin fyrir „bestu breiðskíf-
una“. Þeir hafa þá fengið þessi
verðlaun fyrir báðar breiðskífur
sínar því „Parachutes“ var valin
besta plata ársins 2000 af lesend-
um blaðsins.
ÚRSLIT Q-VERÐLAUNANNA 2002:
Nýliðaverðlaunin: Electric Soft Parade
Heiðursverðlaunin: Tom Jones
Besta smáskífan: Sugababes, „Freak Like Me“
Besta myndbandið: Pink, „Get The Party Started“
Besta upptökustjórn: Moby
Nýbreytniverðlaun Q: Depeche Mode
Besta tónleikabandið: The Hives
Besta breiðskífan: Coldplay, „A Rush of Blood to the Head“
Q áhrifavalda verðlaunin: Echo And The Bunnymen
Q heiðursverðlaun lagahöfunda: Jimmy Cliff
Það besta í tónlist í dag: Radiohead
Q-verðlaunin:
Radiohead enn
bestir þrátt fyrir
aðgerðaleysi
THOM YORKE
Þarf ekki að gera mikið til þess að hljóta
verðlaun.
Sprengitilboð
Hver var
að tala um
að fiskur
væri dýr?
Þú kaupir
1 kíló af ýsu-
flökum og færð
annað frítt
Fiskbúðin okkar
Smiðjuvegi, Álfheimum
og Lækjargötu Hafnarfirði