Fréttablaðið - 30.10.2002, Síða 13

Fréttablaðið - 30.10.2002, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 30. október 2002 BOLTINN FORMÚLA Mörg stærstu nöfnin í Formúlu 1 kappakstrinum eru ánægð með breytingarnar á íþróttinni sem samþykktar voru á mánudag. Niki Lauda, yfirmaður Jagúar liðsins, segist ánægðastur með þá breytingu að lið geti ekki lengur gefið liðsfyrirmæli til að hagræða úrslitum. Það fór fyrir brjóstið á mörgum á síðasta keppnistímabili hvernig Ferrari hagræddi úrslitum til að tryggja sér sigur í keppni bílasmiða. Gerhard Berger, yfirmaður BMW, segist ánægður með að ekki hafi verið tekin upp þyngd- arforgjöf líkt og hugmyndir voru uppi um. Ef sú forgjöf hefði verið samþykkt hefðu bílar verið þyngdir í samræmi við unnin stig. „Mér líst ágætlega á breyting- arnar en við þurfum að sjá hvern- ig þær virka,“ sagði Berger. „Nýja stigagjöfin virðist góð, fleiri lið eiga möguleika á að krækja sér í stig.“ Samkvæmt breytingunum verður ný stigagjöf tekin upp og verða gefin stig fyrir fyrstu átta sætin. Fyrsta sætið gefur tíu stig, í stað átta áður, annað sætið gefur átta í stað sex og sex stig fást fyr- ir þriðja sætið, í stað fjögurra áður. Fjórða sætið gefur fimm stig, það fimmta fjögur, sjötta gefur þrjú og svo koll af kolli. Tímatökunum hefur verið breytt þannig að þær fara fram á föstudögum og laugardögum. Besti samanlagður tími ákvarðar röð keppenda á rásmarki. Þá fær hver bílstjóri að spreyta sig al- einn í brautinni. Dekkjaframleiðendur þurfa ekki lengur að láta lið hafa eins dekk. Fyrir vikið geta lið valið þau dekk sem þau telja henta sér best.  Formúla 1: Ánægðir með breyt- ingarnar YFIRMAÐURINN Bernie Ecclestone, yfirmaður Formúlu 1, hlustaði með athygli á nýja reglugerð í íþróttinni sem samþykkt var á mánudag. FÓTBOLTI Bryan Robson, fyrrver- andi knattspyrnustjóri enska liðsins Middlesbrough, hefur áhuga á að taka við stjórastarfinu hjá Íslendingaliðinu Stoke verði þess farið á leit við hann. „Ég er tilbúinn til að snúa aftur í fótbolt- ann og ég væri svo sannarlega tilbúinn til að heyra hvað hin ís- lenska stjórn Stoke hefði upp á að bjóða,“ sagði Robson. „Ég bý skammt frá Stoke og það myndi vissulega hafa áhrif á val mitt ef mér yrði boðin staða einhvers staðar.“ Stoke, sem er í 20. sæti ensku 1. deildarinnar, missti stjóra sinn Steve Cotterill til Sunderland þar sem hann mun gegna starfi að- stoðarknattspyrnustjóra. Auk Robson hefur landsliðs- maðurinn fyrrverandi, Stuart Pe- arce, meðal annars verið orðaður við Stoke.  Bryan Robson: Hefur áhuga á Stoke City ROBSON Robson gerði garðinn frægan sem leikmaður Manchester United. BROSMILD BRÚÐHJÓN Kólumbíski ökuþórinn í Formúlu-1 kappakstrinum, Juan Pablo Montoya, var brosmildur í meira lagi um síðustu helgi þegar hann gekk að eiga unnustu sína Connie Freydell. Athöfnin var haldin í bænum Cartagena undan ströndum Kar- abíahafsins. AP /M YN D Henrik Larsson, leikmaðurCeltic í skosku úrvalsdeild- inni, hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að skrifa undir nýjan samning við liðið. Samningur Larsson rennur út í lok næstu leiktíðar en hann hefur leikið með liðinu sjö keppnistímabil. Larsson hefur verið einn besti framherji Evrópu á undanförnum árum og hefur farið mikinn með sænska landsliðinu. Rick Fox, leikmaður L.A.Lakers í NBA-deildinni í körfubolta, hefur verið dæmdur í sex leikja bann fyrir að ráðast á Doug Christie, leikmann Sacramento Kings, í æfingaleik liðanna fyrir skömmu. Christie var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir þátttöku sína í slagsmálunum. Fox hefur beðist afsökunar á hegðun sinni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.