Fréttablaðið - 30.10.2002, Blaðsíða 1
bls. 16
FÍKNIEFNI
Berst gegn
handrukkurum
bls. 4
MIÐVIKUDAGUR
bls. 12
214. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 30. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 12
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Aðalfundur LÍÚ
FUNDUR Aðalfundur Landssamband
íslenskra útgerðarmanna hefst á
Grand Hóteli klukkan 14. Árna M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
flytur ávarp og Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ,
mun fjalla um tilfærslu aflaheim-
ilda til smábáta. Fundinum lýkur á
morgun.
Rússland og SÞ
FYRIRLESTUR Yuri Reshetov, fyrrver-
andi sendiherra Rússlands á Ís-
landi, flytur fyrirlestur um Rúss-
land og Sameinuðu þjóðirnar í Lög-
bergi klukkan 12.15. Reshetov, sem
er varaformaður Félags Sameinuðu
þjóðanna í Rússlandi, mun flytja
fyrirlesturinn á íslensku og svara
fyrirspurnum.
Utanríkisverslun
TÖLUR Hagstofan birtir tölur um ut-
anríkisverslun frá janúar til sept-
ember.
Ísland mætir
Þýskalandi
ÍÞRÓTTIR Íslenska landsliðið mætir
Þjóðverjum á heimsbikarmótinu í
handbolta í kvöld. Þrír leikir fara
fram í 1. deild kvenna í körfubolta.
Haukar mæta Grindavík klukkan
18.30 á Ásvöllum, KR tekur á móti
Keflavík í KR-húsinu og Njarðvík
mætir ÍS á heimavelli.
MENNTUN
Hláturinn
lengir lífið
ÍÞRÓTTIR
Úr leik í
fimm vikur
Byggðu á þínum tíma
Grafarvogi
Vestur í bæ
Kópavogi
Ármúla
STJÓRNMÁL Pétur Rafnsson, verk-
efnisstjóri hjá Ferðamálaráði, er
kosningastjóri Sturlu Böðvarsson-
ar, samgöngu - og ferðamálaráð-
herra, í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í nýju Norðvesturkjör-
dæmi. Einar K. Guðfinnsson, for-
maður Ferðamálaráðs, sækist eft-
ir öðru sætinu á listanum og er
þar í bandlagi með samgönguráð-
herra sem vill það fyrsta.
„Ég vinn eingöngu fyrir Sturlu
og nota restina af sumarfríinu
mínu til þess,“ segir Pétur Rafns-
son og neitar því að hann vinni
einnig fyrir Einar K. Guðfinnsson,
stjórnarformann Ferðamálaráðs.
Sjálfstæðismenn eiga þrjú
þingssæti vís í Norðvesturkjör-
dæminu en þingmennirnir eru
fimm sem keppa um þau: „Það er
ljóst að fimm þingmenn komast
ekki fyrir í þremur sætum,“ segir
kosningastjóri ráðherrans.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum stefnir bandalag
Sturlu Böðvarssonar og Einars K.
Guðfinnssonar að því að þeir tveir
skipi tvö efstu sætin á listanum,
Guðjón Guðmundsson alþingis-
maður það þriðja og Birna Lárus-
dóttir á Ísafirði það fjórða. Þing-
mönnunum Einari Oddi Kristjáns-
syni og Vilhjálmi Egilssyni yrði
þar með fórnað í fléttunni.
„Þessir menn verða að haga sér
eins og þeir hafa skap til. Ég hef
tekið þátt í mörgum prófkjörum
og veit að svona bandalög eru að-
eins ávísun á óheilindi,“ segir Ein-
ar Oddur Kristjánsson. „En það er
verið að reyna þetta,“ segir hann.
Vilhjálmur Egilsson tekur í
sama streng og Einar Oddur: „Ég
hef heyrt af þessu bandalagi en
trúi því ekki að kjósendur láti
segja sér fyrir verkum á þennan
hátt. Ég hef enga trú á því að þetta
virki þó ákveðinn hópur sé að
vinna í því,“ segir Vilhjálmur Eg-
ilsson sem berst áfram og segist
ekki finna fyrir öðru en velvild í
sinn garð í nýju kjördæmi.
eir@frettabladid.is
PÓSTBOX Ákveðið hefur verið að
loka öllum pósthólfum í pósthúsi
Íslandspósts í Pósthússtræti um
áramót. Hefur leigjendum póst-
hólfa verið tilkynnt þetta með
bréfi sem lagt var í öll pósthólf
fyrir skemmstu. Þykir mörgum
notendum missir af.
Pósthóflin hafa verið í pósthús-
inu í Pósthússtræti um áratuga-
skeið og voru eftirsótt á árum
áður þegar viðskiptamenn í mið-
bænum sóttu þangað allan sinn
póst. Á síðari árum hefur eftir-
spurn eftir pósthólfunum þó
minnkað og er nú svo komið að
ekki þykir þörf á að hald þeim úti
lengur. Viðskiptavinir geta þó enn
um sinn fengið póst sinn sendan á
pósthúsið en verða þá að sækja
hann í afgreiðslu í bland við aðra
viðskiptavini póstsins. Alls eru
1780 númer skráð á pósthólfum í
pósthúsinu við Pósthússtræti en
þar af mun aðeins liðlega helm-
ingur vera í útleigu. Leiga á póst-
hólfi í pósthúsinu við Pósthús-
stræti kostar 2.800 krónur á ári.
Íslandspóstur:
Pósthólfum verður lokað í 101
KULDALEGT Í REYKJAVÍK Veturinn hefur aðeins gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga, þó snjó hafi ekki fest. Mikil hálka
hefur verið á götum og fjölmargir ökumenn lent í árekstrum þess vegna. Veðurstofan spáir björtu veðri á morgun og á hiti að vera yfir
frostmarki.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Kona á læknavakt:
Fangelsi fyrir
fjárdrátt
DÓMSMÁL Kona sem starfaði sem
skrifstofustjóri á Læknavaktinni í
Kópavogi hefur verið dæmd í 14
mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt.
Hún á að greiða Læknavaktinni og
Læknabílum samtals 14,5 milljónir
króna.
Konan bar að hún hefði verið
þunglynd og notað féð „í óstjórn-
lega eyðslu“ til eigin þarfa og til að
gleðja þrjú börn sín og „kaupa“
vináttu annarra.
Féð dró konan sér á einu og
hálfu ári. Hún játaði fjárdráttinn
en sagðist ekki hafa litið á hann
sem brot heldur sem afleiðingu
veikinda sinna. Á þetta féllst dóm-
urinn ekki.
Vinna gegn Einari
Oddi og Vilhjálmi
Ferðamálaráðherra og stjórnarformaður Ferðamálaráðs í kosningabandalagi í Norðvesturkjör-
dæmi. Starfsmaður ráðsins kosningastjóri ráðherrans. Bandalag um að fórna tveimur þingmönn-
um. Einar Oddur Kristjánsson segir bandalagið ávísun á óheilindi. Vilhjálmur Egilsson berst.
+
REYKJAVÍK Norðan 5-8 m/s og
bjart veður.
Hiti 0-4 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 2
Akureyri 8-13 Slydduél 3
Egilsstaðir 8-13 Slydduél 3
Vestmannaeyjar 5-8 Bjart 2
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
STURLA
BÖÐVASSON
Vill fyrsta sætið.
EINAR K.
GUÐFINSSON
Sáttur við 2. sætið.
VILHJÁLMUR
EGILSSON
Ekki trú á fléttunni.
EINAR ODDUR
KRISTJÁNSSON
Ávísun á óheilindi.
PÓSTHÓLF
Heyra brátt sögunni til.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
46%
75%